Tíminn - 23.05.1992, Qupperneq 16

Tíminn - 23.05.1992, Qupperneq 16
16 Tíminn Laugardagur 23. maí 1992 FÉLAGSLEG RÉTTINDI BÆNDA Lífeyrissjóöur Lífeyrissjóðurinn var stofnaður með lögum nr. 101/1970 og hóf starfsemi 1. janúar 1971. Lögum um sjóðinn hefur verið breytt alloft, en árið 1984 var sett ný heildarlög- gjöf um sjóðinn, sem er að megninu til enn í gildi. Sjóðfélagar skulu vera allir bænd- ur og makar þeirra, en bóndi í þessu sambandi telst sá er stundar búskap á lögbýli sem er lögheimili viðkom- andi, enda hafi hann náð 16 ára aldri fyrir lok næsta almanaksárs á undan. Búi bóndi í óvígðri sambúð, eiga bæði rétt á sjóðsaðild ef þau eiga sameiginlegt lögheimili og hafa átt, eða eiga, von á bami saman eða sam- búðin hefur varað samfleytt í tvö ár, enda óski þau þess bæði skriflega. Launþegar, sem stunda störf við landbúnað, skulu vera sjóðfélagar, enda hafi þeir náð 16 ára aldri og eigi ekki sjálfsagða aðild að öðmm sjóði. Maki launþega í landbúnaði telst ekki sjóðfélagi. Elli- og örorkulífeyr- isþegar sjóðsins teljast sjóðfélagar. Iðgjöld bænda (framleiðenda) em innheimt af söluaðilum landbúnað- arafurða, sem lögákveðinn hundr- aðshluti (1.25%) af verði til fram- leiðenda fyrir innlagðar afurðir. Eng- inn greiðir þó hærra iðgjald en nem- ur 4.2% af þreföldum viðmiðunarlaunum giftra bænda, en ógiftir bændur greiða iðgjald allt að hálfum öðmm viðmiðunarlaunum. Söluaðilar afúrða skulu innheimta iðgjöld jafnóðum og greiðslur fara fram til bænda og standa skil á þeim til sjóðsins mánaðarlega, en stjóm sjóðsins er þó heimilt að ákveða að slík skil fari fram sjaldnar. Iðgjöld bónda og maka hans, sambýliskonu eða sambúðarmanns vegna búr- ekstrar skulu skiptast á milli þeirra til helminga, nema sjóðstjóm hafi fallist á rökstudda beiðni um aðra skiptingu. Á móti iðgjöldum sjóðfé- laga skal leggja gjald á allar búvömr og skal gjald þetta vera ákveðinn hundraðshluti af verði til framleið- enda. Er hundraðshluti þess ákveð- inn þannig, að heildarfjárhæð mót- framlags skal vera 50% hærri en ið- gjöld framleiðenda. Ráöherra ákveð- ur hundraðshlutann, að fengnum tillögum sjóðstjómar, fyrir hvert al- manaksár. Þó skal gjaldið ekki vera lægra en 1.6% af heildarverðmæti búvara á almanaksárinu. Fram- kvæmd þessa ákvæðis hefur verið á þann hátt, að framlagið hefúr verið tekið af niðurgreiðslufé og ríkissjóð- ur greitt það til sjóðsins. Iðgjöld launþega, sem ekki em sjóðfélagar, skulu vera 10% af öllum launum, hverju nafni sem þau nefh- ast, og teljast 4% vera iðgjald laun- þega en 6% framlag vinnuveitanda. Iðgjöldum launþega ber launagreið- anda að halda eftir af launum og standa sjóðnum skil á þeim ásamt eigin framlagi. Ellilífeyrir Hver sjóðfélagi, sem greitt hefúr iðgjöld til sjóðsins f 12 mánuði eða lengur og öðlast a.m.k. 0,500 stig, á rétt á ellilífeyri úr sjóðnum frá og með 1. næsta mánaðar, eftir að hann nær 67 ára aldri. Sjóðfélaga er heim- ilt að fresta töku eílilffeyris til 70 ára aldurs og hækkar þá upphæð lífeyr- isins vegna réttinda, sem áunnin vom fram til 67 ára aldurs um 0,4% fyrir