Tíminn - 16.10.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Föstudagur 16. október 1992
Guðmundur Matthíasson
frá Ospaksstöðum
Fæddur 1. apríl 1897
Dáinn 8. október 1992
Þegar svo langt er liðið á þessa öld,
sem raun ber vitni, verður æ fátíð-
ara að horfa þurfi á bak og veita
hinstu kveðju þeim er fyrst litu
dagsins ljós á öldinni sem leið. Þessi
svonefnda aldakynslóð hefur nú
þegar, að meginhluta, runnið sitt
æviskeið. Þetta var mjög styrkur
stofn er oft þurfti að lúta köldum
kjörum, en upplifði aftur á móti þá
mestu stökkbreytingu í framförum
og tækni er um getur í sögu lands
og þjóðar. Síðustu ár aldarinnar sem
leið voru æði erfið íslensku þjóðinni
sökum harðinda, og fólk flúði land í
talsverðum mæli. Sá, er hér verður
minnst, hefur komist í nána snert-
ingu við þessar mismunandi að-
stæður og umbreytingar, þar sem
hann var búinn að fylla hálfan tí-
unda tuginn.
Guðmundur Matthíasson var fædd-
ur að Auðshaugi í Vestur- Barða-
strandarsýslu 1. apríl 1897. Foreldr-
ar hans voru Matthías Ebenesersson
og Katrín Guðmundsdóttir. Eftir því
sem ég best veit munu þau hjón eigi
hafa stundað búskap í ríkum mæli,
heldur hafi hugur hans sér í lagi
beinst öllu fremur að sjósókn. Frá
Auðshaugi fluttu foreldrar Guð-
mundar með litla snáðann á fyrsta
ári út í eyjar á Breiðafirði til búsetu.
Heimildir hef ég fremur óljósar frá
þessum tíma, en þó held ég að mér
sé óhætt að nefna í þessu sambandi
bæði Rúfeyjar, Rifgirðingar og
Gjarðey. Sá, er bjó við Breiðafjörð,
var að ýmsu leyti betur settur en
margur annar, því svo sem alkunna
er hefur hann alloft verið nefndur
matarkista íslands.
Við þessar aðstæður ólst Guð-
mundur upp ásamt Pétri bróður sín-
um, sem var nokkru yngri. Eftir
eyjadvölina flutti síðan fjölskyldan
að Straumi á Skógarströnd. Hugur
Guðmundar beindist að sjósókn og
ungur maður hélt hann burt að
heiman í leit að frama í hinum stóra
heimi. Hann réð sig á togara og
komst í það minnsta á einn enskan,
auk nokkurra íslenskra. Um smá-
tíma vann hann hjá B.M. Sæberg í
Hafnarfirði, sem hafði þá nýverið
stofnað bifreiðastöð og hafði hann
meðal annars borið við að aka leigu-
bifreið. í Hafnarfirði kynntist Guð-
mundur ungri konu, Jóhönnu
Guðnadóttur frá Óspaksstöðum.
Þau felldu hugi saman og gengu í
hjónaband. Trúlega var hugur Guð-
mundar enn bundinn átthögunum,
því hin ungu hjón fluttu vestur og
hófu búskap á Straumi.
Þeim hjónum Guðmundi og Jó-
hönnu varð fjögurra barna auðið:
Jóhann Gunnar, f. 4. júlí 1926, ógift-
ur og barnlaus; Matthea Katrín, f.
14. ágúst 1928, gift undirrituðum,
þau eiga þrjú börn; Sigrún, f. 10. ág-
úst 1935, á tvær dætur; og Gísli, f.
12. nóvember 1936, giftur Guðrúnu
Árnadóttur, átti tvö börn, hann er
nú látinn. Barnabörn eru 7 og
barnabarnabörn 11.
Straumur var fremur lítil jörð og
kostarýr. Því varð að ráði að þau
brugðu þar búi á vordögum 1936 og
fluttu norður í Hrútafjörð að
Óspaksstöðum. Mun þar trúlega
hafa ráðið talsverðu átthagatryggð,
því Jóhanna var dóttir Guðna Ein-
arssonar og Guðrúnar Jónsdóttur er
búið höfðu þar í allmörg ár. Að flytja
um þetta langan veg, á þessum tíma,
var talsvert átak og það með allan
búsmala. Farið var á báti inn að
Kambsnesi við Hvammsfjörð, þaðan
farið á hestum inn allan Haukadal,
yfir Skarð og heim til Óspaksstaða.
Börnin þá þegar orðin þrjú, tvö þau
eldri það sjálfbjarga að þau gátu sjálf
setið hross, en það yngsta var enn í
móðurörmum og hún barnshafandi,
því drengur fæddist í nóvember
sama ár. Við þessar aðstæður hefði
mátt álykta að hamingjan væri í
hendi; að vísu mun hún hafa verið
það, en stundum er hún æði
skammvinn. í hönd fóru erfið ár. Til
landsins hafði verið flutt inn sauðfé
til kynblöndunar, erlendis frá, en
eigi tókst betur til en það að með því
barst skaðvænn sjúkdómur, svo-
nefnd mæðiveiki, er átti eftir að
leggja í valinn sauðfjárstofn ís-
lenskra bænda að stórum hluta.
Sem dæmi má nefna það, að bústofn
Guðmundar féll úr 130 ám niður í 9.
Afkoma heimilisins þar með nánast
brostin. Til þess að afla tekna varð að
leita á önnur mið. Hugur Guð-
mundar var enn bundinn sjávarafla.
Hann lagði því land undir fót, ásamt
eldri dóttur sinni Mattheu, sem var
þá enn kornung að aldri, allt suður
til Njarðvíkur til þess að vinna þar
við fiskverkun. Vágesturinn ill-
ræmdi varð yfirunninn.
Árin liðu og börnin uxu úr grasi og
allt virtist leika í lyndi. Samt sem
áður hneig hamingjusólin til viðar
fyrr en vænta mátti. Seint á árinu
1957 varð heimilið að Óspaksstöð-
um fyrir miklu áfalli. Þá féll í valinn
húsmóðirin sjálf, Jóhanna Guðna-
dóttir, löngu fyrir aldur fram, aðeins
56 ára. Um þessar mundir voru flest
börnin flutt burt að heiman og nán-
ast ekkert tiltækt ráð framundan hjá
Guðmundi annað en bregða búi,
selja bústofn og flytja til Reykjavík-
ur.
Lífið heldur áfram sinn veg og eitt
tekur við af öðru. Nokkrum dögum
eftir fráfall Jóhönnu fæddist okkur
hjónum lítil og fríð stúlka er hlaut
nafn ömmu sinnar. Við vorum að
koma okkur upp notalegu heimili að
Bugðulæk 13 og gátum tekið Guð-
mund til okkar um nokkurt skeið,
meðan hann var að átta sig á tilver-
unni. Síðan keypti hann sér sína eig-
in íbúð að Hjallavegi 4.
Við áttum heimilinu að Óspaks-
stöðum margt gott að unna og bár-
um til þess alla tíð hlýjan hug. Þar
hafði Matthea, kona mín, átt marga
notalega sumardvalarstund og börn
okkar notið sveitasælu í faðmi afa og
ömmu.
Ég, sem þessar línur rita, hafði
fengið þar húsaskjól, lítill drengur,
móðurlaus á tíunda ári, í fylgd með
ömmu minni og áttum við þar að-
setur um tveggja ára skeið. Kom síð-
an þangað aftur röskum áratug síðar
ungur sveinn og sótti mitt ágæta
kvonfang. Eftir að Guðmundur sett-
ist að í Reykjavík fékk hann starf hjá
Landssíma íslands og vann þar allt
til þess dags er aldur setti stól fyrir
dyrnar. Núna allmörg síðustu árin
bjó hann í lítilli einstaklingsíbúð í
húsi aldraðra að Lönguhlíð 3. Nota-
legt heimili og vel að vistfólki búið.
Að vísu er þar eigi sjúkradeild.
Skulu hér færðar innilegar þakkir
og kveöjur til alls samferðafólksins,
bæði tengt dvöl og starfi.
Þann 7. apríl 1989 varð Guðmund-
ur fyrir mikilli lífsreynslu. Þá missti
hann yngri son sinn, Gísla að nafni,
aðeins rúmlega fimmtugan að aldri.
Þetta var mikil raun fyrir öldung,
kominn yfir nírætt.
Guðmundur var að eðlisfari Ijúfur í
lund, félagslyndur með afbrigðum,
naut í ríkum mæli mannfagnaða og
var afar vinmargur. Hann lagði ríka
áherslu á að viðhalda tryggðabönd-
um. Hann hafði mjög ákveðnar og
óhaggandi skoðanir varðandi stjórn-
mál. Hvikaði aldrei um hársbreidd
frá sinni stefnu, dáði sína forystu-
menn og vann fyrir þá dyggilega.
