Tíminn - 31.12.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 31. desember 1992
Skrár Slysavarnafélagsins sýna að 54 létust af slys-
förum á árinu:
Sjóslys nú miklu
fleiri en í fyrra
Alls létust 54 einstaklingar (43 karlar og 11 konur) af slysfórum á
árinu 1992, sem er fjórum færri en árið áður, samkvæmt saman-
tekt Slysavamarfélags íslands á banaslysum og orsökum þeirra.
Miklu fleiri drukknuðu þó á þessu ári en því næsta á undan. Það
sem af er árinu, hafa 22 einstaklingar farist í sjóslysum eða vegna
drukknana borið saman við 13 árið áður.
Á hinn bóginn minnkuðu mann-
fómir í umferðinni milli ára, úr 26 í
21, það sem af er þessu ári. Það vek-
ur hins vegar athygli að hátt í helm-
ingur þeirra var gangandi vegfar-
endur. Dauðaslys af öðmm orsökum
em um þriðjungi faerri en á síðasta
ári.
Banaslys á þessu ári og því síðasta,
skiptast þannig í grófum dráttum:
1992 1991
Sjóslys/drukknanir... 22 13
Umferðarslys 21 30
Flugslys 1 0
Ýmis slvs 10 15
Samtals ...54 58
Að svo miklu fleiri hafi drukknað skýrist fyrst og fremst af því að 6
einstaklingar hafa farist á þessu ári
vegna falls útbyrðis og 4 í höfnum,
við land og/eða við köfun. Aðeins
eitt dauöaslys var undir hvomm
þessara liða í íyrra.
Átta mannslíf hafa týnst með skip-
um sem farist hafa á þessu ári, eða
jafn margir og í fyrra. Af þeim 22
sem farist hafa á sjó og í vötnum,
eru 4 útlendingar sem farist hafa í
sjóslysum hér við land.
Af samtals 21 dauðaslysi í umferð-
inni á þessu ári em 9 tilfelli þar sem
ekið var á gangandi vegfarendur,
sem er 50% fjölgun frá síðasta ári.
Jafn margir, 9, létust í árekstmm
bfla og bifhjóla, 2 við bflveltu og 1
þegar ekið var á ljósastaur.
Af öðmm orsökum em flest dauða-
slys á þessu ári, eða 4, vegna byltu
eða falls, sem er einu fleira en í
fyrra. Hins vegar fórst nú aðeins 1 í
vinnuslysi í stað 4 í fyrra. Tveir hafa
látist vegna bmna/eitmnar/raflosts,
sem er einum færra en í fyrra. Einn
hefur orðið úti en þrír létust af þeim
sökum í fyrra. Einn fórst í kajakslysi
erlendis og einn eftir að festast í
drifskafti. - HEI
Brennurnar eru álíka
margar og í fyrra
Forsendur kjarasamnings eru brostnar. VR segir upp
samningi:
Minnkandi kaupmáttur
bitnar ekki síður
á atvinnulífinu
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
segir það vera brýnt að aðilar vinnu-
markaðarins setjist niður við samn-
ingaborðið fljótlega eftir áramótin.
Hann segir að minnkandi kaupmátt-
ur launafólks bitni ekki síður á at-
vinnulífinu en launafólki og því ætti
það að vera sameiginlegt hags-
munamál atvinnurekenda og launa-
manna að kaupmátturinn væri sem
mestur.
Formaður VR, sem er stærsta stétt-
arfélag landsins með 11 þúsund full-
gilda félagsmenn, segir að ASÍ og
landssamböndin stefni að því að fara
í fundaherferð um landið eftir ára-
mótin til að kynna stöðuna og heyra
skoðanir fólksins. Magnús L. segir að
atvinnuleysið, sem hefur tvöfaldast
frá því í nóvember í fyrra og minnk-
andi kaupmáttur, sé það alvarlegasta
í stöðunni um þessar mundir. Þar
fyrir utan munu ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum Ieiða
til þess að skattar stórhækka hjá
launafólki auk þess sem vöruverð fer
hækkandi og sömuleiðis verðbólga.
Á fjölmennum fundi trúnaðar-
mannaráðs Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, fulltrúaráðs starfs-
greina og trúnaðarmanna VR á
vinnustöðum, var samþykkt að segja
upp gildandi samningi með eins
mánaðar fyrirvara þannig að samn-
ingar verða lausir þann 1. febrúar
n.k.
