Tíminn - 03.06.1992, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.06.1992, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 3. júní 1992 Timinn 3 I könnun á dagspítala fyrir aldraða kom mikil lyfjanotkun á óvart: Lyfjanotkun aldraðra meiri hér en erlendis ,jviikil lyijanotkun hópsins kom á óvart,“ segir í grein í Læknablað- inu um könnun á starfsemi dagspítala á öldrunarlækningadeild Landspítalans. í ljós kom að 34 af 148 sjúklingum, eða nær fjórð- ungurinn, voru með 9 til 16 lyf og aðeins 20 með tvenns konar lyf eða færri. Við komu á spítalann var meðallyfjanotkun rúmlega 6 lyf á einstakling en hafði aukist í 6,65 lyf á einstakling að meðaltali við útskrift. Meðallyfjanotkun hópsins er sögð meiri en komið hafi fram í könnunum, sem gerðar hafa verið austan og vestan hafs þar sem fjöldi lyfja á einstakling er 3,4 til 5,7. „Fjöllyfjanotkun er óheppileg, af því að með fleiri lyfjum eykst hætta á milli- og aukaverkunum. Þá er nið- urbrot og útskilnaður lyfja svo og lyfjaverkan og Iyfjaþol þessa aldurs- hóps mjög breytilegt og krefst því nákvæms eftirlits," segja læknamir Gunnar A. Baarregaard og Jón E. Jónsson í grein sinni í Læknablað- inu. Markmiðið með könnuninni segja þeir m.a. að athuga hvers konar sjúklingar komu á dagspítalann árin 1985 og 1986. Könnunin náði til al- mennra atriða eins og aldurs, kynja- skiptingar og fjölskyldu. Einnig var athugaður tilgangur innritunar, lit- ið á sjúkdómsgreiningar, fjölda lyfja Bandamannasaga sýnd á Listahátíð: Sýnd í Finn- landi í haust Bandamannasaga í leikgerð Sveins Einarssonar verður frumsýnd á laugardaginn og hefur sýningunni þegar verið boðið til Finnlands í haust. Sýningin er framlag Norræna hússins til Listahátíðar og er það leikhópurinn Bandamenn sem sýnir verkið. Þar eru á ferðinni þau Borg- ar Garðarsson, Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Jakob Þór Einarsson, Stefán Sturla Sigurjónsson, Felix Bergsson og Guðni Franzson sem einnig semur alla tónlistina við verkið og flytur hana. Sveinn Einarsson leikstýrir verk- inu en meðleikstjóri og sýningar- stjóri er Þómnn Magnea Magnús- dóttir. Sýningin tekur um klukkustund í flutningi og er gert ráð fyrir 5 sýn- ingum á Listahátíð. —GKG. Borgar Garðarsson leikari hef- ur varla starfað í íslensku leik- húsi síðan hann lék í Barnaleik- ritinu Karíus og Baktus fyrír margt löngu. Hann hefur hins vegar starfað með fjölmörgum erlendum leikhópum og leik- húsum í áratugi. Hann er hér til vinstri ásamt Stefáni Sturíu Sigurjónssyni. Tfmamynd Ámi Bjama Jakob Þór Einarsson, Ragnhelður Elfa Amardóttir og Stefán Sturía Sigurjónsson í hlutverkum sínum ( Bandamannasögu. og helstu lyfjaflokka og síðan afdrif sjúklinga eftir þrjá og sex mánuði. Höfundar telja niðurstöður könn- unarinnar sýna að dagspítalavist stuðli að því að aldraðir geti búið lengur heima og seinki stofnanavist. Vist á dagspítala þyki nú sjálfsagður Iiður í öldrunarþjónustu og hlut- verk hans sem endurhæfingarstofn- unar fyrir aldraða sé ótvírætt. Þar mætti þó gera betur, til