Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 7
Fimmtudagur 31. desember 1992
Tíminn 7
Kristín Ástgeirsdóttir, formaður þingflokks Kvennalistans:
Horfur hafa dökkn-
að í okkar þjóðlífi
,J\lér er minnisstæöast hvað allar horfur hafa dökknað í okkar þjóð-
lífi á því ári sem er að líða. Erfiðleikar hafa aukist í efnahagsmálum
og atvinnuleysi er orðið meira en hér hefur verið um áratugaskeið“,
sagði Kristín Ástgeirsdóttir, formaður þingflokks Kvennalistans um
atburði þess árs sem nú er að líða.
,Af einstökum þingmálum er
mér baráttan um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna mjög minnis-
stæð. Mjög hörð átök urðu á Al-
þingi um þær breytingar sem rík-
isstjórninni tókst að lokum að
knýja fram á lánasjóðslögunum,
breytingar sem ég tel að hafi haft
og muni hafa afar slæm áhrif á
okkar námsfólk og okkar mennta-
kerfi.
Sé horft fram á næsta ár þá virð-
ist svo sem ekkert bendi til þess að
ástandið muni skána. Sé eitthvað
að marka spár fiskifræðinga þá eru
ekki líkur til þess að veiðar aukist
að neinu marki. Á meðan við sitj-
um uppi með þessa ríkisstjórn,
sem að mínum dómi er að magna
þessa kreppu með sínum aðgerð-
um, þá er náttúrulega ekki von á
góðu.
Maður vonar þó við hver áramót
að lífíð verði okkur gott til lands
og sjávar. Það er afar mikilvægt að
menn missi ekki trúna á að við
getum rifið okkur upp úr öldu-
dalnum. Við megum ekki falla í þá
gryfju að sitja með hendur í skauti
og væla eins og ríkisstjórnin gerir.
Af erlendum vettvangi vil ég
nefna forsetakosningamar í
Bandaríkjunum. Maður spyr sig
hvaða breytingar kjör Clintons
hefur í för með sér.
Nú um áramót ieita náttúrulega á
mann stórar spurningar varðandi
þróunina í Evrópu og hvort Evr-
ópska efnahagssvæðið verður yfir-
leitt að veruleika. Það er líklegt að
á nýju ári fáist svör við þessum
spurningum. Við höfum alltaf
haldið því fram, Kvennalistakonur,
að rétta leiðin hefði verið sú að
fara út í tvíhliða viðræður við EB.
Ég held að við verðum að fara að
skoða þessa leið betur, ekki síst í
ljósi þeirrar óvissu sem ríkir í mál-
inu.
Maður vonar að árið 1993 færi
okkur frið í heiminum, að átökum
ljúki í Júgóslavíu og annars staðar
þar sem barist er“, sagði Kristín.
EÓ
Kristín Ástgeirsdóttir.
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins:
Ríkisstjórnin glat-
aði arfi þjóðarsátt-
ar og stöðugleika
„Mér flnnst það merkilegast að ríkisstjómin skuli vera búin að
missa út úr höndunum þann góða arf þjóðarsáttar og stöðugleika
sem hún fékk í hendur frá okkur í síðustu ríkisstjóra. Það er merki-
legt að ríkisstjóra sem átti tækifærí á breiðrí samstöðu samtaka
launafólks, atvinnulífs og stjóramálaaflanna í landinu, skuli hafa
kosið stríð við allt og alla“, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, þegar hann var beðinn að líta um öxl og
minnast þess athyglisverðasta sem gerst hefur á árinu sem er aö
líða.
.Alþýðubandalagið setti fram í
byrjun október ítarlegar tillögur
um nýja leið íslendinga. í þeim til-
lögum fólust hugmyndir um
hvemig væri hægt að skapa allt að
1.800 ný störf í atvinnulífinu. Það
var ljóst að bæði innan ASÍ, BSRB
og samtaka atvinnulífsins var víð-
tækur stuðningur við þessar hug-
myndir. En á næturfundum um
eina helgi í nóvember ákvað rfkis-
stjórnin að slá á þessar útréttu
hendur. Síðan hefur hún bara
magnað ófriðarbálið í landinu.
Þess vegna blasir því miður við á
nýju ári óvissa og átök á vinnu-
markaði. Gamli stíllinn í efna-
hagsmálum virðist vera að halda
innreið sína á nýjan leik. Þetta er
allt saman mjög miður og spurn-
ing er hvort ríkisstjórnin sér að sér
á fyrstu dögum nýs árs og ákveður
að snúa af þessari braut og taka
Ólafur Ragnar Grímsson.
höndum saman við okkur og aðra
aðila í þjóðfélaginu um að taka hér
upp nýja stefnu. Ef svo verður ekki
óttast ég því miður að nýtt ár verði
okkur mjög erfitt.
Á erlendum vettvangi finnst mér
rísa hæst að bandaríska þjóðin af-
þakkaði hina hörðu frjálshyggju
eftir að hafa kynnst henni í 12 ár.
Glæsilegur sigur Clintons var ávís-
un á nýja umbótastefnu þar sem
finna má margar þær hugmyndir í
efnahagsmálum sem við höfum
verið að kynna hér að undanförnu
á íslandi. Það er satt að segja stór-
furðulegt að á sama tíma og
bandaríska þjóðin hafnar hinni
hörðu frjálshyggju þá skuli þetta
heittrúaða kreddugengi ráða ís-
lenska stjórnarráðinu", sagði Ólaf-
ur Ragnar. -EÓ
OLAFI GUÐMUNDSSYNI handritafræðingi voru veitt heið-
ursverðlaun úr minningarsjóði um Ásu Guðmundsdóttur Wright, fyrir áratuga-
starf að handrita- og textarannsóknum. Sturla Friöriksson formaður sjóðs-
stjómar afhenti verðlaunin í fyrradag. Ása gaf Vísindafélagi fslendinga pen-
ingagjöf áríö 1968 og var þetta því í 24 skipti sem verölaun voru veitt úr sjóön-
um. Timamynd Ámi Bjarna.
ÞORGEIR BALDURSSON forstjóri prentsmiðjunnar Odda
var valinn maður ársins 1992 í íslensku viðskiptalífi en fyrirtækið prentar um
þriöjung þess sem prentað er hér á landi. Stöð tvö og tímaritið Frjáls verslun
standa að útnefningunni. Árni Vilhjálmsson prófessor, formaður dómnefndar,
afhenti Þorgeiri heiöursskjal við hátíðlega viöhöfn í fyrradag.
Tímamynd Ami Bjama.