Tíminn - 04.12.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Föstudagur4. desember 1992
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
Jólaglóð
Framsóknarmenn á Seltjamamesi, þá er komið að þvl að við byrjum að reyna að
kveikja jólaglóðina' I okkur og nærstöddum. Þetta ætlum við að gera á Sex bauj-
unni nk. laugardag, 5. desember, og hefst jólaglóðin" kl. 16.30. Þeir, sem að þvl
loknu hefðu hug á að snæða kvöldverð á Sex baujunni, geta pantað borð I slma
611414.
Vonandi hittumst við sem ftest I hátlðaskapi á Sex baujunni og takið endilega með
ykkur gesti. Stjórnin
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilað verður á sunnudagskvöldum 13. desember og 10. janúar. Auk kvöldverð-
launa verða ein heildarverölaun: Dagsferð fyrir 2 með Flugleiöum til Kulusuk.
3 hæstu kvöld gilda. Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
Konur í Kópavogi
Jólafundur Freyju verður haldinn miðvikudaginn 9. desember að Digranesvegi 12 og
hefst kl. 20.30. Nánar auglýst siðar. Stjórn Freyju.
Kópavogur —
Laufabrauðsdagur
Laugardaginn 5. desember verður laufabrauðsdagur að Digranesvegi 12. Þar verða
laufabrauðskökur til sölu á vægu veröi, skomar og bakaðar á staönum. Allir, ungir
sem aldnir, velkomnir.
Takið með ykkur skurðbretti. Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogl
Jólaalmanak SUF
Eftirfarandi númer hafa hlotið vinning I jólaalmanaki SUF:
1. desember: 525, 3570. 2. desember: 3686,1673.
3. desember4141,1878.
Kópavogur—
Framsóknarvist
Spiluð verður framsóknarvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 6. desember kl. 15.00.
Góð verölaun og kaffiveitingar.
Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogl
Borgarnes —
Breyttur opnunartími
Frá og með 1. október verður opið hús i Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á þriðju-
dögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og verið hefur undan-
farin ár.
Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viðtals á þessum tima og ennfremur eru allir,
sem vilja ræða bæjarmálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfsögðu verður hellt á
könnuna eftir þörfum.
Framsóknarfélag Borgamess.
Kópavogur — Skólamál
Mánudaginn 7. desember kl. 20.30 verður haldinn opinn fundur um skólamál I
Kópavogi.
Fundurinn verður haldinn að Digranesvegi 12.
Framsögumenn verða: Bragi Mikaelsson, formaður skólanefndar, og Ingvi Þorkels-
son, fulltrúi Framsóknarflokksins i skólanefnd.
Fulltrvaráð framsóknarfélaganna I Kópavogl
Kópavogur — Opið hús
Framsóknarfélögin I Kópavogi hafa opið hús á laugardögum kl. 10-12 að Digranes-
vegi 12. Lltiö inn, fáið ykkur kaffisopa og spjallið. Framsóknarfélögin
NOTAÐAR
DRÁ TTARVÉLAR
Seljum eftirfarandi notaðar dráttarvélar á hagstæðu verði:
IMT 569 4x4 árg. 1987
IMT 567 4x4 árg. 1985
MF240 árg. 1982
Ford 3600 árg. 1977
Marshall 804 m. tækjum árg. 1984
Deutz 4006 árg. 1972
MF 690 4x4 árg. 1984
Auk þess eigum viö ýmsar geröir af rúllubindivélum og fleiri heyvinnuvélum.
GÓÐ KJÖR - LEITIÐ UPPLÝSINGA
Járnhálsi 2 . Sími 91-683266
Fax. 91-674274
NÝJ AR
B Æ K U R
Puntrófur og
pottormar
— Fyrsta bók Helgu Möller
Puntrófur og pottormar nefnist
bamabók sem útgáfufyrirtækið Fróði
hf. hefur nú gefið út. Bókin er eftir
Helgu Möller og er þetta hennar
fyrsta bók.
Puntrófur og pottormar fjallar um
ósköp venjulega krakka og ævintýri
þeirra; stelpur, sem finnst gaman að
Ieika sér í mömmuleik, drullumalla
og hengja á sig perlufestar þegar þær
fara í afmæli, og stráka sem fara í
indíánaleik og fótbolta.
Þegar Lísa, sem er aðalsöguhetja
bókarinnar, fer í sumarbústað með
frænku sinni, kynnist hún pottorm-
um sem finnst í meira lagi gaman að
stríða stelpu úr Reykjavflc og gefa
henni m.a. kræsingar sem fáir hafa
prófað. Og það gerist margt á einu
sumri. Það er t.d. hægt að trúlofast
þótt maður sé ungur, og ef ekki er
farið varlega geta sumir leikir endað
á slysadeildinni.
