Tíminn - 11.06.1992, Síða 7
Miðvikudagur 11. júní 1992
Tíminn 7
Sameiainlegur
vorfunaur fram-
sóknarkvenna
Félag framsóknarkvenna í Arnes-
sýslu og Freyja, félag framsóknar-
kvenna í Kópavogi, héldu nýlega
sameiginlegan vorfund í Félags-
lundi í Gaulveijabæjarhreppi.
Um sjötíu konur voru á fundinum
og áttu góða stund saman. Borðaður
var veislumatur, gamanmál voru
flutt og sunginn fjöldasöngur. Þá
flutti Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, deildarstjóri upplýsingadeild-
ar Tryggingastofnunar ríkisins, er-
indi um almennar tryggingar. Mikil
stemmning ríkti á fundinum og
gerðu konur góðan róm að slíkum
sameiginlegum vorfundi. Fundar-
stjóri var Unnur Stefánsdóttir, for-
maður LFK.
Bio-rokk 92:
Tónleikar í Laugardalshöll
Rjóminn úr íslenska poppinu kem-
ur fram á tónleikunum: Bubbi
Morthens, Síðan skein sól, Sálin
hans Jóns mín, Ný dönsk og
Todmobile. Tónleikamir verða
kvikmyndaðir í heild sinni og verða
einnig teknir upp fyrir væntanlega
hljómplötu.
Það er kvikmyndafyrirtækið Art-
film, sem stendur fyrír tónleikunum
ásamt íþrótta- og tómstundaráði og
Listahátíð í Reykjavík. Art-film hef-
ur nýhafið tökur á kvikmyndinni
„Stuttur frakki" og verða tökur frá
tónleikunum notaðar í hana. Kvik-
myndin fjallar að einhyerju leyti um
menningarsamstarf íslendinga og
Frakka og segir frá ungum Frakka,
sem sendur er til Islands í leit að
hæfileikafólki. Lendir hann í hinum
mestu svaðilförum og kemur meðal
annars á tónleikana.
Það er Friðrik Erlingsson, nýr
barnabókaverðlaunahafi, sem skrif-
ar handrit, en leikstjóri er Gísli
Snær Erlingsson. Aðalhlutverk í
myndinni leika franski leikarinn Je-
an-Philippe Labodie og þau Hjálmar
Hjálmarsson og Elva Osk Gísladótt-
ir. Áætlað er að frumsýna myndina
um miðjan janúar á næsta ári.
Miðaverð á tónleikana er kr. 1000
í forsölu, en 1500 á tónleikadaginn.
Forsala er í Iðnó og verslunum
Steinars. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 20.
Björgvin Halldórsson framkvæmdastjóri Studios Sýrlands, Run-
ólfur B. Leifsson framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, og
Sigursveinn K. Magnússon stjórnarformaður hennar.
Sígild jólalög
Hljómplötusamningur hefur verið
undirritaður af Skífunni hf. og Sin-
fóníuhljómsveit íslands um gerð og
útgáfu á jólaplötu, sem gefín verður
út fyrir þessi jól.
Sinfóníuhljómsveitin leikur þar
sígild jólalög og mun Ed Welch sjá
um útsetningar, sem og stjórn
hljómsveitarinnar. Ed þessi er tón-
skáld og útsetjari á Englandi, hvar
hann hefur öðlast góðan orðstír.
Kór Öldutúnsskóla og Sigrún
Hjálmtýsdóttir munu syngja á plöt-
unni. -GKG.
Glatt á hjalla í Félagslundi.
Gunnvör Braga Sigurðardóttir
Fædd 13. júlí 1927
Dáin 1. júní 1992
í dag, fimmtudaginn 11. júní, er
til moldar borin frú Gunnvör Braga
Sigurðardóttir, deildarstjóri hjá
Ríkisútvarpinu. Eftirlifandi eigin-
maður hennar er Björn Óskar Ein-
arsson tæknifræðingur, nú til heim-
ilis að Vogatungu 61 í Kópavogi.
Hér verður ekki rakin ætt Gunnvar-
ar Braga, það munu aðrir gera sem
betur þekkja til, en hún var dóttir
hins þekkta fræði- og útvarps-
manns, séra Sigurðar Einarssonar,
háskólakennara og síðast prests í
Holti.
Ég, sem þessar línur rita, kynntist
þeim hjónum, Birni og Gunnvöru,
fyrst þegar ég réðst sem bæjarritari
til Kópavogskaupstaðar 1962, en
Björn var þá annar af tveimur bæj-
arfulltrúum Framsóknarflokksins í
bæjarstjórn Kópavogs. Þá, eins og
Iöngum, var fjárhagur bæjarins erf-
iður og kom oft í hlut bæjarritarans
að skammta naumt til þeirra hluta,
sem ekki voru taldir til brýnustu
nauðsynja.
