Tíminn - 03.06.1992, Síða 6

Tíminn - 03.06.1992, Síða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 3. júní 1992 Kínversk yfirvöld taugaveikluð vegna þriggja ára afmælis morðárása stjórnvalda á námsfólk á Torgi hins himneska friðar: Brandarar, blóm og þvaglát harðbðnnuö Á morgun, þann 4. júní, eru lið- in nákvæmlega þijú ár frá at- burðunum hörmulegu sem urðu á Torgi hins himneska fríðar árið 1989 þegar kínversk- ir hermenn réðust, gráir fyrir járnum, að kínverskum al- menningi og námsmönnum og drápu ýmist eða misþyrmdu. Yf- irvöld í Kína eru nú í viðbragðs- stöðu og hafa greinilega áhyggj- ur af því að morgundagurínn 4. júní muni bera óvænt atvik í skauti sér. Á veggspjöldum sem yfirvöld í Kína létu setja upp nú í byrjun þessarar viku er tilgreint í átta liðum, bæði á kínversku og ensku, hvað beri að varast á morgun: Bannað er að minnast atburðanna á nokkurn hátt, s.s. að krota á minn- ismerki þau er standa á torginu, hengja nokkurn hlut á þau, kasta af sér þvagi, dreifa blómum eða ávöxt- um, né heldur fara með gamanmál eða hæðast að stjómvöldum. í reglu sex er sérstaklega tekið fram að ekki megi koma með eldfim efni né heldur nein þau efni sem sprengihætta stafi af. í öðrum regl- um segir að ekki megi „ganga á grasinu". Þegar kínverskir vegfarendur í Beijing flykktust að veggspjöldun- um í gær mátti sjá óeinkennis- klædda lögreglumenn á sveimi. Nokkrir þeirra voru með rándýrar japanskar myndatökuvélar og mynduðu þeir landa sína jafnt sem erlenda ferðamenn. Yfirvöld í Beijing hafa aukið mjög Yitzhak Shamir þykir að sér vegið á ómak- legan og klámfeng- inn hátt i kosninga- baráttunni: „VARIÐ YKKUR ÁLITLA MANNINUM" Mikfll hití ferist nú í kosninga- baráttuna í ísrael. Samkvæmt frcttaskeytum frá Reuter þykir mörgum ísraelum nú skörin vera farin að færast upp á bekk- hrn og kafla þeir þó ekki aflt ömmu sína. Verkamannaflokkurínn ísraelski hefur verið sakaður um að ætla að veita andstæðingum sínum, einkum þó forsætísráðherranum Yitzhak Shamir, högg undir belt- isstað í orðsins fyflstu merkingu. Verkamannaflokkurinn hafði á prjónunum að dreifa tfl almenn- ings smokkum þar sem á var letr- að: „Varið ykkur á litla mannin- um“. Þarna er nokkuð augljós- lega veríð að sneiða að Shamir sem er rétt um 1,50 m á hæð og jafnframt höfða tíl gyðinglegrar viðkvæmni gagnvart kynfærum karia. Talsmenn verkamannaflokksins sögðu þó í gærað leiötogi þeirra, Yitzhak Rabin, hefði tekið í taum- ana og stöðvað þessar áætlanir flokksbræðra sinna enda ekki þótt fýsilegt að láta birta af sér myndir í dagblöðum með smokk- inngóða. allt eftirlit með heimamönnum jafnt sem útlendingum nú þegar 4. júní nálgast. Námsmenn segja að eftirlit hafi mjög verið hert í nágrenni skóla Finnska lögreglan upplýstí í gær að hún hefði í haldi Rússa sem komið hefði tíi Finnlands með falsað breskt vegabréf. í fórum Rússans fundust tvær tegundir tölvuvírusa. Maðurinn kom til Finnlands þann 19. maí síðastliðinn og var handtek- inn nokkru síðar vegna þess að hann var grunaður um þjófnað úr versl- unum. Við leit fundust tölvudisk- lingar í fórum hans en á þeim voru Framtakssamir þjófar í Bretlandi nota nú reiðhjól sem gjaldmiðil fyr- ir eiturlyf, segir breska lögreglan. Charles Pollard, yfirmaður Thames Valley lögreglunnar, segir að þjófn- aður á reiðhjólum hafí færst mjög í vöxt á síðustu tveimur árum og og innan þeirra, enda hefur oft mátt rekja upphaf óeirða í Kína til þeirra. Ekki er þó búist við að þeir né aðrir minnist atburðanna 1989 að neinu tölvuvírusar sem kallast „Miche- langelo" og „Stoned". Finnska lög- reglan telur þessa vírusa mjög út- breidda í Rússlandi. Maðurinn sagðist ekki hafa dreift þessum forritum í Finnlandi og hefði þar að auki „varnarforrit" meðferðis til þess að verjast vírusn- um. „Varnarforritin" reyndust hins vegar gömul og gagnslaus. í hinu falsaða vegabréfi lést maður- merkja megi 50% aukningu þjófn- aða á svæðinu vestur af London á þessum tíma. „Það er greinilegt að reiðhjólin eru notuð sem gjaldmiðill í eiturlyfja- viðskiptunum," segir Pollard, „enda verðmæti þeirra á bilinu 15.000 til marki nú, enda hafi kínverskum yf- irvöldum tekist furðu vel að halda aftur af lýðræðisöflunum m.a. með nokkrum efnahagsumbótum. inn heita Michael George Levenberg en finnska lögreglan segist þekkja hið rétta nafn hans. Fyrir tveimur vikum komu maður og kona frá Rússlandi á fölsuðum breskum vegabréfum. Þeim var báð- um vísað samstundis úr landi en þá var haft eftir yfirmanni finnsku ör- yggislögreglunnar að þau væru bæði njósnarar. 30.000 kr. að jafnaði." Breska lögreglan telur skýringuna að hluta liggja í hinum síauknu vin- sældum fjallahjóla, en eins og kunn- ugt er hafa slík reiðhjól verið mjög vinsæl bæði hérlendis sem erlendis. Rússi handtekinn í Finnlandi með falsað breskt vegabréf og tölvuvírusa í fórum sínum: Michelangelovírus — ónýt vamarfoirit Hollustu- og líkamsræktartæki verða gjaldmiðill í „óhollustuviðskiptum“: Greitt fyrir dópiö með stolnum fjallahjólum BELGRAD Serbneskar hersveitir halda áfram árásum með stórskotaliði á Sarajevo þrátt fyrir viðskiptabann sem sett hefur verið á Serba. DUBROVNIK Óbreyttir borgarar koma nú úr fel- um eftir árásir stórskotaliðs og átta mánaða umsátur sem kostað hefur margan manninn geðheilsu og líf. BRUSSEL Evrópubandalagið hefur fallist á tillögur Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gegn Serbíu og Svartfjallalandi og talsmenn þess segja að þeim verði framhaldið þar til ofbeldisverkum í Bosníu- Herzegovinu verði hætt. MOSKVA Rússar hafa ákveðið að hverfa aftur til fyrri áætlunar um nýtingu kjamorku sem horfið var frá 1986 þegar slysið mikla í Chernobyl átti sér stað. Rússneskir embættis- menn viðurkenna að það slys hafi verið eitt það versta í veraldarsög- unni. KIEV Úkratnumenn hafa beðið eriendar þjóðir að frysta ýmsar eignir fyrrv. Sovétríkjanna til þess að kröfur þeirra um eignarrétt fái aukið vægi. MANILA Fidel Ramos, fyrrum yfirmaður vamarmála á Filipseyjum, sigraði í forsetakosningunum með 23,5% atkvæða þegar talningu er nær lokið, ef marka má starfsfólk Ra- mosar. BEIRÚT Líbanir hafa beðið frani aö hafa hemil á Hizbolla skæruliðum í Suður- Líbanon svo koma megi í veg fyrir að bardagar aukist á milli (sraela og þessarar hreyfingar, sem er hliðholl klerkastjóminni í ír- an. MOSKVA Boris Yeltsin forseti Rússlands, sem á yfir höfði sér verkföll olíu- námumanna er spillt gætu áform- um hans um endurbætur, hvatti þá til vinnu og sagðist skilja erfiðleika þeirra. Jafnframt sendi hann millj- arða rúblna með lestum til þeirra staða þar sem ólgan er mest. KABUL Vopnaðir menn hófu að skjóta á hinn aldna leiðtoga Mujahideen hreyfingarinnar í Afganistan og náðu að særa þrjá lifvarða hans. Vopnaðar sveitir skæruliða segjast hafa drepið fjölda manns í átökum sin á milli en svo er að sjá að átök hafi blossað upp í Kabul. TEHERAN Opinberir aðilar í Mashhad, þar sem ein verstu uppþot í fran hafa orðið um árabil, vilja kenna útlend- ingum, erlendum flugumönnum og óvinum islömsku byltingarinnar um uppþotin. Jafnframt segja þeir að lögreglan hafi ekki staðið sig í aö bæla niður óeirðirnar. SUVA, Fiji-eyjum Fyrrum byltingarieiðtogi Fiji-eyja, Sitiveni Rabuka, hefur nú svarið embættiseið sem forsætisráðherra eyjanna. Hann lofaði að endur- skoða stjómarskrá Fiji-eyja sem þykir mismuna kynþáttum þar. RÓM í kjölfarið á morðinu á G. Falcone (huga ítölsk yfirvöld nú aðgerðir gegn glæpamönnum sem fasistar beittu á sínum tíma. Þessar að- gerðir felast í þvi að senda „guð- feður“ og yfirmafíósa í útlegð til fjariægra eyja. AMMAN Yasser Arafat yfirmaður PLO er sagður á góðum batavegi eftir skurðaðgerð sem hann gekkst undir vegna blóðtappa við heila. Læknar sögðu að hann hefði nú loks getað sofið eðlilega eftir viku- langa sjúkdómslegu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.