Búi Kristjánsson teiknaði kápu bók-
arinnar og myndskreytti hana. Bókin,
sem er 108 blaðsíður, er prentunnin
hjá G. Ben. Prentstofu hf. Verð bókar-
innar er kr. 1.190.
Ragnar Bjamason.
Lífssaga
Út er komin bókin Lífssaga Ragga
Bjama, söngvara og spaugara. Eð-
varð Ingólfsson skráði.
Söngvarinn, prakkarinn og ævin-
týramaðurinn Ragnar Bjamason læt-
ur gamminn geisa í þessari skemmti-
legu samtalsbók. Hann segir frá
æskuámm sínum, tónlistarferli,
einkalífi og ýmsu öðru, á þann hátt
sem honum einum er lagið. Lands-
fræg kímnigáfa hans er ávallt
skammt undan, en einnig lýsir hann
á einlægan og opinskáan hátt
dekksta tímabili ævi sinnar. Sagt er
frá ýmsu, sem ekki hefur áður komið
fram opinberlega.
Efni bókarinnar er mjög fjölbreytt,
eins og þessi dæmi sýna:
Prakkarastrik I Holtunum — Faðir
Ragnars, Bjami Böðvarsson hljóm-
sveitarstjóri, handtekinn á stríðsárun-
um — Fyrstu ástarskotin - - Sungið
með KK-sextett og hljómsveit Svav-
ars Gests — Gamansögur frá Sumar-
gleðiárunum — Kynni af milljóna-
mæringum — Þegar Raggi upprætti
þjófahring á Spáni — Glímt við
áfengisvanda — Eltur af glæpamönn-
um f Bandaríkjunum.
Lífssaga Ragga Bjama, söngvara og
spaugara, er einlæg, opinská og
skemmtileg bók.
Bókin er 362 blaðsíður. í henni eru
nær hundrað myndir.
Almenna auglýsingastofan teiknaði
útlit kápu. Myndir á kápu tók Ragnar
Th. Sigurðsson. Offsetþjónustan hif.
annaðist umbrot og filmuvinnu,
Prentsmiðjan Oddi hf. prentun og
bókband.
Útgefandi er Æskan.
Sykurmolamir í
nærmynd
Hin víðfræga hljómsveit Sykurmol-
arnir hefur löngmn verið íslending-
um hulin ráðgáta. Bókin Sykurmol-
amir færir feril hljómsveitarinnar og
einstaklinganna, sem skipa hana, nær
lesenduniun. Þar er sagt frá aðdrag-
andanum að stofnun Sykiumolanna
og ýmsum sérstæðum og frumlegum
uppátækjum meðlima hennar. Ferill
Sykiumolanna er rakinn, allt frá
sokkabandsárunum á hjara veraldar
til mestu frægðar sem íslenskri
hljómsveit hefiu hlotnast á erlendum
vettvangi. Hljómleikar Sykiumol-
anna um víða veröld em ævintýri út
af fyrir sig og samskipti þeirra við
aðila frá öllum heimshomirm: blaða-
menn, útgefendur, plötusnúða og
ótal aðra litrfka persónuleika. Síðast
en ekki síst dregur bókin upp sérlega
nána og áhugaverða mynd af með-
Iimum Sykurmolanna, bráðskemmti-
legum einstaklingum sem allir em
miklir og sannir Ustamenn, sem
margt annað er til lista lagt en að
semja og leika tónlist. Bókin er rfku-
lega myndskreytt.
Höfundur bókarinnar, Ámi Matthí-
asson, er blaðamaðiu við Morgun-
blaðið og er sá blaðamaður íslenskur
sem gleggst og lengst hefur fylgst
með ferli Sykurmolanna innanlands
sem utan. Þekking hans á Sykurmol-
unum og vinskapur við meðlimi
hljómsveitarinnar skilar sér glögg-
lega í þessari ítarlegu og bráð-
skemmtilegu bók.
Öm og Örlygur gefa út.
Dr. Sigurbjöm Einarsson.
Haustdreifar
eftir dr. Sigurbjöm Einarsson
biskup
Bókin Haustdreifar eftir dr. Sigur-
bjöm Einarsson biskup er komin út
hjá Skálholtsútgáfunni. í þessari nýju
bók fjallar dr. Sigiubjöm f alls 20 er-
indum, ritgerðum og ræðum frá síð-
ustu árum um margvísleg efni, sem
höfða jafnt til leikra og lærðra.
Mörg kjamaatriði kristinnar trúar
em tekin fyrir og rædd á skilmerki-
legan hátt: hvemig trúin tengist lífi
sérhvers manns, sögu þjóðarinnar,
sögu mannsandans. í bókinni birtast
greinar um skímina, bænina, kyrrð-
ina, sorgina, atburði dymbilviku,
páska og upprisu. Bókin á því erindi
til allra þeirra, sem kynna vilja sér
kjamaatriði kristinnar trúar, lærðra
jafnt sem leikra.
