Tíminn - 22.12.1992, Síða 7
Þriðjudagur 22. desember 1992
Tíminn 7
Málsvöm fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Matthias Johannessen:
Þjóðfélagið, helgispjall,
Iðunn, 1992.
Þessi nýja bók Matthíasar Johannes-
sens er um margt áhugaverð. Efni
hennar er nokkuð sundurlausir
þankar og vangaveltur höfundar um
ýmis mál, mestmegnis þjóðfélagslegs
eðlis. Og gott ef hún er ekki orðin til
upp úr Helgispjallspistlum hans í
Morgunblaðinu sem menn þekkja.
Þess er hins vegar að engu getið í eða
á bókinni, sem verður að telja nokk-
um ókost.
Matthías ber hér víða niður, og skal
síst úr því dregið að bókin er býsna
skemmtileg aflestrar, eins og flest
sem hann skrifar. Hann er hér opin-
skár og einlægur að vanda, og engum
dylst að það er bæði ritstjóri Morgun-
blaðsins til margra ára og gallharður
sjálfstæðismaður sem hér stýrir
penna. Raunar fer býsna stór hluti
bókarinnar í það sem ekki er hægt að
kalla annað en beina málsvöm fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og stefnu hans.
Með öðrum orðum ræðir Matthías
hér frá eigin brjósti um pólitískar
skoðanir sínar og flokkana í landinu.
Fer það ekki á milli mála að hann trú-
ir heilshugar á einkaframtaksstefnu
Sjálfstæðisflokksins, en hefur hom í
síðu Alþýðuflokks, Alþýðubandalags
og Framsóknarflokks.
Eins kemur það dálítið á óvart hvað
hann er ennþá upptekinn af komm-
únistagrýlunni úr austri hér í bók-
inni. Eftir hrun Sovétríkjanna hélt
maður eiginlega að það væri ekki
lengur við hæfi að vera að eyða orku
sinni, hvað þá dýrmætri prentsvertu,
í að hnotabítast út í kommúnismann
í Rússlandi. Það liggur við að það
jafnist á við að sparka í liggjandi
mann.
En aftur á móti verð ég að segja það
eins og er að mér fannst það töluvert
til spillis á annars að mörgu leyti
skemmtilegri bók hvað Sjálfstæðis-
flokknum er haldið þama stíft fram.
Ekki ætla ég að fara að rífast um pól-
itík hér í þessum ritdómi, en fyrir þá
sem ekki eru svo sanntrúaðir á stefnu
Sjálfstæðisflokksins að þeir fylgi hon-
um í gegnum þykkt og þunnt, þá er
þessi einhliða málsvöm eiginlega dá-
lítið leiðigjöm aflestrar. Hvað sem
öðru líður, þá hefur það margsýnt sig
að Sjálfstæðisflokkurinn stendur
ávallt flokka fremstur við bakið á
efnafólki og fjármagnseigendum,
sem eðli málsins samkvæmt eru í
andstöðu við launþega hér á vinnu-
markaðnum.
Og þó að slíkir menn þurfi vitaskuld
sinn málsvara, þá fer ekki á milli mála
að hinir flokkamir, félagshyggju-
flokkarnir svonefndu, hafa alla tíð
staðið mun þéttar við bakið á þeim
sem minna mega sín, láglaunafólki,
bamafjölskyldum, einstæðum for-
eldrum og hverja aðra skal telja til.
J
Sjálfstæðisflokkurinn er líka langtí-
frá jafn heilagur í borgarstjóm
Reykjavíkur og Matthías vill hér vera
láta. Ég man til dæmis eftir því hér
um árið þegar samvinnuverslunin
Mikligarður varð að sæta því að borg-
arstjóm Reykjavíkur lokaði að henni
Matthías Johannessen,
skátd og ritstjóri.
aðkeyrslu og skapaði henni með því
töluverða erfiðleika, að því er virðast
mátti að ástæðulausu. Og á sama
tíma var þessi sama borgarstjóm að
eyða stórfé í undirgöng undir Miklu-
Stærsta hlj óðfæri landsins
Um þessar mundir er í Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti nær samfelld
vígsluhátíð hins glæsilega Klais-orgels, sem þar var afhjúpað hinn 13. des-
ember síðastliðinn. Með vígslu orgelsins má segja, að endanlega sé lokið
þeirri byggingu sem fyrsta skóflustunga var tekin að í desember 1945, fyr-
ir réttum 47 árum.
