Tíminn - 27.05.1992, Side 1
Miðvikudagur
27. maí 1992
96. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Búist er við að áburðarsala á þessu ári verði 6.000-8.000 tonnum minni en í fyrra:
Aburðarsala minnkaði
um 25% á átta árum
Búist er við 10-12% samdrætti í áburðarsölu á þessu ári. Astæð-
urnar eru þær að síðasta sumar var hlýtt og spretta góð. Mikið er því
til af heyjum hjá bændum. Við þetta bætist mikill samdráttur í land-
búnaði. Stjórnendur Aburðarverksmiðjunnar gera ráð fyrir í áætl-
unum sínum að samdrátturinn nemi a.m.k. 6.000 tonnum, en
hann gæti hæglega orðið meiri. Sala áburðar það sem af er þessu
vori bendir til að samdrátturinn gæti orðið á bilinu 10-12%.
sem sinna gróðurvemd er sáralítill
hluti af heildarsölu Áburðarverk-
smiðjunnar. Stjórnendur Áburðar-
verksmiðjunnar eiga því ekki annan
kost en að draga saman og aðlaga sig
minnkandi markaði.
Hákon sagðist gera ráð fyrir að
sala á áburði haldi áfram að dragast
saman í takt við samdrátt í landbún-
aði. Gert er ráð fyrir að sauðfé í land-
inu fækki um 15-18% á næsta ári og
samdráttur í mjólkurframleiðslu
verði 5%.
-EÓ
SIFer
6ðára
Sölusamtök íslenskra físk-
framleiðenda fagna sextugsaf-
mæli um þessar mundir og er
aðalfundur samtakanna hald-
inn í dag.
Af því tilefni ræddum við við
Dagbjart Einarsson, formann
samtakanna.
Sjá viðtal bls. 8 og 9
Frá árinu 1984 hefur sala á áburði
dregist saman 25%. Verulegur sam-
dráttur varð um miðjan síðasta ára-
tug, en síðan stóð áburðarsalan í
stað í nokkur ár. Á þessu ári virðist
salan ætla að dragast verulega sam-
an.
Hákon Bjömsson, framkvæmda-
stjóri Áburðarverksmiðjunnar, sagði
að samdráttur í sölu á áburði kæmi
eðlilega illa við verksmiðjuna. Hann
sagði að hún hefði verið að undirbúa
sig undir minni umsvif á síðustu ár-
um með fækkun starfsfólks og hag-
ræðingu á ýmsum sviðum. Hákon
sagði að reiknað hefði verið með
10% samdrætti í áburðarsölu í
rekstraráætlunum Áburðarverk-
smiðjunnar fyrir þetta ár. Hann
sagði að ef samdrátturinn yrði meiri
yrði mjög erfitt að komast hjá halla-
rekstri. Of snemmt væri hins vegar
að segja til um afkomuna á árinu.
Áburðarverð hækkaði um 2% í vor.
Á síðustu árum hefur sala á
áburði til landgræðslu dregist sam-
an ár frá ári. Áburðarsala til Land-
græðslu ríkisins og annarra aðila
Námskeið Slysavarnarféiagsins
fyrir barnafólk:
Ekki gott að
setja hníf á
kulu a hofði
Gamla húsráðið að setja hnífa á Mælst er til þess að tvíhjól séu
kúlur á höfði er ekki talið æski- ekki keypt fyrir böruin fyrr en
legt lengur, að sögn Herdísar þau eru orðin 6 ára og barnið sé
Storgaard, hjúkrunarfræðings þá aðstoðað og því kennt að
og starfsmanns Slysavarnarfé- hjóla: „Þá er jafnvægisskynið
lagsins við átakið „Vöm fyrir þroskað. Með hjálpardekkjunum
böm“. komast börnin á svo rosalega
„Þetta gerir ekkert gagn. Þetta ferð en geta ekki notað önnur
er biæðing sem er búin að safn- skynbrögö. Þessi böm sem ero
ast saman og það er bara verið að nú úti á götunum kunna ekki
dreifa blæðmgunnL Það heldur einu sinni að bremsa. Þau eru á
áfram að blæða í yfír sólarhring. skóm sem era orðnir tálausir því
Setja á frekar þrýstingsumbúðir þau bremsa með þeim.“
yfír kúluroan brjóta saman Herdís segir að meðan börain
þvottapoka, setja teygjubindi yfir eru að nota þá getu sem þau
og hafa til næsta dags.“ hafa, séu þau ckki fær um að var-
í þrjú ár hefur Herdís haldíð 8 ast allar hættur í umferðinni.
