Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 34
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is
Flug til Manchester gefur
2.500–8.000 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
Amsterdam . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Bergen . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Barcelona . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Berlín . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Boston. . . . . . . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
Düsseldorf . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Frankfurt . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Glasgow . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Halifax . . . . . . . . . . . . . . . . frá 25.400 kr.
Helsinki . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Kaupmannahöfn . . . . . . . frá 14.900 kr.
London . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Madrid . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Manchester . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Milano . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Minneapolis . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
München . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
New York . . . . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
Orlando . . . . . . . . . . . . . . . frá 31.220 kr.
Osló . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
París . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Stavanger . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Stokkhólmur . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Toronto . . . . . . . . . . . . . . . . frá 25.400 kr.
*Verð aðra leiðina með sköttum og gjöldum.
Besta verðið okkar*
+ Bókaðu á www.icelandair.is
M
ÍN
Flug og gisting í 3 nætur frá 41.900 kr.
á mann í tvíbýli á Thistle Manchester ***
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting
og morgunverður.
MÍN
Manchester Wheel er í
miðborginni, 60 metra hátt parísarhjól
þaðan sem er gott útsýni og hægt að
fá skemmtilega yfirsýn yfir borgina.
Hjólið er á aðalverslunarsvæði
miðborgarinnar, Arndale Market, þar
sem hægt er að finna allar helstu
verslanir og verslanakeðjur.
Manchester 235 er feikistórt
og glæsilegt spilavíti á Deansgate, við
hliðina á nýja Hilton-hótelinu. Þar er
opið allan sólarhringinn alla daga
vikunnar og um helgar er boðið upp á
lifandi tónlist. Fyrir þá sem ekki vilja
spila mæli ég samt sem áður með
veitingastöðunum tveimur. Þeir eru
mjög góðir.
Urbis er flott safn fyrir þá sem hafa
áhuga á arkitektúr og fallegum
byggingum.
Deansgate er ein aðalgatan í
Manchester. Þar má finna marga
góða veitingastaði og skemmtileg
kaffihús sem breytast flest í skemm-
tistaði á kvöldin. Á efstu hæðinni á
Hilton-hótelinu er flottur bar með
rosalegu útsýni. Á Deansgate er líka
verslunin Harvey Nichols, án efa
flottasta búðin í borginni. Veitinga-
staðurinn þar er frábær, bæði
hádegismatur á „brasseríinu“ og
kvöldmatur á veitingastaðnum sem
er fyrsta flokks.
MEN Arena – Manchester
Evening News Arena er
tónleikahöllin í Manchester. Þar er
alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi,
aðallega tónleikar en líka skemmti-
legar sýningar og íþróttaviðburðir.
Manuela Ósk Harðardóttir
Veitingastaðir
í Manchester
Old Trafford, heimavöll
Manchester United, þekkja sjálfsagt
allir fótboltaáhugamenn. Stórkostleg
upplifun fyrir hvern sem er að horfa
þar á fótboltaleik en á vellinum eru
einnig í boði skoðunarferðir með leið-
sögn og eins er hægt að skoða
áhugavert safn um völlinn og liðið.
Chill Factore er skíðasvæði
innanhúss með nokkrum mismunandi
brekkum og þar á meðal sérstakri
barnabrekku. Hægt er að leigja allan
útbúnað á staðnum: skíði, snjóbretti,
snjóþotur fyrir börnin og allan fatnað.
Þarna er fjöldi veitingastaða og
verslana og frábær ísbúð, Fredricks,
þar sem er ótrúlegt úrval af góm-
sætum ís. Þetta er æðislegur staður
fyrir skíðafólk og frábær fyrir barna-
fjölskyldur.
The Trafford Centre er ein
stærsta verslunarmiðstöð í Evrópu,
afar glæsileg með nærri 300
verslunum, góðum veitingastöðum og
margs konar annarri þjónustu. Þar er
líka hægt að fara í bíó, spila míní-golf,
keilu og „laser tag“ og gleyma sér í
leiktækjasölum. Það er lítill vandi að
upplifa góðar stundir í skemmtilegu
umhverfi í Trafford Centre.
MANC
Reykjavík – Manchester frá 14.900 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum. Flogið er 2 sinnum í viku.
Sapporo Teppanyaki
er skemmtilegur staður í kínahverfinu.
Maturinn er eldaður á borðinu sem
setið er við, sem skapar skemmtilega
stemningu. www.sapporo.co.uk
The Market
Restaurant
Góður, hefðbundinn, breskur matur.
www.market-restaurant.com
The Modern
Bresk matargerð með nútímasniði.
www.themodernmcr.co.uk
Grado
Tapas og réttir í anda matreisðslu
eins og hún tíðakast við Miðjarðarhaf.
www.heathcotes.co.uk/collection/gra
do/index.php
Vermilion
& Cinnabar
Fjölbreyttir réttir þar sem blandað er
saman ýmsu í asískri matargerð.
www.vermilioncinnabar.com
Shimla Pinks
Indversk matargerð eins
og hún gerist best.
www.shimlapinksmanchester.com
Í Manchester er hægt að velja á
milli meira en þrjátíu mismunandi
matreiðsluhefða frá öllum
heimshornum. Prófið til dæmis: