Tíminn - 15.01.1993, Side 12

Tíminn - 15.01.1993, Side 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NÝTT OG FERSKT DAGLEGA ígg reiSholtsbakarí VÖLVUFELU 13-SfMI 73655 rW HOGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum GS varahlut LU Hamarsböíða 1 - s. 67-67 m Iíniinn FÖSTUDAGUR15. JANÚAR1993 Fulltrúa minnihlutans í umferðarnefnd borgarinnar meinað að leggja fram g bókun í umferðarnefnd: Astæóa til ai efast um áhuga formannsins „Ég verö að álykta sem svo aö meirihluti umferðarnefndar álíti borgarritara valdameiri en borgarráð og borgarstjóra og því spyr ég hver stjórnar borg- inni,“ segir Margrét Sæ- mundsdóttir, eini fulltrúi minnihlutans í umferðamefnd borgarinnar. Haraldur Blön- dal, formaður nefndarinnar, neitaði henni um rétt sinn til að leggja fram bókun á fundi nefndarinnar í desember s.l. Nú hefur borgarráð og borgar- stjóri ályktað að málið skuli tekið upp að nýju en formað- urinn vísar því til borgarritara og frestar afgreiðslu þess. „Ég tel að umferðarnefnd sé farin að vinna gegn umferðaröryggi með þessum starfsháttum þegar fundir snúast ekki um annað en að reyna að klekkja á minnihlutan- um. Það er aðalatriðið en umferð- armál eru aukaatriði," segir Margrét. í samþykkt borgarráðs sem er undirrituð af borgarstjóra segir: „Við leggjum til að fundarefnið svartblettir verði tekið aftur á dag- skrá á næsta fundi nefndarinnar. Fulltrúi Kvennalistans fékk ekki að leggja fram bókun varðandi af- stöðu sína á fundi nefndarinnar 17. desember þrátt fyrir ákvæði 41. greinar sveitastjórnarlaga.“ Á fundi nefndarinnar í gær lögðu fulltrúar meirihlutans, með for- manninn í broddi fylkingar, til að málinu yrði frestað. Þeir lögðu fram tillögu þess efnis að leita eft- ir umsögn borgarritara um það hvenær fulltrúar í nefndum og ráðum hafi heimild til að leggja fram bókun á fundum og hvernig efni þeirra eigi að vera. Margrét telur að með þessu séu fulltrúar meirihlutans að ganga fram hjá borgarstjóra og borgar- ráði. Hún lagði til að þetta erindi yrði ekki bara sent borgarritara heldur einnig leitað eftir úrskurði félagsmálaráðherra sem úrskurðar í deilum sveitastjómamanna. „Þeir töldu það ekki vera rétta meðferð málsins þar sem fyrst þyrfti að fá úrskurð borgarritara og síðan gæti ég sent málið til fé- lagsmálaráðherra,“ segir Margrét. „Eg tel að þetta sé farsi í umferðar- nefnd. Ég taldi engan tilgang með því að vera að bóka meira á þess- um stað og ætla með málið beint í félagsmálaráðherra," bætir Margr- ét við. Hún bendir á að fundarefnið sem henni hefur verið neitað um að bóka, ætti ekki að gefa tilefni til þessara viðbragða formanns. „Það átti eftir að laga tvær umferðaröld- ur sem voru á framkvæmdaráætl- un síðasta árs. Ég vildi bara benda á að ekki hefði verið farið eftir samþykktum tillögum," segir Margrét. —HÞ Tveir um tvö presta- köll Umsóknarfrestur um työ laus prestaköll sem biskup íslands auglýsti í desember sl. rann út 6. þessa mánaðar. Um Hólmavíkurprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi sótti séra Sigríður Óladóttir, sem kölluð var til þjónustu á Hólmavík í maí á síðasta ári. Um Þingeyrarprestakall í ísa- fjarðarprófastsdæmi sótti séra Ólafur Jens Sigurðsson, fanga- prestur í Reykjavík. Markús Öm Antonsson borgarstjóri skýrir út leyndardóma nýja leikfimihússins fyrir nemend- um Selásskóla. Tímamynd Áml Bjama Iþróttahús við Selásskóla Nýtt íþróttahús við Selásskóla var tekið í notkun í gær og er húsið fimmti áfangi skólans. Selásskóli er grunnskóli fyrir 6-12 ára börn og hefur húsið verið byggt í áföng- um. Fyrsti áfangi var tekinn í notkun í september 1986, annar í sept. 