Tíminn - 11.06.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 11. júní 1992
Vélamarkaður
• •
JOTUNS
Vaxtalaust lán - sértilboð
Þið kaupið notaðar landbúnaðarvélar hjá okkur
fyrir 20. júní og borgið 6. september
VAXTALAUST
Listi yfir notuð tæki til á lager
i CLAAS 185 Sláttuþyrla
með blásara
i PZ 330 Múgavél
i PZ 331 Múgavél
i PZ 381 Múgavél
i PZ 600 Heytætla
• KVERNELAND 7512
Heypökkunarvél
• MF4 Heybindivél
• Vestmek Rúllutætari
• CLAAS R4689 Rúllu-
bindivél
• MF 60H 1987 grafa
• CLAAS R66 87 rúllubindi-
vél 150x120
• Deutz-Fahr 87 rúllubindi-
vél 120x120
• MF 87 heybindivél
• MF 365 dráttarvél 2wd
1987 65 hö.
• MF 350 dráttarvél 2wd
1987 47 hö.
• MF 355 dráttarvél 4wd
1988 55 hö.
• MF 350 dráttarvél 2wd
1988 47 hö.
• MF 240 dráttarvél 2wd
1986 47 hö.
• CASE 1394 dráttarvél
m/tæk]um 4wd 1985 71 hö.
• MF 390T dráttarvél 4wd
1990 90 hö.
• UNIV. 445 dráttarvél 2wd
1986 47 hö.
• SAME EXPL. dráttarvél
4wd 198560 hö.
• IH XL585 dráttarvél 2wd
1985 58 hö.
• MF 350 dráttarvél 1987
• MF 240 dráttarvél 2wd
47 hö.
• MF 355 dráttarvél
m/trima ámoksturstækjum 2wd
55 hö.
• MF 3080 dráttarvél
m/frambúnaöi 1987 4wd 100 hö.
• MF 205 iönaðarvél
m/ámoksturstækjum 66
• CASE 783 dráttarvél
m/veto ámoksturstækjum 4wd
1989
• Deutz 6207 dráttarvél
m/grind 1982
• Eigum einnig Bandit sláttuvélar
fyrir bæjarfélög og golfklúbba á
sérstökum afsláttarkjörum.
MUÍsOÚÍfig
HOFÐABAKKA 9 ■ 112 REYKJAVIK ■ SÍMI 91-634000
TIL SÖLU FASTEIGNIR Á
PATREKSFIRÐI
Kauptilboð óskast í:
Aðalstræti 51, Patreksfirði, íbúð á neðri hæð,
stærð íbúðar 160,6 m3, brunabótamat kr.
2.769.000,-. Eignin verður til sýnis í samráði við
Símon Fr. Símonarson, Patreksfirði, sími: 94-
1110.
Aðalstræti 55, Patreksfirði. Stærð hússins 848
m3, brunabótamat er kr. 10.873.000,-. Húsið
verður til sýnis í samráði við Stefán Skarphéð-
insson sýslumann, sími: 94-1187.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum
aðilum og á skrifstofu vorri að Borgartúni 7,
Reykjavík. Tilboð skulu berast á sama stað fyrir
kl. 11:00 f.h. þann 22. júní 1992 merkt: „Útboð
3837/2“ þar sem þau verða opnuð í viðurvist við-
staddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVlK
GARÐSLÁTTUR
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Upplýsingar í síma 41224, eftir kl. 18.00.
