Tíminn - 16.02.1993, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.02.1993, Blaðsíða 2
2 Tfminn Þriðjudagur 16. febrúar 1993 \ Vextir hærri en efnahagslegar forsendur geta skýrt með góðu móti: Raunvextir langtum hærri á íslandi en í öðrum löndum „Flest bendir til að vextir séu hærrí um þessar mundir en skynsam- legt getur talist í ljósi ríkjandi aðstæðna í þjóðarbúskapnum og þeirra horfa sem við blasa,“ segir í grein Þorsteins Ólafssonar í fréttabréfi Verðbréfaviðskipta Samvinnubankans. Þar leiðir hann í ljós að vandfundnir eru raunvextir hærrí en hér á landi. í saman- burði á raunvöxtum ríkisskuldabréfa til langs tíma í fjórtán löndum kemur í ljós að á íslandi eru þessir vextir 7,4% boríð saman við 4,6% að meðaltali í umræddum löndum. ') Raunvextir ríkisskuldabréfa í nokkrum löndum Skýringar: 1) Upplýsingar um vextl eru fengnar úr tímaritinu Economlat, 30. Janúar - 5. fobrúar 1993, og er hér um aö rœða raunávöxtun ríkisakuldabrófa til langs tíma. Vlö útrelknlng raunvaxta er miöaö viö spó OECD (OECD Economlc Outlook) um veröbólgu i hlutaöelgandi landi ó þossu ári. Raunávöxtun hór á landi er samkvœmt upplýsingum frá Veröbréfaþingl íslands i byrjun febrúarmánaöar. Þar við bætist að vextir hafa þar víðast hvar farið lækkandi að undanfömu. Þorsteinn telur flest rök mæla með vaxtalækkun og ekki óeðlilegt að stefna að lækkun raunvaxta ríkis- skuldabréfa í áföngum niður í 5%. Þorsteinn bendir á að háir vextir hafi einkum það hlutverk að koma í veg fyrir þenslu. Ljóst sé að hættumerkin séu önnur, fyrst og fremst mikiil sam- dráttur og atvinnuleysi. Við slíkar að- stæður geti háir vextir reynst skaðleg- ir því þeir haldi aftur af nýfjárfestingu og fjölgi gjaldþrotum fyrirækja og heimila. Fleiri gjaldþrotum fylgi aukið fjárhagslegt tap lánastofnana sem leit- ist við að bæta sér upp tapið með meiri vaxtamun. „Þetta samspil hárra vaxta, gjaldþrota og útiánstapa getur því komið af stað keðjuverkun sem smám saman magnar efnahagserfið- leikana." Nýlega vaxtalækkun í Þýskalandi, þar áður í Bretlandi og víða annars staðar í Evrópu og mikla vaxtalækkun í Bandaríkjunum fyrir um tveim árum má í aðalatriðum rekja til aðgerða stjómvalda til að glæða hagvöxt að sögn Þorsteins. Þorsteinn segir vexti hér á landi hærri um þessar mundir en efnahags- legar forsendur geti skýrt með góðu móti. Þeir verði ekki eingöngu skýrð- ir með halla á ríkissjóði því hann sé meiri í öllum hinum samanburðar- löndunum að Japan undanskildu. Lánsfjárþörf opinberra aðila sé að sönnu mikil en hún hafi samt farið minnkandi. Hrein lánsfjárþörf hafi þannig svarað til 10,5% af landsfram- íeiðslu í hitteðfyrra en stefni í 6,5-7% á þessu ári. Þar við bætist að lánsfjáreftirspum atvinnuveganna sé í lægð. Útlán til þeirra hafi ekkert aukist í fyrra og aukin eftirspum fyrirtækja eftir iánsfé sé ekki í augsýn. Og þar á ofan hafi nú hægt verulega á skuldaaukningu heimilanna. „Frá þessum sjónarhóli virðist því ekki tilefni til að viðhalda háum vöxtum". En af hverju iækka vextimir ekki sjálfkrafa þegar aðstæður á fjármagns- markaði