Tíminn - 23.05.1992, Síða 17
Laugardagur 23. maí 1992
Tíminn 17
FÉLAGSLEG RÉTTINDI BÆNDA
Bjarg ráöasjóðu r
Starfsemi sjóðsins skiptist í tvær
deildir, almenna deild og búnaðar-
deild. Hlutverk almennu deildarinnar
er að veita fjárhagsaðstoð vegna
meiriháttar tjóna á fasteignum og
lausafé af völdum náttúruhamfara, að
svo mildu leyti sem ekki er hægt að
tryggja sig gegn slíkum tjónum eða fá
þau bætt með öðrum hætti. Búnaðar-
deildinni er ætlað að að bæta meiri
háttar tjón vegna búfjárdauða af vöid-
um sjúkdóma eða slysa, þar sem gá-
Ieysi eiganda verður ekki kennt um.
Þá veitir búnaðardeildin fjárhagsað-
stoð til fóðurkaupa vegna grasbrests
af völdum kulda, kals eða óþurrka til
að afstýra óeðlilegri förgun búfjár, til
að bæta uppskerubrest á garðávöxtum
og til að veita fjárhagsaðstoð vegna
verulegs afurðartjóns á sauðfé og
nautgripiun.
Stjóm sjóðsins tekur ákvarðanir
um fyrirgreiðslu, setur reglur um
verðlagningu, mat tjóna og eigin
áhættu tjónþola. Þá er tekið tillit til
nýtingar fullvirðisréttar í sauðfjár- og
mjólkurframleiðslu. Umsóknir um
fjárhagsaðstoð skuiu berast innan árs
frá því að tjón varð.
3) Að stuðla að samvinnu aðila, sem
fyrirgreiðslu veita og hafa skyldur við
atvinnusköpun í landinu, einkum á
landsbyggðinni.
4) Að stuðla að upplýsingum á
skipulegan hátt, sem leitt geta til
markvissari og fjölbreyttari atvinnu-
uppbyggingar í sveitum, með aðild að
upplýsingaöflun og könnunum og
samvinnu við upplýsinga- og fræðslu-
stofnanir.
Á fyrsta starfsári embættisins leit-
uðu þriðja hundrað manns ráðgjafar
um viðfangsefni sem snúa að nýsköp-
un í sveitum, en gert er fyrir að verk-
efnið standi til loka þessa árs.
Forfalla- og afleysinga-
þjónusta í sveitum
Bændur og húsfreyjur í sveit eiga
rétt á forfalla- og afleysingaþjónustu í
allt að 24 daga á ári, þegar veikindi eða
slys ber að höndum. Sveitafólk, sem
stundar önnur störf með landbúnaði, á
rétt til þessarar þjónustu í hlutfalli við
vinnuframlag sitt við landbúnaðinn.
Sængurkonur eiga rétt á 10 daga af-
leysingu og lengur, ef á eftir bams-
burði fylgja veikindi. Þeir, sem þurfa á
læknisskoðun að halda, eiga rétt á af-
leysingaþjónustu, þótt þeir séu ekki
nimliggjandi. Forföll þurfa að vera
meiri en tveir dagar til að réttur sé til
afleysingaþjónustu. Sérstök stjóm
hefur umsjón með rekstri forfallaþjón-
ustunnar og er hún skipuð einum
manni frá Búnaðarfélagi Islands, ein-
um frá Stéttarsambandi bænda og ein-
um tilnefndum sameiginlega af bún-
aðarsamböndunum. Þess ber að geta
að unnið er að breytingu reglugerðar
um forfalla- og afleysingaþjónustuna.
Gistiafsláttur á Hótel
Sögu
Frá 1. október til loka apríl eiga
starfandi bændur og húsfreyjur kost á
gistingu á Hótel Sögu á svokölluðum
„bændataxta". Sama rétt eiga bústjór-
ar á opinberum búum og þeir, sem
voru starfandi bændur á árunum
1959-69 (þ.e. greiddu gjald til Bænda-
hallarinnar). Afslátturinn faest gegn
framvísun afsláttarkorta, sem gefin
em út af Búnaðarfélagi íslands og
Stéttarsambandi bænda.
Hér hefur verið stiklað á stóru um rétt-
indi bænda, en þess að auki ber að benda á
bætur Tryggingastofnunar ríkisins, en
víða liggja frammi bæklingar um reglur
vegna bótagreiðslna frá stofnuninni.Þessi
grein er unnin í samvinnu við Upplýs-
ingaþjónustu bænda.