dæmis að nýta dagspítala í sambandi við inn- lagnir á stofnanir til langtímavist- unar, þannig að tryggt væri að mat og endurhæfing fari fram áður en einstaklingar vistast á slíkum stofn- unum. Á þann hátt nýttist vistrými betur með færri innlögnum og þar af leiðandi styttri biðtíma fyrir þá sem eru í mestri þörf. Dagspítali er sjúkrahúsdeild sem einungis er rekin að degi til virka daga. Um 150 sjúklingar komu á dagspítala öldrunardeildar Land- spítalans þessi tvö ár og meira en helmingur þeirra 80 ára eða eldri. Tæplega 2/3 hópsins voru konur. At- hygli vekur að meirihluti kvenn- anna voru ekkjur og þær bjuggu líka flestar einar ellegar með ættingjum. En yfirgnæfandi meirihluti karl- anna voru giftir og í sambúð með maka. Sjúklingar voru ýmist lagðir inn til endurhæfingar (65%) eða viðhalds- meðferðar. Við sjúkdómsgreiningu flokkaðist um helmingur með taugasjúkdóma (flestir með parkin- sonveiki eða heilablóðfall), en geð- sjúkdómar, hjarta/æðasjúkdómar og sjúkdómar frá stoðkerfi eru einnig nokkuð algengir. Algengast var að vísu að einstaklingar greindust með 2-4 sjúkdóma. Flestir sjúklinganna (37%) útskrifuðust heim, um þriðj- ungur fór á sjúkrahús, um 6% fóru á elliheimili og um fimmtungur var enn innskrifaður á dagspítalann við Iok rannsóknartímabilsins. Um helmingur sjúklinganna var á svefnlyfjum við innritun á spítalann en heldur færri við útskrift. Rösk- lega 40% voru á geðlyfjum og álíka hópur á hægðalyfjum, en þetta voru langalgengustu lyfjaflokkarnir. Stærsti hópurinn (35%) útskrifaðist með aðeins 3-5 lyf. Rúmlega 20% sjúklinganna útskrifuðust þó með 9- 12 lyf og 4% þeirra þurftu að nota 13-16 lyfjategundir hver. - HEI Samband íslenskra dýraverndarfélaga óánægt með fjölleikahús. Ástæðan: ««■■■■ ■ w ■ ■■ w ■ Villt dyr til synis Samband íslenskra dýravemdun- arfélaga er uggandi vegna komu fjölieikaflokksins Cirkus Arena sem Jörundur Guðmundsson ætl- ar að flytja inn í sumar. Ástæðan er sú að vfllt dýr og þar á meðal þijú sæljón verða þar höfð tfl sýnis og krefst félagið þess að stjómvöld sjái tfl þess að það verði ekki leyft. Að sögn Jórunnar Sörensen, for- mann sambandsins, hefur henni verið tjáð að yflrdýralæknir hafl þegar geflð leyfi til innflutnings og flnnst henni það undarlegt þar eð ekki sé búið að ieyfa sýninguna ennþá. „Það er bannað með lögum í Noregi, Finnlandi og Danmörku að sýna villt dýr,“ scgir Jórunn. „f ferðasirkusum eru öli dýr strang- lega bönnuð.“ Sambandið treystir á að Dýra- vemdunarnefnd komi t veg fyrir að dýrin verði flutt inn t því skyni að láta þau skemmta fólki. —GKG. Arekstrar á Akureyri: Tveir fluttir á sjúkrahús Þrir árekstrar urðu á Akureyri um hádegi í gær. Einn var mjög harður og varð sá á mótum Laufásgötu og Gránufélags- götu. ökumenn voru einir í bflun- um og voru báðir fluttir á sjúkrahús með smávægileg meiðsl þó. —GKG. Rauði kross íslands, Rauðarárstíg 18, hefur fengið nýtt símanúmer: 626722 Fax 623150 (ath. rangt faxnúmer var gefið upp í símaskrá)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.