breytast? Þessu segir Þorsteinn vandsvarað. Tvennt geti þó augljósiega Ieitt til tregðu af þessu tagi. Annars vegar hafi raunvextir verið háir alllengi og hins vegar sé fjármagnsmarkaðurinn hér á landi lítiii og tiltölulega einangraður. Við slíkar aðstæður sé alls ekki víst að vextir breytist viðstöðulaust í sam- ræmi við efnahagslegar forsendur. ,Af þessu má sjá að stjómvöld hafa hlutverki að gegna við ákvörðun vaxta, bæði vegna aðstæðna á fjár- magnsmarkaði og í hagstjómarskyni. Það getur einfaldlega verið skynsam- legt fyrir stjórnvöld að beita sér af þunga fyrir lækkun vaxta," sagði Þor- steinn. Þar sagðist hann ekki eiga við svonefnt „handafl" heldur að íslensk stjómvöld notuðu sömu aðferðir og aðrar þjóðir til að hafa áhrif á vexti. Við fyrrnefndar vaxtalækkanir, sem allar voru gerðar í því skyni að glæða hagvöxt, hafi stjómvöld alls staðar verið í aðalhlutverki. Þeirra þáttur sé oftast sá að lækka vexti í viðskiptum seðlabanka og lánastofnana, jafnframt því sem viðkomandi seðlabankar stuðli að vaxtalækkun með kaupum á verðbréfum. „Lykillinn að lækkun vaxta er auðvitað sá að stjómvöld lækki vexti í viðskiptum sínum á lána- markaði með því að auka peninga- magn í umferð. Þannig er staðið að vaxtalækkunum annars staðar og þannig má standa að vaxtalækkun hér á landi ef ekki er talin hætta á þenslu.“ Ráð Þorsteins em m.a. þau, að ríkið taki fyrirhuguð erlend lán fyrr á árinu og að Seðlabankinn kaupi meira af ríkisskuldabréfum en stefnt hefur ver- ið að. - HEI Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi Nýs vettvangs eftir stjórnarkjör í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur: Kratar hreinsa út fyrir kosningamar Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi náði ekki kjöri í aðalstjóm Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur í síðustu viku. Hún skýrir úrslitin þannig að for- ysta flokksins hafí hert tökin og losi sig við fólk með óæskilegar skoðanir í tengslum við óvinsældir ríkisstjómarinnar. .Afturhaldsarmurinn og ein- angmnarsinnamir em búnir að ná undirtökunum og fólk er að gefast upp fyrir þeirri staðreynd," segir Óh'na. Hvernig skýrir Ólína úrslitin? „Ég túlka þessa niðurstöðu í beinu sam- hengi við afstöðu Alþýðuflokksins til Nýs vettvangs. Það er ekkert vafamál að það em væringar innan flokksins útaf Nýjum vettvangi," segir Ólína. Þá bendir hún á að það séu einnig skiptar skoðanir innan flokksins á Sjálfstæðisflokknum og ríkisstjórn- inni. „Ég hef lent þeim megin að vera í andstöðu viö Sjálfstæðisflokk- inn í borgarstjórn og einnig verið í hópi þeirra sem hafa gagnrýnt for- ystu flokksins og ráðherralið útaf ákveðnum aðgeröum sem flokkur- inn hefur beitt sér fyrir," segir Ólína. Hún bætir við að þessi gagnrýni hafí aðallega komið fram innan flokks- ins. Henni komi ekkert á óvart að reynt sé að ýta sér út úr stjórnum og ráðum flokksins. „Ég er þó ekki ein í þessari stöðu og það hefur fleirum verið kastað út. Það em hreinsanir í flokknum. Þær byrjuðu á síðasta flokksþingi og hafa staðið síðan,“ segir Ólína. Hún skýr- ir þetta þannig