Tíminn - 06.10.1992, Page 2
2 Tíminn
Þriöjudagur 6. október 1992
Órói í peningageiranum:
Skandia ísland hefur rift kaupum á Verðbréfamarkaði Fjárfestingar-
félagsins h.f., en í því felst að kaupin ganga til baka. Ofmetnar eign-
ir upp á 160 milljónir við sölu Fjárf.fél. er nefht sem ástæða. Stjórn
Fjár.fél. segist ekki vera kunnugt um neinar vanefndir félagsins.
Þetta kemur m.a. fram í fréttatil-
kynningum frá félögunum í gaer.
Gengið var frá kaupsamningi milli
aðila hinn 6. apríl s.I., en formlega
tók Försakringsaktiebolaget Skand-
ia við rekstri Verðbréfamarkaðar
Fjárfestingarfélagsins 16. júní 1992.
í tilkynningu Skandia segir m.a.:
„Komið hefur í Ijós að loknu hálf-
sársuppgjöri sjóða í vörslu verð-
bréfafyrirtækisins að samkvæmt
skýrslu sérfræðinga er munur á
mati á eignum sjóðanna og skráðu
gengi þeirra verulegur eða u.þ.b.
160 milljónir króna, en það þýðir að
eignir sjóðanna hafa verið verulega
ofmetnar í gögnum sem lögð voru
fram við sölu á verðbréfafyrirtæk-
inu.“
Jafnframt segir að þar sem kaup-
endur hafi aðeins rekið félagið um
skamma hríð, þegar þetta mat á
eignum kemur fram, og það verði
með engum hætti rakið til aðgerða
þeirra, þá telji þeir að forsendur fyr-
ir umræddum kaupum séu brostn-
ar.
í fréttatilkynningu frá stjórn Fjár-
festingarfélagsins segir að hluti
kaupverðs hafi verið lagður inn á
bók, ef til uppgjörs kæmi, og eignir
eða skuldir Verðbréfamarkaðarins
væru með öðrum hætti en fyrir lá
við kaupin. Þá segir að í gögnum,
sem Skandia hafi sent með bréfi
þann 1. október um samskipti félag-
anna, hafi ekkert komið fram annað
en að fjárhagsstaða verðbréfasjóð-
anna hafi verið með þeim hætti, sem
upplýsingar lágu fyrir um þegar
kaupin voru gerð. Þar segir og að til-
kynning frá Skandia 2. október um
riftun á kaupunum hafi komið
stjórn Fjárfestingarfélagsins algjör-
lega í opna skjöldu. Þá er því bætt
við að riftun kaupanna gangi þvert á
forskrift samningsins um meðferð
álitaefna varðandi kaupin, sem beri
að leggja fyrir gerðardóm.
Sláturfélagið kynnir 1944 — mat fyrir sjálf-
stæða íslendinga:
Ætlaö að vera and-
svar við erlendum
skyndiréttum
Sláturfélag Suðurlands kynnti í síð-
ustu viku nýja rétti, sem fyrirtækið
hefur hafið framleiðslu á, „1944 —
matur fyrir sjálfstæða íslendinga".
Um er að ræða skyndirétti sem hit-
aðir eru upp í örbylgjuofni, en Slátur-
félagsmenn segja að slíkir réttir séu
að verða æ ríkari þáttur í neysluvenj-
um íslendinga. Það var Þorsteinn
Pálsson, fyrsti þingmaður Sunnlend-
inga, sem lauk við framleiðsluna á
fyrstu pakkningum þessara nýju rétta
við formlega athöfn í höfuðstöðvum
Sláturfélagsins á Hvolsvelli í síðustu
viku. Viðstöddum var að því loknu
boðið að smakka og létu flestir vel af,
en þessir réttir eru: súrsætt svínakjöt,
kjöt í karrý, stroganoff og bolange.
Sláturfélagsmenn segja að sam-
kvæmt könnun borði 28% íslendinga
skyndirétt vikulega og 57% þeirra
borði slíka rétti a.m.k. einu sinni í
mánuði. Endurspegli þetta að fólk
vilji eyða sífellt minni tíma í mat-
reiðslu.
