Tíminn - 17.09.1992, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 17. september 1992
Tíminn 11
KVIKMYNDAHUS
LEIKHUS
vffftlí/
V,
ÞJÓÐLEIKHUSID
Stóra sviðlð:
HAFIÐ
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Fmmsýning laugardaginn 19. septem-
ber kl. 20:00
Önnur sýning sud. 20. sept., þriðja sýn-
ing föd. 25. sept., fjórða sýning iaud. 26.
sept.
Lýsing: Páll Ragnarsson
Leikmynd og búningan Þórunn S. Þor-
grímsdóttir
Leikstjóm: Þórtiallur Sigurösson
Leikendur: Helgi Skúlason, Margrét
Guðmundsdóttir, Bríet Héðinsdóttir,
Pðlrpi Gestsson, Randver Þoríáksson,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttlr, Jóhann
Siguröarson, Ragnheiöur Steindórs-
dóttlr, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Stefán
Jónsson, Þórey Sigþórsdóttir, Edda
Amljótsdóttir og Sigurður Sigurjóns-
son
KÆRA JELENA
eftir Ljúdmilu Razumovskaju
Fyrsta sýning á stóra sviöi laud. 3. okL
ki. 20:00 uppselt.
Önnur sýning föd. 9. okt., þriðja sýning
sud. 11. okt.
IKATTHOLTI
cftir Astrid I.indgrcn
Sýning sd. 27/9 kl. 14:00, sd. 4/10 ki.
14:00, sd. 11/10 kl. 14:00
Litla sviðiö:
KÆRA JELENA
Fid. 17/9, föd. 18/9, Id. 19/9, sd. 20/9,
föd. 25/9, Id. 26/9, sd. 27/9 kl. 20:30
Uppselt á allar sýningar til og með 27/9.
Ath. að ekki er unnt að hleypa gestum
inn i salinn eftir að sýning hefsL
Sala aðgangskorta stendur yfir á 3.- 8.
sýnlngu.
Ath. að kortasölu á 3. og 4. sýn. lýkur
laugard. 19. sept.
Verð aðgangskorta kr. 7.040.
Elli- og örorkulifeyrisþegar kr. 5.800.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13-20 meöan
á kortasölu stendur. Miðapantanir frá kl.
10 virka daga I slma 11200.
Greiðslukortaþjónusta Græna llnan
996160 — Leikhúslinan 991015
<mi<9
LEIKFÉLAG
REYKJAVtKUR
DUNGANON
eftir Bjöm Th. Bjömsson
Leikstjóri Brynja Benediktsdóttir
Leikmynd og búningar Sigutjón Jó-
hannsson
Lýsing: Láms Bjömsson
Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson, Kari
Einarsson
Leikarar: Hjalti Rögnvaldsson, Ami Pétur
Guöjónsson, Bjöm Ingi Hilmarsson, Egg-
ert Þortelfsson, Ellert A Ingimundarson,
Felix Bergsson, Guörún Ásmundsdóttir,
Jakob Þór Elnarsson, Jón Hjartarson, Jón
Júliusson, Jón SL Kristjánsson, Karl
Guömundsson, Krístján Franklln Magnús,
Margrét Helga Jóhannsdóttir, Steinunn
Ólina Þorsteinsdóttir, Steindór Hjörieifs-
son, Valgerður Dan, Valdimar Flygenrtng,
Þorsteinn Gunnarsson, Þröstur Guð-
blartsson, og Ásta Júlía Theodórsdóttir,
Astriöur Guömundsdóttir, Bjöm Gunn-
laugsson, Hafsteinn Halldórsson, Helga
Þ. Stephensen, Ivar Þórhallsson, Kari V.
Kristjánsson og Saga Jónsdóttlr.
Fmmsýning föstudaginn 18. sept kl. 20.00.
Uppselt
2. sýn. laugard. 19. sept grá kortgilda
3. sýn. sunnud. 20. sepL rauö kort gilda
4. sýn. föstud. 25. sepL blá kortgilda
5. sýn. laugard. 26. sept. gul kort gilda
6. sýn. sunnud. 27. sept grasn kort gilda
Miðasalan er opin alla daga frá kl. 14-20
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir I síma 680680 alla virka daga
frákl. 10-12.
Faxnúmer 680383. Greiðslukortaþjónusta.
Leikhúsllnan 99-1015. Aögöngumiöar
óskast sóttir þrem dögum fyrir sýningu.
Ath.: Sölu aögangskorta lýkur 20. sept
Munið gjafakortin okkar, skemmtileg gjöf.
