Tíminn - 22.12.1992, Page 3
JÓLABLAÐ 1992
Tíminn 3
Margrét Kristinsdóttir í Ölvisholti meö brúöur sem hún hefur búiö til úr ull.
h
sauðfé á hausti. Hún er að sögn kunn-
ugra betri en ull sem Ld. er rúin af
fénaði í mars, því hún vill skemmast af
fjárhúsvist vetrarins.
Margt þarf að gera við ullina áður en
hún er fúllunnin. Hana þarf að þæfa,
kemba, spinna og allt hvað eina. Til
þessara verka hafa konumar á Suður-
landi allt gamla skólahúsið á Þing-
borg, en stærstur hluti starfsins fer
fram í samkomusal hússins. Uppi á
palli í húsinu, þar sem áður var leik-
svið þess, er síðan sölubásinn og þar
má sjá úrval þess sem konumar hafa
verið að vinna. Þar má nefna peysur,
sokka, hatta, vettlinga, eymaskjól,
húfur, sjöl og teppi. Einnig em búnar
til hárspengjur og eymalokkar úr ull-
inni. Af öðrum munum, sem ekki em
úr ull, má nefna hálsmen, ýmsa aðra
skartgripi úr kuðungum, tólgarkerti
og litlar brúður. Einnig hafa þrír karl-
ar lagt inn til sölu í Þingborg útskoma
muni eftir sig, svo sem prjónastokka
og gestabækur.
Jafhframt því að vinna úr ull er einn-
ig unnið úr kanínufiðu. Fiðan er oft
kembd saman við ullina eða tvinnuð
við hana, svo úr verða munir úr þessu
tvennu. Einkum er fiðan notuð í
sokkaband, en einnig í peysur. Og á
Þingborg fæst líka þelband, sem
spunnið er á staðnum og blandað
fiðu. Þá er rétt að geta þess að konum-
ar á Þingborg jurtalita band. Til þess
em notaðar ýmsar jurtategundir svo
sem birkilauf, gulvíðilauf, smári, lauf-
hýði, lúpínublóm, lerldbörkur og
fleira.
í sumar var opið á föstudögum til
sunnudags á Þingborg og litu þá
margir við á staðnum, ekki síst ferða-
menn, enda stendur húsið við sjálfan
hringveginn. Að undanfömu hefúr
síðan verið opið á laugardögum og þá
hafa einnig allmargir litið inn, enda
fást á staðnum margir hlutir sem
hentugir em til jólagjafa.
Ullarverkefni þetta hefúr verið styrkt
af nokkmm aðilum. Fjármunir hafa
komið frá Atvinnuþróunarsjóði Suð-
urlands, Búnaðarsambandi Suður-
lands, Stéttarsambandi bænda,
Byggðastofnun, Framleiðnisjóði land-
búnaðarins og úr sjóði félagsmálaráð-
herra sem ætlað er að stuðla að at-
vinnuuppbyggingu kvenna í sveitum
landsins.
Steinunn Tómasdóttir aö
kemba ull.
* OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
MEÐ ÞÖKK FYRIR
ÁNÆGJULEG SAMSKIPTIÁÁRINU
0
KAUPFÉIAG EYFIRÐINGA
AKUREYRI