Tíminn - 23.05.1992, Qupperneq 3
Laugardagur 23. maí 1992
Tíminn 3
FÁÐU ÞÉR SÆTI
Eigum fyrirliggjandi
DRÁTTARVÉLASÆTI
frá Massey-Ferguson
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
HÖFÐABAKKA 9 ■ 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-634000
____________:_s _ 1__________________
Nýja Zetorsins, Zetor 9540, hefur veriö beöiö meö mikilli eftirvæntingu.
ístékk hf.:
i veir nyir
Zetorar
ístékk teflir í ár fram tveimur nýj-
um gerðum af hinum vinsælu tékk-
nesku Zetor-dráttarvélum, sem
hafa í gegnum árin þjónað og
reynst íslenskum bændum vel.
Þetta eru Zetor Plus og Zetor
9540.
Zetor Plus er ný vél í 65-79 DIN-
hestafla flokki. í henni er sú breyt-
ing veigamest að hún kemur með
svokölluðum vendigír, þannig að í
raun eru því 10 gírar áfram og 10
afturábak. Það er skipt á milli aftur-
ábak og áfram með einu handtaki og
án þess að kúpla. Þessi nýja gerð
verður til afgreiðslu hjá ístékk nú
allra næstu daga. Sem dæmi um
verð má nefna að 70 DIN-hestafla
fjórhjóladrifin vél kostar um 1.170
þúsund. Zetor Pius-vélin hefur und-
anfarið verið í sölu í Noregi og hefur
líkað mjög vel. Sérstaklega hefúr
hún reynst vel þar sem notuð eru
ámoksturstæki og er þar nýja vendi-
gírnum um að þakka, sem dregur úr
kúplingssliti og vélin verður auð-
veldari í meðförum.
Hin nýjungin, sem bæst hefur í Ze-
tor-flotann, hefur hlotið heitið Zetor
9540 og hefur hennar verið beðið
með mikilli eftirvæntingu. Að baki
þessari nýju vél liggur alveg ný
hönnun og smíði. Um er að ræða 92
hestafla, fjórhjóladrifna dráttarvél
með samhæfðum gírkassa. Hún hef-
ur 40 km hámarksökuhraða og er
búinn bremsum á öllum hjólum.
Verðið á þessari nýju vél verður
mjög hagstætt, eða um 1.460 þús.
án virðisauka, sem er, að sögn
Magnúsar Ingþórssonar hjá ístékk,
langtum lægra en á sambærilegum
vélum öðrum.
Eins og áður sagði eru Zetor- vél-
arnar íslenskum bændum ekki
ókunnar, því þær hafa um árabil ver-
ið með mest seldu dráttarvélum hér
á Iandi. -PS
BÆNDUR
Vorvinnutæki
Eigum fyririiggjandi:
• Bögballe, eins og tveggja skífa, áburðardreifara
fyrir tilbúinn áburð.
• Ávinnsluherfi (slóðadraga), vinnslubreidd 3 m
• Hankmo hnífaherfi, vinnslubr. 3 m.
• Kuhn jarðtætara, vinnslubreidd 1,8 m og 2,05 m.
Gerið pantanir strax hjá okkur eða umboðsmönnum.
HOFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVIK • SIMI 91-634000
ÞETTA RÖR ER NÍÐSTERKT EN ÞÚ LEGGUR ÞAÐ SAMT LÉTTILEGA
REYKJALUNDUR - með vatnið á hreinui