Tíminn - 06.10.1992, Page 8
8 Tíminn
Þriðjudagur 6. október 1992
70 ára:
Alexander Stefánsson
fyrrverandi alþingismaður og ráðherra
Alexander Stefánsson, fyrrverandi
félagsmálaráðherra og alþingismað-
ur, er sjötugur í dag. Við það tæki-
færi vil ég með örfáum orðum
þakka Alexander ágætt samstarf og
góð kynni. Ég þakka góð störf í þágu
Framsóknarflokksins og íslensku
þjóðarinnar.
Aðrir munu á þessum tímamótum
verða til þess að rekja mikil störf Al-
exanders í þágu síns byggðarlags,
Ólafsvíkur, þar sem hann var lengi
kaupfélagsstjóri og sveitarstjóri og
gegndi ýmsum öðrum trúnaðar-
störfum. Okkar kynni og samstarf
hófst 1972 þegar Alexander kom
fyrst á þing sem varaþingmaður fyr-
ir Vesturland og kjörinn þingmaður
1975. Nánast varð samstarf okkar í
ríkisstjórninni árin 1983 til 1987,
þegar Alexander gegndi starfi fé-
lagsmálaráðherra.
Alexander lét á þingi sveitarstjórn-
ar- og félagsmál mjög til sín taka. Á
þeim sviðum hefur Alexander
reynslu og þekkingu umfram flesta
aðra. í þeim málum varð hann fljót-
lega málsvari framsóknarmanna og
átti stóran þátt í að móta stefnu
flokksins. Alexander er ræðumaður
góður og málafylgjumaður mikill.
Hann flytur mál sitt af festu og með
góðum rökum.
Sem ráðherra vann Alexander mik-
ið starf og kom ýmsu góðu til leiðar.
Margra verka hans njótum við, eins
og t.d. í málefnum fatlaðra, þar sem
varð í raun bylting. Alexander var
sem ráðherra það mikið kappsmál
að auðvelda ungu fólki að eignast
sitt húsnæði og kom í því skyni á
mörgum umbótum. Hann lagðist
síðar hart gegn ýmsum vafasömum
breytingum. Hann varaði meðal
annars mjög við áhrifum húsbréfa-
kerfisins, einkum gagnvart þeim
sem eignast húsnæði í fyrsta sinn.
Sannindi þeirra orða hygg ég að
margur geti nú staðfest. Alexander
var mjög starfsamur ráðherra.
Sem kaupfélagsstjóri og sveitar-
stjóri í Ólafsvík kynntist Alexander
vel lífi og störfum fólksins og á ung-
iingsárum sínum kreppunni með
atvinnuleysinu og erfiðleikunum,
sem henni fylgdu. Rík umhyggja
fyrir velferð almennings einkenna
störf Alexanders. Alexander Stefáns-
son er sannur samvinnu- og félags-
hyggjumaður.
Við Edda sendum Alexander Stef-
ánssyni og hans ágætu eiginkonu,
Björgu Hólmfríði Finnbogadóttur,
og fjölskyldu þeirra hugheilar árn-
aðaróskir. Það geri ég einnig fyrir
hönd Framsóknarflokksins.
Steingrímur Hermannsson
Alexander Stefánsson er orðinn sjö-
tugur. Hann fagnar þeim tímamót-
um á laugardaginn kemur í Ólafs-
vík, á heimaslóðum.
Ég kynntist Alexander þegar ég
kom inn á Alþingi árið 1985, en þá
var hann félagsmálaráðherra. Það
vildi svo til að í minn hlut kom bæði
þá og síðar að vinna í þeim mála-
flokkum, sem undir hann heyrðu.
Ég kynntist því fljótt þeim baráttu-
anda sem í honum var; fyrir þá sam-
vinnu og samstarf vil ég þakka.
Alexander Stefánsson er fæddur í
Ólafsvík. Foreldrar hans voru Svan-
borg Jónsdóttir og Stefán S. Krist-
jánsson vegaverkstjóri, en hann var
af Hjarðarfellsætt sem er vel þekkt á
Snæfellsnesi og víðar. Hann ólst
upp í Ólafsvík, stundaði nám við
héraðsskólann á Laugarvatni og síð-
ar við Samvinnuskólann og útskrif-
aðist þaðan árið 1943. Var kaupfé-
lagsstjóri í Ólafsvík á árunum 1947-
1961, en varð þá skrifstofustjóri hjá
Ólafsvíkurhreppi og síðar sveitar-
stjóri. Hann var oddviti frá 1964-
1979, en átti sæti í sveitarstjórn frá
1954-1982. Hann gegndi fjölmörg-
um trúnaðarstörfum á sviði sveitar-
stjórnarmála á landsvísu. Hann tók
sæti í stjórn Sambands íslenskra
sveitarfélaga árið 1962, var stjórnar-
maður þar um árabil, og átti einnig
sæti í stjórn Innheimtustofnunar
sveitarfélaga. Hann var einn af
stofnendum og hvatamönnum að
stofnun Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi og var formaður þeirra
frá 1969-1976.
