Fréttablaðið - 28.02.2009, Blaðsíða 57
OSRAM sparperurnar fást í næsta stórmarkaði eða byggingavöruverslun www.osram.is
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
ALLT AÐ
80 %
ORKU-
SPARNAÐ
UR
Sparaðu með OSRAM
sparperum.
Sparperurnar frá OSRAM lækka lýsingarkostnað um allt að 80 %
samanborið við jafn bjartar ljósaperur og endast þar að auki allt
að 15 sinnum lengur.* OSRAM sparperurnar eru til í mörgum
stærðum, gerðum og litum og eru umhverfisvænar.
* Miðað við venjulega heimilisnotkun í 2,7 klst á dag.
Að mörgu þarf að huga þegar
halda skal hænur. Þær þurfa
vel búinn kofa til að þrífast í
og líða vel. Kofa eða skúra má
kaupa í verslunum eins og Byko
og Húsasmiðjunni og innrétta
þá sem hænsnakofa, en einnig
er hægt að byggja kofann frá
grunni.
Hænsnakofi þarf að standa á
góðum grunni og vera vel fest-
ur til þess að mýs eða minkar
komist ekki inn. Vel innrétt-
aður hænsnakofi hefur varp-
kassa sem er í um metrahæð
og miðað er við fjórar hænur
á hvern varpkassa. Hænur
þurfa líka prik til að sitja
á. Þær leita að hæsta
punkti og því þarf
kofinn að hafa um
tveggja metra loft-
hæð og prikin hátt
uppi. Snyrtilegra
er fyrir hænurn-
ar að hafa ekki
vatns- og fóður-
ílát á gólfinu heldur hengja þau
upp. Þá er gott að dreifa sagi
á gólfið til að auka á hreinlæt-
ið. Einnig má setja kattasand
undir prikin, hann drekkur í
sig rakann og dregur úr amm-
óníakslykt. Kofinn þarf að hafa
gat eða lúgu svo hænurnar geti
gengið inn og út, auk þess þarf
að sjálfsögðu hurð fyrir eigand-
ann.
Yfir vetrartímann þarf að sjá
til þess að ekki verði of kalt í
kofanum en 8 stiga hiti er mjög
passlegur. Sumir hænsnaeig-
endur setja rauða hitaperu
í kofann yfir vetrartím-
ann, en aðrir hafa sjálf-
virka ofna sem stýra
hitastiginu. Annars
hita hænur vel sjálf-
ar og ef kofinn er
vel einangraður og
hafður lokaður í
mesta kuldanum
þarf lítið að hita
aukalega. - rlf
„Þegar við stofnuðum þetta félag
árið 2004 vissi fólk bara ekkert um
þessar landnámshænur,“ segir Jó-
hanna Harðardóttir, formaður
Eigenda- og ræktendafélags land-
námshænsna, en vinsældir hæn-
unnar hafa aukist mjög á síðustu
árum og er hún í dag svo vinsælt
gæludýr að sumir dýralæknar eru
farnir að gera ráð fyrir þeim á
stofum sínum.
„Hún hefur dreifst svolítið,
nú er fólk með fáa fugla og er
með þá sér til ánægju,“ segir
Jóhanna og bætir glettin við
að kostur hænunnar sé sá að
hún borgi húsaleigu.
Má búast við að
landnámshæna
verpi allt að
270 eggjum á
ári, fyrstu ár
ævi sinnar.
Jóhanna
segir gríðarmik-
inn mun á landnáms-
hænunni og innflutt-
um hænum og þá
eigi hún ekki aðeins við útlitið.
„Þær hafa sinn karakter og eru
einstaklingar. Þær eru ólíkar í
geðslagi og mjög gaman að þeim.
Þess utan eru þær bráðfallegar því
eins og önnur íslensk húsdýr eru
þær alls konar á litinn. Svo eru
sumar með toppa, aðrar með fjaðr-
ir á fótum og engar tvær eins.“
Hún segir sáralítið mál að halda
hænur og tekur fram að margir
séu með hænur í garðinum
við húsið sem enginn viti
af. „Hins vegar er mál að
vera með hænur ef hani er
með þeim. Þeir hafa hátt og
hænur haga sér allt öðru-
vísi þegar kominn er
hani, þá fer hann
að ráða en ekki
maður sjálf-
ur,“ Jóhanna
glettin.
Leikskólinn Krakkakot á Álftanesi er með hænsnahald sem hefur gefist vel hjá börn-
unum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Að hanna góðan kofa
● Hænur eru heimakærar hópsálir og huga þarf vel að
híbýlum þeirra sem þurfa að vera mink- og músheld.
Hænan borgar leiguna
● Íslensk landnámshæna verpir um 270 eggjum á ári. Lítið
mál er að halda hænur jafnvel í görðum í Reykjavík.
Jóhanna með
hanann Grámann
og hænuna Rjúpu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
WWW.GAP.IS
HLAUPABRAUT ENTIRE-6106FC
•Hagnýt, hljóðlát, og fyrirferðarlítil hönnun
sem að skilar frábærri æfingu
án þess að taka mikið gólfpláss
•Mótor: 2,0 Hp DC (Continues)
•Hlaupaflötur: 44 x 131 cm
•Hraða svið: 0.8-16 KM/HR
•1 Skjár LCD
•Tími/Vegalengd /Hraði
/Púls/Forrit 1-25
•Hand Púls
•Hraðstillingar á hraða og halla
3/6/9/12 km/hr & 0/5/10/15% Halli
•Samanbrjótanleg
•Svalandi vifta.
Verð kr. 210.000
VILTU VINNA MILLJÓN?
“Nei miklu frekar tapa 12 kílóum”
178.50
0
kynning
artilboð
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009 5