Tíminn - 16.10.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Föstudagur 16. október 1992
St. Jósefsspítali á Landakoti 90 ára í dag. Aðlögun að breyttu umhverfi:
Sjúkrahús sem reist var
af fórnfýsi og kærleika
Á þessu árí eru 90 ár liðin síðan SL
Jósefsspítali á Landakoti tók til
starfa. Spítalinn var vígður 16.
október 1902. Saga hans er því orð-
in býsna löng. Fyrst og fremst er
saga spítalans bundin við hina
frönsku reglu St. Jósefssystra, sem
fluttu til landsins siðmenningu í
heilbrigðismálum íslendinga og
stofnuðu spítalann og reistu í nafni
kærleika og fómfysi. Eftir niður-
skurð á fjárveitingum til spítalans
hefur mikið starf veríð unnið til að
aðlaga reksturínn að breyttu um-
hverfl. Eftir þær breytingar er
Landakot enn í dag ein fullkomn-
asta sjúkrastofnun landsins.
Landakotsspítali hefur alla tíð haft
mikla sérstöðu hjá öðrum sjúkra-
húsum á landinu, því kerfið, sem
sjúkrahúsið starfar eftir, hefur þró-
ast með öðrum hætti en önnur
sjúkrahús hér á landi. Það er svipað
því sem gerist í Bandaríkjunum, en
grunnhugmyndin er sú að læknar
eru ekki fastráðnir við spítalann og
hafa engin föst laun, heldur fá greitt
fyrir hvert læknisverk. Læknarnir
hafa aðstöðu á spítalanum og leyfi til
að leggja þar inn sjúklinga sína, og
hver læknir stundar sinn sjúkling og
ber ábyrgð á honum meðan hann
dvelst á sjúkrahúsinu. Sérfræðing-
arnir eru því algerlega sjálfstæðir og
ekki undir aðra settir.
Þá má geta þess, sem er einstakt á
íslenskum sjúkrahúsum, að læknar
við Landakot greiða 4% af launum
sínum í sérstakan styrktarsjóð, sem
hefur það hlutverk að styðja lækn-
inga- og vísindastarfsemi á spítalan-
um, m.a. með tækjakaupum og
styrkveitingum.
Lífseigar nýjungar
Bygging spítalans hófst 1902 og
fyrsti sjúklingurinn var lagður inn í
september sama ár. St. Jósefssystur
voru framsýnni en íslendingar áttu
að venjast og sannar bygging spítal-
ans það. Sem dæmi má nefna vatns-
brunn á Landakotshæð, sem syst-
urnar stóðu fyrir, og þótti hugmynd-
in í fyrstu aldeilis fáránleg. Útkoman
var að nægilegt vatn fékkst handa
öllum spítalanum og fjölda heimila í
nágrenni hans. Þær létu einnig grafa
fyrir og leggja skolpræsi frá spítalan-
um til sjávar. Slíkt hafði ekki þekkst
áður á íslandi. Ræsið er enn þann
dag í dag í notkun.
I upphafi voru rúm fyrir 40 sjúk-
linga á Landakotsspítala, en sjúkra-
húsið stækkaði ört og þegar mest var
voru rúm fyrir liðlega 200 sjúklinga.
Þáttaskil urðu í sögu Landakots þeg-
ar íslenska ríkið keypti spítalann af
St. Jósefssystrum 1976 og afhenti
Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala
sjúkrahúsið til rekstrar í sama formi
og verið hafði. En þótt systurnar
hættu rekstri Landakotsspítala, gæt-
ir áhrifa þeirra þar enn, e.t.v. ekki
síst vegna þess að tvær systranna eru
enn starfandi við spítalann.
Breytt starfsumhverfi
Niðurskurður á fjárlögum hefur
komið hart niður á rekstri Landa-
kotsspítala og hefur orðið að breyta
starfssviði hans verulega frá því sem
var. Starfssvið spítalans er nú sér-
tækara og skapast hefur meiri stöð-
ugleiki innan sjúkrahússins, því
unnt er að skipuleggja innlagnir bet-
ur en áður. Á síðasta ári þjónaði
Landakot fleiri sjúklingum en
nokkru sinni fyrr og var reksturinn
hagkvæmur og vel innan ramma
fjárlaga.
Segja má að skipulagsbreytingarn-
ar, sem orðið hafa innan spítalans,
séu í stuttu máli þær að göngudeild-
arþjónusta hefur verið aukin eftir að
bráðavaktir á handlækninga- og lyf-
Sigurgeir Kjartansson, skurö-
læknir á Landakotsspítala,
varð fyrstur hérlendis til að
framkvæma skurðaðgerðir í
kviðarholi með kviðsjá, þannig
að ekki gerist þörf á að opna
kviðarhol sjúklings. Myndin er
tekin við fyrstu aðgerðina, en
þá var skemmd gallblaðra fjar-
lægð.
lækningadeildum voru lagðar niður.
Sérstök fimm daga handlækninga-
deild hefur tekið til starfa, þar sem
sjúklingar leggjast inn á mánudög-
um og útskrifast fyrir helgi, og ný
hjúkrunardeild á lyflækningadeild
með 22 rúmum fyrir langlegusjúk-
linga. Við þessar skipulagsbreytingar
hefúr rúmum fyrir innlagnarsjúk-
linga fækkað úr 200 í 148.
Alvöru sjúkrastofnun
Þótt verulegar breytingar hafi orðið
á högum spítalans, er hér enn um
fullkomna sjúkrastofnun að ræða,
þótt halda mætti annað eftir þá um-
ræðu sem átt hefur sér stað undan-
farin misseri.
Á Landakoti er fullkomnasta augn-
deild landsins, lyfjadeild, handlækn-
ingadeildir, barnadeild, gjörgæslu-
deild og hjúkrunardeild. Barnadeild
og augndeild starfa óbreyttar eftir
skipulagsbreytingar og allt starf á
handlækningadeildum hefur verið
aukið.
Það gera sér e.t.v. ekki allir grein
fyrir því að Landakotsspítali er mið-
stöð augnlækninga og augnsjúk-
dómarannsóka á íslandi, og hefur
svo verið frá því að hann hóf starf-
semi sína. Spítalinn leggur mikla
áherslu á æðaskurðlækningar, bækl-
unar- og þvagfæraskurðlækningar
og fleira.
Bamadeild Landakotsspítala sinnir
að miklu leyti sérhæfðu hlutverki.
Öll börn, sem eiga við augnsjúk-
dóma af einhverju tagi að stríða, eru
lögð inn á Landakot. Einnig börn
með krabbamein, sykursýki eða
önnur efnaskiptavandamál, og börn
með þroskafrávik.
Bráðamóttaka fer fram á deildinni
sjálfri, en það veitir börnum og for-
eldrum vissa öryggistilfinningu að
sama starfsfólk annast börnin allan
þann tíma sem þau dvelja á sjúkra-
húsinu, allt frá gjörgæslu til loka
dvalar.
Horft til framtíðar
Eftir niðurskurð á fjárveitingum
hefur starfsemi spítalans verið end-
urskipulögð frá grunni. Vegna sér-
stöðu sinnar á mörgum sviðum,
bæði læknisfræðilegum og rekstrar-
legum, er margt sem ekki verður
breytt nema með því að leggja spítal-
ann niður. Það stendur ekki til og
niðurstaðan er sú, eftir breytingar,
að Landakotsspítali er enn þann dag
í dag fullkomin sjúkrastofnun, sem
þjónar á sumum sviðum landinu
öllu. f tilefni 90 ára afmælisins 16.
október verður opið hús, þar sem
starfsfólk mun taka á móti gestum
og gangandi og kynna starfsemi spít-
alans.
MERKIÐ
VIÐ 13 LEIKI
Leikir17.og18.okt. 1992
Viltu gera
uppkast
að þinni
spá?
1. AIK —Norrköping □ G]B[T]
2. IFK Göteborg — Malmö FF U [T][xjL2J
3. Trelleborg FF — Öster bi ; i'ii x si 2 í
4. Braqe — Diurqárden □ [ 1 ]| X II 2 |
5. Hácken — V.Frölunda □
6. Örebro — Halmstad □ Qj[x][2j
7. Chelsea — Ipswich Town B00Q
8. Crystal Palace — Manch. City Q (1' ]| x;; 2 j
9. Everton — Coventry City U I 1 ii x. I [ 2 ]
10. Norwich Citv — Q.P.R. ílj mnniTi
11. Notth. Forest — Arsenal m Djstn'
12. Sheff. Wed — Oldham SE Lílí xji 2j
13. Tottenham — Middlesoro ee mmLU
u. J ÖLMI S | o S 1 “ 3 ! or m :S cc p 2 < ® -3 2 i O I ^ 0» a 1 úi « | * p 1 I 1 o cc IE —i -UJ u. e -=3 j7> | FM 95,7 1 ./ 2 8 ►— co —» < o < u 8 8 3 Q XX _» < >1 SAk >f ITA á| LS 1
I MBL. I OV 1 1 X I 2 |
1 1 X 1 1 2 1 1 X X 6 3 1
2 1 1 1 X X 1 X 2 1 6 3 1
3 2 2 X 2 2 1 2 2 2 1 1 8
4 2 1 X 1 1 2 1 1 2 5 1 4
5 X 1 2 1 1 1 1 1 X 7 2 1
6 1 1 1 1 1 1 1 X 1 9 1 0
7 1 1 1 1 ) ( 1 1 1 X 1 8 2 0
8 X 2 1 1 X 2 2 2 2 3 2 5
9 X 1 X X 1 1 1 1 1 6 3 1
10 1 X 2 1 1 1 1 1 1 8 1 5 1 3
11 X 2 X 1 2 X X 2 X 2
12 1 1 1 1 ) < 1 1 1 1 1 9 1 0
13 X X X 1 X 1 1 1 1 6 4 0
w w w
STAÐAN1SVIÞJ0Ð
28. október 1992
MEISTARAKEPPNIN
1. Öster ....74 2 1 15-7 29
2.AIK ....74 1 2 16-7 27
3. Norrköping .... ....73 04 9-14 27
4. Malmö FF ....73 1 3 9-9 23
5. Trelleborgs FF ....73 04 12-20 23
6. IFK Göteborg. 72 0 5 10-14 18
KVALSVENSKAN
1. Djurgárden .... ...11 55 1 25-9 20
2. Örebro ...11 6 1 422-13 19
3. Brage ...11 54 2 16-8 19
4. Halmstad ...10 6 1 3 19-16 19
5. GAIS ...105 2 3 17-10 17
6. Hácken ...105 14 19-19 16
7. V-Fröiunda .... ...11 1 37 15-23 6
8. IFK Sundsvall ...100 1 9 4-38 1
STAÐAN í ENGLANDI
28. október 1992
ÚRVALSDEILD:
1. Blackburn 2. Norwich City 3. Coventry City 4. Q.P.R 11 73124-9 24 ...1172 2 20-19 23 ...11 63 2 14-10 21 ...11 55 1 17-10 20
5. Aston Villa ...11 54 2 20-14 19
6. Manchester Utd 7. Arsenal 1154 2 12-8 19 „1152 4 14-12 17
8. Ipswich Town 9. Middlesbro 10. Leeds United 11. Oldham 12. Chelsea 13. Manchester City 14. Sheffield Wed 15. Everton 16. Liverpool 17. Sheffield Utd 18. Southampton 19. Tottenham ...1137116-14 16 ...10 433 19-14 15 ...1135 3 19-1814 ...11 353 19-19 14 ...1134 4 14-14 13 ...1133 5 13-13 12 ...1133 5 13-15 12 ...1133 5 10-13 12 ...11335 14-18 12 ...11 33 5 11-15 12 11 2459-14 10 11 2 45 9-19 10
20. Crystal Palace 21. Wimbledon 1116415-19 9 11236 14-189
22. Nottingham Forest.. 1013610-216