Tíminn - 23.05.1992, Side 14
14 Tíminn
Laugardagur 23. maí 1992
Fiat Agri-verksmiðjumar ítölsku
eru einn stærsti framleiðandi í Evr-
ópu á dráttarvélum, en innflutning-
ur á þeim til íslands hófst árið
1986. Síðan hefur leiðin f þeim
innflutningi legið upp á við, og nú
er svo komið að Fiat hefur áunnið
sér traust og vinsældir meðal
margra íslenskra bænda. Globus,
sem er umboðsaðili Fiat-dráttarvél-
anna, er þessa dagana að kynna nýja
vél frá Fiat og hefur hún fengið
góðar viötökur. Þá teflir Globus
fram nýrri gerð af Welger-rúllu-
bindivél, sem kemur til með að
auka mjög hagkvæmni.
„Það er áframhaldandi vöxtur í sölu
á Fiat-dráttarvélum og það sem af er
árinu hefur salan verið mjög góð.
Við erum nú með nýja vél frá Fiat,
sem hefur hlotið heitið 8590 Hi-Lo.
Helstu breytingarnar frá öörum
gerðum eru, að í henni er annar gír-
kassi, sem er með vökvaskiptum
milligír eða nokkurs konar „overdr-
ive“. Þá er hún með samhæfðum
vendigír," sagði Magnús Ingþórsson,
Magnús Ingþórsson, forstööumaöur búvéladeildar Globus.
Fiat-dráttarvélar verða æ vinsælli hér á landi.
forstöðumaður búvéladeildar Glob-
us hf. í samtali við Tímann. Fyrsta
sending af þessum vélum kom í
byrjun maí og seldist hún upp á
skömmum tíma, en önnur sending
er væntanleg innan skamms. Það er
margt, sem sameinast í því að gera
vélina vinsæla. Má þar nefna að hún
er með mjög háþróuðu fjórhjóla-
drifi, með diskabremsur í olíubaði á
öllum hjólum, með mjög breiðu
ökumannshúsi þar sem pláss er fyr-
ir farþega, gírskiptingu til hliðar við
ökumann, 40 km ökuhraða og
vendigír. Flest af þessum atriðum
hafa framleiðendur Fiat boðið upp á
um lengri eða skemmri tíma, og
hafa í flestum tilvikum verið langt á
undan sinni samtíð.
Eins og áður sagði hófst innflutn-
ingur á Fiat-dráttarvélum árið 1986.
í fyrstu voru þær fluttar inn frá
Bretlandi, en á síðasta ári var því fyr-
irkomulagi breytt og nú erjj þær
fluttar inn beint frá framleiðanda.
Frá því þær breytingar tóku gildi,
hafa verið seldar um 70 vélar. „Það
munar okkur miklu að geta flutt
þær inn beint, bæði í verði og einn-
ig auðveldar það okkur alla þjónustu
við Fiat-eigendur. Vélin hefúr fengið
fantagóðar móttökur, enda enginn
aukvisi á ferðinni, þar sem Fiat hef-
ur verið söluhæsta dráttarvélin í
Evrópu frá 1979 og-frá sama tíma
söluhæsta fjórhjóladrifna dráttar-
vélin í heiminum," sagði Magnús
Ingþórsson.
Globus er umboðsaðili fyrir Wel-
ger-rúllubindivélar og þar kynnir
Globus enn eina nýjungina í ár. Um
er að ræða Welger RP 200 rúllu-
bindivél og voru fyrstu vélarnar af
þeirri gerð seldar í vetur. Helsta nýj-
ung í þessari vél er sérstakur möt-
unarvals, ívið stærra baggahólf og
ný tveggja metra breið sópvinda.
Mötunarvalsinn gerir kleift að auka
heymagnið í bagganum um 20%,
með aukinni þjöppun, en einnig er
JEPPADEKK OG
FÓLKSBÍLADEKK
Á FRÁBÆRUM
GÚMMÍVINNUSTOFAN HF.
SKtPHOLT! 35 5. 91-31055 OG RÉTTARHÁLSt 2 5. 91-814008 & 814009