Tíminn - 04.06.1992, Síða 12

Tíminn - 04.06.1992, Síða 12
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 htht Bl LAPART ASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEIÐI • BÍLAPARTASALA Flugumýrl 18D * Mosfellsbœ Sfmar 668138 & 667387 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Úöruvisi bilasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUT1R. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 ! s/ú HOGG- '> DEYFAR Versiið hjá fagmönnum Q) varahlutir Hamarsböfða 1 - s. 67-6744 Tíminn FIMMTUDAGUR 4. JÚNf 1992 íslenska ríkisstjórnin saumar að Sambands- lýðveldinu Júgóslavíu: Engin við- skipti eða önnur tengsl við Serbíu- menn „Ríkisstjómin ítrekar skilyrðis- lausa fordæmingu sína á átökunum í Bosníu-Herzegóvínu og lýsir von- brigðum yfir því að stjómvöld Sam- bandslýðveldisins Júgóslavíu (Serb- íu og Svartíjallalands) hafí ekki orð- ið við áskorunum og fyrirmælum Sameinuðu þjóöanna." Þetta segir í frétt frá utanríkis- ráðuneytinu í gær. Þar er jafnframt sagt að þar sem stjórnvöld í Sam- bandslýðveldinu Júgóslavíu hafi ekki fallist á að virða ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 752 frá 15. maí sl., hafi tekið gildi refsiaðgerðir S.Þ. gegn Júgóslavíu um allan heim. Refsiaðgerðirnar felast í viðskipta- banni, banni við flugsamgöngum, takmörkun á fjölda stjórnarerind- reka sambandslýöveldisins á er- lendri grund, banni við samskiptum á sviði tækni, vísinda og menningar og banni við þátttöku fulltrúa sam- bandslýðveldisins í íþróttaviðburð- um á erlendri grund. Jafnframt hefur ríkisstjórnin ákveðið að gefa út auglýsingu um beitingu íslenskra laga, sem kveða á um framkvæmd fyrirmæla öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna. * Mikilvægt að hámarka atvinnusköpun, segir Landssamband smábátaeigenda: Smábátar skapa þrefalt fleiri störf en togarar „Rækilega hefur verið sýnt fram á mun minni afla til myndunar hvers -sá að smábátar og minni skip þurfa heilsársstarfs heldur en stærri skip Sjúkraliðar krefjast þess að samræmdur kjarasamningur þeirra nái fram að ganga og útiloka ekki vinnustöðyun. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags íslands: Skýlaus krafa að eng- inn lækki í launum „Það var greinilegur hugur í fóUd að það yrði staðið bak við samninganefndina, ef með þyrfti. Við erum rétt að byrja samn- ingaviðræður og þar setjum við á oddinn að enginn sjúkraliði lækld ( launum,“ segir Kristín Á. Cuðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags íslands. Stjórn og trúnaðarmannaráð fé- lagsins komu saman til fundar í fyrrakvöld til að fjalla um stöðuna í samningamálum félagsins og hugsanlegar aðgerðir til þess að knýja á um að kjör sjúkraliða yrðu samræmd, en munur á launum þeirra nemur í sumum tílfellum allt að 25% eða um 15.800 kr. á mánuðl. Ástæður þess eru sum- part sérsamningar starfsmanna á heilbrigðisstofnunum í eigu bæj- ar- og sveitarfélaga, sem falla nú undir rikið samkvæmt lögum um þau efni frá 1990. Kristín segir að ýtt hafi verið á með það að læ kka þessa sjúkraliða í launum í síðustu kjarasamn- ingaviðræðum og hafi vilji tíl þess komið ákveðið fram í samninga- nefnd ríkisins. Þessi launalækkun hefði verið augljós afleiðing af miðlunartillögu sáttasemjara, en var engu að síður samþykkt af ASÍ-félögunum í samílotinu. Þeg- ar menn síöan áttuðu sig á því að þessi launalækkun væri