í ályktun fúndarins kemur fram að
Eldur verður borínn að um 20 brennum í Reykjavík og nágranna-
byggðarlögðum á gamlárskvöld. Á Akureyrí verða tvær brennur. Al-
gengasti íkveikjutíminn er kl. 20 og kl. 20:30. Eftir því sem næst
verður komist, er þetta svipaður fjöldi og í fyrra.
þær forsendur sem aðilar vinnu-
markaöarins hefðu sett sér við gerð
síðustu kjarasamninga séu brostnar.
Þá var lögð aðaláhersla á að viðhalda
þeim stöðugleika sem hafði náðst í
þjóðarbúinu, sporna gegn atvinnu-
leysi og verja kaupmátt launa. „Ekk-
ert af þessu hefur gengið eftir.“
-grh
Að sögn Hilmars Þorbjömssonar,
varðstjóra hjá lögreglunni í Reykja-
vík, hefur verið veitt leyfi fyrir fimm-
tán brennum í Reykjavík, Seltjamar-
nesi og Mosfellssveit og er það svip-
aður fjöldi og verið hefur. Hann seg-
ir að yfirleitt verði eldur borinn að
brennum um kl. 20.30. í Reykjavík
verða stærstu brennumar í Breið-
holti við Leirubakka og viðÆgissíðu
og sér borgin um þær. Auk þess hafa
einstaklingar og félagasamtök reist
bálkesti víða. Þar má nefna Foss-
vogskirkjugarð í Suðurhlíðahverfi,
Ártúnsholt sunnan við Ártúnsskóla,
Fylkisvöll í Árbæjarhverfi, við Laug-
arásveg, Suðurfell, Rjúpufell, gömlu
öskuhaugana í Gufunesi, Njarðar-
götu sunnan við Vatnsmýri og við
Hólakirkju.
Safnað hefur verið í þrjár brennur í
Mosfellssveit. Ein er við Lágafell,
önnur í Tangahverfi og sú þriðja við
Reykjarkol við Hafravatnsveg.
Á Seltjamarnesi er að finna eina
brennu og er hún á Valhúsahæð.
Kópavogsbúar þurfa ekki að leita að
mörgum brennum, því þar hefur ein
stór verið reist vestan við íþróttavöll-
inn í Kópavogsdal. Þar munu, ef að
líkum lætur, birtast ýmsar kynjaver-
ur á vegum Leikfélags Kópavogs og
einnig mun harmonikkuleikur kitla
sönggleði brennugesta. Þá hafa lög-
regluyfirvöld í Kópavogi veitt leyfi
fyrir lítilli brennu við Vatnsenda.
í Hafnarfirði verður ein stór brenna
austan við Kaplakrika eða íþróttavöll
FH á vegum félagsins. Þá er eina
brennu að finna í Garðabæ á vegum
bæjarins og er hún við Bæjarbraut
íbúar Bessastaðahrepps verða ekki
án áramótabrennu og er hana að
finna á bökkunum við bæinn TVöð.
Fyrirhugað er að kveikja í brennun-
um upp úr kl. 20.
Á Akureyri verða tvær brennur.
Önnur hefur verið reist á Bárufells-
klöppum í Glerárhverfi. Hin er við
svonefndan Réttarhvamm, sem er á
móts við aðrein að Hlíðarfjalli. Yfir-
völd á Akureyri standa ekki að
brennunum, heldur hefur æskan í
bænum tekið til hendinni. -HÞ
Blönduvirkjun kostar Landsvirkjun 800 milljónir á þessu ári:
Landsvirkjun rekin með
1,8 milljarða tapi 1992?
Horfur eru á aö afkoma Landsvirkjunar verði á árínu 1992 sú versta
í sögu fyrirtækisins. Flest bendir til að rekstrartapið verði um 1,8
milijarðar króna. Ástæður fyrir slærarí afkomu er óhagstæð gengis-
þróun og kostnaður við rekstur Blöndu. Á árínu 1991 var Lands-
virkjun rekin með 484 milljóna hagnaði. Það var áttunda áríð í röð
sem Landsvirkjun var rekin með hagnaði.
