Tíminn - 03.11.1992, Page 12
Áskriftarsími
Tímans er
686300
KERRUVAGNAR OG KERRUR
Bamalþróttagallar á frábæru veröi.
Umboðssala á notuðum bamavömm.
Sendum í póstkröfu um land allt!
BARNABÆR, Ármúla 34
Símar: 685626 og 689711.
VERIÐ VELKOMIN!
Bílasala Kópavogs
Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogi
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
Tímiiui
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓV. 1992
íslandsflug fær nýja flugvél:
Dornier 228
alhliða vél
og milli landa, því auðvelt er að fjar-
lægja sæti og innréttingar og stórar
vörudyr eru á henni.
Flugeiginleikar Dornier-flugvéla
eru einstakir. Geta vélarnar bæði
flogið mjög hægt og mjög hratt, eða
407 km/klst. Dornier 228 getur því
bæði lent og hafið sig til flugs á ör-
stuttum brautum, þannig að þessa
vél er hægt að nota á sérhverri flug-
braut á íslandi.
Hin nýja flugvél íslandsflugs er bú-
in fullkomnustu flugleiðsögutækj-
um og staðsetningartækjum og hef-
ur litratsjá og sjálfstýringu auk ann-
ars. Hún hefur um átta stunda flug-
þol.
Landsfundur Kvennalistans vill að allt vinnufært fólk án atvinnu fái óskertar atvinnuleysisbætur:
Kvennalistakonur sammála
um að vera áfram ósammála
Dornier 228 flugvél Islandsflugs og fyrir framan hana stjórnendur Islandsflugs. Þeir eru f.v. Gunnar
Þorvaldsson framkvæmdastjóri, Birgir Ágústsson og Gísli Baldur Garðarsson. Tfmamynd Ámi Bjama
íslandsflug hefur keypt og fengið til
landsins nýlega farþegaflugvél af
gerðinni Domier 228-202. Þetta er
þýsk flugvél, en með bandaríska
Garrett hverfilhreyfla.
Hin nýja flugvél íslandsflugs tekur
19 farþega í stóru og rúmgóðu far-
þegarými. En vélin hentar einnig vel
til vöruflutninga bæði innanlands
Miklar umræður urðu um Evrópskt efnahagssvæði á landsfundi Kvennalist-
ans, sem haldinn var um helgina á Laugarvatni. Niðurstaðan varð að
Kvennalistinn er áfram andsnúinn EES-samningnum, en viðurkennt er að
um þessa afstöðu sé ekki eining innan Kvennalistans. Talsverö umræða
varð um lýðræði innan hreyfingarinnar og kom fram gagnrýni á þingkonur
hennar og eins var sú fuilyrðing sett fram að Kvennalistinn værí orðinn
stofnun.
í ályktun Kvennalistans um afstöð-
una til EES er ítrekuð andstaða list-
ans við EES og EB, en jafnframt
kemur skýrt fram að um þessa stefnu
séu deildar meiningar innan Kvenna-
listans. Konurnar eru hins vegar
sammála um að krefjast þjóðarat-
kvæðis um EES-samninginn. Ekki
voru greidd atkvæði um ályktunina.
Um hana var rætt þangað til niður-
staða var fengin.
„Þetta er niðurstaða sem ég held að
við allar sættum okkur við. Ég ætla
hins vegar ekki að halda því fram að
við séum allar ánægðar með hana.
Það er einu sinni þannig þegar um er
að ræða deilumál, að þá verðum við
að komast að sameiginlegri niður-
stöðu og það tókst," sagði Kristín
Einarsdóttir, þingkona Kvennalist-
ans.
Kristín sagði að Kvennalistakonur
séu sammála um að Ingibjörg Sólrún
hafi fullt leyfi til að hafa sína skoðun
á EES. Kristín sagðist t.d. vera ákveð-
ið þeirrar skoðunar að hún eigi að fá
að hafa þessa skoðun, en tók jafn-
framt fram að hún væri ósammála
henni.
Á fundinum kom fram gagnrýni á
þingkonur Kvennalistans fynr að
taka sjálfar allar ákvarðanir. Sú skoð-
un heyrðist að Kvennalistinn væri
ekki lengur grasrótarhreyfing, held-
ur miklu frekar stofnun. Kristín
sagði að þessi gagnrýni væri ekki ný
af nálinni. Hún hefði sjálf borið fram
slíka gagnrýni áður en hún settist á
þing. Kristín sagði nauðsynlegt að
konur leitist stöðugt við að hafa sem
mest lýðræði í hreyfingunni. „Það er
auðvitað spurning hver eigi að taka
ákvarðanir í svona hreyfingu. Það
kemur oftast í hlut okkar þingkvenn-
anna. Við vildum auðvitað helst hafa
hóp kvenna í kringum okkur í hvert
skipti sem ákvörðun er tekin.“ Krist-
ín sagði að konur í Kvennalistanum
vilji ekki setja á stofn einhverja mið-
stjórn sem taki ákvörðun með at-
kvæðagreiðslu. „Við viljum helst hafa
hreyfinguna þannig að hún sé opin
og allir geti komið og sagt álit sitt.
En það má segja að í staðinn verði
það oft þannig að það finni sig ekkert
margar konur knúnar til að mæta,
nema þá við ákveðin tækifæri," sagði
Kristín. Hún sagðist ekki líta svo á að
Kvennalistinn sé stofnun eða hefð-
bundinn stjórnmálaflokkur.
