Tíminn - 27.05.1992, Qupperneq 17

Tíminn - 27.05.1992, Qupperneq 17
Tíminn 17 Miðvikudagur 27. ma( 1992 DAGBÓK Ninl Tang. Listahátíö í Bankastræti í tilefni Listahátíöar í Reykjavík verður opnuð myndlistarsýning í Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9, föstudaginn 29. maí kl. 16 á verkum Nini Tang. Hún er fædd 1956 og er Hollendingur. Nam myndlist við listaskólann í Breda og Jan van Eyck-akademíuna í Maastricht, þar sem kynni hennar af íslenskum myndlistarmönnum urðu til þess að hún hefur dvalið af og til á íslandi síðan 1982. MeðaJ annars hefur hún kennt við Mynd- listarskólann á Akureyri og Myndlista- og handíðaskóla fslands, síðast 1989. Nini Táng hefur verið starfandi mynd- listarmaður í heimalandi sínu í meira en áratug og haldið tvær einkasýningar á ís- landi, í Nýlistasafninu 1982 og 1985. Á sýningunni í Gallerí Sævars Karls eru improviseruð málverk. Sýningin stendur til 30. júní og er op- in á verslunartíma. 12 ný sumarhús í Svigna- skaröi afhent um helgina Laugardaginn 30. maí mun Byggingarfé- lagið Borg afhenda byggingamefrid or- lofsbúða 12 sumarhús, sem byggð hafa verið á Svignaskarði í Borgarfirði. f til- efni af því verður sýning á húsunum sunnudaginn 31. maí kl. 14-18. Bygging- arfélagið Borg var stofhað 2. mars 1976. Starfsemi þess felst í hurða- og glugga- framleiðslu, sem og almennri byggingar- starfsemi. Auk sumarhúsanna er Borg með nokkur verk í Borgarfirði, svo sem byggingu nemendagarða við Samvinnu- háskólann, viðbyggingu við veiðihúsið við Norðurá og byggingu einbýlishúss á Hvanneyri. Sumarhúsin, sem sýnd verða, voru hönnuð hjá Litlu teiknistofunni í Hafn- arfirði. Þau eru 56,8 fermetrar að stærð og þeim fylgir 35 fermetra verönd. Allt byggingarefnið var keypt innan svæðis- ins, frá Vímeti, Loftorku, Kaupfélagi Borgfirðinga og Glerslípun Akraness. Timbur, sem notað var við smíðina, var allt þrýstifúavarið í sérstakri vél hjá Borg. Undirverktakar úr Borgamesi vom Loftorka, Guðmundur Brynjúlfsson sem sá um pípulagnir, Glitnir sem sá um raf- magn, Axel Þórarinsson sem sá um málningarvinnu, og Sindri Axfjörð sem annaðist lóðarframkvæmdir. Húnvetningafélagiö Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Húnabúð, Skeifunni 17. Paravist. Allir velkomnir. Skagfirðingafélögin í Reykjavík verða með sitt árlega gestaboð fyrir eldri Skagfirðinga í Drangey, Stakkahlíð 17, á uppstigningardag kl. 14.30. Bílasími er 685540. Reykjanes — Leiöarþing Steingrlmur Hermannsson alþm., formaöur Framsóknar- flokksins, heldur leiðarþing á eftirtöldum stöðum: Kópavogl 27. mal kl. 20.30 I Framsóknarhúsinu v/Digra- nesveg. Stjám Kjördæmissambandsins. Steingrímur Hermannsson Sumartími skrifstofu Framsóknarflokksins Frá 18. mal er skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá ki. 8.00 til 16.00 mánudaga-föstudaga. Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn. Guðmundur Bjamason Valgeröur Sverrisdóttir Jóhannes Geir Sigurgeirsson Norðurland eystra Fundir með alþingismönnum Þingmenn Framsóknarflokksins i kjördæminu boða til almennra stjórnmálafunda, sem hér segir: Félagsheimilið Tjamartoorg, Ólafsfirði, miðvikudaginn 27. mal kl. 20.30. Grimsey, Félagsheimilinu fimmtudaginn 28. maí kl. 13.00. Garðar, Húsavík, laugardaginn 30. mai kl. 10.00 f.h. Framsóknarflokkurínn. Kópavogsbúar — Vormarkaður Vormarkaður Freyju veröur haldinn laugardaginn 30. maí kl. 10.00-16.00 að Digranesvegi 12. Á markaðnum kennir margra grasa, svo sem: Fjölær útiblóm, trjáplöntur, stofublóm, kökur o.m.fl. Auk þess veröa kafflveitingar á staðnum. Hluti af ágóöanum rennur til Vímulausrar æsku. Þeir, sem vilja leggja málefninu lið eða vilja fá nánari upplýsingar, hringi í Ástu í sima 40229. Stjóm Freyju. Ólafsvík — Hellissandur Steingrlmur Hermannsson og IngF björg Pálmadóttir heimsækja fyrirtæki á Ólafsvik og Hellissandi þriöjudaginn 2. júni. Fundur verður í Félagsheimilinu, Ólafsvík kl. 20.30 um kvöldið. All- ir velkomnir. Steingrimur Ingibjörg Enginn ræki upp stór augu þó aö hann sæi eina ömmuna enn meö skýluklút. En þetta er engin önnur en Jackie Onassis. Jackie barnapía Ömmur hlaupa oft undir bagga með að gæta bamabamanna þegar svo stendur á og breytir þá engu hvort þær em vellauðugar og heimsfrægar eða ósköp venjulegar. Og sem betur fer hafa þær flestar ánægju af, a.m.k. í hófi. Jackie Onassis þarf stundum að gæta tveggja dætra Caroline dóttur sinnar, en Caroline Kennedy Schlossberg er önnum kafinn lög- fræðingur. Nýlega sást til þeirra þriggja Jackie, Tatiönu, tveggja ára, og Rose, þriggja ára, á göngu í Centrai Park í New York, og til halds og trausts höfðu þær fengið vinkonu til að slást í hópinn. Það rak svo sem enginn upp stór augu þó að enn ein amman með sól- gleraugu og skýlu væri að spóka sig með ósköp venjulegum bamabörn- um. Tatiana situr hin rólegasta í kerrunni en stóra systir Rose stend- ur á bakfjölinni. Sem sagt ósköp venjulegur fjölskyldugöngutúr. Allar ömmur eru eins. Jackie Onassis skemmtir sér hið besta á hringekjunni meö Tatiönu, tveggja ára dótturdóttur sinni. Ekkja Spencers lávarðar og stjúpa Díönu príns- essu af Wales brá sér til Rómar eftir lát manns síns til að sækja huggun hjá einkadóttur sinni sem þar býr. Charlotte og maður hennar, Duca Don Alexander Castello di Caraci, tóku vel á móti henni og Chariotte fór með henni í Páfagarð þar sem álitið er að hún hafí fengið einkaáheym hjá páfa. Vonandi hefur ekkjan fengið góðan styrk frá hans heilagleika, en þær sögur ganga alltaf fjöllun- um hærra að samkomulag hennar og stjúpbarn- anna hafi aldrei verið upp á það besta. Raine, dótt- ir skáldsagnahöfundarins Barbara Cartland, giftist lávarðinum 1976 og hjúkraði Jarlsekkjan honum aftur til heilsu eftir heila- Raine blóðfall 1978. Spencer fór til Rómar aö heimsækja dóttur slna til aö jafna sig örlítiö eftir lát manns síns. Stjúpa Díönu í heimsókn í Páfagarði Fundarboöendur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.