Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 47
Annata hf. þróar viðamiklar hugbúnaðarlausnir sem notaðar eru af fyrirtækjum um allan heim.
Stöðug eftirspurn og auknar kröfur markaðarins um nýja virkni og stuðning við viðskiptavini á
ólíkum markaðssvæðum gerir okkur kleift að bæta við okkur forriturum og styrkja hópinn okkar.
Við leitum að hæfileikaríkum einstaklingum sem hafa áhuga á því að verða hluti af þróunarhóp
Annata. Óskað er eftir tölvunar-, verk- eða kerfisfræðingum og við hvetjum sérstaklega þá sem
eru nýútskrifaðir (eða við það að útskrifast) að sækja um. Leitað er að einstaklingum með metnað
fyrir hönnun og smíði hugbúnaðar, sem eiga auðvelt með að tileinka sér tækninýjungar. Við
leitum að einstaklingum sem gera kröfur til síns sjálfs og hafa vilja til að vaxa í starfi. Lausnir
okkar eru skrifaðar í Microsoft Dynamics AX og Microsoft Visual Studio þar sem notast er við
hlutbundin forritunarmál eins og X++ og C#. Áhersla er lögð á metnað, gæði, gott vinnuumhverfi
og góðan starfsanda.
Lausnir okkar eru gæðavottaðar undir ”Certified for Microsoft Dynamics”.
Áhugasamir sendi umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu á netfangið
johann@annata.is. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Jónsson í sama netfangi. Fullum trúnaði heitið.
Annata veitir þjónustu til viðskiptavina hér á landi og í fjölmörgum löndum utan Íslands. Skrifstofur okkar eru á Íslandi,
Bretlandseyjum, Svíþjóð og Danmörku og eru starfsmenn ríflega 60 talsins. Við störfum náið með samstarfsaðilum víða um
Evrópu, í Bandaríkjunum, Mið-Austurlöndum, Suður-Afríku, Suður-Ameríku og Ástralíu. Starfsumhverfið er óþvingað og
afslappað. Umbunin er fyllilega í takt við framlag og mjög samkeppnishæf. Mikil áhersla er lögð á þjálfun starfsmanna og
faglegur aðbúnaður er fyrsta flokks. Þótt vinnan sé tekin alvarlega, skemmtum við okkur reglulega og starfsmannafélagið er
mjög virkt.
www.annata.is
Komdu
í lið með
okkur
Hugbúnaður | Ráðgjöf
Mörkinni 4 108 Reykjavík Sími 412 1000 Fax 568 4201
Ísland | Bretland | Svíþjóð | Danmörk
Forritarar í vöruþróun á Microsoft
Dynamics AX viðskiptalausnum
www.alcoa.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í véla- eða
rafmagnsgreinum.
• Vélfræðimenntun er æskileg.
• Krafist er minnst fimm ára starfsreynslu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. mars.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Alcoa Fjarðaál leitar að viðhaldssérfræðingi í áreiðanleikateymi álversins við
Reyðarfjörð. Starfið felst meðal annars í umsjón með bilanagreiningum,
sérhæfingu í ákveðnum kerfum álversins og sértækum verkefnum. Hluti af
starfinu er að sinna útkallsþjónustu vegna bilanagreiningar.
Ef þú hefur áhuga á þessu starfi hafðu þá samband við Tómas Odd Hrafnsson hjá Capacent, í síma 540 1000 eða á
netfangið tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig.
Viðhaldssérfræðingur í áreiðanleikateymi
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/A
L
C
4
55
39
0
2/
09