Tíminn - 31.12.1992, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 31. desember 1992
Tíminn 21
Katrín Ósk ásamt fjölskyldu sinni. F.v. er móðir hennar, Elín Sveinsdóttir, þá Tinna systir hennar, Katr-
ín Ósk og loks Garðar Björgvinsson.
frá hugrakkri stúlku sem hafði farið
í kvalafulla aðgerð á Borgarspítalan-
um til að láta lengja á sér annan fót-
inn. Slíkar aðgerðir eru óvanalegar
en unga stúlkan, Katrín Ósk, sem
hefur mislanga fætur, sagðist til í
allt til að fá fæturna jafnlanga. Katr-
ín Ósk sýndi mikla hugprýði og þol-
gæði sem er til eftirbreytni fyrir þá
sem eiga við einhver og jafnvel
minni vandamál að stríða.
Jólaskattarnir
Ríkisstjóninni tókst eftir mikið
japl, jaml og fuður að koma sér sam-
an um fjárlög og koma þeim síðan í
gegnum þingið. Fjölmargar nýjar
álögur fylgdu fjárlagagerðinni og
hafa þessar auknu álögur verið kall-
aðar „jólaskattar" einu nafni. Með
Jólasköttum voru skattleysismörkin
lækkuð niður í rúmlega 57 þúsund
kr. fyrir verkamann með 65-100
þúsund kr. á mánuði og verður þetta
fólk því að sjá af um 15-21 þúsund
krónum á ári til Friðriks fjármála-
ráðherra.
Tíminn benti á að jólaskattarnir
tækju til baka tvö- til þrefaldan jóla-
bónus ASÍ fólks.
Samtök launamanna höfðu látið
ófriðlega áður, en nú fyrst kastaði
tólfunum.
byijun desember var komiö að því aö nýr forseti ASÍ tækí viö
lyklavöldum í höfuðstöövum ASÍ við Grensásveg. Á myndinni má
sjá Ásmund afhenda Benedikt Davíðssyni lyklana aö ASf skrífstof-
unum.
Hraðfrystihús
Fáskrúðsfjarðar h.f.
ÓSKAR
STAKFSFÓLKÍ,
VIÐSKIPTA-
vmm,svo
OG LANDS-
MÖNNUM
ÖLLUM
nýárs
OG ÞAKKAR SAMSTARF OG VIÐSKIPTI Á LIÐNUM ÁRUM