Tíminn - 22.01.1993, Page 1
Föstudagur
22. janúar 1993
14. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Forseti ASl harmar óbilgirni forsætisráðherra og sáttfýsiskort. Benedikt Davíðsson:
Stráksskapur og útúr-
snúningar í stað sátta
„Með aðgerðum rfldsstjómarinnar nú í nóvember og afgreiðslu fjárlaga í
desember, fínnst okkur í verkalýðshreyfingunni vemlega bmgðið frá þeirri
stefnu sem mörkuð var með samningunum 1990 og það þurfi að þrýsta á
með það að ná afleiðingum þeirra aðgerða til baka. Fólk sættir sig ekkert
við það að stjómarstefnan leiði beinlínis til atvinnuleysis og kjaraskerðing-
ar. Sé það pólitflc að reyna að koma í veg fyrir slíka stjómarstefnu, þá skal
ég viðurkenna að ég starfa pólitískt,“ segir Benedikt Davíðsson, forseti
ASÍ.
Tíminn ræddi við Benedikt í tilefni
ummæla Davíðs Oddssonar um að
starfshættir Benedikts sem forseta
ASÍ væru litaðir flokkspólitískum
hagsmunum - að hann starfaði „pólit-
ískt“ eins og forsætisráðherra orðaði
það „tæpitungulaust" í sjónvarpi í
fyrrakvöld.
„Ég er afar ósammála ummælum
forsætisráðherra um erlendar lántök-
ur, atvinnuieysi, skattamálin og margt
fleira sem hann setti fram á — mér
liggur við að segja — strákslegan
hátt,“ segir Benedikt.
Benedikt telur að Davíð hafi ekki tek-
ið eins efnislega á málum og mátt
hefði vænta af forsætisráðherra í þeim
erfiðleikum sem þjóðin stendur
frammi fyrir og beitt óábyrgum mál-
flutningi. „Davíð Oddsson sagði m.a.
að ég starfaði mjög pólitískt. Það er út
af fyrir sig rétL Ég vil starfa fagpólit-
ískt og ég tel þannig að það að mynda
vitlega atvinnustefnu sé pólitík. Á
slíka pólitík hefur skort hjá ríkis-
stjóminni. Hana vantar vitlega efna-
hags- og atvinnustefnu og það hef ég
gagnrýnt. Að Davíð fullyrði að ég starfi
pólitískt í merkingunni flokkspólit-
ískt, er hins vegar rangt og ekkert
annað en stráksskapur og útúrsnún-
ingar og á þeim grundvelli hef ég eng-
an áhuga á að ræða við forsætisráð-
herra," segir Benedikt.
„Ég átti satt að segja von á vitrænni
efnislegri umræðu frá forsætisráð-
herra í þeirri alvarlegu stöðu sem við
erum í - þegar fólk er að sjá hæstu at-
Félagsdómur úrskurðar í deilu fjármálaráðherra við
Sjúkraliðafélag íslands:
Sjúkraliðar
skulu blæða
Félagsdómur úrskurðaði í fyrra-
kvöld að vinnustöðvun sjúkraliða,
dagana 1.-3. desember, hafi verið
ólögleg og brotið í bága við ákvæði
laga um verkföll opinberra starfs-
manna.
Úrskurðurinn kemur til móts við
kröfur fjármálaráðherra. Málskostn-
aður var látinn niður falla en máls-
aðilar skulu hvor um sig bera eigin
kostnað af málinu. Sjúkraliðafélag
íslands hafði áður krafist þess að
Síldarút-
vegsnefnd
Gunnar Jóakimsson, 40 ára
viðskiptafræðingur, hefur ver-
ið ráðinn framkvæmdastjóri
Sfldarútvegsnefndar frá 1.
febrúar n.k.. Hann tekur við af
Einari Benediktssyni sem ráð-
inn hefur verið forstjóri Olíu-
verslunar íslands.