hvern mánuð sem töku lífeyris- ins er frestað. Upphæð lífeyris skv. framansögðu er ákveðinn hundraðshluti af fjár- hæð, sem nemur 80,1% af viðmið- unarlaunum, eins og þau em 1. jan og 1. júlí hvert ár. Stig umfram 40 myndu þó veita minni rétL Hundr- aðshluti þessi er ákveðinn með því að margfalda áunninn stigafjölda með 1,8. Þeir bændur, sem fæddir em 1914 eða fyrr, fá að auki áætlaða viðbót á eftirlaun við 70 ára aldur, ef þeir em hættir búskap, enda hafi þeir verið við búskap í minnst 10 ár eftir 55 ára aldur og eftir 1. janúar 1955. Ef þeir halda áfram að vinna við búskap fram yfir 75 ára aldur, fá þeir einnig eftirlaun. í þessum hópi em þeir, sem stunduðu búskap áður en sjóð- urinn var stofhður og höfðu því ekki aflað sér réttinda í sjóðnum. Örorkulífeyrir kjörböm sjóðfélaga, sem undanfama 6 mánuði hefur greitt iðgjöld til sjóðsins eða notið úr honum elli- eða örorkulífeyris, rétt á lífeyri úr sjóðn- um til 18 ára aldurs. Umsóknir um lífeyri og upphæðir Umsóknir um lífeyri skulu sendar sjóðnum á sérstöku eyðublaði, sem formenn búnaðarfélaga eiga að hafa undir höndum, ásamt staðfestu Ijós- riti af skattframtali og landbúnaðar- skýrslu síðasta árs. Frá og með 1. janúar 1988 hefur lífeyrir verið greiddur út mánaðar- lega inn á bankareikninga lífeyris- þega. Greiðsludagur lífeyris er að öðm jöfnu 20. hvers mánaðar, eða næsti vinnudagur þar á eftir, beri þann 20. upp á frídag, og er þá greitt fyrir yfirstandandi mánuð. Lífeyrissjóðurinn Iánar ekki beint til bænda, heldur notfærir sér lána- kerfi Stofhlánadeildar á þann hátt, að sjóðurinn lánar Stofnlánadeild- inni, sem síðan endurlánar féð til af- markaðra lánaflokka með ákveðnum skilyrðum. Stofnlánadeild landbúnaöarins Bændur! Lausnin er.................... DENNISON merkibyssan. Ódýr og einfold lausn til merkingar á lömbum. Merkibyssa ásamt plastskotum og nál aðeins kr. 3.312,-. SNÆFELL HF. Langholtsvegur 109, pósth. 4046 124 Reykjavík. Símar 91 - 30300 / 33622 BÆNDUR • CLAAS rúllubindivélar Meðal þess útbúnaðar, sem er innifalinn í verði þessara véla en telst gjarna til aukabúnaðar hjá öðrum, má nefna: ■ Búnað i ekilshúsi drátlarvélar sem gefur Ijós- og hljóðmerkl þegar bagginn er tilbúinn svo stjórnandi geti byrjað að binda m Vökvalyfta sópvindu Matara fyrir sópvindu, sem m.a. kemur i veg fyrir að hey flækist eða stöðvist í aðfærslustokki ■ Sérstakan búnað, sem kemur i veg fyrir að smágert hey slæðist m Sjálfsmurðar keðjur af yfirstærð • Breiðdekk. 15.5/55X17. ■ Baggasparkara m Landhjól á sópvindu m Tvöfaldan bindibúnað m Baggahólf sem haldið er saman með vökvaþrýstingi, en ekki læs- ingu, svo ekki erhætta á skemmd- um, þótt oftroðið sé i vélina. CLAAS R46 rúllubindivélin er algengasta rúllubindivélin á íslandi. íslenskir bændur þekkja vel CLAAS þjonustuna. CLAAS R46 hentar islenskum aðstæðum sérlega vel, fíngerðu og fremur þungu heyi. M lés oiífy Hver sjóðfélagi, sem verður fyrir orkutapi til langframa, á rétt á ör- orkulífeyri, að því tilskildu að hann hafi greitt iðgjöld til sjóðsins í a.m.k. 18 mánuði fyrir orkutapið, eða