í bankaráði Útvegsbanka íslands
átti hann sæti frá 1976-1984.
Alexander varð varaþingmaður ár-
ið 1959 og var það til 1978, er hann
tók sæti á Alþingi og átti þar sæti
þar til árið 1991, er hann gaf ekki
kost á sér til áframhaldandi þing-
setu. Hann var félagsmálaráðherra í
ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar frá 1983-1987. Sem þingmað-
ur starfaði hann meðal annars mik-
ið að félagsmálum og rfkisfjármál-
um með setu í fjárveitinganefnd, en
þar var hann varaformaður á árun-
um 1988-1991, og einnig átti hann
sæti í félagsmálanefnd þingsins.
Alexander tók sæti í stjórn Viðlaga-
tryggingar íslands árið 1991 og tók
við stjórnarformennsku heilsu-
gæslustöðvar Ólafsvíkur á þessu ári.
Þetta er ærið ævistarf, en þó er
ógetið starfa sem honum voru hjart-
fólgin, en það voru störf að kirkju-
og söngmálum í Ólafsvík. Undir
hans forustu sem sóknarnefndarfor-
manns um árabil var hin fagra
kirkja byggð á staðnum, og einnig
starfaði hann í kirkjukór staðarins
af miklum áhuga, enda ágætur
söngmaður.
Eins og fram kemur hér á undan,
eru sveitarstjórnarmál drjúgur þátt-
ur í ævistarfi Alexanders, og það
kom vel í Ijós í hans ráðherratíð hve
mikinn áhuga og þekkingu hann
hafði á því sviði, og hann lét sér
annt um að samband sveitarfélag-
anna og ríkisvaldsins væri sem best.
Baráttuþrek hans var óbugandi.
Það kom ekki síst í Ijós, þegar heils-
an bilaði á síðasta árinu sem hann
var á Alþingi. Hann komst yfir það
áfall og til vinnu aftur af þvílíkri
hörku og dugnaði að það lýsir hon-
um betur en mörg orð.
Alexander er kvæntur Björgu
Hólmfríði Finnbogadóttur og eiga
þau sex börn, Finnboga héraðsdóm-
ara í Hafnarfirði, Svanhildi flug-
freyju, Örn skipstjóra, Láru Öldu
kerfisfræðing, Stefán bifvélavirkja
og Atla kennara.
Við Margrét sendum honum og
fjölskyldu hans bestu árnaðaróskir á
þessum tímamótum í lífi hans.
Jón Kristjánsson
í dag, 6. október, er Alexander Stef-
ánsson, f.v. félagsmálaráðherra, 70
ára, og í tilefni þessara merku tíma-
móta í lífi hans sendi ég honum og
hans stóru fjölskyldu innilegar
hamingjuóskir.
Alexander er Snæfellingur og það
mikill Snæfellingur í þess orðs
bestu merkingu, í móðurætt ættað-
ur frá Ólafsvík, en í föðurætt ættað-
ur frá Hjarðarfelli í Miklaholts-
hreppi. Alexander ber sterk ein-
kenni Hjarðarfellsættar. En sú ætt
er þekkt fyrir skapfestu, metnað og
fyrst og síðast dugnað og samvisku-
semi. Þessi ættarfylgja hefur gert
honum kleift að takast á við stór-
huga verkefni og sigrast á flestum
torfærum. Mér er sagt að Alexander
hafi verið frækinn íþróttagarpur á
yngri árum og þykir mér það meira
en trúlegt, því hann hefur gengið að
hverju verkefni með sönnum
íþróttaanda, kappsfullur og ákveð-
inn að ná settu marki.
Alexander nam við héraðsskólann á
Laugarvatni og síðan Samvinnu-
skólann 1942-1944. En að námi
loknu tóku við ýmis störf í Ólafsvík,
m.a. sem kaupfélagsstjóri við Kaup-
félagið Dagsbrún, en síðar störf hjá
Ólafsvíkurhreppi, lengst af sveitar-
stjóri og oddviti.
Það má segja að varla sé minnst á
Ólafsvík án þess að nafn Alexanders
beri á góma um leið, því fjölbreytt
störf hans blasa allstaðar við og í
gamni og alvöru hefur bærinn oft
verið kenndur við nafn hans, enda
er Alexander stoltur af bænum sín-
um og þegar hann segir „heim í Ól-
afsvfk“ er sérstakur hreimur vænt-
umþykju í röddinni.
Ymis trúnaðarstörf á vettvangi
sveitarstjórnar hlóðust snemma á
herðar hans, bæði hér á Vesturlandi
og víðar. Alexander var m.a. í stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga í
fjölda ára, í stjórn Hafnarsambands
sveitarfélaga og á sama tíma gegndi
hann mörgum trúnaðarstörfum fyr-
ir Framsóknarflokkinn.
1978 var Alexander kjörinn á þing,
en áður hafði hann verið varaþing-
maður. Alexander vann mikið starf á
Alþingi, var svipmikill þingmaður
og barðist fyrir mörgum framfara-
málum. í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar 1983 varð hann svo
félagsmálaráðherra. Það má segja
með sanni að fáir hafi verið jafn
gjörkunnugir þeim málefnum sem
það ráðuneyti hefur innanborðs og
Alexander. Naut hann sín vel sem
ráðherra og kom í framkvæmd m.a.
breytingum á húsnæðismálalög-
gjöfinni og breytingum á sveitar-
stjórnarlögum, sem mörkuðu viss
tímamót í sögu sveitarfélaganna.
Fátt eitt hefur verið talið upp af
verkum Alexanders hér sem vert
væri að þakka.
Ekkert hefur þó verið mikilvægara
í hans lífi en sú mikla gæfa sem
hann hefur notið í einkalífi. Því
hann hefur ekki verið einn og
„bjargarlaus" á gifturíkri vegferð. I
hálfa öld hefur kona hans, Björg
Finnbogadóttir, staðið við hlið hans
og stutt í blíðu og stríðu. Stjórnað
stóru og einstaklega myndarlegu
heimili og ekki látið sig muna um
að eiga sex börn, sem öll eru löngu
orðin fulltíða fólk, en þau eru: Finn-
bogi héraðsdómari í Hafnarfirði,
kvæntur Sigríði Halldórsdóttur, og
eiga þau 3 börn; Svanhildur flug-
freyja, gift Marinó Sveinssyni, þau
eiga 2 börn; þá kemur Stefán bif-
vélavirki, kvæntur Lailu Michaels-
dóttur, þeirra börn eru 4; Lára Alda
starfsmaður á Landspítalanum, gift
Þórði Ólafssyni, þau eiga 3 börn;
Örn Alexander er skipstjóri, kvænt-
ur Aðalheiði Eiríksdóttur, þau eiga
4 börn; yngstur er Atli kennari og
forseti bæjarstjórnar í Ólafsvík,
kvæntur Elfu Ármannsdóttur,
þeirra börn eru 3. Barnabarnabörn-
in eru orðin 5, svo af þessari upp-
talningu má sjá að fjölskyldan er
orðin stór og dæmigerð fyrir Alex-
ander, því hann er stór í hugsun á
öllum sviðum.
Þrátt fyrir að sjötíu ár séu nokkur
aldur og mörg þung störf að baki, er
kempan Alexander léttur og glæsi-
legur á velli enn sem fyrr og gamla
keppnisskapið bregst honum ekki.
Ég óska Alexander, Björgu og af-
komendum öllum allra heilla og
blessunar á þessum tímamótum,
um leið og ég þakka fyrir vináttu og
tryggð í minn garð.
Ingibjörg Pálmadóttir
Alexander Stefánsson, fyrrverandi
félagsmálaráðherra, er sjötugur í
dag. Hann á að baki afar litríkan og
farsælan feril sem stjórnmálamað-
ur, sveitarstjórnarmaður og félags-
málafrömuður. Ungur stundaði
hann nám í Samvinnuskólanum og
hreifst af hugsjónum samvinnu og
félagshyggju. Þeim hugsjónum hef-
ur hann verið trúr alla ævi og unnið
þeim af alúð og fórnfýsi hins bar-
áttuglaða og dugmikla hugsjóna-
manns.
Um langt árabil var Alexander
kaupfélagsstjóri í heimabyggð sinni
Ólafsvík, en kunnastur er hann fyrir
störf sín fyrir Framsóknarflokkinn
og á vettvangi sveitarstjórnarmála.
Alexander var oddviti Ólafsvíkur-
hrepps um langt árabil og sveitar-
stjóri frá 1964-79. Vart hefur nokk-
ur unnið betur eða meira að fram-
faramálum Ólafsvíkur en einmitt
hann. Jafnframt hefur hann látið vel
og rösklega til sín taka á sviði sveit-
arstjórnarmála á víðari vettvangi,
sat meðal annars lengi í stjórn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og hef-
ur gegnt fjölþættum trúnaðarstörf-
um í þágu sveitarfélaganna í þessu
landi. Alexander var fyrsti formaður
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
árið 1969 og gegndi því starfi í sjö
ár. Vann hann þar gott og merkilegt
brautryðjandastarf, sem sveitar-
stjórnarmenn á Vesturlandi minn-
ast og þakka að verðleikum á þess-
um tímamótum.
Þegar framsóknarmenn á Vestur-
landi stilltu upp á lista sinn eftir
kjördæmabreytinguna 1959, skipaði
Alexander fimmta sæti listans og
upp frá þvf skipaði hann eitt af efstu
sætunum í 30 ár, var í þriðja sæti
við kosningarnar 1971 og 1974, en
hlaut annað sæti listans 1978 og var
þá kjörinn á þing. Var hann síðan al-
þingismaður Vesturlands óslitið þar
til á síðastliðnu ári.
Eins og við var að búast reyndist
Alexander góður og dugandi þing-
maður. í honum átti Vesturland öfl-
ugan málsvara og baráttumann,
sem í hvívetna stóð vörð um hags-
muni kjördæmisins og lagði sig
fram um að hrinda hag þess og
hamingju lengra fram á leið.
Þegar Steingrímur Hermannsson
myndaði ríkisstjórn að loknum
kosningum vorið 1983 og í Ijós kom
að félagsmálaráðuneytið kæmi í
hlut Framsóknarflokksins, þótti
flestum réttmætt og einsýnt að Al-
exander yrði félagsmálaráðherra.
Kom þar til yfirgripsmikil þekking
hans og áratuga reynsla af sveitar-
stjórnarmálum og öðru félagsmála-
starfi. Þau fjögur ár, sem hann var
ráðherra, beitti hann sér fyrir marg-
háttuðum framförum og umbótum,
þar á meðal í húsnæðismálum og í
málefnum sveitarfélaga, lét setja ný
lög um þessa málaflokka og fleiri,
sem öll miðuðu að endurbótum og
framförum. Hann hafði ekki síst
vakandi auga fyrir velferð og hag-
sæld hinna dreifðu byggða, sem svo
oft eiga undir högg að sækja.
Alexander Stefánsson hefur verið
farsæll og afkastamikill bæði sem
stjórnmálamaður og í öllu sínu
mikla félagsmálastarfi. Hann hefur
átt skyldunnar þor og hugsjóna-
mannsins djörfu og fórnandi hönd
til að takast á við verkefni lífsins og
fylgja því fram til sigurs, sem hann
hefur haft áhuga á og honum hefur
verið trúað fyrir. Hann er maður
mjög viljasterkur, einarður, skap-
fastur, reglusamur, fylginn sér og
sókndjarfur. Sumum hefur fundist
hann vera nokkuð harður í horn að
taka, ráðríkur og fastur fyrir, svo
sem títt er um stjórnmálamenn sem
einhver veigur og kraftur er í. Víst
er um það, að hann er baráttuglaður
og djarfur í sókn og vörn, hugrakk-
ur og ódeigur við að hafa storminn í
fangið. Alexander er ekki maður
lognmollu og deyfðar, heldur kjarks
og karlmennsku, vilja og visku,
dirfsku og drenglyndis. Hann er
prýðilega vel máli farinn, mælskur
og rökfastur, setur mál sitt fram á
rökrænan og skipulegan hátt og tal-
ar jafnan af miklum sannfæringar-
krafti og áhersluþunga.
Einn er sá þáttur í ævistarfi Alex-
anders, sem ég vil ekki láta hjá líða
að minnast á og það er hið mikla og
fórnfúsa starf hans í þágu kirkjunn-
ar. Hann var um langt skeið formað-
ur sóknarnefndar í Olafsvík og beitti
sér þá fyrir byggingu hinnar fögru
og glæsilegu Ólafsvíkurkirkju, sem
setur sinn fagra svip á bæinn. Alex-
ander er góður söngmaður og þeirra
hæfileika hans fékk kirkjan hans vel
og lengi að njóta. Eiginkona hans,
frú Björg Finnbogadóttir, var um
langt skeið organisti kirkjunnar.
Bæði hafa þau hjónin verið traustir
og fórnfúsir hollvinir kirkju sinnar.
Það er gæfa kirkjunnar og gæfa
hverrar byggðar að eiga svo góða og
trausta hollvini og svo fórnfúst og
velviljað félagsmálafólk eins og þau