Tíminn - 23.05.1992, Síða 19

Tíminn - 23.05.1992, Síða 19
Laugardagur 23. maí 1992 Tíminn 19 Eugene Fleer drap vin sinn til aö villa um fyrir lögreglunni, en þaö dugöi honum ekki til aö sieppa. Var morðinginn látinn? Lögreglan stóð nú frammi fyrir þeirri spumingu hvort Roscoe Be- ach hefði myrt Stacy og drenginn til að hefna sín á föðurnum, en ekki var hægt að ákæra eða yfirheyra látinn mann. Þá heyrðist að það hefði alls ekki verið Roscoe sem hótaði föður drengsins, heldur Eugene Fleer. Þessar upplýsingar urðu til þess að sá möguleiki opnaðist að Fleer hefði drepið Roscoe til að koma á hann sökinni og ennfremur til þess að koma í veg fyrir að hann segði frá því hver morðinginn var. Nánari rannsókn leiddi einnig í ljós að Roscoe hefði ekki verið forfallinn kókaínneytandi. Því hefði hann gætt sín vel, er hann tók efnið, og því ólíklegt að hann hefði tekið of stór- an skammt óviljandi. Lögreglan var ráðalaus. Hún taldi sig vita hvað gerst hafði, en gat ekki sannað það. Ekki var talið óhætt að ákæra Fleer að svo stöddu, því ef hann yrði sýknaður var ekki hægt að kæra hann aftur fyrir sama glæp. Nú eða aldrei Fleer sat í tvö ár í fangelsi fyrir fíkniefnamisferli. Er honum var sleppt, stóð málið enn í sömu spor- um. Saksóknari og lögregla komust að þeirri niðurstöðu að það yrði að láta reyna á það fyrir rétti hvort Fleer yrði sýknaður. Hann var því ákærð- ur fyrir tvö morð og færður í gæslu- varðhald að nýju. Vitni voru leidd fram, sem kváðust hafa heyrt Fleer hóta föður litla drengsins, og önnur sem kváðust hafa séð hann á morðdaginn fara Lausn á síðustu krossgátu inn í húsið þar sem morðin voru framin. Verjendur Fleers brugðu á það ráð að dæma vitnin ómerk sem eitur- lyfjaneytendur og aumingja. Að auki sögðu þeir augljóst að morðinginn væri Roscoe Beach. Hann hefði haldið til hússins til að myrða drenginn og móður hans í hefndar- skyni, hitt þá Stacy þar fyrir og drep- ið hana til þess að losna við óæsld- legt vitni. Kviðdómur lengi að ákveða sig Vitnaleiðslumar tóku fimm daga. Réttarsalurinn var fullur af ættingj- um og vinum hinna myrtu. Þegar kviðdómur dró sig loks í hlé, var hann lengi í burtu. Margir töldu það bera þess vitni að dómurinn félli þannig að Fleer yrði dæmdur sekur, en aðrir sögðu að því lengur sem kviðdómur væri að ákveða sig þeim mun meiri líkur væru á sýknudómi. Andrúmsloftið var hlaðið spennu, þegar kviðdómur kom fram og kvaðst hafa komist að niðurstöðu. Úrskurðurinn var sá að Eugene Fleer var sekur fundinn um að hafa framið tvö morð að yfirlögðu ráði. Þegar úrskurðurinn var lesinn, trylltist Fleer. Hann stökk á fætur og öskraði: „Þið hafið trúað orðum helv... lygara. Ég er saklaus. Það var Roscoe sem kálaði krakkanum og stelpunni." Þung refsing Kviðdómendum var einnig gert að ákveða refsingu þá er Fleer skyldi hljóta. Saksóknari hélt ræðu þar sem hann fór fram á dauðarefsingu. Hann lýsti því á myndrænan hátt, hvernig Fleer hefði ákveðið að drepa Tyler var bara þriggja ára, þegar hann lét lífiö fyrir mistök fööur sfns. lítið bam í hefndarskyni fyrir pen- inga sem hann hafði tapað á fíkni- efnaviðskiptum. Síðan hefði hann ekki hikað við að myrða stúlku, sem var málinu alls óviðkomandi og hafði ekkert til saka unnið ann- að en að vera á vitlausum stað á vit- lausum tíma. Verjandi Fleers fór aftur á móti fram á fangelsisdóm. Hann hélt fast við þá skoðun sína að saklaus mað- ur væri fyrir rétti og tilkynnti að málinu yrði áfrýjað og farið fram á ný réttarhöld, hver sem dómurinn yrði. Kviðdómur var ekki lengi að kom- ast að niðurstöðu að þessu sinni. Ákvörðun hans var sú að Fleer skyldi dæmdur í ævilangt fangelsi með möguleika á náðun eftir 40 ár. Þegar málið var til lykta leitt, sagði lögreglustjórinn við fjöl- miðla: „Þetta mál tók okkur langan tíma og margir héldu að við hefð- um gefist upp. En ég gat sagt ykkur að í þessi tvö ár hefur ekki liðið sá dagur að við höfum ekki haft morð þessara ungmenna í huga.“ NYCZH33XDRP 200 RULLUBINDIVEL 10% stærra rúlluhólf Stærsta nýjung í rúllubindivélum frá upphafi. Ný 2ja metra lágbyggð sópvinda með mötunarvalsi sem þjappar heyinu inn í baggahólfið og varnar þvíjafnframt að innmötunarbúnaður vélarinnar stíflist. Þessi búnaður eykur heymagnið í bagganum um 10%. Nýr söxunarbúnaður með 14 hnífum, saxar heyið um leið og það fer inn í rúlluhólfið hólfið. Söxunin bætir verkun heysins, auðveldar gjöf og eykur heymagn rúllunnar um 10%. Auk þess er sjálfvirkt garnabindikerfi með sþarnaðar stillingu sem sparar allt að 35% í garnnotkun. Með þessum nýjungum má ná fram eftirfarandi: 20% sparnaði í plastnotkun. 20% minna geymslurými. 20% færri rúllur að flýtja og koma fýrlr. 20% sparnaði ef keypt er rúllun og pökkun. Ný 2 metra lágbyggð sópvinda Welger rúllubindivélar hafa um árabil verið mest seldu rúllubindivélarnar hér á landi sem og í Evrópu. Ástæða þess er einstakt gangöryggi, áralöng ending og góð þjónusta sérþjálfaðra þjónustuaðila um allt land. Ui/Pt' Nýr söxunarbúnaður G/obusr heimur gceða LAGMÚLA 5 - REYKJAVÍK - SÍMI 91 - 681555

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.