Tíminn - 06.10.1992, Page 9
Þriðjudagur 6. október 1992
Tíminn 9
hjónin eru. Alexander Stefánsson
hefur verið gæfumaður í lífinu. Það
hefur verið birta og blessun yfir lífi
hans og starfi, bæði fyrir byggð
hans í Olafsvík, byggðir Vesturlands
og fyrir land og þjóð.
Á þessum merku tímamótum færi
ég honum alúðarþakkir fyrir ágæt
kynni, velvild og vináttu í garð okk-
ar hjónanna og heimilis okkar, og
ég bið þess að sú gifta og Guðs
blessun, sem hefur fylgt honum um
farinn veg, megi vera með honum
og ástvinum hans alla daga á ófar-
inni ævileið.
Jón Einarsson,
Saurbæ
Alexander Stefánsson, fyrrv. ráð-
herra og alþingismaður, er sjötugur
í dag. Alexander er minnisstæður
sarnferðamönnurn sínum, starfhæf-
ur og kappsfullur. Kynni okkar hóf-
ust að marki þegar hann var kjörinn
þingmaður Vestlendinga 1978.
Hann hafði þó tekið sæti á Alþingi
sem varamaður nokkrum sinnum á
fyrirfarandi kjörtímabilum. Alex-
ander kannaðist ég þó við af orð-
spori bæði sem kaupfélagsstjóra og
sveitarstjórnarhöfðingja í Ólafsvík,
svo og af fundum framsóknar-
manna, enda maðurinn ekki hljóð-
látur.
Ég hreifst af glæsimennsku þessa
vaska Ólafsvíkings og varð fljótiega
var við að að þar fór maður sem
hafði skoðanir á hlutunum og fór
ekki dult með þær. Honum voru
strax falin ýmis trúnaðarstörf í
þingflokki framsóknarmanna, tók
sæti í félagsmálanefnd, fjárveitinga-
nefnd og síðar í ýmsum öðrum
þingnefndum svo og varaforseta-
starf í Neðri deild sem hann gegndi
með myndarskap. Alexander varð
strax aðaltalsmaður okkar á Alþingi
í félags- og sveitarstjórnarmálum,
enda þrautþjálfaður félagsmálamað-
ur og hafði langa reynslu af sveitar-
stjórnarmálum. Alexander flytur
mál sitt af röggsemi og festu.
Þegar Steingrímur Hermannsson
myndaði fyrsta ráðuneyti sitt 1983
kom félagsmálaráðuneytið í hlut
framsóknarmanna. Okkur þótti ein-
boðið að fela Alexander að fara með
félagsmálaráðuneytið. Alexander
var mikilhæfur félagsmálaráðherra.
Hann beitti sér fyrir margvíslegri
löggjöf og markaði veruleg spor í
húsnæðis- og sveitarstjórnarmál-
um, þótt eftirmaður hans í embætti
hafi leitast við að afmá þau. Hygg ég
að reynslan sanni að ráð Alexanders
voru farsæl.
Alexander er hugsjónamaður og
brennandi í andanum. Hann vill hag
fjöldans og vill styðja hinn lakar
setta. Alexander er kappsfullur og
metnaðargjarn og vildi standa á
rétti kjördæmis síns og þá ekki síst
heimabyggðar sinnar Ólafsvíkur.
Ákafi Álexanders í þessu efni gat
sannast sagna stundum orðið nokk-
uð þreytandi fyrir okkur samstarfs-
menn hans, en hinu er ekki leyna að
Vesturlandskjördæmi og Ólafsvík
áttu í honum ötulan og óþreytandi
talsmann sem oft náði miklum ár-
angri.
Eftir að Alexander hætti ráðherra-
starfi tók hann á ný sæti í þing-
nefndum sínum og sjávarútvegs-
nefnd að auki. Sparaði hann hvorki
sjálfan sig né aðra í vinnu eða um-
ræðum.
Seint á síðasta kjörtímabili kom í
ljós að Alexander þurfti að gangast
undir hjartaaðgerð. Aðgerðin tókst
vel og Alexander hóf nær strax fulla
vinnu, auk þess sem hann lagði á sig
mikið erfiði við þjálfun og endur-
hæfingu. Harðfengi Alexanders er
með ólíkindum. Síðla kvölds á mikl-
um annatíma á Alþingi skömmu eft-
ir aðgerðina tóku menn eftir því að
vírendi stóð út úr skyrtubrjósti Al-
exanders. Hafði þá raskast samteng-
ing á brjóstkassanum. Ekki vildi AI-
exander gera veður út af þessu, en
lét þó til leiðast eftir talsverðar for-
tölur að fara heim og leggja sig og
lofaði að hafa samband við lækni
sinn morguninn eftir.
