Tíminn - 27.05.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 27.05.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Serbneskir liðsforingjar neita að yfirgefa höfuðborg Bosníu: Ovissa og upplausn ríkir enn í Sarajevo Móöir og bam flýja frá Sarajevo. Óvissa ríkti í gær um það hvort 1.500 júgósiavneskir sam- bandsstjómarhermenn, sem lokast höfðu inni í Sarajevo, myndu hverfa á braut úr borg- inni, vegna þess að serbneskir yfirmenn stóðu gegn samkomu- lagi, sem stjóravöld í Bosníu og stjóraendur hersins höfðu gert. Þegar hafa um 300 hermenn verið fluttir úr herbúðum sín- um í hinni umsetnu höfuðborg Bosníu, en ógerlegt hefur reynst að koma bílalestum út úr þremur öðrum herbúðum í borginni, vegna þess að króa- tískir þjóðvarðliðar umkringja búðiraar. .Astandið er afar eldfimt," hefur Reutersfréttastofan eftir Hajrudin Soumon, helsta ráðgjafa Alija Izet- begovic, forseta Bosníu, í gær. Við- ræðurnar um brottflutning her- mannanna steyttu á skeri vegna andstöðu Serba á staðnum, þrátt fyrir að bardagar hafí legið niðri, bardagar sem hafa á síðustu tveimur mánuðum leitt til dauða um 2.250 manns í Bosníu. Ein aðalástæða þessara bardaga hefur verið óánægja serbneskra íbúa í héraðinu, sem eru mótfallnir því að lýðveldið lýsi yfir sjálfstæði. Þess- ir Serbar eru studdir af sambands- hernum, sem lýtur forustu serb- neskra foringja, og berst herinn gegn bandalagi múslima og Króata, sem eru í meirihluta í héraðinu og kusu í almennum kosningum í byrj- un mars að lýsa yfir sjálfstæði lýð- veldisins og kljúfa sig þar með út úr ríkjasambandinu Júgóslavíu. Að sögn Soumons, sem Reuter ræddi við í gær, hefur serbneskur herforingi, Ratko Mladic, lagst gegn samningnum um brottför júgóslav- nesku hersveitanna frá Sarajevo, en yfirvöld í Bosníu og yfirstjórn hers- ins undirrituðu sáttmála um þessa brottför í síðustu viku. Yfirvöld í Bosníu höfðu krafist þess að fá 60% allra vopna, sem geymd eru inni á svæði herbúða sambandshersins. En að sögn So- umons féllust þau hins vegar á að fá aðeins um 20% þeirra, einkum létt vopn, þegar hermenn yfirgáfu Vikt- or Bubanj-búðirnar um helgina. Á meðan bardagar voru í rénun í Sarajevo, mögnuðust bardagar milli Króata og Serba í norðurhluta hér- aðsins í kringum borgina Bosanski Samac. Raunar greindi ein frétta- stofan líka frá því að 25 múslimar og 15 Serbar hafi fallið í bardögum á mánudag í þorpinu Hadzici, ekki langt frá Sarajevo. Þær fréttir hafa ekki fengist staðfestar. í Lissabon í Portúgal eru nú staddir fúlltrúar stríðandi fylkinga, Serba, Króata og múslima, til við- ræðna við aðalsáttasemjara Evrópu- bandalagsins, José Cutileiro, um það hvernig hægt sé að ná saman um landamæri fýrirhugaðra sjálf- stjómarhéraða í hinu nýstofnaða, sjálfstæða lýðveldi eða ríki. Soumon, sem er múslimi, sagði hins vegar við Reuter í gær að þess- ar viðræður væru dæmdar til að mistakast, vegna þess að Serbar hefðu ekki orðið við þeim tveimur skilyrðum, sem sett hafi verið þegar tókst að ná fram því vopnahléi eða friði sem nú á að ríkja: að hverfa burt frá Sarajevo og draga til baka stórskotalið frá hæðunum í kring- um borgina. Það, sem menn eru að ræða í Lissabon, virðist ekki hafa nein áhrif á þróun mála í Bosníu og að dómi Soumons, sem er staddur í Sarajevo, er ólíklegt að það, sem verið er að semja um þar, verði nokkurn tíma útfært eða framkvæmt í Bosníu. Auk þess mannfalls og þeirra lim- lestinga, sem bardagarnir í Bosníu hafa valdið, hafa þeir einnig gert um eina milljón manna heimilislausa og valdið miklum skorti á matvöru og lyfjum. Alþjóðlegar hjálparsveitir hafa reynt að senda inn bílalestir með hjálpargögn undir formerkjum mannúðar, en þeim