ELHO PO KKU N ARVELAR
einfaldar oa afkastamiklar
Framleiðnisjóður land-
búnaðarins
í lögum um sjóðinn segir að ákveð-
ið hlutfall af heildarverðmæti búvöru-
framleiðslunnar renni til sjóðsins og
skal því varið til „eflingar nýrra bú-
greina, markaðsöflunar og til fiárhags-
legrar endurskipulagningar búrekstr-
ar á Iögbýlum", eins og segir orðrétt í
lögum um sjóðinn. Þá eru lítilsháttar
tekjur af fóðurgjaldi, sem vetja skal til
áþekkra viðfangsefna. Starfssvið sjóðs-
ins er að veita framlög til búháttar-
breytinga á lögbýlum þar sem dregið
er úr hefðbundinni búvöruframleiðslu
og hafin önnur starfsemi. Veita fram-
lög til stofnunar atvinnurekstrar í
dreifbýli þar sem bændur eða samtök
þeirra eiga aðild. Veita framlög til
rannsóknar- og þróunarverkefna af
ýmsu tagi, svo og til markaðsöflunar
fyrir landbúnaðarvörur og að fullnusta
samninga um kaup og leigu á fullvirð-
isrétti í samræmi við ákvæði samn-
inga.
Smáverkefnasjóður
landbúnaöarins
Hlutverk sjóðsins, sem stofhaður
var af Framleiðnisjóði landbúnaðarins
og með samþykki sjóðstjómar í des-
ember árið 1990, er að styrkja verkefni
eða þróun verkefna, sem falla ekki
undir verkefhi Framleiðnisjóðs, en
geta stuðlað að atvinnusköpun og at-
vinnuþróun í strjálbýli. Stjóm sjóðsins
er skipuð fulltrúum Framleiðnisjóðs
iandbúnaðarins, Stéttarsambands
bænda og Landbúnaðarráðuneytis.
Á fyrsta starfsári sjóðsins sóttu um
40 manns um fyrirgreiðslu úr sjóðn-
um.
Atvinnumálafulltrúi
Einnig var með tilstyrk Framleiðni-
sjóðs landbúnaðarins stofnað til emb-
ættis atvinnumálafulltrúa Stéttarsam-
bands bænda í desember 1990 og lýtur
embættið stjóm Samstarfsnefhdar um
atvinnu í sveitum. Starfar atvinnu-
málafulltrúi á skrifstofu Stéttarsam-
bandsins og er markmið með stofnun
embættisins að stuðla að atvinnusköp-
un í sveitum, einkum í Ijósi samdrátt-
ar í hefðbundinni landbúnaðarfram-
leiðslu, vannýtingar vinnuafls og fjár-
festingar vegna framleiðslutakmark-
ana í landbúnaði. Verkefni
atvinnumálafulltrúans er margþætt
og eru eftirfarandi:
1) Úrlausn — þjónusta og ráðgjöf til
aðila sem leita aðstoðar, einnig kynn-
ing og fræðslufundir almenns eðlis í
hémðum í samvinnu við hlutaðeig-
andi aðila.
2) Skipulagt fræðslu- óg fundahald
um einstök svið, þætti eða viðfangs-
efni með áhuga- eða hagsmunahópum
í einstökum byggöum eða héruðum.
Mikil afköst, góður og einfaldur útbúnaður hafa
einkennt ELHO pökkunarvélarnar.
Allar ELHO pökkunarvélarnar eru með
sjálfhreinsandi pökkunarborð.
Filmuskeri og filmutengi sem skera á filmuna að
lokinni pökkun og tengja hana á næsta bagga án
þess að ökumaðurinn þurfi að yfirgefa
ökumannshúsið.
Öllum aðgerðum vélarinnarer stjórnað með
kapalstýringu úr ökumannshúsi.
Filmu og baggateljari eru inni í ökumannshúsinu
sem gerir notandanum mögulegt að fylgjast
áhyggjulaust með pökkun bagganna og
filmunotkun.
Fallmotta er aftan á vélinni sem tekur við bagganum
um leið og hann fellur af pökkunarborðinu.
Nú býður ELHO einnig nýjung sem erfallrampur
aftan á vélinni sem tekur við bagganum af
pökkunarboröinu og leggur hann á jörðina án þess
að nokkuð fall komi á hann.
]reinsandi
'narborð
]annshú: