Tíminn - 15.01.1993, Side 9

Tíminn - 15.01.1993, Side 9
Föstudagur 15. janúar 1993 Tíminn 9 DAGBÓK Söngnámskeiö Söngsmiöjunnar Söngsmiðjan er nú að hefja vorönn sína, en þetta er þriðja starfsár skólans. Ýmis námskeið verða í boði. Áfram verð- ur lögð áhersla á námskeið fyrir algjöra byrjendur. Þá verður námskeið fyrir þá sem hafa verið á námskeiði hjá Söng- smiðjunni eða hafa verið í kór eða öðru tónlistarstarfi. Nýtt námskeið hefur göngu sína, „Broadway-söngleikir", fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á að tjá sig í söng, leik og dansi. í vetur gefst fólki einnig kostur á ein- söngsnámi. Lögð er áhersla á haldgóða söngtækni og túlkun ljóðs og Iags. Kennd verður bæði létt tónlist og klass- ísk. Kennarar eru Esther Helga Guðmunds- dóttir söngur og Guðbjörg Sigurjóns- dóttir undirleikur. Esther Helga Guðmundsdóttir lauk B.M.-prófi frá Háskólanum í Indiana, Bandaríkjunum, í lok árs 1988. Frá þeim tíma hefur hún starfað við bæði ein- söngskennslu og söngkennslu í hópum. Esther Helga er einn af stoftiendum Óperusmiðjunnar og hefur sungið í ýms- um uppfærslum hennar. Hún hefur sungið fyrir útvarp og sjónvarp og haldið fjölda einsöngstónleika hér heima og er- lendis. Guðbjörg Sigurjónsdóttir stundaði nám við Sweelink Conservatorium í Hollandi og lauk þaðan píanókennaraprófi árið 1979. Guðbjörg hefur starfað síðan sem píanókennari og undirleikari. Kennsla hefst 18. janúar. Upplýsingar og skráning í síma 654744 alla virka daga frá kl. 10-13. Sólarkaffi ísfirðingafélagsins ísfirðingafélagið í Reykjavík gengst fyr- ir sínu árlega sólarkaffi, hinu 48. í röð- inni, föstudagskvöldið 22. janúar nk. á Hótel íslandi. Hefur þessi hátíð, þar sem því er fagnað að hefðbundnum vestfirskum hætti, með rjúkandi heitu kaffi og rjóma- pönnukökum, að sól er farin að hækka á lofti, átt stöðugt vaxandi vinsældum að fagna hin síðari árin. Húsið opnar kl. 20, en kl. 21 hefst hátíð- ar- og skemmtidagskrá. Guðjón B. Ólafs- son, fyrrv. forstjóri, flytur ávarp. Dans verður stiginn til kl. 3 e.m. Forsala aðgöngumiða fer fram að Hótel íslandi laugardaginn 16. janúar kl. 14- 16. Miða- og borðapantanir auk þess í síma 91-687111, dagana 18.-22. janúar, milli kl. 14-18. Aðgangseyrir er kr. 1800. Uilftu komast á fjöll? Vélsleði til sölu Polaris Indy 650 árg. 89. Ekinn aðeins 2.400 mílur. Mjög vel útlítandi i toppstandi. Brúsa- og farangursgrind, farangurskassi úr áli. Gott staðgreiðsluverð. Uppl. í síma 91-685582 eða á sleðanum í farsíma 985-34561. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1991 3. flokki 1991 Innlausnardagur 15. janúar 1993. 1. flokkur 1991 Nafnverð: 10.000 100.000 1.000.000 Innlausnarverð: 12.284 122.843 1.228.429 3. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 10.931 100.000 109.306 500.000 546.532 1.000.000 1.093.065 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka ísiands Suðurlandsbraut 24. E&l HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS i LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900 * KNATTSPYRNUMÓT KSl' 1993 • ÍSLANDSMÓT • BIKARKEPPNIR • KEPPNI UTAN DEILDA Þátttaka tilkynnist fyrir 20. janúar til: KSÍ, íþróttamiðstöðinni, Laugardal, 104 Reykjavík. Upplýsingar og eyðublöð fást á skrifstofu KSÍ, sími 814444. Mótanefnd KSÍ Hin rúss- neska ungfrú heimur er umsetin svindlurum Eins og eðlilegt er þótti Rússum mikið til koma að eiga nú sína eigin ungfrú heim en hún var kosin í desember síðastliðnum með eins atkvæðis forskoti á bresku fegurðardrottninguna og vilja nú sem flestir eiga erindi við hana. En þar sem boðorðið þar í landi nú er frjáls markaðshyggja og einkaframtak hafa margir not- að tækifærið og ætla að maka krókinn rækilega á óvæntum frama stúlkunnar. Foreldrar Juliu búa í Moskvu og þeir hafa verið umsetnir hinum ýmsustu aðdáendum dóttur sinn- ar. Því miður eru þar mjög áber- andi alls kyns svindlarar og um- boðsstofur fyrirsætna sem halda því fram að Julia hafi gert samn- ing við þá og þeir eigi því rétt á hluta af verðlaununum sem eru ekkert smáræði. Auk kórónunnar nema þau 40.000 sterlingspund- um, 10 daga sumarleyfi og skart- gripum sem metnir eru á 12.000 sterlingspund. Julia hafði viðdvöl í London á heimleið til Moskvu og frést hefur að hún hafi gengið á fund rúss- neska sendiherrans, Bóris Pankin, og beðið hann að útvega sér ný Julia Kurotchinska, 18 ára rússnesk feguröardís, var vaiin ungfrú skilríki, nýja íbúð í Moskvu undir heimur í desember. Keppnin fór fram í skemmtiborginni Lost City I dulnefni og leynilegt símanúmer. Bophuthatswana í Suöur-Afríku. Díana prinsessa sigursæl í titlakjöri! Díana prinsessa af Wales hefur svo sannarlega ekki farið á mis við athygli á undanförnu ári. Lengi vel var henni og fjölskyldu hennar vorkennt fyrir allt það umtal sem hún fékk í fjölmiðlum en nú er komið á daginn að henni sjálfri og Karli prins manni hennar er um að kenna að ýmsar óskemmtilegar lýsingar á einkalífi þeirra birtust almenningi. Hvernig sem það samhengi er allt saman hefur Díönu aldrei gengið betur í kjöri lesenda spænska vikublaðsins HOLA! (systurblaðs hins breska Hallol) í niðurröðun á lista um alls kyns titla lið- ins árs. Hún var t.d. í fyrsta sinn valin glæsilegasta kona heims. Það er í fyrsta sinn sem prinsessan hlýtur þann heiður þó að hún hafi oft verið í ein- hverju af 15 efstu sætunum. í fýrra sigraði Karól- ína Mónakóprinsessa Díönu naumlega en nú fékk Díana næstum tvöfalt fleiri atkvæði en keppinaut- urinn. Næstum 33.000 spænskar dömur taka þátt í könnun blaðsins sem er álitin mikilvæg fýrirmynd um góða tísku og framkomu. í öðrum lið könnunarinar, þar sem spurt var um „mikilvægustu persónu í heimi", var Díana aðeins sjónarmun á eftir Bill Clinton en skaut páfanum og Magic Johnson ref fýrir rass. Díana fór í mörg ferðalög á árinu sem mjög voru í sviðsljósinu og á Spáni, eins og víða annars stað- ar, var vel fýlgst með atburðum innan bresku kon- ungsfjölskyldunnar. Díana prinsessa af Wales hefur vissulega veriö mikiö i sviösljósinu undanfarið ár enda hreppti hún sæti ofarlega á alls kyns vin- sældalistum tímarita fyrir áriö 1992.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.