Tíminn - 06.10.1992, Qupperneq 1
Þriðjudagur
6. október 1992
171.tbl.76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Sérstakar vegaframkvæmdir upp á 1.800 milljónir fela aðeins í sér flýtingu á
framkvæmdum:
Lán greidd af vega-
fé í framtíöinni
Að sögn Halldórs Blöndals samgönguráðherra verður það Ián, sem
tekið verður til sérstakra framkvæmda í vegamálum á næsta ári,
greitt af vegafé í framtíðinni. í reynd sé því um að ræða flýtingu á
vegaframkvæmdum, en ekki raunaukningu.
Ríkisstjómin hefur lagt til að
l. 800 milljónum verði varið til
vegaframkvæmda á næsta ári,
m. a. til þess að auka atvinnu.
Halldór sagði að alla tíð hefði
verið gert ráð fyrir að þau lán,
sem nú verða tekin til að
greiða sérstakar framkvæmdir
í vegagerð, verði greidd af
vegafé í framtíðinni. Þetta þýð-
ir að dregið verður úr vega-
framkvæmdum á ámnum
1994-1996, miðað við það sem
annars hefði orðið.
Eins og Tíminn greindi frá
fyrir skömmu, er raunaukning
á fé til vegamála á næsta ári
um 900 milljónir, sé miðað við
gildandi vegaáætlun.
Sé miðað við framkvæmdir í
ár, er raunaukningin um 1.500
milljónir.
Gert er ráð fyrir að fé til fram-
kvæmda í vegamálum á næsta
ári verði um 7.500 milljónir.
-EÓ
Voru sjóðirnir
mjög ofmetnir?
Viö hálfsársuppgjör á verö-
bréfasjóðum Fjárfestingarfé-
lagsins er staða þeirra mun
verri en kaupendur hans,
Skandia ísland, höfðu talið, og
er rætt um allt að 100 milljónir
í því sambandi.
Ástæður þessa eru taldar þær
að kröfur, sem ekki hafði verið
gengið að, voru ávallt bókfærðar
sem eign sjóðanna, þó að litlar
tryggingar hafi staðið þar að
baki.
Skandia tók við verðbréfasjóð-
unum 1. apríl s.l. Þá var stofnað-
ur sérstakur geymslureikning-
ur, sem nota átti til að endur-
meta kaupin, en talið er að inni
á þessum sjóði séu um 20 millj-
ónir, þannig að hann dugar
hvergi nærri til að leiðrétta
muninn.
Sjá einnig frétt á blaðsíðu 2
Fjármálaráðherra ætlar að gera aðra tilraun til að
koma tillögu um tveggja þrepa virðisaukaskatt í
gegnum þingflokka ríkisstjórnarinnar:
Tveggja þrepa virðis-
auki aftur á borði
ríkisstjórnarinnar
Friðrík Sophusson fjármálaráðherra
hyggst að nýju taka upp umræðu í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins um
tveggja þrepa virðisaukaskatt Jón
Baldvin Hannibalsson utanrfldsráð-
herra lýsti því yflr á flokksstjómar-
fundi Alþýðuflokksins um helgina að
hann vildi að tillaga um tveggja þrepa
virðisaukaskatt yrði tekin til umræðu
að nýju. Báðir þingflokkar rflds-
stjórnarinnar höfnuðu tillögu um
tveggja þrepa virðisaukaskatt við af-
greiðslu fjárlagafrumvarpsins í síð-
asta mánuði. Ljóst þykir að ef slík til-
laga á að fást samþykkt í þingflokk-
unum, verður að breyta henni eða
rökstyðja hana betur en gert var.
Tillaga Friðriks, sem þingflokkamir
höfnuðu í síðasta mánuði, gekk út á
að lagður verði 14% virðisaukaskattur
á vörur og þjónustu sem nú er án virð-
isaukaskatts. Virðisaukaskattur á vöru
og þjónustu, sem í dag er 24,5%, verði
lækkaður niður í 22%. Þessari tillögu
var hafnað í báðum þingflokkum
stjómarinnar í síðasta mánuði.
Tíminn spurði nokkra þingmenn
Sjálfstæðisflokksins um hvort þeir séu
tilbúnir til að skoða þetta mál að nýju.
„Ég tel að þingflokkurinn sé tilbúinn
til að skoða allar skynsamlegar leiðir í
þessu máli. Ef ríkisstjómin vill leggja
fyrir þingflokkinn eitthvað nýtt, þá
mun hann skoða það með opnum
huga,“ sagði Geir H. Haarde, formað-
ur þingflokks sjálfstæðismanna.
Geir sagðist líta svo á að þingflokkur-
inn hafi ekki hafnað neinni útfærslu á
breyttri álagningu virðisaukaskatts,
a.m.k. sagðist hann fullviss um að
þingflokkurinn sé tilbúinn til að ræða
þetta áfram frá ýmsum hliðum. Geir
sagði að þetta mál væri ekki í neinni
tímapressu. Ef menn vildu gera breyt-
ingu á virðisaukaskattslögunum, yrði
flutt um það sérstakt fmmvarp.
Geir sagði að þingflokkur sjálfstæðis-
manna myndi án efa ræða þá gagn-
rýni, sem komið hefur fram á tillögur
ríkisstjómarinnar um að hætta end-
urgreiðslu ávirðisaukaskatti ávöm og
þjónustu, sem ekki er virðisauka-
skattsskyld. Hann viðurkenndi að
vissir meinbugir væm á þeirri út-
færslu, sem lögð er til að farin verði í
fjárlagafrumvarpinu. Hann vildi að
öðru leyti ekki greina frá sinni per-
sónulegu afstöðu til málsins.