þrjú undanfarin almanaksár og a.m.k. sex mánuði á undanfömum 12 mánuð- um, og örorka hans til landbúnaðar- starfa sé metin af trúnaðarlækni a.m.k. 40%. Örorkulífeyrir fellur niður við lok þess almanaksárs er sjóðfélagi nær 67 ára aldri, enda hefst þá taka ellilífeyris. Makalífeyrir Makalífeyri á eftirlifandi maki sjóðfélaga rétt á, að því tilskildu að sjóðfélagi hafi greitt iðgjöld til sjóðs- ins í að minnsta kosti 18 mánuði, hjónabandið staðið í a.m.k. 2 ár. Láti sjóðfélagi eftir sig bam innan 18 ára aldurs, sem hann hefúr átt með eftir- lifandi maka sínum, skal makalífeyr- ir þó veittur til 18 ára aldurs, án til- lits til hjúskapartíma. KJörbam nýt- ur sama réttar, enda hafl ættleiðing átt sér stað fyrir 60 ára aldur sjóðfé- Iagans, áður en hann missti starfs- orku sína og a.m.k. einu ári áður en hann lést. Einnig er heimilt að greiða makalífeyri til eftirlifandi systur sjóðfélaga og sambýliskonu, enda hafi tilkynning um að þess sé óskað borist sjóðnum skriflega a.m.k. einu ári fyrir fráfall sjóðfélaga. Barnalífeyrir Við andlát sjóðfélaga eiga böm og Stofnlánadeildin lánar fé til fram- kvæmda á lögbýlum og eiga allir bændur, sem búa á lögbýlum, kost á lánum úr sjóðnum, auk tilrauna- stöðva, ræktunarsambanda og vinnslustöðva landbúnaðarins. Em árlega gefnar út reglur um lánveit- ingar úr Stofnlánadeild landbúnað- arins. Með umsóknum um framkvæm- dalán skal fylgja umsögn héraðs- ráðunautar, veðbókarvottorð, upp- dráttur að byggingum og búrekstr- aráætlun til 5 ára, auk umboðs og veðleyfis ef með þarf. Þurfa umsókn- ir vegna ráðgerðra framkvæmda á næsta ári að hafa borist fyrir 15. september ár hvert. Þó em undan- tekningar á þessum umsóknarfresti, sem em umsóknir vegna jarðakaupa og bústofnskaupa, en það síðasttalda er einungis veitt fmmbýlingum fyrstu þrjú búskaparárin og votta oddviti og hreppstjóri um kaupin. Rétt er að benda á að reglur eru í gildi varðandi hámarksstærð bygg- inga, fjósa, fjárhúsa, hænsnahúsa, svínahúsa, verkfærahúsa, gróður- húsa og fjölda dráttarvéla. Eins og áður sagði annast Stofn- lánadeildin lánveitingar fyrir Lífeyr- issjóð bænda, sem fellur að mestu leyti inn í lánakerfi Stofnlánadeild- arinnar. Þó hefur frá 1980 verið heimilt að veita svokölluð „óbundin lán“, þ.e. lán veitt án skilyrða um ráðstöfrm, sem em veitt sjóðfélögum, sem myndað hafa veruleg réttindi hjá sjóðnum FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Siðumúla 39 ■ 108 Reykjavlk ■ Simi 678500 • Fax 686270 Félags- og tómstundastarf aldraðra hjá Reykjavíkurborg Sumarferðir og orlof Hinar árlegu sumarferðir ásamt orlofsdvöl að Löngumýri hafa verið skipulagðar og tímasettar. Allar nánari upplýsingar með dagsetningum birtast í Fréttabréfi um málefni aldraðra, sem sent veröur um þessar mundir til Reykvíkinga, 67 ára og eldri. Pantanir og upplýsingar í sima: 689670 og 689671 frá kl. 9:00-12:00 frá og með 25. maí. Öldrunarþjónustudeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. HOFÐABAKKA 9 ■ 112 REYKJAVIK ■ SIMI 91-634000

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.