Um tíma töldu margir, að mis-
heppnaður hljómburður í Hall-
grímskirkju gerði að engu þann
draum sém kirkjutónlistarmenn,
eins og Páll ísólfsson, áttu um full-
komið konsertorgel á íslandi. En
TÓNUST
hinn hugumstóri tónlistarstjóri
kirkjunnar, Hörður Áskelsson, bil-
aði aldrei í bjartsýni sinni og eld-
móði, enda vissi hann líklega sem
Snyrtilegt byrjandaverk
Guðrún Margrét Tryggvadóttir:
Ég gekk i skógi,
Prentsmiðja Austurlands hf. prentaði,
1992.
Þetta er ljóðabók, sú fyrsta frá
hendi höfundar sem er meinatækn-
ir, búsett á Egilsstöðum, að því er
segir í kynningu á bókarkápu. Þar
segir einnig að hún hafi hlotið verð-
Iaun fyrir Ijóð í ljóðasamkeppni í
Háskóla íslands árið 1991. I bók
hennar eru 25 ljóð, ort á síðustu
tveimur árum.
Fyrsta Ijóðið í bókinni nefríist
Kvöldregn og er svohljóðandi:
Komið er kvöld
og kaldir skuggar dagsins
hafa runnið
saman við myrkrið.
Ég geng hljóðlega
í dtt til Ijóssins
og örsmdir regndropar
falla d andlit mitt.
Svo er skemmst frá að segja að þetta
Ijóð má teljast gefa nokkuð góða
hugmynd um eftii bókarinnar. Ljóð-
in í henni eru stutt, túlka gjarnan
tilfinningar eða hugblæ, og minna
sannast sagna um margt á Ijóð ný-
rómantísku skáldanna frá því um og
eftir aldamótin síðustu. í heild má
segja að þau séu hlýleg og viðkunn-
anleg, en þó átakalítil.
Fyrir bregður þó óvæntum og
smellnum líkingum, svo sem í ljóði
sem heitir Dagur og nótt:
Hann kom til að kveðja,
bjartur,
með bros í augum.
Dagur.
Hún kom nær
og snerti hann,
tinnusvört,
tœlandi.
Nótt.
Þetta er því laglegt byrjandaverk,
sem hér er á ferðinni, en segir í raun
lítið um getu höfúndar síns sem
Ijóðskálds. Þó dylst ekki að hún hef-
ur ótvíræða tjáningarþörf og góða
tilfinningu fyrir máli og stíl. Það
gæti þess vegna verið gaman að sjá
eftir hana ljóð þar sem meira væri
hugað að forminu en hér, til dæmis
leikið með rím, fasta hrynjandi eða
ljóðstafasetningu. Líka væri athug-
andi hvort hún ætti ekki að ieyfa sér
að ganga lengra í því að taka af-
stöðu, segja skoðanir sínar á mönn-
um og málefnum, heldur en hér er
gert. Rómantískar myndir einar
saman, sem segja manni í rauninni
ekki nokkurn skapaðan hlut, geta
eiginlega orðið dálítið þreytandi, sé
of mikið af slíku gert.
Eysteinn Sigurðsson
var, að við hönnun kirkjunnar og
orgelsins var að öllu rétt staðið:
allar breytingar í innviðum kirkj-
unnar mundu draga úr eftiróman.
