Tíminn - 22.12.1992, Page 20

Tíminn - 22.12.1992, Page 20
20 Tíminn JÓLABLAÐ 1992 Kirkjan á Klyppstaö. Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla árs og friðar Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum árum. upfélag ^fcangseinga Um Þorstein Stefánsson rithöfund eftir Ingvar Gíslason Þorsteinn Stefánsson rithöfundur er fæddur 1. desember 1912 á Nesi í Loðmundarfirði og stendur því á áttræðu. Hann ólst upp á Austfjörðum, Loðmundarflrði, Reyðarflrði og Fáskrúðsfírði. Foreldrar hans voru Stefán Þorsteinsson og Herborg Björns- dóttir. Var Þorsteinn þriðji í aldursröð fímm barna þeirra. Hin systkinin eru Björn Stefánsson, kaupfélagsstjóri á Stöðvarflrði og víðar, Friðjón Stefánsson rithöfundur (nú látinn), Unn- steinn Stefánsson prófessor og Margrét Stefánsdóttir, húsfreyja í Reykjavík. Rúmlega tvítugur fluttist Þor- steinn til Danmerkur og hefur átt þar heima óslitið síðan. Þar hefur hann sinnt kennslu, bókaútgáfu og ritstörfum. Er hann fyrst og fremst þekktur sem skáld og rit- höfundur á danska tungu. Má með sanni segja að hann hafi verið mikilvirkur í ritstörfum á dönsku frá því að hann kvaddi sér hljóðs á skáldaþingi í Danmörku rétt um þrítugsaldur með skáldsögunni Dalen, sem hann hlaut fyrir H.C. Andersen-verðlaunin árið 1942. Eftir Þorstein liggur fjöldi frum- saminna bóka á dönsku, skáldsög- ur, smásögur og ljóð. Sum verka hans hafa verið þýdd á önnur mál, þ.á m. íslensku. Þorsteinn er því á engan hátt ókunnugur þeim lönd- um sínum hér heima, sem á annað borð hafa viljað fylgjast með rit- störfum og bókmenntaverkum þessa sérstæða íslendings. Þor- steinn er vissulega einstakur sem maður fyrir upplag sitt og gáfur og óvenjulegan lífsferil. Á íslandi hlaut hann enga skólamenntun aðra en lögskipaða barnafræðslu í farskóla og undirbúning undir fermingu. Allt sem hann kunni og vissi, þegar hann fór til Danmerk- ur í miðri heimskreppunni 1935, var lífsreynsla sveitadrengs, vinnupilts og daglaunamanns og það sem hann hafði lært af heima- lestri og öðru stopulu sjálfsnámi. Þorsteinn sótti að vísu eitthvað skóla í Danmörku, en ekki urðu það neinar langdvalir. Hins vegar náði hann fljótt svo góðum tökum á danskri tungu, að hann var eftir fárra ára dvöl í landinu fær um að rita fullgild skáldrit og yrkja ljóð á

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.