Tíminn - 23.05.1992, Side 10
10 Tíminn
Laugardagur 23. maí 1992
Eftirlit með mengandi fyrirtækjum:
Reglubundið eftirlit
ekki ennþá til staðar
Reglubundið eftirlit með mengandi fyrirtækjum er ekki ennþá haf-
ið í Reykjavík. Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík fer einungis í eftir-
litsferðir berist ábendingar um að eitthvað sé ekki eins og það á að
vera.
Mengandi atvinnurekstur hafði frest samkvæmt mengunarreglu-
gerð til 1. janúar 1991 til að sækja um starfssleyfi til heilbrigðis-
nefndar og er verið að vinna þessi starfsleyfi núna hjá Heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkur.
„Það vantar alveg reglur um
mengandi fyrirtæki svo vinnsla
starfsleyfa hefur gengið voða seint",
segir Tryggvi Þórðarson deildar-
stjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja-
víkur. „Við höfum þurft að móta þær
kröfur sem eðlilegt hefur verið að
gera. Endanlegar kröfur eru síðan
samþykktar af Heilbrigðisnefndinni
sem skilyrði fyrir starfsleyfi viðkom-
andi fyrirtækja þegar hún tekur fyr-
ir starfsleyfisumsóknir þeirra".
Þessi skilyrði fyrir leyfinu eru for-
sendur þess að hægt sé að stunda
eftirlit þar eð það gengur út á að at-
huga hvort kröfunum er framfylgt.
Að sögn Tryggva verður fyrst að
ganga frá veitingum starfsleyfa áður
en hægt verður að koma á skipu-
lögðum eftirlitsferðum: „Fyrst verð-
ur að móta kröfurnar áður en litið er
eftir því hvort þær eru haldnar".
Borið hefúr á kvörtunum um að
of dýrt sé að fara með mengandi úr-
gang í Sorpu og kjósi sumir þá leið-
ina að losa sig við hann úti í móum.
Tryggvi segir að í gjaldskrá Sorpu
muni við það miðað að hægt sé að fá
afslátt þegar miklu magni úrgangs
sé skilað: „Það er því ekki óhugsandi
að fyrirtækin séu að safna þessu upp
til að fá afslátt. Enn betra er að mörg
fyrirtæki eru farin að huga að því að
nota efni sem ekki eru hættuleg eða
nýta efnin sem þau eru með betur
svo að minna verði af úrgangi".
Tryggvi segir eðlilegt að fyrirtæki
sem framleiði svona úrgang greiði
fyrir eyðingu hans: „Það er langbest
að það komi beint við fyrirtækin því
AgroXtra
'tjTWlm
mm w*wr
'm
JfVil
Ql
&
3.57 60 hö DIN
4.07 65 hö DIN
4.17 75 hö DIN
4.57 90 hö DIN
6.07 100 hö DIN
6.17 113 hö DIN
Æmk-. /
M ‘
Frummyndin!
Nýju DEUTZ-FAHR traktorarnir eru fyrstu
traktorarnir sem framleiddir eru frá
grunni með vélarhlífina lægri að framan
en þekkst hefur hingað til. Nú skyggir
vélarhlífin ekki lengur á útsýnið og
yfirsýn yfir vinnusvæðið er óhindruð,
nokkuð sem er nauðsynlegt þegar unnið
er með ámoksturstækjum eða framtengd-
um jarðvinnslu- eða heyvinnuvélum.
Líttu við hjá okkur og reynsluaktu nýju
DEUTZ FAHR AgroStar traktorunum, eða
hringdu og fáðu nánari upplýsingar.
ÁRMÚLA 11 - BÍMI B81EOO
Hárrétt skipting þyngdar
á fram- og afturhásingu
tryggir hámarks
dráttarafl.
Aðgangur að öllum
hlutum traktorsins er
fljótlegur og þægilegur,
og umhirða því auðveld.
Það sparar tlma og
peninga.
.
það hvetur þau til að minnka úr-
ganginn; nýta hann betur, endur-
vinna hann eða taka upp notkun
annarra efna“.
Framkvæmdastjóra Heilbrigðis-
eftirlitsins Oddi Rúnari Hjartarsyni
hefur verið falið að koma með tillög-
ur að gjaldskrá fyrir heilbrigðiseftir-
litið þannig að tekin verði upp
starfsleyfis- og eftirlitsgjöld. Það
verður ekki aðeins gjaldtaka fyrir
mengandi starfssemi heldur alla eft-
irlitsskylda starfssemi, sem Heil-
brigðiseftirlitið í Reykjavík hefur á
sinni könnu.
—GKG.
Hækkun bóta almannatrygginga:
Þegargeng-
in f gildi
Bætur almannatrygginga hækka frá
1. maí um 1,7% frá því sem þær
voru í apríl 1992, samkvæmt reglu-
gerð frá Heilbrigðisráðuneytinu frá
14. maí 1992.
Hækkunin er þegar komin til
framkvæmda varðandi sjúkra- og
slysadagpeninga. Slysapeningar
hækka úr 654,60 kr. á dag í 665,70
kr. og sjúkradagpeningarnir ú
517,40 kr. í 526,20 kr.
Maíhækkunin á aðrar bætur verð-
ur greidd 3. júní með júníbótunum.
Breytingarnar verða til dæmis þann-
ig að elli- og örorkulífeyrir hækkar
úr kr. 12.123 á mánuði í kr. 12.329,
tekjutrygging ellilífeyrisþega verður
kr. 22.684 í stað 22.305, meðlag fer í
kr. 7.551 úr 7.425 og fæðingarstyrk-
ur, sem var kr. 24.671 á mánuði,
verður 25.090. —GKG.
Brynja Þorbjörnsdóttir nýráð-
inn framkvæmdastjóri Mark-
aösráðs Borgarness.
Brynja ráöin
til starfans
Brynja Þorbjömsdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Markaðs-
ráðs Borgamess en hún útskrífað-
ist sem rekstrarfræðingur frá Sam-
vinnuháskólanum á Bifröst nú í
vor.
Markaðsráð Borgarness er félag
fyrirtækja í Borgarnesi, stéttarfélaga
þar og bæjarfélagsins. Hlutverk þess
er að vinna að framfaramálum at-
vinnulífs í Borgarnesi.
Brynja er gift Þorvaldi Magnússyni
bónda að Kalastöðum í Hvalfirði og
eiga þau þrjú börn. —GKG.