Lelkfélag Reykjavfkur Borgarielkhús
ilSINilBOOIININiooo
Grunaður um grœsku
Sýndkl. 5, 7, 9 og 11.10
Bönnuð innan 16 ára
Varnarlaus
Hörkuspennandi þriller.
Sýndkl. 5, 7, 9 og 11.10
Bönnuö innan 16 ára
Ógnareðll
Myndin sem er að gera allt vitlausL
Sýndkl. 5, 9 og 11.15
Stranglega bönnuö innan 16 ára
Lostœtl
Hrikalega fyndin og góð mynd.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Bönnuð innan 14 ára
Kolstakkur
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð innan 16 ára
Blskup f vfgahug
Sýnd kl. 11
Homo Faber
33. sýningarvika
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
'LAUGARAS=
Siml32075
Frumsýnir
Feröln tll Vesturtielms
Tekin á Panavision Super 70 mm filmu og nýtur
sin vel á stóru flaldi I Dolby Stereo.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.30 föstudag og laugardag
Aöra daga kl. 5 og 91 A-sal og kl. 7 og 11 i B-sal
Beethoven
Sinfónla af grini, spennu og vandræöum.
Sýnd kl. 5 og 7
Hrlngferö tll Palm Sprlngs
Sýnd kl. 5 i C-sal og kl. 11 I B-sal föstu-
dag og laugardag
Aðra daga kl. 5 I C-sal
Amerfkanlnn
Sýnd kl. 9 og 11.15
Bönnuð innan 16 ára
Sýnir meistaraverkið
Gott kvöld, herra Wallenberg
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10
Ár byssunnar
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05
Bönnuð innan 16 ára
Rapsödfa f Agúst
Sýndkl. 7.15 og 11.05
Svo A Jöröu sem A hlmnl
Eftin Kristlnu Jóhannesdóttur
_ Aöall.: Pierre Vaneck, Álfrún H.
Ömólfsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Valdimar Flygenring, Sigríður Hagalln,
Helgi Skúlason.
Sýndkl. 5, 7.30 og 10
Verð kr. 700.-
Lægra verð fýrir böm innan 12 ára
og ellilffeyrisþega
Veröld Waynes
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05
Stelktlr greenlr tómatar
Sýnd kl. 5 og 9
OPERAN
IIE'
ÍSLENSKA ÓPERAN
Jllll GAMLA BlÓ INGÓLFSSTRÆTl
2uota
'no&F’
eftir Gaetano Donizetti
Hljómsveitarstjóri: Robin Stapleton.
Leikstjóri: Vichael Beauchamp.
Leikmynd og búningahönnun: Lubos
Hruza.
Ljósahönnun: Jóhann B. Pálmason.
Sýningarstjóri: Krístin S. Krístjáns-
dóttlr.
Aðstoðarbúningahönnun: Helga Rún
Pálsdóttir.
Aðstoð við leikstjóm: Lilja (varsdóttir.
Kór Islensku ópemnnar.
Hljómsveit Islensku óperunnar.
Konsertmeistari: Zbigniew Dubik.
Hlutverkaskipan:
Lucia: Sigrún HJálmtýsdóttlr.
Enrico: Bergþór Pálsson.
Edgardo: Tito Beltran.
Raimondo: Siguröur Steingrímsson.
Arturo: Siguröur Bjömsson.
Alisa: Signý Sæmundsdóttir.
Normanno: Bjöm I. Jónsson/Sigurjón
Jóhannesson.
FRUMSÝNING: Föstudaginn 2. októ-
ber kl. 20.00.
HÁTlÐARSÝNING: Sunnudaginn 4.
október kl. 20.00.
3. SÝNING: Föstudaginn 9. október kl.
20.00.
Styrktarfélagar eiga forkaupsrétt að
miðum dagana 15.-18. september.
ALMENN SALA MIÐA HEFST 19.
SEPTEMBER.
Miðasalan er nú opin kl. 15.00-19.00
daglega, en til kl. 20.00 sýningardaga.
SlM111475.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
fréttablað
Ljósleiðarínn
Inn í hús
Ljósleiöarinn er kominn inn f hús á
Patreksfirði, þ.e.a.s. inn f símstöðvar-
húsið. Á sfðasta ári var ljósleiðarinn
lagður frá Búðardai og vestur í Reyk-
hólasveit, en eftír er að leggja hann yfir
Gilsfjörð. Hann verður að mestu ieyti
lagður í sjó frá Stað á Reykjanesi í Reyk-
hólasveit og alla leið vestur á Brjáns-
læk, en kemur á land á ystu nesjum. Á
þessari leið verða strengimir tveir, ann-
ar þeirra til vara.
