Tíminn - 21.07.1992, Side 1
Þriðjudagur
21. júlí 1992
132. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Skýrsla Johns G. Pope, sérfræðings við fiskirannsóknastofn-
unina í Lowerstoft, um þorskveiðar (slendinga:
Þorskaflinn verði
mest 150 þús. tonn
Frá slysstað í Kollafirði á sunnudag. Tímamynd Slguratelnn
Umferðarslys á Vesturlandsvegi:
Bíll lenti
utan vegar
Umferðarslys varð á Vesturlands-
vegi í Kollafirði á sunnudaginn rétt
eftir kl.l7:00.
Þar hafði bíll lent utan vegar og á
vegrið fyrir botni fjarðarins.
Ökumaður og tveir farþegar voru
fluttir með sjúkrabifreið á slysa-
deild. Ökumaðurinn reyndist
ómeiddur, farþegi í framsæti hlaut
höfuðmeiðsl og farþegi í aftursaeti
minniháttar meiðsl.
Bfilinn var fluttur í burtu með
kranabifreið.
Um kl.18:00 urðu 5 árekstrar í
Reykjavík; 3 á Bæjarhálsi og 2 á
Vesturlandsvegi við Höfðabakka. All-
ir voru árekstrarnir minniháttar.
Kl. 19:13 var lögreglunni tilkynnt
um árekstur tveggja bfla við Hest-
háls.
Ökumaður annars bflsins var flutt-
ur með sjúkrabíl á slysadeild. Báðir
voru bflamir fluttir á braut með
krana. —GKG.
Leifur heppni óheppinn í fjármálum í síðustu
Ameríkuferðinni:
Leifur heppni
sneri heim
með 5,2 m.kr.
ferðaskuld
þróaði báðar síðarnefndu aðferðir,
var í Lowerstoft-vinnuhópnum og
lagði á ráðin um notkun þessara að-
ferða. TVúverðugustu niðurstöður
úr öllum þessum aðferðum voru
mjög í líkingu við niðurstöður
Norðvesturvinnunefndar ACFM og
reyndust meðalfiskveiðidánarstuðl-
ar Lowetoft-vinnuhópsins vera inn-
an við 10% frá niðurstöðum hennar.
John G. Pope telur að þessar niður-
stöður séu innan líklegra skekkju-
marka á stofnmatinu. ,AHar aðferð-
irnar benda til þess að meðalfisk-
veiðidánarstuðlar séu háir. Þar sem
tvær síðastnefndu aðferðirnar taka
ekki tillit til gangna þorsks frá
Grænlandi til íslands né niður-
staðna úr stofnmælingum botnfiska
árið 1992 lít ég svo á að niðurstöður
vinnunefndar ACFM gefi besta mynd
af núverandi ástandi þorskstofnsins
miðað við fyrirliggjandi gögn. Aðal-
niðurstöður um þróun fiskveiði-
dauða undanfarið í íslenska þorsk-
stofninum voru ennfremur staðfest-
ar með svokallaðri fervikagrein-
ingu.“
Þá segir í skýrslu Popes að athug-
anir bendi til að veiðidánartalan í ís-
lenska þorskstofninum sé allt of há
fyrir flest markmið veiðistjórnunar
og vænta megi meiri afla, stærri
stofns, hærri afla á sóknareiningu
og meiri arðsemi af veiðunum við
minni sókn. - Það var almenn sam-
staða um það í vinnuhópnum að
mikil áhætta væri því samfara að
hrygningarstofn íslenska stofnsins
fari niður fyrir 180 þús. tonn á
hrygningartíma, og staða stofnsins
yrði miklu öruggari ef hann væri yf-
ir 400 þús. tonn. Aflaspár árin 1992-
1996 benda til að með núverandi
sókn muni hrygningarstofninn fara
niður fyrir 180 þús. tonn og aðeins
með því að draga úr sókninni um
40% muni nægilega öruggt að
hrygningarstofninn vaxi viðunandi
hratt og fari ekki niður fyrir 180
þús. tonn.
„Þess vegna mæli ég með ráðgjöf
ACFM að öllu leyti og mæli með
henni við ríkisstjórn íslands," segir
John G. Pope í lok skýrslu sinnar.
-BS
Sjá einnig blaðsíðu 3
í ársskýrslu Útflutningsráðs segir
m.a. frá mikilli frægðarför Leifs
heppna til Ameríku sl. sumar. En
jafnframt kemur í ljós að Leifur
karlinn hefur eytt miklu meira í
ferðina en hann hafði safnað upp í
ferðakostnaðinn (eins og svo oft
hendir landann). Reikningar Út-
flutningsráös sýna að ferðakostn-
aður Leifs heppna var rösklega 6,8
milljónir, en tekjur aðeins tæplega
1,7 milljónir. Leifur var því svo
„óheppinn" að snúa heim í nær 5,2
milljóna skuld.
Skuld eða ekki skuld? „Hér var án
efa um að ræða eitt stærsta kynn-
ingarverkefni sem íslendingar hafa
tekið þátt í,“ segir í skýrslu Útflutn-
ingsráðs um þessa ferð Leifs og
norskra frænda hans til Kanada og
Bandaríkjanna. „íslensk fýrirtæki á
þessum slóðum og heima á íslandi
tóku þátt í þessari kynningarher-
ferð, t.d. með því að leggja til mat í
móttökur. Þótt erfitt sé að meta ár-
angur af starfsemi sem þessari, var
þó mælanleg mikil aukning á um-
fjöllun um ísland í bandarískum
blöðum, sjónvarpi og útvarpi."
- HEI
Hvernig á að pakka niður áður en haldið er á Ólympíuleika?
Vatn og grjót í farangri
íslenska Olympíuliðið hefur
ekki aðeins með sér íslenskt
vatn til Spánar, heldur sér líka
til þess að eilítill hraunmoli sé á
náttborðinu, eða svo segir í
fréttaskeyti frá Reuter-frétta-
stofunni.
„Þeir vonast til að það hvetji þá
að víkinga sið,“ segir í skeytinu.
Einar Vilhjálmsson spjótkastari
fullyrðir í samtali við fréttastof-
una að spænska vatnið standi því
íslenska ekki jafnfætis og segir að
aðeins þurfi eitt glass á dag af því
íslenska til að komast í gott form.
Hvað hraunmolana varðar segir
Einar: „Þetta er ekta víkinga-
hraun og það leynist mikið afl í
íslenskum steintegundum."
Hafrún Kristjánsdóttir, mark-
aðsstjóri hjá Sól hf., segir fyrir-
tækið hafa styrkt íslenska
Ólympíusundliðið með vatni:
„Það reynir að hafa sem mest
með sér upp á kostnaðinn og
annað og svona styrkjum við lið-
ið.“ —GKG.
Enski sérfræðingurinn John G.
Pope hefur skilað skýrslu til sjávar-
útvegsráðherra um ástand þorsk-
stofnsins við ísland. Meginniður-
staða skýrslunnar er stuðningur við
ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðs-
ins, sem hefur mælt með 150 þús-
und tonna hámarksafla á þorski
næsta fiskveiðiár.
John G. Pope setti á laggirnar 7
manna vinnuhóp vísindamanna við
Fiskrannsóknastofnunina í Lower-
stoft til að fara yfir úttekt á íslenska
þorskstofninum í smáatriðum. Auk
þeirra var tilkvaddur dr. Gunnar
Stefánsson frá Hafrannsóknastofn-
un og dr. Kristján Þórarinsson frá
Landsambandi íslenskra útvegs-
manna sem sat fundinn sem áheyrn-
arfulltrúi.
Vinnuhópurinn fór nákvæmlega yf-
ir gögn þau sem notuð voru af Norð-
vesturvinnunefnd Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins. Með smávægilegum
undantekningum var fallist á að
styðjast við það stofnmat. Vinnu-
hópurinn féllst einnig á aðferðir þær
sem Norðvesturvinnunefndin not-
aði við stofnmatið. Aðferðir Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins (ACFM) voru
John G. Pope heldur á skýrsl-
unni sem hann vann fyrir sjáv-
arútvegsráðherra.
Tímamynd Slgurstolnn
bornar saman við aðrar aðferðir til
að meta stofnstærð. Niðurstöðurnar
voru bornar saman við tímaraða-
greiningu, sem þróuð var af dr. Guð-
mundi Guðmundssyni hjá Seðla-
banka íslands, við niðurstöður úr
svonefndum Laurec-Shepherd og
XSA-aðferðum. Dr. Shepherd, sem