Tíminn - 16.10.1992, Blaðsíða 7

Tíminn - 16.10.1992, Blaðsíða 7
Föstudagur 16. október 1992 Tíminn 7 Aðstandendur kvikmyndarinnar Lúkas. Guðmundur Steinsson er þriðji frá hægri. Tímamynd Ami Bjama Ný íslensk-eistnesk-dönsk kvikmynd frumsýnd í dag í Reykjavík: Lúkas 1 dag, fostudag, verður ný íslensk- eistnesk-dönsk kvikmynd, sem heitir Lúkas, frumsýnd í Stjömu- bíói, en myndin er gerð eftir sam- nefndu leikriti eftir Guðmund Steinsson og er Guðmundur höf- undur handrits myndarinnar. Myndin er gerð í samvinnu tveggja kvikmyndafélaga sem heita Frigg hinn sársvangi Film og Freyja Film og var hún tek- in í Tkllin í Eistlandi. Leikendur eru þrír. Ain Lutsepp leikur aðalhlut- verkið, glataða soninn, afætuna sem snýr heim. Gömlu hjónin sem taka á móti gestinum og fóðra hann eru leikin af Juri Jarvet og Ita Ever. Leik- stjóri er Tönu Vivre. Viðstaddir frumsýninguna verða m.a. leikstjór- inn Tönu Vivre, Mait Máikivi töku- maður, Raimond Felt framleiðandi, Lepu Sumera höfundur tónlistar, Avro Alas þýðandi handrits, en Alas er fyrrum menningarmálaráðherra Eistlands og núverandi sendiherra Eistlands á Islandi, í Noregi og Dan- mörku með aðsetur í Kaupmanna- höfn. Sambandsstjórnarfundur Verkamannasambands íslands skorar á stjórnvöld að hverfa frá stefnu afskiptaleysis: Vandi atvinnulífsins kallar á ný vinnubrögð Nýafstaðinn sambandsstjómarfundur Verkamannasambands íslands skor- ar á stjómvöld að hverfa frá stefnu afskiptaleysis og beita nýjum vinnu- brögðum til að takast á við vanda atvinnulífsins m.a. með samvinnu við fulltrúa atvinnulífsins. Fundurinn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna sfvax- andi atvinnuleysis sem á vissum svæðum sé komið yfir hættumörk og sé þegar farið að standa eðlilegri þróun samfélagsins fyrir þrifum. „Grípa verður til ráðstafana í at- vinnumálum, sem í senn þjóna þjóðhagslegum markmiðum og eyða því atvinnuleysi sem stefnir heimilum og fyrirtækjum í greiðsluþrot." Verkamannasambandið telur að þær vonir hafi brugðist sem bundn- ar voru við síðustu kjarasamninga og þá sérstaklega að hópar hinna Iægst launuðu skuli ekki hafa fengið leiðréttingu á kjörum sínum, eins og að var stefnt. Þess í stað bitnar vaxandi atvinnuleysi einna mest á þessu fólki. Fundurinn ítrekar þau sjónarmið að atvinna sé grundvall- arréttindi hvers einstaklings. Hátíð í Skálholti á laugardag til að minnast tímamóta: Skálholtsskóli orðinn tvítugur Á þessu hausti eru 20 ár síðan Lýðháskólinn í Skálholti tók til starfa og reglulegt skólahald hófst á ný í Skálholti. Tímamóta þessara verður minnst með hátíðardagskrá í Skálholtsdómkirkju nk. laugardag. Á hátíðarsamkomunni flytja ávörp herra Ólafur Skúlason biskup ís- lands, Þorsteinn Pálsson kirkju- málaráðherra, sr. Jónas Gíslason vígslubiskup og formaður skólaráðs, sr. Sigurbjörn Einarsson biskup og sr. Heimir Steinsson útvarpsstjóri sem var fyrsti rektor lýðháskólans. Þá syngur Skálholtskórinn undir stjórn Hilmars Agnarssonar og Margrét Bóasdóttir söngkona ásamt Calumeaux tríóinu. í ályktum fundarins er bent á þá staðreynd að á sama tíma og álögur á launafólk aukast með meiri skatt- heimtu og álagningu nýrra gjalda er verið að rýra velferðarkerfið en fyrir- tækjum og fjármagni hlíft. „Engu er líkara en verið sé að egna verkalýðs- hreyfingu til átaka, en augljóst er að hún getur ekki unað þessum tillög- um.“ Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, segir að launafólki sé farið að svíða undan því að ekkert skuli vera gert til að skattleggja fjármagnstekj- ur, en ísland er eina vestræna Iandið sem ekki hefur verið ástæða til að gera það auk þess sem enginn há- tekjuskattur er hérlendis. Að mati fundarins eiga kröfur verkalýðshreyfingarinnar í næstu kjarasamningum að vera fáar en skýrar og miða að því að gerðar verði úrbætur í atvinnumálum sem tryggja að allir hafi vinnu við sitt hæfi. Auk þess þarf að Iagfæra kjör þeirra lægst launuðu, koma í veg fyrir að samningar og réttindi launafólks verði ekki skert, snið- gengin eða rangtúlkuð, að fyrirtæki komist ekki upp með það að neita launafólki um eðlilega leiðréttingu á kaupi á sama tíma og sömu fyrirtæki virðast geta greitt forstjórum sínum tí- eða fimmtán- föld verkamannalaun, fjármagnseig- endum verði ekki gert hærra undir höfði en launafólki, treysta verður velferðarkerfið og leggja nýjan grundvöll