að nú sé passað vel upp á það hvernig kosið sé í stjórnir í félögum flokksins. „Ég lít á þetta allt í samhengi við þá hörku vörn sem forysta flokksins er í annars vegar vegna aðgerða ríkis- stjórnarinnar og hins vegar vegna þessara blendnu tilfinninga Alþýðu- flokksfélaga í Reykjavík til Nýs vett- vangs," segir Ólína. Hún telur því að forysta flokksins sé að herða tökin á flokknum vegna óvinsælla aðgerða. „Niðurstaða stjórnarkjörsins er af- stöðuyfirlýsing þeirra sem vilja A- listaframboð. Þeir em hræddir um að rödd Nýs vettvangs geti truflað það dæmi,“ segir Ólína. Hún segir að það hafi vakið athygli sína að bæði formannsefni félagsins hafi keypt sér atkvæði inn í stjórnina Ólína Þorvarðardóttir segir aö hreinsanirnar í Aiþýðuflokki geti blásið lífi í Nýjan vettvang. með því að gangast ekki við Nýjum vettvangi. „Það segir einnig sína sögu því að báðir þessir aðilar vom í framboði og tóku þátt í prófkjöri Nýs vettvangs," heldur Ólína áfram. Ætlar Ólína að segja sig úr flokkn- um? „Ég ætla að fylgja flokknum eins og samviska hans. Ég ætla að standa á minni meiningu innan hans meðan ég hef þrek og taugar til í trausti þess að þessum fimbulvetri muni ljúka um síðir og þá taki við vor fyrir íslenska jafnaðarmenn. Ég viðurkenni þó að mér líður ekki vel að vera Alþýðuflokksmaður um þessar mundir," segir Ólína. Hún lítur samt ekki á þetta sem náðarhöggið fyrir Nýjan vettvang. „Það er ekki undir Alþýðuflokknum komið hvort Nýr vettvangur lifir eða deyr. Nú em hafnar óformlegar við- ræður við fólk í Alþýðubandalagi og Kvennalista," segir Ólína. Hún telur að ef Alþýðuflokkurinn segi skilið við Nýjan vettvang geti það jafnvel orðið til að bæta andrúmsloftið í þeim viðræðum. „Tilvera Alþýðu- flokksins í ríkisstjórn hefur verið mönnum mikill þyrnir í augum í þessum viðræðum. Náðarhögg Al- þýðuflokksins gæti því orðið til þess að blása lífi í Nýjan vettvang," segir Ólína. Hún telur að með þessari atkvæða- greiðslu hafi meirihluti fundar- manna ákveðið að vera ekki borgar- fulltrúa sínum til halds og trausts í borgarstjórn Reykjavíkur. -HÞ manni bjargað Ekki mátti tæpara standa er leitarhundur fann ungan mann sem týndist á Völlum á Fljótsdalshéraði aðfaranótt laugardags. Maðurinn fannst um hádegið á laugardag og var þá oröinn mjög kaldur. Hann mun hafa tekið þátt í þorrablóti að Iða- völlum og höfðu björgunar- sveitir með sérþjálfaðan leit- arhund leitað frá því fjögur um nóttina. Maðurinn féldc að fara heim á sunnudaginn og mun ekki hafa orðið meint af. -HÞ Einstaklingskeppni í norrænni skólaskák: íslend- ingar sigruðu íslendingar urðu efstir að stigum á móti í norrænni skólaskák sem lauk um helgina í Asker í Noregi. íslendingar fengu 36 stig í keppn- inni en Svíar urðu í öðru sæti með 34 stig. Danir vermdu þriðja sætið með 30 stig. Arnar Gunnarsson og Matthías Kjeld urðu í fyrsta og öðru sæti í sínum aldursflokki, 13-14 ára. Það sama var upp á teningnum í hópi 11-12 ára en þar sigraði Jón Viktor Gunnarsson en Bragi Þorfinnsson var í öðru sæti.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.