-------í-----------------------------------------------------------------
Aganefnd KSÍ hefur aðvarað Valsmenn vegna atviks í leik Vals og ÍA
þar sem aðsúgur var gerður að dómaratríói:
Lögreglan á Vals-
velli í heima-
leik gegn Fram
Á fundi aganefndar KSÍ á þriðjudag var tekið fyrir mál vegna atviks
sem gerðist á leik Vals og Akurnesinga á dögunum, þar sem ráðist
var á annan línuvörð og aðsúgur gerður að dómara og línuvörðum
eftir leikinn. Aganefnd samþykkti á fundi sínum að ítreka það við
forráðamenn Vals að öryggis dómara, línuvarða og leikmanna verði
gætt. Gæsla á Valsvellinum hefur verið ófullnægjandi og það er
ljóst að ef þeir hlutir verða ekki lagaðir og atburðir eins og þeir sem
gerðust á Valur-ÍA endurtaka sig þá missa Valsmenn heimaleik.
Næsti heimaleikur, sem er gegn
Fram, verður þriðjudaginn lö.júní
og það er því frídagur daginn eftir.
Það má því fastlega gera ráð fyrir
að ölvun verði talsverð á leiknum
og það því ljóst að Valsmenn verða
að taka öryggismálin á Hlíðarenda
föstum tökum. Helgi Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Vals, sagðist
harma atvikið á dögunum og sagði
að gæsla hefði ekki verið nægileg
vegna misskilnings milli aðila inr.-
an félagsins.
Þá hafi það einnig verið mis-
skilningur að ekki hefði verið
gæsla um dómarann eftir leikinn,
því það hefðu verið óeinkennis-
klæddir stjórnarmenn sem hefðu
slegið hring utan um dómaratríóið
en þeir hefðu ekki verið að gera að-
súg að dómaranum eins og fram
hefði komið í fjölmiðlum. „Það er
alveg ljóst að öryggismálin á
þriðjudaginn verða tekin föstum
tökum og við ætlum ekki að láta
þetta koma fyrir aftur. Við höfum
talað við lögregluna í Reykjavík og
hún verður á staðnum ásamt félög-
um í Val sem munu aðstoða við
gæslu,“ sagði Helgi Kristjánsson,
framkvæmdarstjóri Vals, í samtali
við Tímann.
-PS
Menntamálaráðuneytið hefur lagt bann á byggingu gróðurhúss
á Laugarvatni. Haukur Torfason deildarstjóri:
Gróðurhúsið þrengir
of að skólabyggingu
Byggingardeild menntamálaráðuneytisins hefur lagt bann við bygg-
ingu gróðurhúss í gróðrarstöðinni á Laugarvatni, sem þó höfðu ver-
ið veitt tllskilin leyfi fyrir af hálfu byggingaryfirvalda. Þá hefur ver-
ið látið að því liggja að lóðarsamningi við gróðrarstöðina verði rift.
Landið er í eigu menntamálaráðuneytisins og að sögn Hákons Torfa-
sonar, deildarstjóra í ráðuneytinu, var lagt bann á bygginguna þar eð
ljóst þótti að gróðurhúsið myndi þrengja of mikið að skólabyggingu
á svæðinu
„Við vorum að byggja hér gróð-
urhús. Við höfðum fengið bygging-
una samþykkta í bygginganefnd og
hreppsnefnd og byrjuð að grafa
grunninn. Þá birtast hér skyndilega
fulltrúar menntamálaráðuneytisins
og leggja blátt bann við þessari
byggingu þar sem ekki sé leyfi fyrir
henni af hálfu menntamálaráðu-
neytisins," segir Hjördís B. Ásgeirs-
dóttir, garðyrkjumaður á Laugar-
vatni.
Greint var hér í Tímanum í gær
frá ályktun ársfundar Sambands
sunnlenskra kvenna þar sem skor-
að er á menntamálaráðuneytið að
hverfa frá fyrirætlunum um að
leggja niður gróðrarstöðina á Laug-
arvatni, sem Ragnar Ásgeirsson,
garðyrkjuráðunautur og fræðimað-
ur, stofnaði árið 1930.
„Við höfum nú byggt tvö gróður-
hús hér áður án þess að vera krafin
um leyfi menntamálaráðuneytisins.
