Tíminn - 22.12.1992, Blaðsíða 5
JÓLABLAÐ 1992
Tíminn 5
ar. Það er því kominn tími til að
skyggnast til fortíðarinnar,
staldra við og hyggja að nútíð-
inni og einnig að hugsa um og
spá í framtíðina.
Ferðir sem þessar vekja upp
minningar frá ljóma æskuár-
anna, er ungmennafélagið í
sveitinni heima fór sína árlegu
skemmtiferð reglubundið í ald-
arfjórðung eða meir, þó þær
væru farnar við ólík skilyrði og
aðstæður miðað við þær sem nú
gerist. Allt var þá fátæklegra og
frumstæðara, hvort heldur sem
var vegir, farartæki, viðlegubún-
aður eða mataræði. Þá voru ekki
„sjoppur", hótel og vínbarir í
kallfæri hvert við annað. En
þetta var alltaf mikið tilhlökk-
unarefni hjá unga fólkinu og
líka hjá þeim sem komnir voru
af léttasta skeiði. Þetta er allt
hjá manni sveipað ljóma minn-
inganna í eins skýru ljósi og
þegar birta hækkandi vorsólar
lýsir upp blessuð austurfjöllin
okkar á mildum vormorgni, er
við vöknum og klæðum okkur
móti nýjum degi sem er óráðin
gáta, en heilsum með miklar
vonir í brjósti um nýja sigra og
bjartara líf.
Það er varla ofsagt að ung-
mennafélög í árdaga þessarar
aldar hafi verið menningarauki
og þjóðskóli í höndum góðra
stjórnenda og hvað þeim tókst
með lipurð, lagni og þrautseigju
að gera félagsfundina lifandi og
lærdómsríka, koma ungum og
óframfærnum unglingum inn í
félagsstörfin, hvort sem það var
á leiksviði eða glímuvelli keppni
og starfs.
Þær lýsa líka skært vörður
minninganna hjá mörgum, sem
staðið hafa í fylkingarbrjósti
þeirra miklu framfara sem við
búum við í dag, þegar þeir lýsa
yfir á efri árum að þroskinn,
krafturinn og útsjónarsemin sé
upprunnin frá áhrifum ung-
mennafélagsins í sveitinni
heima.
Það má því segja að búnaðar-
og ungmennafélög séu greinar
af sama stofni og hvati til sóknar
og framfara á fyrstu áratugum
aldarinnar, um leið og við vor-
um að losna úr klóm fleiri alda
erlendrar yfirdrottnunar. Bún-
aðarfélögin hófu frá upphafi
markvissa stefnu í að treysta
okkar fjárhagslega grunn með
ræktun, uppbyggingu og með
skipulagi á afurðasölumálum
okkar. Þar eru næst fyrir sjónum
okkar stofnanir eins og Mjólkur-
bú Flóamanna og Sláturfélag
Suðurlands, sem verið hafa okk-
ar Iífakkeri í fjárhagslegri af-
komu á Suðurlandi frá því að
þau fyrirtæki komust á fót.
Aftur á móti hefur það fallið
meira á stefnuskrá ungmennafé-
laganna að efla menningar- og
skemmtanalíf, efla og þroska
hæfileika unga fólksins til sókn-
ar og sigra og til að nýta þá
margvíslegu möguleika sem
landið býður upp á.
Ég er víst farinn að verða nokk-
uð langorður um vettvang ung-
Hjalti Gestsson fer á kostum
um kosti hrútanna á tilraunabú-
inu aö Stóra-Ármóti og rang-
æskir fjárræktarmenn hlýöa á.
mennafélaganna, enda er það sá
brunnur minninganna sem
seint verður þurrausinn. Æsku-
ljóminn frá þeim tíma á þeim
vettvangi býst ég við að fylgi
mér til grafar. Stolt megum við
vera af því að flestir, sem haldið
hafa um stjórnvölinn á skútu
Búnaðarsambands Suðurlands,
eru ungmennafélagar sem stóðu
í fylkingarbrjósti í sinni heima-
sveit, settu svip á umhverfið og
höfðu áhrif til menningar og
manndóms í baráttumálum
byggðarlagsins.
Þegar við lítum 11 ár til baka
og hristum upp í sjóði minning-
anna, verður margt sem kemur
upp í hugann frá þessum ferð-
um, sem ég tel að allar hafi ver-
ið vel heppnaðar og Búnaðar-
sambandinu til sóma. Það er
mikið starf sem liggur á bak við
þessar ferðir hjá þeim, sem sjá
um undirbúning og skipulag.
Það þekkjum við, sem á yngri ár-
um undirbjuggum slíkar ferðir í
okkar sveit.
Yfirleitt höfum við verið hepp-
in með veður. Þarna höfum við
hitt og kynnst stéttarsystkinum
okkar vítt og breitt um héraðið
og einnig í fjarlægum landshlut
um, borið saman bækur okkar
um hið daglega starf okkar og
um leið slegið á létta strengi.
Fjölbreyttar hugmyndir hafa
komið upp á yfirborðið í máli,
myndum og tónum.
Það er erfitt að taka eina ferð
fram yfir aðra. En þó get ég ekki
að því gert að oft stansar hugur-
inn við bjartar og blíðar minn-
ingar úr ferðinni, sem farin var
2. september 1986 norður yfir
Kjöl til Hveravalla, inn á Auð-
kúluheiði og að Blönduvirkjun.
Veðrið var eins og best verður á
óskar starfsfólki og viðskiptavinum
svo og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og farsæls nýárs
Þakkar gott samstarf og viðskipti
liðnum árum
'0