Gunnar hefur starfað hjá
Sfldarútvegsnefnd undanfarin
12 ár, en Einar hefur verið
framkvæmdastjóri nefndar-
innar frá 1. júlí 1976.
málinu yrði vísað frá en Hæstiréttur
hafnaði þeirri kröfu.
í dóminum felst að launagreiðend-
ur sjúkraliða geta krafist endur-
greiðslu tveggja daga iauna fyrir
hvern einn dag sem sjúkraliðar voru
fjarverandi frá vinnu. Launadeild
fjármálaráðuneytisins hyggst ekki
beita þeirri heimild en krefst endur-
greiðslu fyrir jafn margra daga og
sjúkraliðar voru fjarverandi.
—sá
Ný láns-
kjara-
vísitala
Seðlabanki fslands hefur reiknað út
lánskjaravísitölu sem gildir fyrir
febrúarmánuð 1993, lánskjaravísi-
tölu 3263.
Hækkun lánskjaravísitölu frá mán-
uðinum á undan varð 0,52%. Um-
reiknuð til árshækkunar hefur
breytingin orðið sem hér segir:
Síðasta mánuð..............6,5%
Síðustu 3 mánuði ..........3,3%
Síðustu 6 mánuði ..........1,8%
Síðustu 12 mánuði .........2,0%
Benedikt Davíösson,
forseti ASÍ.
vinnuleysistölur sem hér hafa sést -
þegar fólk, sem á annað borð hefur
vinnu, er að opna Iaunaumslögin sín
með minni verðmætum í en áður
vegna þess að skattar hafa hækkað og
skattleysismörk lækkað. Það er
ábyrgðarleysi af forsætisráðherra að
koma fram með þessum hætti.“
Þar sem flest verkalýðsfélög eru búin
að segja upp samningum og átök á
vinnumarkaði eru síður en svo óhugs-
andi þá kveðst Benedikt hafa vænst
einhvers skilnings á stöðunni hjá for-
sætisráðherra og sáttatóns. „Ég fæ
ekki séð að sáttalíkur hafi batnað við
ummæli hans. Ég held því að það sem
rætt hefur verið á fundum hreyfingar-
innar um allt land að undanförnu um
viðbrögð við stjórnarstefnunni, standi
enn óhaggað," segir Benedikt.
„Það væri slæmt ef við þyrftum að
fara verstu leiðina til að verja kjörin,
þá leið sem horfið var frá 1990. Það er
illt að vera í sífelldri baráttu við
stjómvöld sem eyðileggja þá samn-
inga sem við náum hverju sinni, eins
og reyndin var á árum og áratugum
áður þegar stjórnvöld breyttu verð-
lagsforsendum eftir að kjarasamning-
ar höfðu verið gerðir. Ég óttast að ver-
ið sé á ný að skapa slíkt ástand og það
er okkur mjög á móti skapi því að við
töldum okkur vera að leggja nýjan
grunn að samskiptum aðila vinnu-
markaðarins og ríkisvalds árið 1990
og þaðan í frá yrði samið um efna-
hagspólitíkina á vitlegum grunni,"
segir Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ.
—sá
Sjá einnig bls. 2.
Bóndadagur Þorrinn byrjar meö bóndadegi sem er í dag. Þaö var létt yfir Jó-
hannesi Stefánssyni veitingamanni í Múlakaffi sem hefur selt þorramat í 30 ár og byrjaði aö
undirbúa þorramatinn þegar í september. Hann segir að sífellt fleiri blóti þorra og merkir það
m.a. af stööugt vaxandi eftirspurn. Jóhannes býöur upp á bæði hlaöborð, hjónabakka svo og
trog sem er vinsælt af fyrirtækjum og stofnunum. Hann segir aö súrmetiö sé vinsælast en allir
eigi að geta fundið eitthvaö við sitt hæfi. Það er Jóhannes sem gægist ofan í trogin.
Timatnynd Ámi Bjama