Guðmundur Hallvarðsson, alþingis-
maður Sjálfstæðisflokksins, sagði að á
þingflokksfundi við lokaafgreiðslu
fjárlagafmmvarpsins í síðasta mánuði
hefði tillögu (jármálaráðherra um
tveggja þrepa virðisaukaskatt verið
hafnað. Hann sagðist sjálfur hafa verið
í hópi þeirra þingmanna, sem höfn-
uðu tveggja þrepa virðisaukaskatti, og
afstaða sín til málsins hafi ekki breyst.
Guðmundur sagði að þingflokkurinn
muni að sjálfsögðu skoða allar tillögur
sem ríkisstjómin setji fram, en hann
sagðist ekki sjá að það þýði að leggja
fyrir þingflokkinn óbreytta tillögu um
tveggja þrepa virðisaukaskatt.
Ingi Bjöm Albertsson, alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði að þing-
menn Sjálfstæðisflokksins muni að
sjálfsögðu skoða þær tillögur, sem
fjármálaráðherra leggi fyrir þá um
breytingar á virðisaukaskatti. Hann
sagðist ekki hafa séð út á hvað tillögur
ráðherrans ganga. Ingi Bjöm sagðist
hafa verið andvígur þeim tillögum,
sem fjármálaráðherra lagði fyrir flokk-
inn í síðasta mánuði um tveggja þrepa
virðisaukaskatt, eins og þær lágu þá
fyrir. Hann sagðist 'hins vegar vera
fylgjandi þeirri grunnhugmynd að
taka upp tveggja þrepa virðisauka-
skatt, en þá skipti líka mikiu máli í
hvort þrepið einstakar vörur og þjón-
usta lenda. -EÓ
<
Stóðréttir voru í Víðidalstunguréttum á laugardaginn var. Safnið var um tvö þúsund hross og hundr-
uð manna voru á staðnum til aö draga stóöið í sundur. Byrjað var að rétta stóöið um kl. 11 á laugar-
dag og var því lokið síðari hluta dags. Einstök veðurblíða var á réttardaginn og hrossin vel fram geng-
in, enda eru hrossahagar grösugir í Húnaþingi. Stóðréttir fara nú oröið aðeins fram í Húnaþingi og
Skagafirði.
Sáttafundur í álversdeilunni á morgun:
STARFSMENN FRESTA
■■
Á fundi fomianna verkalýðsfélaga yfirviimubanni. Ennfremur var stjórnunarrétt og vinnuJyrirkomu-
og trúnaðarmannaráða starfs- ákveðið að forseti ASÍ muni leiða lag. í því sambandi er gjaman vfs-
manna í álverinu í gær var ákveðíð sanminganefnd starfsmanna í við- að til þess vaktafyrirkomulags,
að fresta öllum tímasetningum á ræðum við atvinnurekendur. sem gert hefur verið í fiskvinnslu,
fyrirhuguðum aðgerðum á meðan Starfsmenn vilja að álverið sam- og rammasamkomulags verka-
á samningaviðræðum stendur. Þá þykki miðlunartillögu rfldssátta- lýðsfélaga við Atlantsál. Gylfi segir
var jafnframt ákveðið að Ásmund- semjara frá því í vor, en það vilja að starfsmenn álversins séu afar
ur Stefánsson, forseti ASÍ, verði í álfurstamir ekki nema að því til- ósáttir við þennan villandi mál-
forsvari fyrir samninganefnd skildu að sérkröfur þeirra um ein- flutning VSL Hann segir að samn-
starfsmanna í álverinu. hliða stjómunarrétt og vinnufyrir- ingar um vaktafyrírkomulag í flsk-
Gylfl Ingvarsson, aðaltrúnaðar- komulag nái fram að ganga. Trú- vinnslu séu alfarið í höndum við-
maður starfsmanna í álverinu, lega verður þetta síðasta vinnu- komandi starfsmanna og verita-
sagði að búið væri að boða tfl nýs deilan sem Ásmundur kemur lýðsfélaga, og ennfremur hafi
sáttafundar í deflunni á morgun, náiægt sem forseti ASÍ, en hann engir kjarasamningar verið gerðir
miðvikudag, hjá ríkissáttasemjari. hefur lýst því yflr að hann gefi ekki við Atiantsál- fyrirtækin. „f hvor-
Hann sagði að á meðan deilan væri kost á sér tfl endurkjörs á þingi ugu dæminu hafa atvinnurekend-
enn í höndum rfldssáttasemjara sambandsins, sem fram fer á Ak- ur einhiiða rétt tfl að ráðskast með
og viðræðunum hefði ekki verið ureyri í lok næsta mánaðar. hlutina eftir eigin höfði, eins og
slltið, Vildu starfsmenn biða með Af hálfu VSÍ hefur það komið forsvarsmenn áiversins gera kröfu
allar tímasetningar á fyrirhuguð- fram að álverið vfllji aðeins búa við ti!,“ segir Gylfi Ingvarsson.
um aðgerðum, s.s. útflutnings- og það sama og aðrir, hvað varðar -grh
OLLUM
AÐGERÐUM
/