Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 50
28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR10
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Ræsting í Borgartúni 12 – 14. EES Útboð.
Í þessu útboði er boðið út 10.218 m2 sem skiptast
í 312 rými, húsið er 7 hæðir, 2 kjallarar og 3 álmur.
Í húsinu eru 4 lyftur. Vinnutími verksala skal að öllu
jöfnu vera frá kl. 8:20 til 16:15 alla virka daga.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 2.000, frá og
með þriðjudeginum 3. mars 2009, í síma- og upplýs-
ingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Vettvangsskoðun verður fi mmtudaginn 5. mars 2009,
kl. 15:00.
Opnun tilboða: 23. mars 2009 kl 11:00, í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar er að fi nna á
www.reykjavik.is/utbod
Fossaleynir 17 (Grafarvogi), 112 Reykjavík
www.studlar.is mru@studlar.is
Sálfræðingur
Staða sálfræðings við meðferðarstöð ríkisins fyrir
unglinga að Stuðlum er laus til umsóknar. Um er
að ræða afl eysingastöðu í eitt ár.
Stuðlar starfa á grundvelli barnaverndarlaga og
reglugerðar um meðferðarstöð ríkisins. Stuðlar
sinna unglingum á aldrinum 12-18 ára með hegðu-
narvanda.
Meðal verkefna sálfræðings er greining og meðferð
unglinga, gerð og framkvæmd meðferðaráætlana,
ráðgjöf og stuðningur við foreldra, barnaverndarnef-
ndir og skóla sem og samvinna við ýmsar aðrar stof-
nanir, ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk Stuðla og
þátttaka í almennri stefnumótun.
Laun samkvæmt kjarasamningi Sálfræðingafélags
Íslands og ríkisins. Umsóknarfrestur er til 15. mars
2009.
Umsóknir berist til Stuðla - meðferðarstöðvar ríki-
sins fyrir unglinga, Fossaleyni 17, 112 Reykjavík eða í
tölvupósti á mru@studlar.is á eyðublaði sem fi nna á
heimasíðu Stuðlar.
Upplýsingar veitir Sólveig Ásgrímsdóttir forstöðu-
maður netfang: solveig.asgrimsdottir@studlar.is
Garðyrkjustjóri
Mosfellsbæjar
Laus er til umsóknar staða garðyrkjustjóra Mosfellsbæjar
Í Mosfellsbæ er mikil nálægð við náttúru og umhverfi sem býður upp á
fjölbreytta möguleika fyrir starf garðyrkjustjóra. Óskað er eftir röskum,
dugmiklum einstaklingi með brennandi áhuga á garðyrkju og reynslu
af stjórnun vinnufl okka. Garðyrkjustjóri hefur aðsetur í Þjónustustöð en
stærsti hluti starfsins fer fram utandyra.
Helstu verkefni
Garðyrkjustjóri hefur umsjón með öllum opnum svæðum,
skrúðgörðum, stofnanalóðum og skógrækt. Hann stýrir garðyrkjudeild,
hefur umsjón með hönnun og skipulagningu gróðursvæða og sér um
útfærslu opinna svæða. Hann tekur einnig þátt í gerð útboðsgagna,
sér um kostnaðareftirlit á rekstri deildarinnar og hefur eftirlit með
framkvæmdum verktaka.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Menntun á sviði skrúðgarðyrkju er skilyrði
• Viðbótarmenntun á sviði umhverfi sfræða eða landslagsarkitektúrs
er kostur
• Reynsla af garðyrkjustörfum er nauðsynleg
• Reynsla af stjórnun vinnufl okka er skilyrði
• Góð íslensku- og tölvukunnátta
• Góð samskiptafærni
Umsóknarfrestur er til 17. mars 2009.
Umsóknir sem greina frá menntun, reynslu og fyrri störfum skulu
berast skrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má
senda umsóknir á netfangið mos@mos.is.
Upplýsingar um starfi ð veitir Sigríður Indriðadóttir mannauðsstjóri í
síma 525 6700.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Mosfellsbær hvetur konur jafnt sem karla til að sækja
um starfi ð.