hefur hingað til ekki tekist að komast í gegnum vegatálma Serba. Það kom því ekki á óvart á mánu- daginn, þegar yfirvöld í Sarajevo lýstu yfir neyðarástandi þar sem matvara er skömmtuð og sérstökum matarmiðum var dreift, enda mjólk, sykur, hrísgrjón, hveiti og salt orðn- ar fágætar vörur í borginni. Serbneskir forystumenn lýstu því yfir á mánudaginn að þeir hefðu af- létt banni á flutninga um flugvöll- inn í Sarajevo, en að flugvöllurinn yrði engu að síður áfram undir stjórn júgóslavneska hersins. Raun- ar er ríkið Júgóslavía ekki svipur hjá sjón, miðað við það sem var, og eftir í því ríkjasambandi eru aðeins Serb- ía og lýðveldið Montenegro (Svart- fjallaland). Engu að síður mótmæltu stjórn- völd ríkjasambandsins því harðlega í gær við Boutros Boutros-Ghali, að- alframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að samtökin virtust taka mjög einhliða afstöðu í deilumálum í Bosníu. í bréfi til framkvæmdastjórans segir m.a. að á meðan sambandsher- mönnum í Bosníu væri ekki lengur stjórnað af yfirvöldum í Belgrad, þá væru í þessu sama héraði um 30.000 króatískir varðliðar undir vopnum. Miðvikudagur 27. maí 1992 LÍBANON (sraelskar herflugvélar gerðu árásir á bækistöðvar Hizbollah- samtakanna í austanverðum Bekaadalnum I S-Líbanon í aær, í þriðja sinn á einni viku. Arásirnar eru taldar auka mjög líkur á átökum milli (sraela og Sýrlendinga. BELGRAD Sambandsher Júgóslavíu neit- ar að afhenda vopn sín um leið og hann yfirgefur Sarajevo, höf- uðborg Bosníu. Múslimar hafa lokað hann af inni í bækistöðv- um hans I borginni. Allar leiðir inn í hana eru tepptar af þess- um sökum og íbúarnir á barmi hungursneyðar. Leiðtogi serb- neska minnihlutans í Bosníu segist reiðubúinn til að opna flugvöllinn í Sarajevo og leyfa flugumferö um hann, verði sú umferð einungis undir stjórn herafla hans. SPLIT, Króatíu Króatar og múslimar ( Bosníu segja að þar ríki hörmungar- ástand og grannlöndin megi búast við flóðbylgju flótta- manna. BRÚSSEL Á utanríkisráðherrafundi NATO í Brussel hafa stjórnvöld Bandaríkjanna og Bretlands komið þeim skilaboöum á fram- færi, að þau séu alls ekki sátt við áætlanir Frakka og Þjóð- verja um að koma upp sjálf- stæðum Evrópuher. MOSKVA Rússland og Tyrkland vilja í sameiningu stöðva blóðug þjóðemisátök I Kákasuslýð- veldunum. Bardagar blossa stöðugt upp I tengslum við Nagorno-Karabakh og milli þjóðemishópa í Moldóvu. Boris Jeltsín Rússlandsforseti segir að innanríkisráðherrar Rúss- lands, Úkrainu og Moldóvu verði að hittast hið bráðasta til að „slökkva eldinn", eins og hann orðaði það. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Boutros-Ghali, framkvæmda- stjóri S.Þ., segir að um fimm milljarða fsl. króna vanti þegar í stað til þess að mæta afleiðing- um mikilla þurrka í Afríku og koma í veg fyrir hungursneyð hjá 18 milljónum manna. BRASILÍA Forseti Brasilíu, Collorde Mello, sætir ásökunum fyrir tengsl við eiturlyfjasölu og spill- ingu. Vegna þeirra er hætta á að efnahagsumbótaáætlun hans komist ekki í framkvæmd og pólitískt og efnahagslegt ástand í landinu verði senn hið versta í sögu þess. WASHINGTON Búist er við að Bill Clinton sigri I forkosningum í Arkansas, heimaríki sínu. Honum er einn- ig spáð sigri I Kentucky og Ida- ho. Fari þetta svo, verður hann fyllilega öruggur um að verða útnefndur forsetaefni demó- krata í næstu forsetakosningum í BNA. VARSJÁ John Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur lofað Pólverj- um aukinni efnahagsaðstoð. Hann segir aö aukin efnahags- samvinna Vesturlanda við ríki Mið-Evrópu leiði til þess að frið- vænlegra verði á meginlandi Evrópu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.