A þessum tíma var Hjálmar heit-
inn Olafsson bæjarstjóri í Kópavogi.
Hjálmar var mikill fagurkeri og
unni mjög listum og allri menningu
af lífi og sál.
Á þessum árum kom upp sú hug-
mynd að leggja smá hluta af út-
svarstekjum bæjarins í sérstakan
sjóð, sem hefði það hlutverk að
styrkja lista- og menningarlíf í bæn-
um. Þessi hugmynd mæltist mis-
jafnlega fyrir í fátæku bæjarfélagi,
þar sem hvarvetna blöstu við óleyst
verkefni og bæjarkassinn alltaf tóm-
ur. Ég þori ekki að fullyrða hvaðan
þessi hugmynd var upprunnin, en
bæjarritarann grunaði að þar væri
að verki bæjarfulltrúinn Björn Ein-
arsson og kannske ónefndur vinur
hans í bæjarstjórninni, með Gunn-
vöru Braga að bakhjarli og með
miklum velvilja bæjarstjórans. Það
fór enda svo að bæjarstjórnin sam-
þykkti að stofna Lista- og menning-
arsjóð Kópavogs og Gunnvör Braga
var kjörin fyrsti formaður sjóðsins,
sem fulltrúi Framsóknarflokksins,
og gegndi því starfi til fjölda ára af
miklum myndarskap. Það kom því í
hennar hlut að móta þessa starf-
semi, sem var nokkuð einstök á
þessum tíma og skipaði Kópavogi í
hóp þeirra sveitarfélaga sem mest
og best hafa hlúð að allri lista- og
menningarstarfsemi í gegnum tíð-
ina. Á þessu sviði nýttust Gunnvöru
hennar góðu gáfur og einstakur
áhugi á þessu sviði.
Starfs míns vegna hlaut ég að
kynnast Gunnvöru Braga á þessum
árum. Það var þó seinna, eða á árun-
um 1970 til 1974, þegar við Björn
Einarsson sátum saman í bæjar-
stjórn Kópavogs fyrir Framsóknar-
flokkinn, sem ég kynntist Gunnvöru
enn nánar. Ég minnist einkum ferð-
ar, sem við fórum nokkrir bæjarfull-
trúar úr Kópavogi til Hollands, þar
sem við vorum að skoða minni bæj-
arfélög, sem í vaxandi mæli unnu að
uppbyggingu miðbæjarkjarna til að
styrkja byggðina. En á þessum tíma
var unnið að skipulagi miðbæjarins
í Kópavogi. Ég man hvað Gunnvör
lagði mikla áherslu á að við skrypp-
um tii lítils bæjarfélags þar sem
komið hafði verið upp á miðbæjar-
svæðinu félagsmiðstöð, sem þjónaði
unglingastarfl hverskonar og einnig
leikstarfsemi, tónleikum, listsýn-
ingum o.fl. á sviði menningarmála.
Þegar við svo um kvöldið sátum
saman uppi á hóteli og hlustuðum á
Gunnvöru lýsa því hvað þessi bygg-
ing væri sniðin fyrir æskulýðs- og
menningarmiðstöð í vesturhluta
miðbæjar Kópavogs, þá held ég að
engum af þeim bæjarfulltrúum,
sem þarna voru saman komnir, úr
öllum flokkum, hafi blandast hugur
um að þessir hlutir yrðu að verða að
veruleika. Þannig gat Gunnvör verið
sannfærandi þegar um hennar
hjartansmál var að ræða.
Ég minnist einnig margra
ánægjustunda á heimili þeirra
Gunnvarar og Björns á Meltröðinni
í hópi annarra bæjarfulltrúa á þess-
um árum. Þær stundir stuðluðu
ekki minnst að þeim góða anda, sem
ríkti á þessum árum meðal bæjar-
fulltrúa í Kópavogi.
Gunnvör Braga var manni sínum
ávallt mikil stoð við rekstur þeirra
barnmarga heimilis, þar sem bæði
hjónin höfðu á sinni könnu marg-
vísleg trúnaðarstörf utan heimilis. Á
þetta reyndi ekki minnst nú um
nokkurt skeið í þungbærum veik-
indum Björns. Hér er því um sárt að
binda nú, þegar hún er svo skyndi-
lega hrifin á brott á góðum aldri.
Um leið og ég vil heiðra minn-
ingu Gunnvarar Braga og þakka
henni samfylgd, þá bið ég góðan
Guð að styrkja Björn í djúpri sorg
hans. Börnum þeirra og öllu vensla-
fólki votta ég dýpstu samúð.
Guttormur Sigurbjörnsson