1988, sá þriðji í sept. 1991. Fjórði áfangi er enn í byggingu en áætlað er að lokið verði við hann fyrír 1. september á þessu ári. Nemendur Selásskóla eru nú 365. Skólastjóri er Kristín H. Tryggva- dóttir og aðstoðarskólastjóri er Anna G. Jósefsdóttir. Arkitekt hússins er Guðmundur Þór Pálsson. Teiknistofan við Óð- instorg gerði burðarþolshönnun, verkfræðistofan Kvasir hannaði lagnir, Tækniþjónustan sf., Sig- urður H. Oddsson hannaði rafkerfi og Landslagsarkitektar RV/ÞH hönnuðu lóð. —sá ...ERLENDAR FRÉTTIR... WASHINGTON Tilbúnir til meiri loftárása Bandariskl varnarniálaráöhenann Dick Cheney sagöi í gær aö ríkis- stjórn Bush væri reiöubúin aö láta sprengjum rigna aftur yfir Irak áöur en hún fer frá völdum, ef nauösynlegt er til aö fá Iraka til aö fara aö ályktun- um S.þ. I PARlS sagöi franskur hershöföingi aö bandariskar og breskar flugvélar heföu hæft 80% skotmarka en enn væri ekki vitað hversu mörg þeirra heföu veriö eyöilögö. I BAGDAD sóru írakar þess dýran eiö að svara loftárásunum en stjórn- arerindrekar sögöu aö Saddam Hus- sein, sem gerir sér vonir um aö eiga ný og betri samskipti viö nýjan Bandarikjaforseta, Bill Clinton, væri ekki liklegur til aö auka á átökin. Utan Mið-Austurtanda nutu loftárás- imar viötæks stuönings, þ.á m. I Rússlandi, en öflug andstaöa var lát- in (Ijós, jafnvel á Vesturiöndum. Almenningur i Arabaheiminum sagöist vera reiöur og vondaufur yfir þvl aö enn heföu Vesturiönd beitt valdi gegn Irak en hafi hvorki tekist að vemda múslima I Bosníu né beita refsiaögeröum S.þ. gegn Israel. I PARIS lagöi Boutros Boutros- Ghali blessun sina yfir aögeröirnar og sagði að yfirvöldum I Bagdad væri sjálfum um aö kenna aö brjóta gegn ályktunum S.þ. 1TEHERAN kallaöi forseti Irans, Ak- bar Hashemi Rafsanjani, loftárásir bandamanna .skammariega aögerö". SAO PAULO, Brasiliu Honecker áfram til Chile Fyrrum leiötogi Austur-Þýskalands, Erich Honecker sem er á leiö til Chile eftir aö hafa veriö látinn laus úr fang- elsi i Beríín vegna banvæns sjúk- dóms, fór i gær frá Brasiliu eftir skamma viödvöl til aö skipta um flug- vél. STRALSUND, Þýskalandi 48 drukkna meö pólskri ferju Pólskri ferju hvolfdi í ofsaveöri undan Eystrasaltsströnd Þýskalands f gær. Að líkindum dmkknuöu 48 af þeim 60 sem vom um borö, aö sögn lögreglu. BELGRAD Bosníu-Serbar kalla saman þingfund Leiötogar Bosniu-Serba hófust í gær handa um aö kalla saman þingfund til aö ræöa friöartillögur frá Genf undir pressu sex daga frests sem EB hefur gefiö þeim til aö styöja tillögumar. LONDON íbúar Sarajevo gíslar Utanríkisráöherra Bosniu, Haris Silajdzic, sagöi i gær aö ibúar Sarajevo væm í gíslingu meöan reynt væri aö ná pólitiskri lausn á ágrein- ingnum I Bosníu og þjáningar þeirra héldu áfram þrátt fyrir friðarviöræö- urnar i Genf. KIEV Kviknar aftur í í Tsérnóbýl 1 annaö skipti á tveim dögum varö eldur laus I Tsérnóbýl- kjarnorkuver- inu I gær, en þar varö einmitt versta kjarnorkuslys I heiminum fyrir sex ár- um, en enn sögöu embættismenn aö engin geislavirk efni heföu lekiö út. LÚANDA Bardagar enn Stjórnarherinn og uppreisnarmenn UNITA böröust í aöalbækistöövum skæruliöanna I Huambo I gær og ut- anrikisráöherra landsins sagöi aö friöarviöræöur til aö hindra nýtt borg- arastriö, fæm fram eins fljótt og mögulegt er. ANKARA Tyrkir skjóta á Kúrda Tyrkneskar flugvélar létu sprengjum rigna á fjallabúðir hins bannaöa verkamannaflokks Kúrdistans (PKK) í austurhluta Tyrklands í gær. A.m.k. 35 PKK skæmliöar féllu aö sögn hálf- opinberrar fréttastofu I Anatóllu. DENNI DÆMALAUSI „Ég vil heldurhafa flugumar.“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.