Strengurinn er iagður yfir Kleifaheiði,
Botnaheiði og þaðan f tvær áttir, niður í
Tálknafjörð ogyfir Hálfdán til BfldudaJs
og í hina áttina niður Mikladai tíl Pat-
reksfjarðar.
Á þessu ári var ætlunin að leggja af
hinar gömlu hliðrænu stöðvar í sfm-
stöðvunum í Lambhaga á Hvalfjarðar-
strönd og í Búðardal og setja upp staf-
rænan búnað í staðinn. En þar sem
ákveðið hefur verið að skipta um hug-
búnað fyrir hið ísienska stafræna sfma-
kerfi, munu þessar framkvæmdir drag-
ast fram yfir áramót Hugbúnaðarkerfið
ísienska verður samræmt því danska og
eftir það verður hugbúnaðarþátturinn í
kerfinu á höndum Dana.
Það er verið að skoða hvemig bæta
megi sambandið út á Snæfellsnes eftír
að ljósleiðarinn og stafræna stöðin
verður komin í gagnið í Búðardal, en í
framtíðinni verður einnig lagður ljós-
leiðari um Snæfellsnes.
Örlröð
smábáta
Mlldl örtröð smábáta hefur verið f höfn-
inni í Ólafsvík f sumar, enda hefur
Breiðafjörður verið gjöfull á þorskinn
og mikill og góður afli borist á land.
Bræðumir Einar og Viktor Þórðarsyn-
ir eru búnir að vera fyrir vestan frá því í
vor. Þeir eru á handfærum á Marteini
KE-200 og hafa verið að færa sig tU
milli hafna, eftír því hvar mest hefur
veiðst hveriu sinni, aUt frá Ólafsvík og
Einar og VUctor Þáröarsynir í brgggjurmi
íÓhMk
vestur á Flateyri og Suðureyri. Undan-
farið hafa þeir veitt á Fiákanum í
Breiðafirði.
Viktor er Keflvíkingur, en Einar býr f
Ólafsvík.
Færri ferða-
menn en í
fyrra, sem
var metár
Krisfjana Pálsdóttír sundlaugarvörður
á Tálknafirði segir að rekstur sundlaug-
arinnar hafi gengið vel í sumar. Ferða-
menn hafi verið margir og góð aðsókn.
í júlí og ágúst komu allt upp f 100
manns á dag.
SundUmgin é TéUmafírdi.
Þó hafi ferðamannastraumurinn verið
minni í sumar en f fýrrasumar, sem var
metár.
Hún segir að sundlaugin og tjaldstæð-
in hafi fengið góða kynningu út á við og
margir ferðamenn iofað aðstöðuna.
ísumarvarsett upp skilti íTálknafirði
þar sem merktir voru helstu staðir f
bænum og jafhframt gefinn út bæk-
lingur um Tálknafjörð.
Að sögn Kristjönu Andrésdóttur, sem
sér um tjaldstæðin í Tálknafirði, var
töluvert tjaldað þar í sumar, þó hafi
ferðamannastraumurinn ekki verið
nema hálfdrættingur á við fyrrasumar.
„Það var veðrið, kalt sumar, sem hafði
þar mest áhrif á, enda vantaði mest fs-
lendinga í ferðamannahópinn. ÚtJend-
ingamir skila sér, enda eru þeir búnir
að plana sfn ferðalög löngu fyrirfram.
Ferðamenn eru ánægðir með aðstöð-
una og háfa látið það óspart í ljós. Menn
dvelja hér nokkrar nætur, fara héðan
dagstund á Látrabjarg, Rauðasand eða
norður í Amarfjörð og Dynjanda."
í október missa 15 manns vinnuna við
Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum.
Það er gífurlega mikið áfall fyrir ekki
stærri stað en Reykhóla.
Fní Regkhólum.
Sveitarstjóri Reykhólahrepps er að
skoða ýmsa möguleika til atvinnusköp-
unar fyrir einhverja þessara manna.
M.a. ætlar sveitarfélagið að flýta frá-
gangi á dvalarheimili aldraðra, Barma-
hlíð, hreinsa til í sveitarfélaginu og
koma brotajámi í lóg og kanna nýtingu
sjávardýra eins og krækiinga og kuð-
unga.
Ííkuryaðið
40 þúsund
fjár slátrað
Slitrun hófst hjá K.Þ. sl. þriðjudag og
er áætlað að slátra um 40 þúsund fjár,
sem er nokkur fækkun frá áætlun síð-
asta árs. Af þessum fjölda er um 2000
fullorðið fé og um 1200 dilkar umfram
greiðslumark.
