Tíminn - 17.09.1992, Síða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 17. september 1992
Hjá Dagsbrún hefur atvinnulausum fækkað úr 250 í 134:
Fullar atvinnuleysisbætur eni
tm 40 þúsund krónur á mánuði
Þaö var ys og þys á skrifstofu Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í
gær, en annan hvem miövikudag eru greiddar út atvinnuleysisbæt-
ur til þeirra félagsmanna, sem til þess hafa rétt. Blaðamaður og
ljósmyndari Tímans litu þar við í gærmorgun og tóku nokkra tali,
sem þar voru að ná í sínar atvinnuleysisbætur, sem í mörgum tilfell-
um er það eina sem viðkomandi hefur sér og sínum til framfærslu.
Sólveig Guðmundsdóttir á skrif-
stofu félagsins segir að fullar at-
vinnuleysisbætur á viku nemi
10.063 krónum, eftir að búið er að
draga frá greiðslur í lífeyrissjóð og
félagsgjald. Fullar atvinnuleysisbæt-
ur á mánuði eru því um 40 þúsund
krónur.
Heldur hefur þeim fækkað á at-
vinnuleysisskrá Dagsbrúnar frá því
flest var í vor. Þá voru alls 250
manns á skrá, en síðan hefur þeim
fækkað í 134, eins og staðan var í
gær. Ástæða þessarar fækkunar er
m.a. sökum þess að skólanemendur
eru hættir vinnu og farnir í nám,
auk þess sem meira framboð hefur
verið eftir vinnuafli í byggingavinnu
en áður var.
Sólveig segir að sumir reyni að
svindla á kerfinu og þá á þann hátt
að þeir vinna svokallaða „svarta
vinnu" á sama tíma og þeir eru
skráðir atvinnulausir og þiggja bæt-
ur samkvæmt því. Ef upp kemst um
svindlið, missir viðkomandi að sjálf-
sögðu rétt sinn til atvinnuleysis-
bóta.
Ennfremur-er það nokkuð algengt
að fólk vilji ekki taka þá vinnu sem
býðst, ef hún er ekki sambærileg við
þá atvinnu sem viðkomandi hafði
áður. Ef viðkomandi hafnar vinnu,
sem honum stendur til boða, án
þess að heilsufarsástæður komi þar
til, missir hann bótaréttinn, sam-
kvæmt lögum þar að lútandi,- -grh
Á hálfsmánaöarfresti á miö-
vikudögum er biðröð sem
þessi algeng sjón á skrifstofu
Dagsbrúnar, en þá eru greiddar
út atvinnuleysisbætur.
Tímamynd: Áml BJama
Án atvinnu í 2 ár:
Maður koðnar allur niður
,Áður fyrr hafði ég alltaf næga at-
vinnu og stundum svo mikla að ég
hafði ekki undan. Að vera atvinnu-
laus er hins vegar voðalega þrúg-
andi og maður koðnar nánast allur
niður. Þar fyrir utan er dagurinn
ákaflega lengi að líða,“ segir Kjart-
an Auðunsson, sem er 69 ára gam-
all.
Sigursteinn Olgeirsson, 29 ára.
Tímamynd: Áml BJama
Atvinnulaus af og til í
sex mánuði:
■■
Omurlegt
„Það er niðurdrepandi og hreint út
sagt ömurlegt að vera atvinnulaus,"
segir Sigursteinn Olgeirsson, 29
ára, sem hefur verið atvinnulaus í
mánuð eða svo. Þar á undan hafði
hann verið án atvinnu af og til í
hálft ár.
Áður en hann varð atvinnulaus
hafði Sigursteinn starfað sem sjó-
maður og einnig unnið á netaverk-
stæðum. Hann segir að atvinnuleys-
isbætumar, sem hann fær, séu dálít-
ið rokkandi, en upphæð þeirra fer
eftir því hvað hann skilar af sér
mörgum dagvinnutímum.
Sigursteinn segir að hann fái oft
sama svarið hjá atvinnurekendum
þegar hann bankar uppá hjá þeim.
Það er á þá leið að hann sé enn inni
í myndinni hjá þeim. Þrátt fyrir það
gerist bara ekkert og gangan á milli
atvinnurekenda heldur áfram. Hann
segist ekki vera bjartsýnn á að fá
vinnu von bráðar og telur að síðustu
aðgerðir ríkisstjórnarinnar í at-
vinnumálum muni ekki hjálpa sér.
-grh
Kjartan, sem vann síðast hjá Olís,
segir að hann fái um 18 þúsund
krónur á hálfsmánaðarfresti í at-
vinnuleysisbætur, sem hann segir
að sé ekki beysið til að framfleyta
sér, þótt hann sé einn og öll hans
börn séu uppkomin. Fæðiskostnað-
ur hans á mánuði er eitthvað um 20
þúsund krónur og svo þarf hann að
greiða húsaleigu, hita, rafmagn o.fl.
Þótt hlutskipti Kjartans sé ekki öf-
undsvert, þá gefúr hann ekki mikið
út á afleiðingar þess fyrir hann sjálf-
an. Þess í stað er hugur hans meira
bundinn við afleiðingar atvinnuleys-
is fýrir þá yngri. „Þetta hlýtur að
vera ákaflega erfitt fyrir þá og reyna
mikið á taugarnar."