Forystumenn Landsvirkjunar hafa
viðurkennt að Blönduvirkjun hafi
ekki verið reist á réttum tíma. For-
sendur sem byggt var á þegar ákvörð-
un var tekin um að hefja byggingu
hennar hafa brugðist Ekki hefur ver-
ið byggt stóriðjuver og raforkunotk-
un almennings hefur aukist sáralítið.
Nú þegar Blönduvirkjun er komin í
fullan gang þarf að greiða 800 millj-
ónir vegna rekstrar hennar, en hún
skilar engum tekjum á móti. Þess má
geta til samanburðar að lækkun per-
sónuafsláttar sem Alþingi tók
ákvörðun um skömmu fyrir jól, er
talin skila 750 milljónum í ríkissjóð.
Yfirmenn á fiskiskipum á Austfjörðum beina því til stjómvalda að tryggja frjálsa verðmyndun á fiski:
Með löggjöf eða með öðrum ráðum
Aðalfundur Skipstjórna-og stýri-
mannafélagsins Sindra á Aust-
fjörðum, beinir því til stjómvalda
að þau tryggi raunverulega frjálsa
verðmyndun á fiski með viðeig-
andi löggjöf eða með öðrum ráð-
um.
Fundurinn telur að beinir samn-
ingar um fiskverð á milli sjómanna
og fiskverkenda séu ýmsum ann-
mörkum háðir og leysi ekki þann
vanda sem er við að glíma á þess-
um vettvangi.
Af þeim sökum telja yfirmenn á
austfirskum fiskiskipum að þennan
vanda verði að leysa með almennri
lausn á fisksölumálum, t.d. með
því að setja lög sem kveði á um að
allur fiskur, sem seldur er innan-
lands verði boðinn upp á fiskmörk-
uðum eða tengdur raunhæfu gagn-
verði fiskmarkaða á þeim svæðum
sem þeir eru ekki starfræktir.
-grh
Gengisþróun hefúr afgerandi áhrifá
afkomu Landsvirkjunar. Þróunin
varð fyrirtækinu óhagstæð á árinu
1992 og ekki bætti 6% gengisfelling í
nóvember úr skák.
í fréttabréfi Landsvirkjunar kemur
fram að horfur á nýju ári gefi ekki til-
efni til bjartsýni um fjárhag fyrirtæk-
isins. Raunar sé fyrir séð að rekstur-
inn verði erfiður þangað til tekist
hefur að auka rafmagnssölu til stór-
iðju eða að orkunotkun almennings
aukist á ný. Forráðamenn Lands-
virkjunar vonast eftir að tap á nýju
ári verði ekki meiri en 700 milljónir.
Þetta mikla tap verður þrátt fyrir að
gjaldskrá fyrirtækisins hækki um 4%
nú um áramót.
Landsvirkjun skuldar nú um 42
milljarða í útlöndum. Þetta er um
1/5 hluti allra erlendra skulda íslend-
inga. Miðað við 20 ára endurgreiðslu-
tíma þyrfti Landsvirkjun að borga
um 2,1 milljarð árlega af þessum lán-
um umfram lántökur. Staðan í dag er
hins vegar þannig að fyrirtækið getur
ekki borgað meira en um milljarð á
ári þrátt fyrir að mikið hafi verið
dregið úr framkvæmdum. Það verð-
ur því að framlengja lán með nýjum
lántökum. í desember gekk Halldór
Jónatansson, forstjóri Landsvirkjun-
ar, einmitt frá samningum um lán-
töku Landsvirkjunar í Bandaríkjun-
um. Lánsupphæðin var 4,5 milljarð-
ar og lánstíminn 15 ár. Stærsta hlut
lánsins á þó að greiða eftir 11 ár.
Vextir af láninu er 8- 8,27%. Meira en
helmingur lánsins verður notaður í
að greiða lán sem þarf að greiðast um
mánaðamótin janúar febrúar. -EÓ
Vinningshafi
„krossgátusíöu 4“
í gær var dreginn út vinningshafi
vegna krossgátusíðu 4. Það var nafn
Ágústu A. Valdimarsdóttur, Grund-
argerði 10, Reykjavík. sem kom upp
úr pottinum og fær hún því verð-
launin sem eru 10 þúsund króna
vöruúttekt í sérvörudeild Kaupstað-
ar í Mjódd, 2. hæð. Tíminn óskar
henni til hamingju með verðlaunin.