Sláturfélag Suðurlands hefúr nú í
gangi þrjár framleiðslulínur á kjöt-
vöru. í fyrsta lagi eru það SS-kjötvör-
ur, sem eru vel unnar vörur þar sem
mikið er lagt upp úr gæðum og góð-
um umbúðum. í öðru lagi eru það
Búrfellsvörur, sem einkennast af
minni gæðum en jafnframt lægra
verði, og er þessum vörum ætlað að
koma til móts við kröfúr neytenda
um lægra verð. Síðast en ekki síst er
það hin nýja 1944-lína, en með þeirri
framleiðslu eykur Sláturfélagið sókn-
arþunga sinn í samkeppninni við er-
lenda framleiðendur. Nafnið á fram-
leiðslunni skírskotar til lýðveldis-
stofnunarinnar og slagorðið ,J4atur
fyrir íslendinga" er hvatning til fólks
að velja íslenskt, þó sambærilegar
vörur bjóðist erlendis frá.
SBS/Selfossi
Stelnþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands (t.h.), kynnir
Þorsteini Pálssyni, sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra, mat fyrir
sjálfstæða íslendinga. Mynd SBS
Nýlega var vígð ný brú og vegur
yfir Dýrafjörð. Vegamálastjóri
Helgi Hallgrímsson afhenti sam-
gönguráðherra Halldóri Blöndal
mannvirkið.
Brúin sjálf er um 120 m á lengd,
en vegagerð við og yfir fjörðinn er
alls 4 km. Á verðlagi ársins 1990
var gert ráð fyrir að verkið kostaði
um 300 milljónir.
Haustið 1988 hófust undirbún-
ingsframkvæmdir við verkið og
var byrjað á sjálfri brúnni sumarið
1989.
Hjá Vegagerð ríkisins fengust
þær upplýsingar að fyllingin yfir
Dýrafjörð kæmi næst á eftir fyll-
ingu við Borgarfjarðarbrú að efn-
ismagni.
Er viðskiptavinum F&A:
MEINAÐ AÐ
KAUPA ÍSLENSKT?
Talsmaður verslunarinnar F&A segist neyðast til að kaupa erlendar
vörur, þar sem honum bjóðist ekki íslenskar. Þessu mótmælir Fé-
lag íslenskra iðnrekenda harðlega og segir þvert á móti að neytend-
um sé meinað að velja íslenskar vörur í versluninni.
Verslunin F&A hóf starfsemi í byrj-
un september og er ætlað að vera í
samkeppni við verslun eins og t.d.
Bónus. Til að geta þetta, ætla eig-
endur ekkert að auglýsa, en við-
skiptavinir verslunarinnar geta að-
eins verslað hafi þeir sérstök kort,
sem veitt eru ókeypis, undir hönd-
um.
Nýlega var haft eftir Friðriki G.
Friðrikssyni, talsmanni verslunar-
innar, að hann sé tilneyddur að
versla nær eingöngu með erlendar
vörur. Ástæðu þessa segir hann vera
að innlendir framleiðendur vilji ekki
bjóða versluninni sömu kjör og
Hagkaup og Bónus njóta, af ótta við
að missa viðskipti við þá aðila.
Þessu er mótmælt í fréttatilkynn-
ingu frá Félagi íslenskra iðnrek-
enda. Þar segir að gerð hafi verið
könnun hjá tíu framleiðendum inn-
an félagsins, og að enginn þeirra
hefði neitað að selja sínar fram-
leiðsluvörur til verslunarinnar. „Hér
er staðreyndum illilega snúið við. í
rauninni hefur íslenskum framleið-
endum verið meinað að bjóða sína
vöru í versluninni F&A og þeim
neytendum, sem þar versla, er þar
með meinað að velja íslenska vöru,“
segir orðrétt í fréttatilkynningunni.
Ekki náðist í Friðrik G. Friðriks-
son, þar sem hann er nú staddur er-
lendis.
Stjórnmála-
ástandið
rætt á Sögufundi
Steingrímur Hermannsson.
Stjórnmálaástandið verður aðal-
umræðuefnið á almennum stjórn-
málafundi, sem Framsóknarfélag
Reykjavíkur hefur boðað til í
Súlnasal Hótel Sögu næstkomandi
fimmtudagskvöld. Aðalræðumað-
ur kvöldsins verður Steingrímur
Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, og mun hann
ræða viðhorf framsóknarmanna til
þeirra vandamála, sem að steðja í
íslensku efnahagslífi, og afleiðing-
um þess vanda fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Fundurinn verður öllum opinn
og hefst kl 20:30.