Að sögn Þorgeirs B. Hlöðverssonar
sláturhússtjóra starfa um 120 manns í
sláturhúsinu og gekk vel að manna
starfsemina og 20-30 manns á biðlista
eftír vinnu. En eins og stundum áður
gekk erfiðlega að fá menn í ýmis sér-
hæfð störf, en það tókst þó að þessu
sinni.
Slátursalan hefúr farið vel af stað og
verður með hefðbundnu sniði og verð á
slátri hið sama og í fyrra. Sláturkaup
verða því jafnvel enn hagstæðari matar-
kaup en áður, að dómi Þorgeirs.
Þröng á þingi
Það hefur verið þröng á þingi í Húsa-
vfkurhöfh að undanfömu. Bátar hafa
legið inni vegna brælu og höfnin ekki
rúmað þennan fjölda með góðu móti.
Mikil þrengsli í HúsatOurhöfn.
Og það fer heldur ekki vel með bátana
að núa svo saman nefjum og nugga
saman lendum svo dögum skiptir.
Skólinn 5 ára
Sl. þriðjudag 15. september fagnaði
Framhaldsskólinn á Husavík 5 ára af-
mæli, en hann tók tíl starfa 15. septem-
ber 1987. Fyrsta árið voru skráðir nem-
endur í dagskóla 44, en við skólasetn-
ingu nú í haust voru nemendur 188,
þannig að Ijóst er að skólinn hefur vax-
ið ört á þessu tímabili.
í tilefni afmælisins var ýmislegt gert
til hátfðabrigða í skólanum og var hann
opinn aimenningi á afmælisdaginn. Um
kvöldið voru tónleikar f sal bamaskól-
ans f tcngslum við afmæiið, og þar lék
lónas Ingimundarson píanóleikari af al-
kunnri sniild.
Nýr leikfimi-
salur
Starfsemi í íþróttahöllinni hófst sl.
mánudagskvöld. Að sögn Valdimars
Ingóifssonar forstöðumanns hefur orð-
ið aukning f tímafjölda f höllinni og sal-
urinn f notkun nánast frá morgni til
kvölds alla daga vikunnar. Sérstaklega
er áberandi hve þátttaka aimennings
hefur aukist frá því húsið var tekið í
notkun fyrir 5 árum.
í sumar var unnið við lokafrágang á
litlum leikfimisal, sem nú hefur verið
tekinn í notkun. í þessum sal fer fram
öil ieikfimi utan skóianna, mest svo-
kölluð frúarieikfimi, en einnig er hægt
að iðka þama boccia og borðtennis.
Með tilkomu þessa salar fjölgaði tímum
í stóra salnum.
Starfsmenn íþróttahaUar, Gubmundur,
Egrún og Vatdlmar, ( ný/a lelkfímisalnum.
Noregskon-
ungur í Þlng-
eyjarsýslu
Mlðvlkudaginn 9. september uppúr kl.
10 lenti flugvél Landhelgisgaeslunnar á
Húsavfkurflugvelli með norsku kon-
ungshjónin og forseta fslands ásamt
fylgdarliöi. Halldór Kristinsson, sýslu-
maður Þingeyinga, tók á móti gestun-
um og bauð þá velkomna ásamt Jó-
hanni Sigurjónssyni kennara á Akur-
eyri, sem var leiðsögumaður gestanna í
sýslunni.
Afspymu leiðinlegt veður var þennan
dag og lengi vel áhöld um hvort hægt
væri að lenda vegna dimmviðris. En
hinir tígnu gestir létu veðrið ekkert á
sig fá og gengu brosandi út f mígandi
rigninguna og rokið, snöruðust gegn-
um flugstöðvarbygginguna og beint
upp í rútu og þaðan sem leið lá upp f
Myvatnssveit.
I Mývatnssveit var komið við í Náma-
skarði og fleiri stöðum merkilegum,
mývetnskum, og hádegisverður glæsi-
legur snæddur á Hótel Reynihlíð. Veður
var miklu betra þar efra en niðri á lág-
lendinu og m.a. rigndi þar ekkert með-
an gestimir voru í Námaskarði.
En þvf miður fengu gestimir ekki að
sjá sýsluna f öllum sfnum mikilfeng-
leik, því varla var nokkurs staðar fjalla-
sýn. Vonandi eiga þessir góðu frændur
þó eftir að heimsækja sýsiuna aftur og
þá í sólskini.
Haraldur Noregskonungur stígwr á þing•
eyskaJSrð.
Mikil óvissa
í atvinnu-
málum