Þrátt fyrir erfiða aðgerð hefur Alex-
ander náð góðri heilsu á ný með
stöðugri þjálfun. Fyrir síðustu
kosningar ákvað Alexander að hætta
þingmennsku og fór ekki í framboð
1991. Við félagar hans á Alþingi
söknum hans úr hópnum.
Líf Alexanders hefur einkum verið
helgað félagsmálum. Einu gildir
hvaða störfum Alexander hefði
gegnt, hann hefði hvarvetna orðið í
fremstu röð, slíkrar gerðar er mað-
urinn.
Alexander hefur t.d. mjög bjarta,
sterka og háa tenórrödd og hefur
mikið yndi af söng. Ungum stóð
honum til boða að leggja sönginn
fyrir sig. Hefði hann vafalaust náð
langt á því sviði, hefði hann horfið
að því ráði.
Alexander hefur ekki staðið einn í
lífinu. Hann er giftur hinni ágæt-
ustu konu, Björgu Finnbogadóttur,
og hefur þeim orðið sex barna auð-
ið.
Á þessum tímamótum færi ég Alex-
ander og Björgu bestu kveðjur og
árnaðaróskir þingmanna Framsókn-
arflokksins með kærri þökk fyrir
ánægjulegt og árangursríkt sam-
starf. Megi auðnan verða með Alex-
ander og þeim hjónum báðum á
komandi árum.
Páll Pétursson
Ástkær faöir okkar
Magnús Eiríksson
fyrrum bóndi á Skúfslæk
andaöist í Sjúkrahúsi Suöurlands 2. október.
Böm hins látna
J
V.
Astkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi
Runólfur Jón Sigurðsson
Skjólbraut 1a, Kópavogi
fyrrverandi bóndi í Húsavfk,
Strandasýslu
veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju miövikudaginn
7. októberkl. 13.30.
Stefanía Grimsdóttir,
böm, tengdabörn og barnabörn
Japisdeildin í körfuknattleik:
Guöjón Skúlason
gerði 45 stig
Frá Margréti Sanders, fréttaritara
Timans á Suöumesjum
Keflvíkingar sigruðu Njarðvíkinga
103-93 í fyrstu umferð Urvalsdeild-
arinnar, Japisdeildar, í körfuknattleik
í Keflavik á sunnudag. Staðan í hálf-
leik var 54- 40. Guðjón Skúlason var
óstöðvandi í liði Keflvíkinga í leikn-
um og gerði hann 45 stig.
Fyrri hálfleikur var ákaflega glopp-
óttur og var jafnræði með liðunum
fram í miðjan hálfleikinn, en þá
leiddu Njarðvíkingar 16-18. Breyttu
þá Keflvíkingar stöðunni í 28-18 sér
í hag, en Njarðvíkingar náðu fljót-
lega að jafna. Keflvíkingar höfðu
Körfuknattleikur:
UMFG-UMFS70-75 (34-38)
Stig UMFG: Guðmundur Bragason
32, Dan Krebbs 9, Svembjðra Sig-
nrðsson 8, Pétur Guðmundsson 4,
Bergur Eðvaldsson 4, Marel Guð-
laugsson 3, Hjálmar Hallgrímsson 3,
Bergur Hinriksson 3, Ingi Ingólfsson
2, Pálmar Sigurðsson 2.
Stig UMFS: Alexander Eraudinskij
30, Birgir Miehaeisson 14, Skúli
Skiílason 11, Eggert Jónsson 6,
Þórður Heigason 6, Elfar Þórólfsson
6, Henning Henningsson 2.
Tölur úr leiknum: 4-7,26-38, 34- 38
-47-45,67-70,70-75.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og
Btynjar Þorsteinsson.
fmdastóll-Haukar 93-103
(49-54)
Stig Tindastóls: Chris Moore 31, Ing-
var Ormarsson 19, Kari Jónsson 12,
Páll Kolbeinsson 11, Haralður Leifs-
son 8, Pétnr Sigurðsson 8, Björgvta
Reynisson 4.
Stig Hauka: John Rhodes 40, Jón
Amar Ingvarsson 20, Pétur Ingvars-
son 19, Jón Öra Guðmundsson 9,
Bragi Magnússon 9, Sigfús Áraason
6, Tryggvi Jónsson 2.
Tölur úr leiknum: 6-5,19-34,23- 42,
49-54 - 55-56, 69-80, 90-96, 93-
103.
Dómarar: Jón Otti Jónsson og Víg-
lundur Sverrisson.
Valur-KR 98-73 (48-30)
Stig Vals: Magnús Matthíasson 21,
Ragnar 18, Brynjar Harðarson 18,
Franc Booker 15, Gaðni 9, Jóhannes
Sveinsson 7, Súnon Ólafsson 6,
Brynjar S. 4.
Stig KR: Harold Thomkins 21, Her-
mann 20, Matthías Etaarsson 9,
Hrafn 8, Gnðni Guðnason 7, Tómas
2, Sigurður Jónsson 2.
TÖIur úr ieiknum: 19-12, 32-17, 48-
30-—60-37,91-65, 98-73.
Dómarar. Leifur Garðarsson og Einar
Þór Skarphcðinsson.
síðan yfirhöndina fram til Ioka hálf-
leiksins, skoruðu þrjár þriggja stiga
körfur og leiddu í hálfleik, eins og
áður sagði.
Síðari hálfleikinn hófu Njarðvík-
ingar með miklum látum og jöfn-
uðu 64-64, en náðu aldrei að komast
yfir, þó oft hafi munað litlu. Þegar
tvær mínútur voru til leiksloka var
munurinn einungis tvö stig, en
Njarðvíkingar hittu illa í lokin, á
sama tíma og Keflvíkingar hittu vel,
og 10 stiga sigur þeirra var stað-
reynd í fyrsta leik liðanna í Úrvals-
deildinni þennan veturinn.
Keflvíkingar voru sterkari aðilinn í
þessum leik, þó Njarðvíkingar gæf-
ust ekki upp. Keflvíkingar eru með
sterkara lið í dag og hafa meiri
breidd, en Njarðvíkingar eru með
sterkt byrjunarlið, en á bekkinn
vantar reynslumenn. fsak Tómasson
lék ekki með vegna meiðsla og Rún-
ar Árnason, sem nýverið gekk í raðir
Njarðvíkinga frá Grindavík, er ekki
orðinn löglegur. Einnig hefur bróð-
ir Rúnars, Atli, gengið til liðs við
Njarðvíkinga.
Bestir í liði Keflvíkinga voru þeir
Guðjón Skúlason, Jón Kr. og Albert
Valsmenn unnu öruggan sigur í
síðari leik liðsins gegn norsku bik-
armeisturunum Stavanger í Evr-
ópukeppni bikarhafa í handknatt-
leik í Laugardalshöll á sunnudag.
Lokatölur urðu 34-25, eftir að stað-
an í leikhlé hafði verið 15-13 Vals-
mönnum í vil. Valsmenn eru því
komnir í aðra umferð í Evrópu-
keppninni, þar sem þeir sigruðu í
báðum leikjum sínum.
Eins og töiurnar gefa til kynna voru
Valsmenn mun betri aðilinn í leikn-
FH-ingar áttu ekki í vandræðum
með færeysku meistarana Kyndil í
síðari leik liðana, sem fram fór í
Kaplakrika á fostudagskvöld. Nið-
urstaðan varð m'u marka sigur, 29-
20, eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 14-6. FH-ingar eru því komn-
ir í aðra umferð í keppninni.
Mörk FH: Gunnar Beinteinsson 9,
Hálfdán Þórðarson 4, Guðjón Árna-
son 4, Sigurður Sveinsson 4(1), Al-
exei Trúfan 4(2), Jóhann Ágústsson
Stig ÍBK: Gnðjón Skúiason 45,
Jón Kr. Gíslason 14, Albert Ósk-
arsson 12, Jonathan Bow 11, Birg-
hr Guðftansson 8, Kristtan Frið-
riksson 5, Nökkvi M. Jóttsson 4,
Hjörtur Harðarson 4.
SUfi UMFN: Jóhannes KristbjÖms-
son 19, Ibitur Öriygsson 19, Ron-
dcy Robinson 17, Gunnar öriygs-
son 16, Ástþór Ingason 16, Agnar
Oisen 6. Tölur úr leiknum IBK-
UMFN: 11-4, 13-13, 28-18, 46-
38, 54-40 — 54- 49, 76-75, 82-
82,95-93,103-93.