Miklar umræður urðu um atvinnu-
mál á landsfundinum. Konur voru
sammála um að koma verði í veg fyr-
ir að konur verði meðhöndlaðar sem
varavinnuafl og að þeim verði ýtt út
af virinumarkaðinum þegar að krepp-
ir. Minnt var á að erlendar rannsókn-
ir sýni að konur séu fyrstar til að
missa vinnuna þegar að kreppir og
síðastar til að fá vinnu. í ályktun um
atvinnumál var hvatt til að rann-
sóknar- og þróunarstarf verði stór-
aukið, endurmenntunarkerfi verði
bætt og atvinnuþróunarfélög verði
efld. Fundurinn taldi að núverandi
atvinnuleysistryggingakerfi sé ófært
um að sinna hlutverki sínu. Allt
vinnufært fólk án atvinnu eigi að fá
óskertar atvinnuleysisbætur.
Vinningstolur 31 0KtÓber 1992
laugardaginn
VINNINGAR FJOUDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5a(5 | . 2 6.934.589
n Z. 4af5™ ut 8 161.183
3. 4al5 280 7.944
4. 3a(5 10.1311 512
Heildarvinningsupphæð þessa viku: kr. 22.570.034
UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 91-681511 LUKKULÍNA 991002
...ERLENDAR FRÉTTIR...
WASHINGTON
Clinton í forustu
Bill Clinton, forsetaframbjóðandi
demókrata i Bandaríkjunum, hefur
átta prósentustiga forskot á Ge-
orge Bush í skoðanakönnunum
sem gerðar voru á sunnudag, sam-
kvæmt frásögn Wall Street Journal
og NBC- fréttastofunni. Skoðana-
könnunin byggði á úrtaki um 1000
skráðra kjósenda, sem höfðu lýst
því yfir að nær öruggt væri að þeir
myndu kjósa. 44% studdu Clinton,
36% Bush, og 15% studdu Perot.
Skekkjumörk í þessari könnun eru
um 3%. I gær einbeitti Bush sér að
baráttu í fimm mikilvægum fylkjum
á lokaspretti kosningabaráttunnar,
en (dag fer hann heim til Texas og
bíður þar úrslitanna.
ANGÓLA
1.000 falla
Meira en 1000 manns hafa látist í
götubardögum milli UNITA-skæru-
liða og stjórnarhermanna I Angóla
að undanförnu, að sögn ríkisút-
varpsins I Angólu. Að sögn portú-
gölsku fréttastofunnar Lusiu var
mannfalliö aðallega I höfuðborginni
Luanda og I borgum I suðurhluta
landsins, eins og Huambo, Lu-
bango, Benguela og Lobito.
SARAJEVO
Mesti fólksflóttinn
Að minnsta kosti 35.000 manns
hafa streymt til bæjarins Travnik I
Bosníu eftir að nágrannabærinn
Jajce var tekinn herskildi sl.
fimmtudag. Serbneskar hersveitir
hertóku bæinn Jajce eftir að her-
sveitir múslima og Króata höfðu
varið hann gegn serbneskri árás i
fimm mánuði. Erlendir hjálparsveit-
armenn segja að þetta séu stærstu
einstöku fólksflutningarnir á svo
stuttum tíma á átakasvæöunum,
en deilan hefur staðiö yfir I sjö
mánuði.
BELGRAD
Serbar hættir
Þing sjálfskipaðs lýðveldis Serba I
Bosníu hefur samþykkt að kalla
fulltrúa bosniskra Serba I friðarvið-
ræðunum I Genf heim frá viðræð-
unum þar til kröfum þeirra hefur
verið fullnægt.
BELGRAD
Panic í klemmu
Milan Panic, forseti Júgóslavíu
sem nú stendur I harðri rimmu vió
harölínuserbann Slobodan Mi-
losevic Serbíuforseta, stóð I gær
frammi fyrir vantrauststillögu á
júgóslavneska þinginu, en þar eru
þjóðemissinnaðir Serbar I meiri-
hluta.
MOSKVA
Neyöarástand
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
lýsti I gær yfir neyðarástandi i
tveimur héruðum i suðurhluta lýð-
veldisins þar sem ofbeldi og mikill
órói hafði brotist út. Hann sagði
þetta gert til að vernda öryggi
Rússlands. Jeltsín undirritaöi til-
skipun um neyðarástand I norður-
hluta héraðanna Ossetiu og Ingus-
hetiu, en þaðan hafa borist fregnir
um að fjöldi manns hafi fallið I of-
beldisöldu um helgina.
LONDON
Heseltine aðvarar
Michael Heseltine, viðskiptaráð-
herra Bretlands, varaði við því I
gær að ef breska þingið felldi Ma-
astricht- samninginn I atkvæða-
greiðslu I vikunni, myndi það veikja
vemlega stöðu Johns Major for-
sætisráðherra, auk þess sem slíkt
myndi lama breskt þjóðfélag og þar
með horfur á efnahagslegum bata.
D E N N I D ÆMALAUS I
„Passaðu þig á þessum, Jói, og komdu ekki nærri hon-
um. Hann hleður sprautubyssuna sína með ilmvatni. “