í nóvember 1991 varð hann fyrir
miklu áfalli, datt á sléttu gólfi og
braut annan lærlegginn. Var hann
fluttur á Landakotsspítala, þar sem
hann gekkst undir aðgerð. Við þetta
hrakaði heilsu hans æði mikið og lá
hann rúmfastur að mestu eftir þetta
til lokadægurs. Við hjónin vorum þá
þegar búin að bóka ferð alla leið til
Ástralíu, til samfunda við okkar ást-
vini. Við vorum uggandi varðandi
framvindu mála, en létum það samt
eigi hefta okkar för. Brátt varð okkur
ljóst að hann ætti eigi afturkvæmt af
sjúkrahúsi. Hann naut þeirrar náðar
að fá að dvelja á Landakotsspítala
þar til yfir lauk. Dvölin þar var farin
að nálgast eitt ár. Það er æði langur
og strangur rúmlegutími. Hann bar
sig samt ævinlega vel, sagðist ekki
líða miklar þrautir og var ávallt
hress í tali, þar til verulega af hon-
um dró undir það síðasta. Hann fékk
afar hægt andlát, yfir honum hvfldi
þessi sanna hæverska ró og heið-
ríkja, á einum dýrlegasta degi
haustsins.
Guðmundur átti hér í Reykjavík
allmörg notaleg ár, en þrátt fyrir það
áttu sjórinn og sveitin hug hans all-
an. Hann unni afar heitt sinni ást-
kæru fósturjörð. Það má með sanni
segja að hjartsláttur hans hafi slegið
í takt við tilbrigði hinnar íslensku
náttúru, því að í sama mund og
bliknuð laufblöð eru að falla til jarð-
ar í ríkum mæli og liljur vallarins
drúpa höfði í foldar skaut, hneigði
hann einnig sitt höfuð til hinstu
hvflu.
Fyrir hönd þess látna og okkar að-
standenda færi ég alúðar kveðjur og
þakkir til alls starfsfólks, lækna og
sjúkrahússprests á Landakotsspít-
ala. Börn hans þakka föðurum-
hyggju og handleiðslu. Afa- og lang-
afabörnin senda hlýjar kveðjur og
þakkir. Ennfremur við tengdabörn-
in, fjölskyldan í Ástralíu, aðrir ætt-
ingjar og vinir þakka ánægjulega
samíylgd og vináttu um langan ævi-
veg.
Himneski faðir, ég fel í forsjá þína
sálu þessa framliðna öldungs og
megi þín náð og miskunn fýlgja öll-
um hans afkomendum um ókomna
framtíð.
Ingimar Einarsson
í dag kveðjum við Guðmund Matt-
híasson frá Óspaksstöðum í Hrúta-
firði. Hann andaðist í Landakots-
spítala 8. október síðastliðinn á 96.
aldursári.
Fundum okkar bar fyrst saman í
Grænumýrartungu á fögru vor-
kvöldi 1936. Guðmundur var þá ný-
fluttur að Óspaksstöðum frá
Straumi á Skógarströnd.
Mér var starsýnt á þennan þrek-
vaxna, glaðlynda mann. Hann var á
einhvern máta öðruvísi en aðrir
menn sem ég þá þekkti. Ég minnist
þess hve hann var óþvingaður, léttur
í lund, hló og gerði að gamni sínu.
Ég var því óvanur að ókunnugur
maður væri svona opinskár og
spaugsamur. En þannig var Guð-
mundur alla tíð. Hann var ófeiminn
og fljótur að kynnast, átti auðvelt
með að blanda geði við fólk og hafði
gamanafaðspjalla.
Þeir, sem eru fæddir um síðustu
aldamót, eru oft nefndir aldamóta-
menn. Það var svo sannarlega ekki
mulið undir aldamótakynslóðina og
Guðmundur fékk snemma að kynn-
ast miklu erfiði og harðri lífsbaráttu.
Hann ólst upp í Breiðafjarðareyjum
og komst því fljótt í nána snertingu
við sjó og sjósókn.
Árið áður en hann fermdist réði
hann sig á skútu frá Stykkishólmi,
sem var á handfæraveiðum. Næstu
vertíðir er hann svo á skútum frá
Patreksfirði og Þingeyri. Guðmund-
ur segir í viðtali, sem birtist við
hann í Tímanum þegar hann var ní-
ræður, að vissulega hafi vinnan á
skútunum verið erfið fyrir hann,
unglinginn, og viðurværið ekki
beysið. Þetta eru að.sjálfsögðu orð
að sönnu.
Árið 1917 fer Guðmundur á togara,
fyrst enska. Þá voru vökulögin ekki
komin og sem dæmi um vinnu-
hörku og þrældóm, segir í áður-
nefndu viðtali, að þegar mikið fiskirí
var þá hafi menn stundum verið
látnir vera í aðgerð, standa í fisk-
kösinni, í allt að fimmtíu tíma án
hvfldar. Á togurum var Guðmundur
meira og minna til 1932. Hann lenti
í hinu svonefnda Halaveðri 1925. í
því illræmda óveðri fórust tveir ís-
Ienskir togarar á Halamiðum með
allri áhöfn og aðrir sluppu naum-
lega.
