Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 22

Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 22
22 Tíminn Fimmtudagur 31. desember 1992 ÍÞRÓTTA- ANNÁLL 1992 Jónína Víglundsdóttir ÍA hampar hér bikarmeistaratitlinum í knattspyrnu. Janúar Leeds United hóf nýtt ár í topp- sæti ensku deildarinnar, en mikið einvígi var á milli liðsins og Man.Utd og höfðu þau talsvert for- skot á næstu lið. Ragnheiður Run- ólfsdóttir, sunddrottning, var val- in íþróttamaður ársins af íþrótta- fréttamönnum og var hún svo sannarlega vel að titlinum komin. Þeir Þorvaldur Örlygsson og Guðni Bergsson léku hvorugir með liðum sínum í Englandi í mánuðinum og virðist ekki sjást fyrir um vandræði þeirra. Hlynur Stefánsson knattspyrnumaður í ÍBV ákvað að ganga til liðs við Örebro í Svíþjóð og Gunnar Már Másson skipti úr Val í KA. Skaga- menn sigruðu á íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu knatt- spyrnu og Breiðablik sigraði í flokki kvenna. íslenska landsliðið bar sigur úr býtum á sex landa móti í Austurríki og Körfuknatt- leikslandsliðið lék við Litháa og sigruðu þjóðirnar í einum leik hvor. Febrúar Þau Broddi Kristjánsson og Elsa Nielsen tryggðu sér íslandsmeist- aratitilinn í Hniti. Eric Cantona gekk til liðs við Leeds og Björn Rafnsson skipti úr KR í knatt- spyrnunni og tók að sér þjálfun Snæfells í 4. deild. Eyjólfur Sverr- isson samdi á ný við Stuttgart og sú stórfrétt barst úr kvennaknatt- spyrnunni að Olga Færseth markadrottningin úr Keflavík ætl- aði að leika með UBK. Vetrarólympíuleikarnir í Albert- ville fóru fram í febrúar, en árang- ur íslendinganna fimm var ekki góður. Víkingsstúlkur urðu bikar- meistarar í handknattleik og FH- ingar bikarmeistarar karla. ís- lenska landsliðið í knattspyrnu lá fyrir Möltu, 1-0, ytra og Bjarni Friðriksson sigraði á opna danska meistaramótinu íjúdó. Mars Pétur Guðmundsson kúluvarpari varð fimmti á Evrópumeistara- mótinu í kúluvarpi sem er frábær árangur. ísienska landsliðið sem býr sig undir B-keppni HM sigraði Litháa í tveimur leikjum. í kvennahandboltanum tryggði Stjarnan sér deildarmeistaratitil- inn. Skagamenn tilkynntu að þeir hefðu endurheimt Sigurð Jónsson í 1. deildina í knattspyrnu, Þórður Birgir Bogason fór frá Val til Grindavíkur og Blikar fengu júgó- slavneskan markmann. Það sem bar þó hæst í þessum mánuði voru bronsverðlaun sem íslenska landsliðið í handknattleik vann sér inn í B-keppninni í Aust- urríki. Þeir tryggðu sér bronsið með ævintýralegum sigri á Sviss. Apríl Keflavík og Valur léku til úrslita í Japisdeildinni í körfuknattleik og sigruðu Keflvíkingar eftir fimm leiki. Keflvíkingar urðu sömuleið- is meistarar í kvennaflokki. Teitur Örlygsson var kjörinn bestur körfuknattleiksmanna og Hanna Kjartans best kvenna. Grótta og UBK féllu í 2. deild í handbolta karla. íslendingar gerðu jafntefli við ísraelsmenn í vináttuleik, 2-2, ytra og Fylkismenn náðu sér í tvo Júgóslava til að styrkja lið sitt í 2. deildinni. Bjarni Friðriksson vann tvenn gullverðlaun á NM í júdó, auk þess sem aðrir keppendur náðu góðum árangri. Víkings- stúlkur tryggðu sér Islandsmeist- aratitilinn