Það hefur yfirhöfuð enginn hér á
staðnum verið krafinn um sérstakt
byggingaleyfi, hvorki fyrir íbúðar-
hús eða annars konar hús, þótt
menntamálaráðuneytið eigi allt
land á Laugarvatni,“ segir Hjördís.
Hún segir að staðið hafi til að taka
nýja húsið í notkun í byrjun júlí-
mánaðar en þar sem ekki hafi mátt
byggja það í tíma geti það ekki orð-
ið tilbúið í tæka tíð og nú of seint
að hefja framkvæmdir. Ekki hafi
fengist hjá fulltrúum menntamála-
ráðuneytisins uppgefnar ástæður
fyrir neituninni eða hverjar fyrir-
ætlanir ráðuneytisins eru í málefn-
um gróðrarstöðvarinnar. í bréfi
ráðuneytisins stæði hins vegar að-
vörun um að verið gæti að lóðar-
samningi við stöðina yrði sagt upp.
Hákon Torfason, deildarstjóri
byggingardeildar menntamálaráðu-
neytisins, sagði í samtali við Tím-
ann að ef byggt yrði meira við
gróðrarstöðina væri farið að
þrengja mjög að húsnæði Hús-
stjórnarskólans sem nú er notaður
undir starfsemi íþróttakennara-
skólans. Þá sé húsið leigt á sumrin
undir hótelrekstur og ef gróðrar-
stöðin verði stækkuð aukist líkur á
að ónæði og ýmis önnur óþægindi
trufli hótelgesti. Hann sagði jafn-
framt að unnið væri að lausn á
þessu máli og það væri einlægur
vilji ráðuneytismanna að leysa mál-
ið í góðu sámkomulagi við eigend-
ur gróðrarstöðvarinnar. Komið
hefði til tals að bjóða eigendunum
aðra lóð og rýmri og væri verið að
skoða það mál nú.
Ein ástæða þess að það er vilji
fýrir því að færa starfsemi gróðrar-
stöðvarinnar er að í henni nú eru
ræktaðar að mestu leyti skógar-
plöntur. Upphaflega hefðu verið
ræktaðir þar ávextir og sumarblóm
og þau seld á staðnum og er nú vilji
fyrir því meðal heimamanna að
slíkri starfsemi verði komið upp aft-
ur á þessum stað og þá án þess að
stöðin yrði stækkuð.
Drífa Hjartardóttir, bóndi á Keld-
um á Rangárvöllum, er formaður
Sambands sunnlenskra kvenna.
Hún segir að fráleitt sé að leggja
stöðina niður og komi þar tvennt
til: Annars vegar sé hún lögbýli og
eigendur hennar hafi byggt upp at-
vinnurekstur sinn sem nú vegi tals-
vert þungt í atvinnulífi fámennrar
sveitar. Þá eigi stöðin sér merka
sögu sem ástæðulaust sé að binda
enda á.
-PS/sá
Listahátíð — stöðugt stiklandi um:
Súkkulaði-Mozart
í Borgarleikhúsi
Leikhúsveislan heldur áfram og nú
er komið að Frökkum að stíga á svið.
Théatre de l’Unité sýnir „Mozart au
Chocolat" kl.20:00 í Borgarleikhús-
inu í kvöld. Leikhúsið var stofnað
sem götuleikhús en flytur sig inn í
leikhúsið án mikillar fyrirhafnar
þegar viðeigandi þykir.
Gunnar Kvaran sellóleikari og
Gísli Magnússon píanóleikari leika í
íslensku óperunni kl.20:30 en þeir
gáfu út plötu á síðasta ári með klass-
ískum smáverkum fyrir selló og pí-
anó.
Risaeðlan og Þríhornið leika í
Klúbbi Listahátíðar í kvöld. Þríhorn-
ið skipa þeir Áskell Másson, Guð-
mundur Steingrímsson og Stein-
grímur Guðmundsson. Vekja ber at-
hygli á að atriði geta bæst við í
klúbbnum án fýrirvara.
—GKG.