Mosfellsbær býður upp á hvetjandi starfsumhverfi og setur sér það markmið
að vera eftirsóknarverður og aðlaðandi vinnustaður þar sem atvinna og fjölsky-
lduábyrgð fara vel saman. Gildi Mosfellsbæjar eru virðing, jákvæðni, framsækni
og umhyggja sorpa.is
SORPA bs., Gufunesi, 112 Reykjavík,
óskar eftir tilboðum í verkið Breiðhella 8–10
í Hafnarfirði – Endurvinnslustöð SORPU.
Helstu verkþættir og magntölur
í verkinu eru eftir farandi:
Gröftur 1.200 m3
Fylling 3.400 m3
Steinsteypa 350 m3
Lagnir í jörðu, 50-150mm, 820 m
Skurðir fyrir ídráttarrör og strengi 900 m
Rafstrengir 1.200 m
Töflu- og tengiskápar 4 stk.
Lampar 22 stk.
Malbikuð plön 8.800 m2
Hellulögn 100 m2
Handrið 360 m
Girðingar 430 m
Útboðsgögn fást afhent á bílavog SORPU,
Gufunesi, frá og með 2. mars 2009 gegn
15.000,- króna óafturkræfu gjaldi.
Opnun verður 24. mars 2009,
kl. 11:00 á skrifstofu Sorpu bs. í Gufunesi.
Verktaki skal skila verkinu eigi síðar
en 12. nóvember 2009.
Húsfélög
Námskeið í undirbúningi
viðhaldsframkvæmda
Verksýn ehf. býður forsvarsmönnum húsfélaga til nám-
skeiðs í undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Á námskeið-
inu verður farið yfi r það ferli sem þarf að setja í gang
þegar ráðist er í viðhaldsframkvæmdir á fjölbýlishúsum.
Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Verksýnar ehf.
að Síðumúla 1, Reykjavík. Námskeiðið er opið öllum
stjórnarmönnum húsfélaga, þeim að kostnaðarlausu.
Áhugasamir geta skráð sig á námskeiðið með því að
senda tölvupóst á verksyn@verksyn.is eða með því að
hringja í síma 517 6300.
Verksýn ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfi r sig í
viðhaldi á fasteignum. Fyrirtækið var stofnað í upphafi
árs 2006 og hefur sinnt fjölda verkefna fyrir einstaklinga
og húsfélög. Hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar með
áratugareynslu í mannvirkjagerð og viðhaldi fasteigna.
Verksýn ehf.
Síðumúla 1
108 Reykjavík
www.verksyn.is
Forstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar
embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins.
Undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins heyra
m.a. fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Sel-
tjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ
og Hafnarfirði.
Forstjóri ber ábyrgð á að Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrir-
mæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur.
Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem stofnunin
veitir, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í
samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á
árangursríkan hátt. Forstjóri ræður aðra starfsmenn
stofnunarinnar.
Forstjóri skal hafa háskólamenntun og/eða reynslu
af rekstri og stjórnun sem nýtist honum í starfi.
Hann skal einnig hafa víðtæka þekkingu og reynslu
á sviði heilbrigðisþjónustu. Gerð er krafa um góða
samskipta- og leiðtogahæfileika.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára
frá 1. maí 2009. Um kjör forstjóra fer skv. ákvörðun
kjararáðs, sbr. lög nr. 47/2006 um kjararáð.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvött til að sækja um
embættið.
Upplýsingar um starfið veita
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri
(berglind.asgeirsdottir@hbr.stjr.is) og
Sigurjón Ingi Haraldsson, skrifstofustjóri
(sigurjon.ingi.haraldsson@hbr.stjr.is)
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og starfsferil sendist heilbrigðisráðuneytinu,
Vegmúla 3, 150 Reykjavík eða á
postur@hbr.stjr.is eigi síðar en 16. mars 2009.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um skipun liggur fyrir.
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