í handknattleik kvenna í fyrsta sinn og FH-ingar og Sel- fyssingar hófu úrslitakeppni sína um titilinn í karlaflokki. Þorbjörn Jensson var endurráðinn þjálfari Valsmanna í handknattleik. Maí Jóhannes Sveinbjörnsson varð glímukóngur íslands og er því handhafi Grettisbeltisins næsta árið. FH-ingar tryggðu sér ís- landsmeistaratitilinn í hand- knattleik eftir harða úrslitakeppni við Selfyssinga. Landslið íslands í körfuknattleik varð í 7. sæti á opna Norðurlandamótinu. Sævar Jónsson endurheimti sæti sitt í landsliði íslands í knattspyrnu fyrir leik gegn Grikkjum ytra. Eyjólfur Bragason var ráðinn þjálfari HK í handknattleik og Framarar tryggðu sér Reykjavík- urmeistaratitilinn í knattspyrnu, en Valsmenn sigruðu í meistara- keppninni. U21 árs landsliðið tap- aði 3-0 fyrir Grikkjum ytra, A- landsliðið tapaði 1-0, en leikirnir voru báðir liður í undankeppni HM. Eyjólfur Sverrisson varð þýskur meistari með liði sínu Stuttgart og átti Eyjólfur ekki minnstan þátt í þeim sigri. Páll Kolbeinsson gekk í raðir Tinda- stóls í körfuknattleik. í 1. deild- inni í knattspyrnu var Fram spáð sigri, og KA og Þór falli. Leeds Utd. varð enskur meistari í knatt- spyrnu. Júní íslensku landsliðin, U21 árs og A- landsliðið, léku við Ungverja ytra og náðist þar frábær árangur. U21 árs liðið tapaði naumlega 3-2 en A-Iiðið sigraði 1-2 með mörkum þeirra Þorvaldar Örlygssonar og Harðar Magnússonar. Þórsarar sem komu úr 2. deild í knatt- spyrnunni náðu að komast á topp deildarinnar. Hans Guðmundsson gekk í raðir HK í handknattleik, en lenti í rimmu við FH-inga vegna félagaskipta, sem leystist ekki fyrr en eftir að mótið var haf- ið. Júlíus Jónasson handknatt- leiksmaður gekk að nýju í raðir Paris Asnieres eftir að hafa verið í tvö ár hjá Bidasoa. Svali Björg- vinsson var ráðinn þjálfari Vals í körfuknattleik. JÚIÍ KR-ingar komust í hann krappan í 16-liða úrslitum í bikarkeppni KSÍ þegar þeir heimsóttu Völ- sunga á Húsavík. KR-ingar sigr- uðu þó 1-2, en Völsungar leika í 3. deild. Hörður Hilmarsson tók við þjálfun Breiðabliks af Vigni Bald- urssyni og Ómar Jóhannsson tók við af Sigurlási Þorleifssyni sem þjálfari Eyjamanna. íslendingar sendu 13 íþróttamenn auk ís- lenska landsliðsins í handknatt- leik, sem bættist við síðar. Eftir frekar slakan árangur Ragnheiðar Runólfsdóttur tilkynnti hún að hún væri hætt keppni. Árangur annarra keppenda á ÖL í júlímán- uði var frekar slakur. Björn Steffensen var ráðinn þjálfari ÍA í körfuknattleik Agúst íslendingar léku landsleik við ísraelsmenn og biðu þar lægri hlut 0-2. Leikurinn var vináttu- leikur. Sigurður Einarsson náði 5. sæti í spjótkastkeppninni á ÓL í Barcelona og íslenska landsliðið í handknattleik náði fjórða sæti, tapaði leik gegn Frökkum um bronsið. Valsmenn tryggðu sér bikarmeistaratitilinn í knatt- spyrnu karla í þriðja skiptið í röð og ÍA í kvennaflokki annað árið í röð. September Skagamenn tryggðu sér íslands- meistaratitilinn í knattspyrnu eft- il Bandalag starfsmanna ríkis og bœja óskar landsmönnum öllum gleðilegs árs og friðar m

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.