ófram- kvæmanleg, hafi verið gerð sér- stök bókun og málið síðan verið í sérstakri skoðun hjá ASÍ. Bókun- ín hljóðar svo: JVðUar hafa kom- ist að samkomuíagi um að bókun eitt með samkomulagi sem fjár- málaráðherra og fuUtrúar starfs- manna sveitarfélaga undirrituðu 26. april 1992 verði svohljóðandi: Aðilar eru sammála um að samn- ingur þessi skulí jafnframt gilda um þá starfsmenn sem ráðnir hafa verið til starfa við þær stofn- anir sem rikið yfirtók samkvæmt lögum nr. 75/1990 á tímabilinu 1. janúar 1991 tíl og með 28. febrú- ar 1993.“ „Þetta er í raun og veru grund- völlur launalækkunar sjúkralið- anna eftír 1. maí,“ segir Kristín. Málið hafi síðan þvælst fyrir ASÍ, þegar ljóst varð að starfsstúlkur yrðu hærra launaðar en sjúkralið- ar. „Gngu að síður er það þetta sem verið er að bjóða okkur í sér- samningunum nú,“ segir Kristín. Aðspurð um hvort sjúkraliðar muni fylgja eftir kröfum sínum í þessu efni eftír með vinnustöðv- un, sagði hún að aUar leiðir yrðu skoðaðar og að ekkert væri útílok- að í þessum efnum. —sá og togarar. Munurinn er þrefaldur smábátunum í vil,“ segir í tílkynn- ingu frá Landssambandi smábáta- eigenda. Eftír þau uggvænlegu tíð- indi, sem þjóðinni hafi borist um ástand þorskstofnsins, telja smá- bátaeigendur það mikilvægara en nokkru sinni að stjórnvöld leiti þeirra leiða, er hámarka atvinnu- sköpun og arðsemi þess þorskafla sem ákveðið verður að veiða. Til staðfestingar framangreindu vitnar Landssambandið til gagna, sem unnin voru fyrir nefnd þá sem starfar að endurskoðun laga um stjórn fiskveiða. í niðurstöðu sam- anburðar á atvinnusköpun smábáta- útgerðar annars vegar og útgerðar togara hins vegar segir orðrétt: „Þannig skapar smábátaútgerð meira en þrefalt fleiri störf en tog- araútgerð." Landssambandið bendir jafnframt á að í niðurstöðum rannsókna, sem unnar voru af vísindamönnum á sviði fiskifræði, sé eindregið mælt með notkun öngulveiðarfæra á kostnað togveiðarfæra við uppbygg- ingu þorskstofna. Þótt oft hafi verið brugðið á það ráð að sameiginlegur sjóður lands- manna hafi tekið á sig miklar byrðar á tímum samdráttar í sjávarútvegi, telur Landssamband smábátaeig- enda þá leið nú útilokaða. Staða þjóðarbúsins sé nú með þeim hætti að þar sé eigi á bætandi, almenning- ur sé ekki aflögufær. Sambandið bendir því á, að smábátarnir séu sá útgerðarflokkur sem ævinlega hafi staðið og fallið af eigin rammleik, og því reynst þjóðinni ódýr, hagkvæm- ur, atvinnuskapandi verðmæta- myndandi atvinnuvegur. Ljóst sé að í þeirri erfiðu stöðu, sem nú blasir við, megi verulega slá á sársauka at- vinnuleysis til sjós og Iands með efl- ingu útgerðar smábáta og minni skipa. - HEI Aðalfundur Rauða kross íslands: 145 milljónir til hjálpar erlendis Guðjón Magnússon var endurkjör- inn formaður Rauða kross íslands á aðalfundi, sem haldinn var um sl. helgi. Arið 1991 var mjög annasamt hjá Rauða krossi íslands bæði innan lands og utan. Meðal verkefna hans var að taka á móti 30 víetnömskum flóttamönnum, brugðist var við 42 hjálparbeiðnum frá höfuðstöðvum hreyfingarinnar í Genf og 24 sendi- fulltrúar fóru utan til hjálparstarfs á árinu 1991. 7 þróunarverkefni voru styrkt í Afríku og Asíu, en alls var 145 millj- ónum varið til hjálparstarfs erlend- is. Þar af komu 65 milljónir frá rfk- inu og 32 í söfnun, sem nefndist „Sól úr sorta". —GKG.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.