í erindinu „Hvað gerðist á krossin-
um" grefst höfundur eftir merkingu
krossdauða Jesú Krists og merkingu
krossins í kristinni trú, dregur fram
sérstöðu kristinnar trúar og ræðir af
djúpu innsæi um Jesú Krist, sem sýn-
ir í senn manninn og Guð, skapar-
ahn. „Krossinn svarar þeim einum,
sem finna til með mönnunum og
horfast f augu við skuggana í sjálfum
sér."
Allir menn komast í kynni við sorg-
ina á lífsleiðinni — hún sleppir eng-
um. Grein er nefnist „Sorgin og Guð"
er holl lesning hverjum manni og
uppörvandi þegar sorg knýr dyra —
þrungið erindi þar sem forlaga-
hyggju er úthýst og kristin sjónarmið
sett í öndvegi, dæmi úr fortíð og nú-
tíð dregin fram. Þetta erindi er ritað
af mannviti og mannelsku, sem hægt
er að benda syrgjendum á að lesa.
Leiðsögn f bænalífi er veitt í erind-
inu „Þættir um bæn". Þar er lögð
áhersla á að kristinn maður biður
aldrei einn, heldur er hann hluti af
„biðjandi og lofsyngjandi fjölskyldu
kirkjunnar á himni og jörðu". Fjallað
er um bænalíf á einkar nærfærinn
hátt og persónulegan.
„Haustdreifar" geyma eirrn tug
predikana sr. Sigurbjöms. í predik-
uninni „Gerast kraftaverk?" er lögð
áhersla á að kraftaverk séu ekki rösk-
un á eðlilegum lögmálum, heldur séu
þau afneitun alls þess sem raskar
gangi sköpunarverksins; þau eru
uppreisn skaparans gegn öllu, sem
skotið hefur rótum þar eins og hvert
annað illgresi. Guð birtist ekki aðeins
í kraftaverkum, heldur einnig í hinu
hversdaglega. Hver maður er dá-
semdarverk Guðs — kraftaverkin eru
við hvert fótmál.
„Jól" er heiti kröftugrar predikunar
þar sem dregin er upp sterk mynd úr
ævi þess manns, sem fæddist á jóla-
nótt og var lagður í asnastall, þess
manns sem lauk lífi sínu á krossi. Hér
er fjallað um andstæður eymdar og
dýrðar.
Bókin „Haustdreifar" er alls 261
blaðsíða. Umbrot var í höndum
Skerplu, hönnun á bókarkápu annað-
ist Guðjón Ketilsson, ljósmynd af höf-
tmdi tók Odd Stefán, en prentvinnsla
fór fram í Steindórsprent Gutenberg
hf. Skálholtsútgáfan, útgefandi bók-
arinnar, er útgáfufélag í eigu þjóð-
kirkjunnar. Bókin kostar kr. 2.980 kr.
Daði Guðbjömsson.
Samspil ljóða og
mynda
Hjá ísafold er komin út Ijóðabókin
Eigum við eftir ljóðskáldið Steinþór
Jóhannsson og listmálarann Daða
Guðbjömsson. Þetta er fjórða ljóða-
bók Steinþórs, og það sem gerir þessa
bók ólíka öðrum ljóðabókum er sér-
kennilegt samspil Ijóða og mynda.
í bókiníú eru Ijóð um ólflc efni, en þó
eitthvað sem allflestir þekkja eða
kannast við. Hluti ljóðanna er alvar-
leg ádeila, hluti mjög persónulegur,
en höfundur glatar samt aldrei
kímnigáfunni, sem gerir ljóðin mark-
viss og hnyttin.
Myndir Daða Guðbjömssonar eru
afar litríkar og skemmtilegar, og
samspil myndanna og ljóðanna gæðir
bókina skemmtilegu lífi.
Eigum við er 40 blaðsíður og kostar
kr. 1200. Prentvinnsla fór fram í ísa-
foldarprentsmiðju hf.
Myndir úr garðinum
Út er komin hjá Máli og menningu
bókin Raddir í garðinum eftir Thor
Vilhjálmsson.
í bókinni bregður Thor upp sfnum
myndum af því fólki, sem að honum
stendur og stóð honum næst. Annars
vegar af bændum frá Brettingsstöð-
um á Flateyjardal þar sem háð var
hetjuleg lífsbarátta íslensks hvers-
dags; hins vegar af Thor Jensen og af-
komendum hans, sem stóðu í ljóma
valda og rflddæmis í vaxandi höfuð-
stað. Thor segir frá frændum sínum
og foreldrum, systkinum og sam-
ferðamönnum, blátt áfram og skáld-
lega, hlýlega og þó með skýrri sjón. í
bókarauka eru ljósmyndir af helstu
persónum sögunnar.
Bókin er 210 blaðsiður, prentuð í
Prentsmiðjunni Odda hf. Bókin kost-
ar 2880 krónur.