að jafnrétti til náms. Þá getur verkalýðshreyfingin ekki unað því að ráðstöfun aflaheimilda leggi heil byggðarlög í rúst og krefst endurskoðunar á þeim lögum. Sömuleiðis er krafist endurskoðun- ar á ákvörðunum um smíði frysti- togara og nauðsyn á mótun nýrrar stefnu um uppbyggingu flotans og nýtingu fiskimiðanna. Stefna verður að aukinni verðmætasköpun í sjáv- arútvegi, kanna verður betur haf- svæðið í kringum landið, afla þarf nýrra markaða, átaks er þörf í upp- byggingu vegakerfisins, afla þarf fjármuna til viðhalds opinberra mannvirkja en síðast en ekki að efla samkeppnisaðstöðu íslensks iðnaðar og atvinnulífs í „stað útflutnings á atvinnu til annarra þjóða sem lamar atvinnuvegina og grefur undan bú- setu í landinu." BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNlb ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYR! 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Eumpcar Hafnarfjörður Aðaltundir Framsóknarfélags Hafnarljarðar og Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna I Hafnarfirði verða haldnir að Hverfisgötu 25 miðvikudaginn 21. okt kl. 20.30. 1. Venjuleg aðalfúndastörf. 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing, sem haldið verður I Keflavlk sunnudaginn 1. nóvember n.k. 3. Kosning fulltrúa á flokksþing, sem haldiö verður á Hótel Sögu föstudag 27. nóv. til sunnudags 29. nóv. n.k. 4. Steingrlmur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, mun mæta á fundina, ræða stjómmálaviðhorfið og svara fýrirspumum. Stjómlmar Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu Aðalfundurfélagsins verður haldinn sunnudaginn 18. október kl. 21 að Eyrarvegi 15, Selfossi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjómin Breyttur opnunartími skrif- stofu Framsóknarflokksins Frá 1. október verður skrifstofa Framsóknarflokksins I Hafnarstræti 20, III. hæð, op- in frá kl. 9.00-17.00 mánudaga-föstudaga. Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn Aðalfundur Framsóknarfélags Árnessýslu verður haldinn þriöjudaginn 20. október kl. 21.00 að Eyrarvegi 15, Selfossi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og kjör fulltrúa á kjördæmisþing KFFS. Stjómin Kópavogur — Opið hús Framsóknarfélögin I Kópavogi hafa opiö hús á laugardögum kl. 10-12 aö Digra- nesvegi 12. Litið inn, fáið ykkur kafflsopa og spjallið. Framsóknarfélögln Konur á Vesturlandi — Stofnum félag Föstudaginn 16. október n.k. verður stofnfundur Félags framsóknarkvenna á Vest- urtandi haldinn i Félagsbæ í Borgamesi og hefst kl. 20.30. Fundarefni: Fundarsetning. Kosning stjórnar og annarra tnjnað- armanna. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing Vesturiands og flokksþing Fram- sóknarflokksins. Ávörp gesta: Ingibjörg Pálmadóttir, alþingismaður. Unnur Stefánsdóttir, formaður LFK. Kaffi (selt á vægu veröi). Skemmtiatriði. Allar áhugasamar konur á Vesturiandi velkomnar. Undirbúningsnefndin Suðurland Kjördæmisþing framsóknarmanna á Suðuriandi verður haldið I Leikskálum, Vlk í Mýrdal, laugardaginn 31. október n.k. og hefst kl. 10.00 árd. Kvöldvaka um kvöldiö. Dagskrá auglýst siðar. Stjórn KSFS Kjördæmisþing á Höfn í Hornafirði Kjördæmisþing framsóknarmanna á Austuriandi verður haldið á Höfn dagana 23. og 24. október 1992. Þingstörf hefjast kl. 20.00 föstudaginn 23. október. Stjórn KSFA Árneshreppsbúar • J Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður heldur almennan stjómmálafund i Ámesi kl. 15.00 sunnudaginn 18. október. Allir velkomnir. Ólafur FUF Strandasýslu — Aðalfundur Aðalfundur FUF Strandasýslu verður haldinn I Taflfélagshúsinu, Hólmavik, mið- vikudaginn 21. október 1992, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundastörf. 2. Önnur mál. Stjómin Hafnarfjörður Framsóknarfélögin í Hafnarflrði hafa opna skrifstofu að Hverfisgötu 25 á þriðju- dagskvöldum frá kl. 20.30. Litið inn, fáið ykkur kafflsopa og spjallið. Stjómimar Rangæingar — Aöalfundur Aðalfundur Framsóknarfélags Rangæinga verður haldinn i Hliðarenda, Hvolsvelli, miðvikudaginn 21. október. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ávörp gesta. 3. Önnur mál. Gestirfundarins verða alþingismennimir Jón Helgason og Guðni Ágústsson ásamt Ólafíu Ingólfsdóttur, formanni Kjördæmissambandsins. Féiagar eru hvattir til að fjöl- menna. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.