Óskarsson. Jón Kr. stjórnaði liði
sínu af mikilli festu og spilaði menn
sína mikið uppi. Þá var Álbert geysi-
sterkur, héltTeiti vel niðri mestallan
leikinn, sér í lagi í fyrrí hálfleik þar
sem hann náði að halda honum al-
veg niðri. Nýliði í Úrvalsdeildinni,
Birgir Guðfinnsson, komst vel frá
sínu og er þar mikið efni á ferð. Hjá
Njarðvík stóð byrjunarliðið sig vel.
Jóhannes stóð mjög vel fyrir sínu í
fyrri hálfleik, Teitur stóð sig að sama
skapi vel í þeim síðari, en í fyrri hálf-
ieik náði hann að spila vel upp á
samherjana. Ronday var góður í
vörninni og þá náði hann 20 fráköst-
um. Einnig komust þeir Ástþór og
Gunnar vel frá sínu.
Dómarar voru þeir Bergur Stein-
grímsson og Kristinn Albertsson og
var dómgæsla þeirra ágæt í fyrri
hálfleik, en í þeim síðari var hún
döpur.
um, og var nánast aldrei spuming
um hvomm megin sigurinn lenti.
Bestu menn liðsins vom þeir Ólafur
Stefánsson, Geir Sveinsson og Valdi-
mar Grímsson, en þess utan lék lið-
ið í heild sinni ágætlega. Valsmenn
eru því komnir í aðra umferð, en
dregið er í hana í dag.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 8(3),
Ólafur Stefánsson 6, Dagur Sigurðs-
son 6, Jakob Sigurðsson 4, Jón
Kristjánsson 2, Júlíus Gunnarsson
2, Valgarð 1.
1, Arnar Geirsson 1, Ingvar Reynis-
son 1, Svafar Magnússon.
Víkingar úr leik
Víkingar léku tvo leiki f Evrópu-
keppni félagsliða í handknattleik,
gegn norska liðinu Runar, í Noregi
um helgina. Víkingar töpuðu fyrri
leiknum 23-14, en unnu þann síðari
með einu marki 26-27. Víkingar em
því úr leik í Evrópukeppninni. -PS
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
STÓRSIGUR
VALSMANNA
Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik:
Slökkt á Kyndli!
íslenska landsliðið U21 árs:
Mætir Grikkjum að
Varmá í dag
í dag kl. 16.00 leikur landslið skipað
leikmönnum 21 árs og yngri gegn
jafnöldrum sínura frá Grikklandi í
undankeppni HM og fer leikurinn
fram á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Ás-
geir Elíasson landsliðsþjálfari hefur
valið þá 16 leikmenn, sem skipa ís-
lenska Iandsliðið, og eru þeir eftirtald-
in
Markvörðun Ólafur Pétursson ÍBK
Vamarmenn: Óskar Þorvaldsson KR
Gunnar Pétursson Fylki
Lárus 0. Sigurðsson Þór
Miðjumenn: Ágúst Gylfason Val
Finnur Kolbeinsson Fylki
Steinar Guðgeirsson Fram
Ásgeir Ásgeirsson Fram
Bjarki Gunnlaugsson ÍA
Sóknarmenn: Arnar Gunnlaugss.ÍA
Þórður Guðjónsson ÍA
Varamenn: Friðrik Þorsteinss. Fram
Sturlaugur Haraldsson ÍA
Hákon Sverrisson UBK
Ásmundur Amarsson Þór
Helgi Sigurðsson Víkingi
-PS
Enska knattspyman:
Mark Wright
til Arsenal?
Forráðamenn Liverpool hafa
undanfarið verið að þreifa fyrir
sér um sölu á enska iandsliðs-
tnanninum og miðhetjanum
Mark Wright, og nú virðast línur
vera famar að skýrast hvað mál
hans varðar. Enskir fjölmiðíar
greindu frá því um helgina að
Arsenal hygðist kaupa Wtíght á
um tvær miiljónir punda.
Wright verður því 15. leikmað-
urtan sem Graeme Souness sel-
ur á því rúma ári, sem hann hef-
ur stjómað liðinu. -PS
ISLENSKAR GETRAUNIR: X12,11X,11X, X112