Sjórinn heillaði Guðmund og sjó-
mennskan átti vel við hann. Það fer
samt svo að hann hættir á sjónum
og gerist bóndi, fyrst að Straumi á
Skógarströnd og síðar á Óspaksstöð-
um í Hrútafirði. Á Óspaksstöðum
bjó Guðmundur frá 1936-1959. Þá
hættir hann að búa og flytur til
Reykjavíkur. Jafnframt búskap fór
hann oft á vertíðir suður með sjó.
Eftir að Guðmundur kom suður
vann hann fyrst hjá Grænmetinu,
en lengst af hjá Landssímanum.
Fulla vinnu stundaði hann þangað
til hann var kominn hátt á áttræðis-
aldur.
Guðmundur Matthíasson hafði
brennandi áhuga á þjóðmálum og
fylgdist vel með því sem gerðist á
þeim vettvangi. Hann var alla tíð
einlægur og eldheitur stuðnings-
maður Framsóknarflokksins. Gengi
flokksins var hans hjartans áhuga-
mál. Ég held hann hafi mætt á
hvern einasta auglýstan fund hjá
Framsóknarflokknum eftir að hann
kom til Reykjavíkur. Þegar nálgaðist
kosningar færðist hann allur í auk-
ana og var í essinu sínu. Hann kom
daglega á kosningaskrifstofu flokks-
ins. Alltaf var hann hress og kátur
og lífgaði upp á mannskapinn í mis-
jöfnu veðurútliti með gamansemi
og kímni. Slíkt er ómetanlegt.
Við síðustu alþingiskosningar og
einnig borgarstjórnarkosningar
1990 keyrði ég hann á kjörstað. Þá
voru fæturnir orðnir mjög lélegir og
hann átti erfitt með gang, skyldi
engan undra. En Guðmundur kvart-
aði ekki. Hann hló og gerði grín að
sjálfum sér, þegar erfiðlega gekk að
komast inn í bflinn eða ganga upp
tröppur Sjómannaskólans. Ég
spurði Guðmund hvort hann þyrfti
ekki að fá aðstoð við að kjósa, því ég
vissi að hann var orðinn sjóndapur.
Þá sagði hann glettnislega: ,/Etli ég
rati ekki á B-ið.“
Eins og áður hefur komið fram, var
Guðmundur alla tíð lífsglaður og
um leið gleðigjafi samferðamann-
anna. Hann kunni þá list að ýta
áhyggjum til hliðar, njóta líðandi
stundar og skemmta sér í góðra vina
hópi. T.d. dansaði hann af lífi og sál
fram á níræðisaldur.
Guðmundur var svo lánsamur að
vera jafnan hraustur og heilsugóð-
ur. En fyrir tæpu ári varð hann fyrir
því óhappi að lærbrotna og eftir það
átti hann ekki afturkvæmt af spítala.
Ég sá Guðmund síðast á Landakots-
spítala á 95. afmælisdegi hans. Þá
voru kraftar hans að þrotum komn-
ir. En þrátt fyrir það var hann með
bros á vör og glettni í auga.
Ég þakka Guðmundi Matthíassyni
fyrir góðar samverustundir. Blessuð
sé minning hans. Aðstandendum
færi ég samúðarkveðjur.
Þorsteinn Ólafsson
Frá fjárlaganefnd
Alþingis
Viðtalstímar nefndarinnar
Fjárlaganefnd Alþingis veitir nú eins og undanfarin ár viðtöku
erindum frá stofnunum, félögum, samtökum og einstaklingum er
varða fjárlög ársins 1993.
Fjárlaganefnd gefur þeim aðilum, sem vilja fylgja erindum
sinum eftir meö viðræðum við nefndina, kost á að eiga fundi
með nefndinni á tímabilinu 9. til og með 20. nóvember nk.
Þeir, sem óska eftir að ganga á fund nefndarinnar, skulu hafa
samband i sima 91-624099 eigi síðar en föstudaginn 30. október
nk.
Þvi miður gefst ekki tími til þess að sinna viðtalsbeiönum,
sem fram kunna að koma síðar, eða að veita viðtöl utan þess
tíma, sem að framan greinir.
FRÁ STARFSMANNAFÉLAGINU SÓKN
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður við kjör fulltrúa
á 37. þing Alþýðusambands íslands, sem haldið
verður á Akureyri 23.-27. nóvember n.k.
Tillögur skulu vera um 15 fulltrúa og jafnmarga
til vara. Tillögum, ásamt meðmælum eitt hundr-
að fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu
félagsins, Skipholti 50a, eigi síðar en kl. 11:00
fyrir hádegi, föstudaginn 23. október n.k.
Kjörstjórn Starfsmannafélagsins Sóknar
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum
í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar.