Tíminn - 11.06.1992, Side 9
Tíminn 9
Fimmtudagur 11. júní 1992
DAGBÓK
Umhverfisskoöunarferö um
Reykjanesskaga
Hið íslenska náttúrufræðifélag gengst
fyrir umhverfisskoöunarferð um
Reykjanesskaga í samvinnu við Land-
vemd og Náttúruvemdarfélag Suðvest-
urlands (NVSV). Farið verður laugardag-
inn 13. júní n.k., kl. 10 frá Umferðar-
miðstöðinni. Lögð verður áhersla á áhrif
landnýtingar (byggð, umferð utan vegar,
hrossabeit, efnisnám, orkuvinnslu, at-
vinnurekstur og mannvirkjagerð) á nátt-
úmfar skagans, einkum grunnvatns-
spjöll og jarðvegseyðingu. Staldrað verð-
ur í Straumsvík, Vatnsleysuvík — Keilis-
nesi, Njarðvík við Keflavíkurflugvöll,
Stapafell, Reykjanes, Staðarhverfi f
Grindavík, Svartsengi og í Krýsuvík og
Vatnsskarði. Gert er ráð fyrir að koma
aftur um eða upp úr kl. 18. Frá HÍN
verða leiðsögumenn um náttúrufar, auk
þess sem fræðendur frá Landvemd og
NVSV munu miðla fróðleik. Þátttaka er
öllum opin, en gjald fyrir ferðina verður
kr. 1200. Fararstjórar verða Guttormur
Sigbjamarson og Freysteinn Sigurðs-
son. Nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu HÍN, Hlemmi 3, sími (91)-
624757.
Nýjungar í
smáiðnaði
Iðnaðarráðuneytið áformar í samstarfi við Iðn-
tæknistofnun íslands, Byggðastofnun og at-
vinnuráðgjafa út um land að veita aðstoð þeim,
sem hyggjast stofna til nýjunga í smáiðnaði eða
stofna ný iðnfyrirtæki, einkum á landsbyggðinni.
Aðstoðin er fyrst og fremst ætluð til þess að
greiða fyrir tæknilegum undirbúningi, hönnun,
stofnsetningu og markaðssetningu nýrrar fram-
leiðslu og er sérstaklega ætluð þeim sem hafa
þegar skýrt mótuð áform um að hefja slíka starf-
semi og vilja leggja í hana eigið áhættufé.
Þeim, sem vilja kynna iðnaðarráðuneytinu áætl-
anir sínar eða áform af þessu tagi, er bent á að
senda umsóknir merktar: Iðnaðarráðuneytið,
Nýjungar í smáiðnaði, b/t Árna Þ. Árnasonar,
skrifstofustjóra, Arnarhvoli, 150 Reykjavík.
ssssssssssssssssssllmsóknir skulu hafa borist
eigi síðar en 1. október n.k.
Reykjavík, 4. júní 1992
Iðnaðarráðuneytið
Umboösmenn Tímans:
Kaupstaður Nafn umboðsmanns Helmlll Slml
Keflavík Guðrlður Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarðvík Katrín Sigurðardóttir Hólagata 7 92-12169
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Soffia Óskarsdóttir Hrafnarkletti 8 93-71642
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarfjörður Anna Aöalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Lilja Guðmundsdóttir Gufuskálum 93-66864
Búöardalur Sigurlaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
(safjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Hólmavík Elisabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangi Hólmfríöur Guðmundsd. Fífusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjamason Urðarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauöárkrókur Guðnjn Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-35311
Sigluflörður Sveinn Þorsteinsson Hlíðarvegi 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Sólvöllum 7 96-24275
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016
Húsavík Saevar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbvaað 8 96-62308
Raufarhöfn Eria Guömundsdóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Vlglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
Seyðisfjöröur Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður Heimir Ásgeirsson Melagötu 14 97-71461
Reyðarfjörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
EskiQörður Björg Siguröardóttir Strandgötu 3B
FáskrúðsfjörðurGuðbjörg Rós Guðjónsd. Skólavegi 26 97-51499
Djúpivogur Ingibjörg Olafsdóttir Borgaríandi 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 97-81274
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hverageröi Þóröur Snæbjamarson Heiömörk 61 98-34191
Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbakki Bjarni Þór Erlingsson Túngötu 28 98-31198
Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónlna og Árný Jóna Króktúni 17 98-78335
Vlk Ragnar Freyr Karisson Ásbraut 3 98-71215
VestmannaeyjarMarta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
iifi
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. maí er skrifstofa okkar I Hafnarstnæti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Dregið verður I sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 19. júní n.k.
Velunnarar flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda glróseðla fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91-624480.
Framsóknarflokkurinn.
Albert Mónakóprins var verndari Monte Carlo veröiaunanna. Hann er hér í hópi frægra kynna á hátíö-
inni, Ursulu Andress, Claudiu Schiffer og Britt Ekland.
Verðlaun rokk- og
poppheimsins af-
hent í Monte Carlo
Mick Hucknall söngvari Simply Red óskaöi Rozalla til hamingju.
Fyrir skömmu safnaðist saman í
Monte Carlo fjöldi frægs fólks úr
rokk- og poppheiminum, toppfyr-
irsætur, leikarar og leikkonur og
var tilgangurinn sá að skemmta
sér í þrjá daga og æfa sig fyrir
fjórðu veitingu árlegra tónlistar-
heimsverðlauna. Listamennimir
komu frá öllum heimshornum s.s.
Afríku, Ástralíu og Kanada.
Verndari verðlaunanna er prins
Albert og hafði hann sér til full-
tingis fjölda frægs fólks sem ann-
aðist afhendingu verðlaunanna
fyrir söluhæstu plötumar. Þar í
hópi vom m.a. Cliff Richard og OI-
ivia Newton-John, Claudia Schif-
fer, Ursula Andress og Britt Ek-
land.
Þá var að finna í hópi gesta ekki
síður frægt fólk, m.a. fyrirsætuna
Helenu Christenson sem kom til
að fylgjast með þegar kærastinn
hennar, Michael Hugchence
söngvari INXS, veitti tvennum
verðlaunum viðtöku eða fyrir að
vera mest seldi listamaður Astralíu
og að hafa lagt manna mest fram
til rokktónlistarinnar.
Simply Red skemmtu sér hið
besta enda vom þeir að halda há-
tíðlegan tvöfaldan sigur, fyrir mest
selda breska tónlistaratriðið og að
plötualbúm þeirra Stars er mest
seldi geisladiskur allra tíma í Bret-
landi.
En Mick Hucknall, söngvari
Simply Red, gaf sér tíma til að
óska Rozalla til hamingju fyrir að
hafa fengið verðlaun sem mest
seldi listamaður Afríku fyrir Ev-
erybody’s Free. Hún býr í London.
Fyrirsætan Helena Christenson fagnaöi meö Cliff Richard og Olivia Newton-John voru meðal
kærastanum sínum, Michael Hutchence í INXS. þeirra sem afhentu verölaunin. Þau rifjuöu upp
samstarfiö frá sjöunda áratugnum.