Kjartan segir að það sé ákaflega erf-
itt að geta sér til um það, hvað fram-
tíðin ber í skauti sér fyrir hann sjálf-
an. Það hefur svo margt breyst í at-
vinnumálunum og í því sambandi
vísar hann til ástandsins í sjávarút-
veginum, sem má muna sinn fífil
fegurri. Hann segir að atvinnurek-
endur svari sér yfirleitt engu, þegar
hann er að falast eftir vinnu, enda
vilja þeir frekar yngri menn en þá
eldri, þótt þeir séu fullfrískir. Sumir
gerast þó svo grófir að segja við
hann: „Láttu þér bara duga ellilífeyr-
irinn," þó svo að þeir viti mætavel
hvað hann hrekkur skammt.
Hann segist ekki búast við því að
Kjartan Auöunsson, 69 ára.
Timamynd: Áml BJama
framkomnar hugmyndir ríkisstjóm-
arinnar til atvinnusköpunar muni
veita mörgum atvinnu. „Mér skilst
að þetta snerti fyrst og fremst þá
sem eiga þungavinnuvélar til vega-
gerðar."
Kjartan segir að það að vera at-
vinnulaus sé hlutskipti sem ekki sé
hægt að óska neinum. „Það er hægt
að fá svo mikið út úr vinnunni að
það getur enginn óskað sér að vera
án hennar," segir Kjartan Auðuns-
son. -grh
Ragnheiður Jónsdóttir, 22 ára, með 4 ára dóttur sína Elfsu.
Tlmamynd: Aml BJama
Atvinnulaus í 4 mánuði:
Andlega þreytt og pirruð
.Áhrif atvinnuleysisins á mig birt-
ist einna helst í því að ég verð and-
lega þreytt og pirruð. Hins vegar
skuldum við ekki neitt og það er
það jákvæða, eins og staðan er,“
segir Ragnheiður Jónsdóttir, 22
Atvinnulaus í fimm vikur:
Margir um hvert starf
„Ég er búinn að vera atvinnulaus í
fimm vikur, en konan mín er heima
í fæðingarorlofi. Ég hef ekki fengið
neinar atvinnuleysisbætur greiddar
enn, og konan á skrifstofunni gat
ekki sagt mér hvenær það gæti orð-
ið,“ segir Sigurður Sívertsen, 28
ára.
Sigurður, sem er fatlaður frá fæð-
ingu með aðeins úlnlið og tvo fingur
á öðrum handleggnum, vann áður
sem byggingaverkamaður hjá ístak.
Hann segir að fötlunin hái sér við
atvinnuleit, sem til þessa hefur verið
án árangurs. ,Maöur gengur á milli
vinnustaða í von um vinnu, en það
eru bara svo margir um hvert starf
sem losnar." Sigurður segist lesa at-
Siguröur Sívertsen, 28 ára, meö
6 mánaöa gamla dóttur sína,
EVU Rut. Tlmamynd: Áml Bjama
vinnuauglýsingarnar oft og nánast
upp til agna í von um að finna þar
eitthvað, sem að gagni gæti komið.
Hann segir að það verði ekkert úr
deginum, þótt hann reyni að dunda
sér við eitt og annað heima við. Sig-
urður og fjölskylda hans búa í leigu-
húsnæði og hann segir að það sé
virkilega erfitt að ná endum saman.
Þetta er í fyrsta skipti sem Sigurður
er atvinnulaus, en þrátt fyrir það
segist hann ekki vera sár út í samfé-
lagið. „Þótt þetta sé ömurlegt, verð-
ur maður að taka þessu, og ég er
heldur ekki einn um það að vera at-
vinnulaus."
„Ég hef ekkert fýlgst með fréttum,
en ef ríkið getur skaffað mér vinnu,
þá er það hið besta mál,“ sagði Sig-
urður Sívertsen. -grh
ára, sem hefur verið án atvinnu í
fjóra mánuði.
Áður hafði hún unnið á barnaheim-
ili Landakots, en missti atvinnuna
þegar því var lokað fyrr á árinu.
Ragnheiður er í sambúð og fyrir
skömmu fékk maður hennar tíma-
bundið pláss á sjónum, en hann
hafði áður verið atvinnulaus í fjóra
mánuði. Hún segir að vissulega hafi
hún vitað að hverju stefndi hjá
Landakoti og þegar barnaheimilinu
var lokað, hefðu fyrrum atvinnurek-
endur reynt að endurráða sem
flesta. „Ég áttaði mig ekki á ástand-
inu til að byrja með og tók þetta sem
sumarfrí, sem er orðið helst til of
Iangt."
Ragnheiður, sem er í Sókn, segir að
það gangi lítið að fá atvinnu, því áð-
ur þarf hún að fá leikskólapláss fyrir
dóttur sína, sem er 4 ára. Það geng-
ur hins vegar erfiðlega og á meðan
getur hún lítið aðhafst í atvinnuleit.
Hún segir að dagurinn hjá sér líði
við fátt annað en kaffidrykkju.
Aðspurð um ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar í atvinnumálum, seg-
ist hún vera búin að missa allt álit á
ríkisstjórninni, jafnframt því sem
hún telur að atvinnulausum muni
ekki fækka í kjölfarið. -grh