Og nú, þegar allt er komið í kring
og orgelið trónir á sínum stað á
vesturgafli kirkjuskipsins, er kirkj-
an öll orðin eitt fullkomið hljóð-
færi, hið mesta á íslandi. Og þarna
hafa undanfarið verið haldnir
glæsilegir konsertar með íslenskri
tónlist og erlendri, frá klassískum
meisturum til frumfluttra verka
íslandsmanna. Sum verkanna voru
valin með það fyrir augum að sýna
mátt orgelsins við mörk mann-
legrar heyrnar — djúpt og hátt,
sterkt og veikt. Við óskum Herði
og öðrum aðstandendum orgelsins
og Hallgrímskirkju, sem og öllum
áhugamönnum um æðri kirkju-
tónlist, til hamingju á þessum
tímamótum.
Sig.St.
braut til að létta væntanlegum við-
skiptavinum kaupmannanna í
Kringlunni aðkomuna þangað. Ég
marí að okkur, sem unnum hjá Sam-
bandinu, sámaði þá mörgum veru-
lega við Reykjavíkuríhaldið.
Það má vera að sanntrúaðir íhalds-
menn af gamla skólanum lesi þessar
pólitísku hugleiðingar með velþókn-
un. En fyrir okkur hina er þetta satt
best að segja ekki sérstaklega áhuga-
vert. Matthías Johannessen er vissu-
lega ritstjóri Morgunblaðsins og þarf
eins og gefur að skilja að sinna þar
pólitískum skrifum. Én Matthías Jo-
hannessen er líka einn af bestu rit-
höfúndum okkar. Bækur hans hafa
margir fleiri en ég lesið sér til mikill-
ar ánægju í mörg ár. Þess vegna verð-
ur hann að gæta þess að blanda ekki
of mikið saman ritstjórastarfi sínu og
persónulegri bókagerð. Hann þarf að
halda þeim tveim hliðum vel aðskild-
um.
En það er margt fleira í þessari bók
en pólitíkin, og fleira en svo að því
verði gerð skil í stuttum ritdómi.
Meðal annars víkur Matthías þarna
víða að menningarmálum. Hann
deilir þar á meðal á það að sérstakur
skattur, sem hér var lagður á til að
ljúka Þjóðarbókhlöðunni, skuli ekki
hafa fengið að renna óskiptur til
hennar. Þar er ég honum hjartanlega
sammála, sem og fleiri, því að þar er á
ferðinni hreint hneyksli og virðingar-
leysi við íslenskan menningararf,
sem hver íslendingur verður að láta
sig varða.
Og á einum stað í bókinni víkur
Matthías að bókum og segir m.a.: „En
góðrar listar nýtur maður helst í ein-
rúmi; einn með sjálfum sér. Enginn
miðill sem enn hefur verið fundinn
upp veitir annað eins tækifæri til þess
og bókin. Góð bók er besti nautna-
miðill sem ég þekki. Hún fjallar þá
væntanlega um einhverjar mikilvæg-
ar hugmyndir. Hún er þá væntanlega
sprottin úr djúpum tilfinningum og
merkum hugsunum. Og hún er þá
einnig skrifuð af listrænu innsæi."
Ég játa það fúslega að ég átti ein tvö
ánægjuleg kvöld í einrúmi yfir bók-
inni hans, í líkingu við þær stundir
sem hann lýsir hér. Og ég sé fulla
ástæðu til að þakka honum fyrir þær
stundir. Þrátt fyrir allt lofið um Sjálf-
stæðisflokkinn.
Eysteinn Sigurðsson
KRAKKAR mínir komið þið sæl,
hvað er hér á seyði?...
Falleg jólagjöf á alla KRAKKA og allt í mjúku pakkana.
Jólatilboð á EXIT vörum í desember.
Síðar EXIT kuldaúlpur kr. 4.900,-
Stuttar EXIT kuldaúlpur kr. 5.900,-
Blóma EXIT bolir á 2ja-16 ára kr. 1.890,-
Rúllukragabolir kr. 1.500,-
Mjúkarjólabangsanælur, lukkutröll, perluspennur, blúnduspennur,
flauelsspennuro.fi. o.fl.
P.s.: Spennandi jólanáttföt koma
í verslunina þriðjudag 15. des.
KRAfATKAR
KRINGLAN 8-12 - SÍMI 681729
Framlag þitt skilar árangri
HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
- með þinni hjálp
ISLENSKIR
AÐALVERKTAKAR SF.