Tíminn - 15.01.1993, Qupperneq 1

Tíminn - 15.01.1993, Qupperneq 1
Föstudagur 15. janúar 1993 9. tbl. 77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- (slandsbanki meira en áttfaldar hæsta gjald fyrir innlausn innistæðulausra tékka: Tvöfaldir ársvextir nú tekn- ir fyrir „gúmmítékka Smá samlagningarskekkja í tékkhefti frá íslandsbanka getur orðið afar dýr framvegis. Það getur t.d. hæglega kostað fólk meira en sem svarar tvöföldum ársvöxtum að skrifa óvart út nokkurra þúsund króna „gúmmítékka“. íslandsbanki hefur tilkynnt um þá nýbreytni að taka upp mismunandi gjald — í fimm þrepum frá 495 kr. og upp í 4.995 kr. — fyrir innlausn innistæðulausra tékka. Lægsta gjaldið er vegna tékka und- ir 5 þús. kr. Sé um að ræða tékka á bilinu 5 til 10 þús. kr. nærri þrefald- ast gjaldið, í 1.295 kr. Þau viðurlög samsvara t.d. meira en 25% af rúm- lega 5.000 kr. tékka, eða álíka upp- hæð og greiða þyrfti í vexti af 5.000 kr. bankaláni í tvö ár. Að undanfömu hefúr bankinn tek- ið sama gjald, 595 kr., af öllum inni- stæðulausum ávísunum, óháð upp- hæð þeirra. Nýja gjaldskráin verður hins vegar sem hér segir: TékknQárhæð kr.: Áðun Nú: 1 — 5.000 595 495 5.001 — 10.000 595 1.295 10.001 — 50.000 595 2.195 50.001 — 200.000 595 3.495 200.001 oghærri 595 4.995 í þeim tilvikum sem innistæða er til að hluta á móti upphæð tékka, ræður mismunurinn því í hvaða gjaldflokki hann lendir. í tilkynningu frá íslandsbanka er haft eftir Ragnari Önundarsyni íslendingur á jarðfræðiráðstefnu í Kólumbíu ákvað í gærmorgun að fara ekki að skoða gýg Galeras: Eldfjallafræðingar lenda í miðju gosi Slys urðu á fólki og jafnvel manntjón, þegar eldfjallið Galeras í suðurhluta Kólumbíu gaus óvænt í gær. Að minnsta kosti 15 eldfjallafræðingar eru slasaðir og samkvæmt óstaðfestum fréttum eru minnst fjórir látnir, en fréttum bar ekki saman í gærkvöldi. I Kólumbíu stóð yfir alþjóðleg ráð- stefna eldfjallafræðinga og var stór hluti ráðstefnugesta, eða um 100 manns, að skoða eldfjallið þegar það gaus. Einn ís- lendingur, Guðmundur E. Sigvaldason, forstöðumaður Norrænu eldfjallastöðv- arinnar, er á ráðstefnunni en hann hafði í gærmorgun farið í rannsóknarferð annað, og var því ekki meðal þeirra sem skoðuðu gýg eldfjallsins Galeras. Eld- fjallið hefur verið virkt með hléum frá 1989 en hefur ekki látið á sér kræla í sex mánuði fyrr en það gaus óvænt í gær, þegar fjöldi manns var niðri í gýgnum. Guðmundur Sigvaldason, íslendingur- inn á ráðstefnunni, mun hafa ákveðið á síðustu stundu að fara ekki með kolleg- um sínum í þessa ferð en valdi þess í stað að fara í aðra rannsóknarferð sem boðið var upp á. Guðmundur hefur áður lent í náttúruhamförum í Latnesku Ameríku en um jólin 1972 var hann í Managua, höfuðborg Nígaragva, þegar öflugur jarðskjálfti lagði borgina í rúst. Guð- mundur var í þann veginn að ganga til náða þegar jarðskjálftinn gekk yfir, en gríðarstórt steypubjarg lenti í rúmi hans þegar húsið hrundi, en Guðmund sakaði ekki. Ekki náðist samband við Guðmund í gærkvöldi. Hjúkrunardeilan rædd á Alþingi. Davíð Oddsson: Þær skulu vínna Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að það sé afstaða ríkisvaldsins að hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum sem sagt hafa upp störfum á ríkisspítölunum, beri að starfa næstu þrjá mánuði á spítölun- um eftir að ákvörðun hafi verið tekin um að framlengja uppsagnarfrest þeirra. Þetta sé í samræmi við hæsta- réttardóm og Iög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Mál hjúkrunarfræðinganna og Ijós- mæðranna 415 sem sagt hafa upp störfum á ríkisspítölunum, var rætt utan dagskrár á Alþingi í gær að frum- kvæði Ingibjargar Pálmadóttur al- þingismanns. Sem kunnugt er líta hjúkrunarfræð- ingar og ljósmæður þannig á að þeim beri ekki að hlíta framlengingu á upp- sagnarfresti. Þeir eru staðráðnir í að framkvæmdastjóra, að með þrepa- skiptingunni lækki kostnaður þeirra um 17% (100 kr.) sem fara óviljandi yfir á heftinu með lágar upphæðir, sem sagt undir 5 þús.kr. Segir hann 80% allra innistæðulausra tékka vera af þessu tagi. Upphæðin marg- faldast hins vegar verði einhver svo óheppinn að skrifa út heldur hærri tékka en 5 þúsund kr., sem allt eins sýnist geta gerst óviljandi vegna smávægilegrar reikningsskekkju. Hins vegar segir Ragnar Iíka alltaf vera einhverja sem vísvitandi brjóti lög með því að gefa út innistæðu- lausar ávísanir með upphæðum sem nemi verulegum fjárhæðum. Óeðli- legt sé að þeir greiði sama gjald og hinir, enda kostnaður bankans af þeim mun hærri. - HEI Almanna- varnir í viöbragös- stöðu Almannavamir ríkisins voru í viðbragðstöðu í gær vegna þotu sem missti afl á einum hreyfli. Viðbragðsstigi var lýst yfir í gær og stóð það ekki yfir nema í um 15 mínútur. Boingþota að gerðinni 747, tikynnti að einn hreyfill af fjórum virkaði ekki. Vélinni var snúið við og hélt hún aftur til London þaðan sem hún hafði komið. Ekki var talin nein veruleg hætta á ferð- um. -HÞ hætta störfum 1. febrúar eftir að þriggja mánaða uppsagnarfresti lýkur. Ingibjörg spurði hvemig stjómvöld myndu bregðast við ef sú staða kæmi upp að hjúkrunarfræðingar hættu störfum um næstu mánaðamót eins og flest bendir til að verði. Hún sagð- ist ekki þurfa að hafa mörg orð um hve alvarlegt ástand myndi skapast ef það gerðist Ingibjörg sagði ábyrgð stjóm- valda mikla í þessu máli. Þeim beri nú þegar að ganga í að leysa málið áður en það sé um seinan og hættuástand skapist á spítölunum. Ingibjörg sagði að meginástæðan fyrir deilunni væri lág laun hjúkrunarfræðinga og sú staðreynd að hjúkrunarfræðingar sem vinna á ríkisspítölunum séu verr laun- aðir en hjúkrunarfræðingar sem starfa á Landakoti og Borgarspítala. - EÓ Það var ekki létt yfir um 100 starfsmönnum SH-verktaka sem fylltu afgreiðslu Sparisjóðs Hafnarfjarðar í gær til að eiga viðræður við sparisjóðsstjóra um málefni fyrirtækisins. Timamynd Ámi Bjama Um 100 starfsmenn SH-verktaka fjölmenntu í Sparisjóð Hafnafjarðar: Reynt til þrautar að bjarga vinnunni Þeir voru brúnaþungir um 100 starfsmenn SH-verktaka sem fjöl- menntu í Sparisjóð Hafnafjarðar í gær til að reyna að fá hann til að falla frá greiðslum fyrir unnin verk og 5 milljóna króna greiðslu frá Hampiðjunni sem sparisjóð- urinn tók við á föstudag. Það var skilyrði í tilboði Péturs Blöndal sem fól í sér að leggja fram 25 millj. kr. hlutafé. Að sögn Péturs er skuldin við sparisjóðinn innan við 20 millj. kr. og þar af er trygg fasteignaveð fyrir 15 millj. kr. Sparisjóðsstjóri tók á móti starfs- mönnum og vísaði þeim inn í kaffistofu þar sem fundur hófst sem stóð í nærri tvo klukkutíma. Það var heitt í kolum og starfs- menn kröfðu sparisjóðsstjóra skýringar á því af hverju sparisjóð- urinn vildi ekki falla frá kröfum þar sem hann fengi hvort sem er ekkert ef fyrirtækið yrði gjald- þrota. Sparisjóðsstjóri sagði mál flóknari en það en bar talsvert fyrir sig að ekki mætti veita upplýsingar um stöðu viðskiptamanna. Þá taldi hann að Pétur beitti starfsmönn- um fyrir sig og segði þeim ekki nema hluta sannleikans. Sparisjóðsstjóri lýsti sig fúsan að ræða við nokkra fulltrúa starfs- manna að loknum fundi. Það bar þann árangur að um miðjan dag lagði sparisjóðurinn fram nýtt til- boð. Þar var farið fram á 10% greiðslu upp í skuldina eða 2.5 millj. kr. og viðbótargreiðslu þegar uppgjör lægi fyrir. Það síðast- nefnda gat Pétur Blöndal ekki sætt sig við. Síðdegis í gær benti því allt til þess að fyrirtækið færi fram á gjaídþrotaskipti. í yfirlýsingu frá stjóm sparisjóðs- ins segir að framkoma Péturs í þessu máli hafi verið einstök. Hann hafi viðhaft afar óviðeigandi ummæli i' viðtölum við sparisjóðs- stjóra og síðan fylgt þeim eftir í fjölmiðlum með ómaklegum að- dróttunum. Þess má geta að um 100 manns hafa starfað hjá fyrir- tækinu og virðist allt benda til að þeir verði atvinnulausir svo og 50 starfsmenn undirverktaka. -HÞ Sjá nánar á bls. 3.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.