Tíminn - 03.06.1992, Síða 2

Tíminn - 03.06.1992, Síða 2
2 Tíminn Miövikudagur 3. júní 1992 Deilur um úhlutunarreglur Lánasjóðsins: Fáir Ijúka 100% námsár- angri í raunvisindadeild: Listahátíð í Reykjavík heldur áfram: Vísnasöngur á Hresso í kvöld leikur Iteykjavíkurkvartett- inn í Hústaöakirkju kl.21:30. Hann er skipaður Rut Magnús- dóttur og Zbigniew Dubik fiðlulcik- urum, Guðmundi Kristmundssyni víóluleikara og Ingu Rós Ingólfs- dóttur sellóleikara. Fyrirlestur Val K. Warke verður í Ásmundarsal kl.20:00 um bygging- arlist. Val hefur helgað sig kennslu og rannsóknum á því sem nefnt hef- ur verið „Listfræði byggingarlistar" í kvöld og er meðal þekktustu fræðimanna af yngri kynslóðinni á þessu sviði. Aðgangur að fyrirlestrinum, sem fram fer á ensku, er ókeypis og öll- um heimill meðan húsrúm leyfir. Klúbbur Listahátíðar á Hressó býð- ur upp á vísnatónlist í kvöld kl. 21:00 sem Aðalsteinn Ásberg Sig- urðsson og Anna Pálína Arnalds- dóttir flytja. Einnig ætlar Aðalsteinn að flytja ljóð ásamt Einari Ólafssyni. —GKG. Hvað gerirðu ef kviknar í feitipotti? Hér má sjá Slökkviliðið leiða fólk í ráða má niðurlögum elds í potti á lagið stóð fyrir á Laugaveginum allan sannleikann um það hvernig fjölskylduhátíð sem Slysavarnafé- um helgina. —GKG. GEKK RAÐHERRA A BAK ORDA SINNA? Námsmenn gengu á fund menntamálaráðherra í gærmorgun og lögðu fram formlegt kvörtunarbréf þar eð þeir eru ósáttir við af- greiðslu hans manna í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna, framkomu þeirra og vinnubrögð. „Við gerðum einnig athugasemdir við nokkur atriði úthlutunarregln- anna sem mér finnst ráðherra ekki vera alveg meðvitaður um,“ segir Pétur Óskarsson, formaður Stúd- entaráðs. „Sérstaklega í því tilfelli þegar eitthvað kemur upp á hjá námsmönnum; ef þeir verða nú fyrir því óláni að veikjast eða því sem sum- ir telja ennþá meira ólán — að eign- ast barn." Ef námsmaður veikist í jólaprófun- um fær hann engin námslán því svig- rúmið hefur verið minnkað vegna veikinda: „Þá verður námsmaðurinn að hverfa frá námi og fara að vinna til að borga upp bankalánið eða halda áfram námi og treysta á að bankinn láni honum áfram þó svo að hitt lán- ið sé gjaldfallið. Ég á nú eftir að sjá það gerast,“ segir Pétur. „Ráðherra hefur ekki hugsað þetta mál til enda.“ Stúdentum hefur tekist að koma nokkrum breytingum í gegn á fyrstu drögum reglnanna eins og til dæmis að meðlag verði ekki talið til tekna og að í stað þess að lækka tekjutillit yrði frítekjumark hækkað. Námsmenn hafa gert athugasemdir við að í drögunum er ætlast til þess að menn verði að sýna fram á 100% námsárangur til að fá fullt lán og þá skerðingu hjá bamafólki sem þar er á ferðinni. Einnig voru gerðar athuga- semdir við að ekki verði veitt lán til almenns grunnháskólanáms erlendis né til skólagjalda við Háskóla íslands sem Pétur segir vera svik af hálfu menntamálaráðherra. „Ráðherra var búinn að lýsa því yfir bæði í haust við afgreiðslu fjárlaga og eins í þingi við umræðu um Lánsjóðinn að hann ætl- aði að lána vegna skólagjalda en það er ekki gert í þessum drögum," segir Pétur Óskarsson, formaður Stúdenta- ráðs. „Þar er einungis gert ráð fyrir að lána fyrir þeirri upphæð sem er um- fram 15.000 kr. þ.e.æs. 7.115 kr. af skólagjöldunum í HÍ. Við teljum ráð- herra vera að svíkja gömul fyrirheiL" Að meðaltali eru 15 einingar taldar lágmarksnámsárangur í deildum Há- skólans og er miðað við að náms- mönnum takist að ljúka námi á þremur árum. Pétur segir reynsluna hafa sýnt að örfáir ljúki í raun þriggja ára námi á þremur árum og í raunvís- indadeild er það 1 af hverjum 5 eða 6. „Þetta voru þær upplýsingar sem við þá sjálfsögðu kurteisi að bíða í einn dag eftir þessum upplýsingum," segir Pétur. Námsmönnum finnst oft hafa verið valtað yfir sig af stjórn sjóðsins og hafi framkoma Gunnars Birgissonar formanns gert útslagið á sunnudag- inn þegar hann hótaði því að allar breytingartillögur yrðu teknar til baka og upphaflega frumvarpið keyrt í gegn þegar námsmenn ætluðu ekki að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og ganga út af fundi til að mótmæla vinnubrögðunum: „Ég hef talað við menn sem eru mér reyndari í svona stjómun en enginn hefur heyrt af því að stjómarformaður geri það sem Gunnar gerði þama. Það var ekki tímabært að greiða atkvæði um mál- ið. Það er út í hött að segja að við höf- um verið að tefja málið með ráðnum hug, því það er auðvitað námsmönn- um í hag að úthlutunarreglur komi út sem fyrst. En einn dagur til eða frá skiptir ekki máli.“ —GKG. Ólafur G. Einarsson mennta- málaráöherra. vildum fá áður en haldið væri til at- kvæðagreiðslu, þess vegna m.a. bár- um við fram vantrauststillögu á for- mann að hann skyldi ekki sýna okkur Búist við fækkun í deildinni Sigurður Friðþjófsson, skríf- stofustjóri raunvísindadeildar Háskólans, segir að búast megi við því að fækki í deildinni með nýjum úthlutunarreglum Lána- sjóðs íslenskra námsmanna. Námið þar er skipulagt á þá leið að nemendur Ijúki 15 einingum á önn og útskrifist að þriggja ára námi loknu. Aðeins 1 af 5-6 nem- endum tekst það. Á fyrsta vetri hefúr verið í lagi þó einungis sé skilað 20 einingum og gildir þá einu hve mörgum er lokið hvora önn. Lánasjóðurinn samþykkti þetta fyrirkomulag. Samkvæmt reglum deildarinnar var jafnframt leyfilegt að ljúka náminu á fjórum árum og samþykkti sjóðurinn það líka. Nú er það úr sögunni. „Lánasjóðurinn verður að laga sig að skólanum ef eitthvað vit á að vera í þessu. Skólinn getur ekki lækkað standardinn til að þóknast sjóðnum," segir Sigurður. „Reynslan sýnir okkur að það eru fáir sem fullnægja þessu alveg, sérstaklega í byrjun." AHir hálendisvegir landsins eru nú lokaðir vegna aurbleytu og snjóa. Hins vegar eru allir helstu þjóðvegir landsins fær- ir utan einstaka kaflar sem lokaðir eru vegna aurbleytu, svo sem Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðum og Hólssandur og Öxarfjaröarheiði á Norður- landi. Sérstakar öxulþungatak- markanir eru á vegum á sunn- anverðum Vestfjörðum og austan Þórshafnar á Norðaust- urlandi og eru þær tilgreindar við viðkomandi vegi. Opel í landvinn- ingum á íslandi: Opel Astra nemur land Jötunn hf. hefur náð hagstæðum verðsamningum við framleiðanda Opelbifreiða og kynnir nú nýjan bíl; Opel Astra sem er í stærðarflokki með VW Golf og Ford Escort. Opel bfiarnir frá General Motors í Þýskalandi hafa verið fremur fáséðir á íslandi hin síðari ár en voru með algengustu bflum fyrr á árum. Þeir hafa hins vegar um langt skeið verið með mest áberandi bfiategundum í Evrópu. Opel Astra er framhjóladrifmn og verður fáanlegur sem þrennra eða fimm dyra fólksbfil og hægt er að velja milli tveggja vélastærða, 1,41 eða 1,61. Þá er einnig fáanlegur skut- bfil með 1,81 vél. Loks er flaggskip Astra línunnar Opel Astra GSi sem er 150 hestafla lúxussportbfll með besta búnaði. Verð Astra bflanna verður frá 990- 1800 þús. kr. —sá Innbrotsþjófur í Graf- arvogi: Þýfið fundið í Breiðhoiti K1.6:30 í gærmorgun veitti ná- granni því athygii að maður nokkur var að bera sjónvarp og ýmis tæki út í bíl úr húsi í Graf- arvogi. Tilkynnti hann lögregl- unni um málið. Síðar um daginn sást til bfisins fyr- ir utan hús í Breiðholti og fannst maðurinn þar ásamt þýfinu úr Graf- arvogi sem og fleiri innbrotum. Maðurinn var handtekinn og hefur málið verið upplýst. —GKG.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.