klukkustunda námskeið um allt Foreldrum her einnig að gæta
land ætluö fóstrum og foreldrum þess að festa reiðhjólahjálmana
þar sem hún gefur ýmis góð ráð. almennilega á börain sín. Þeir
Til dæmis er fjallaö um fall, sár, verða að hylja hnakka og enni
bruna, eitranir og höfuðbögg. svo eitthvað gagn sé að þeim.
Leitast er við að útskýra hvað Einnig þarf að gæta þess að
gerist við þessi slys, farið í fyrir- baraabílstólarair séu almenni-
bygginga og hveraig bregðast Icga festir í bílnum, en fólk virö-
skal við þehn. ist ekki alltaf hafa lesið leiðbein-
Hjól bamanna eru gerð að sér- ingamar sem þelm fylgja.
stöku umfjöllunarefni og er þar Herdís segir unga foreldra
stuðst við sænskar kannanir. vera mjög meðvitaða um þessi
Herdís telur börn vera allt of lítil mál og pabbarnir komi alveg
þegar þau eru sett á hjól með jafnt á námskeiðin og mömm-
hjálpardekkjum en þannig hjól urnan „Þetta er fólk sem veit
eru tíl fyrir böm á aldrinum 2 og talsvert en er komið tíl að vita
1/2 árs. meira,“ segir Herdís. —GKG.
Bera Nordal viö eina hinna jórdönsku mósaíkmynda sem sýndar verða. Tímamynd Ami Bjama
Sýning á vegum Listahátíðar í Listasafni íslands:
Menning frá Jórd-
aníu og Palestínu
„2000 ára litadýrð“ er yfirskrift
sýningar á mósaíkmyndum og bún-
ingum frá Jórdaníu og Palestínu
sem opnuð verður á laugardaginn
af Prins Bin A1 Hussein.
Það verður í fyrsta skipti sem
listaverk frá þessum heimshluta eru
sýnd á íslandi en elstu verkin eru
1500 ára gömul.
í Jórdaníu fundust mósaíkverk
fyrst í lok 19. aldar og eru þau elstu
talin vera allt frá 1. öld fyrir Krist.
Þau voru notuð til að skreyta gólf
baðhúsa og heimili heldri fólks á
tímum Rómverja en síðar kirkjur og
kapellur.
Búningarnir og skartið eru frá
seinni hluta 19. aldar. Þessi hluti
sýningarinnar var fenginn að láni úr
einkasafni frú Widad Kawar sem býr
í Amman og hóf ung að safna bún-
ingum og fylgihlutum þeirra.
Að sögn Beru Nordal, forstöðu-
manns Listasafns íslands, er kominn
tími til að kynna þetta menningar-
svæði þaðan sem við fáum venjulega
ekkert annað en stríðsfréttir.
Sýningin er farandsýning sem
hófst á Ítalíu en kemur héðan frá
Danmörku. Þar eð verkin eru talin
ómetanleg tóku Jórdanir hana á rík-
isábyrgð.
—GKG.
Ný Markarfljótsbrú
opnuð eftir mánuð
Pramkvæmdir við nýju Markar-
fljótsbrúna eru allar á réttu róli og
er gert ráð fyrir því að bæði vegur
og brú verði komin í notkun um
mánaðamótin júní-júh'.
Verktakafyrirtækið Suðurverk
hefur nýlega lokið við sinn þátt í
framkvæmdunum sem var vega-
lagning og bygging varnargarða yfir
Markarfljótsaura. Nú er byrjað að
leggja klæðningu á veginn og er
gert ráð fyrir að búið verði að því
undir lok júní en þá er áætlað að
taka brúna í gagnið. Ekki er reiknað
með neinni formlegri viðhöfn þegar
það verður gert. —SBS Selfossi