Tíminn - 16.02.1993, Qupperneq 8
12 Tíminn
Þriðjudagur 16. febrúar 1993
Agnar Helgi Yigfusson
Fæddur 29. júní 1937
Dáinn 3. febrúar 1993
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á ceðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðmirm breiðir.
(Einar Benediktsson)
Agnar vinur minn hefur verið
hrifinn á braut í blóma lífsins.
Hann kvaddi þegar vorið er í nánd
og myrkrið að víkja fyrir birtunni.
Eftir standa minningar um góðan
dreng, sem jafnan bar með sér
hressileika og jákvætt viðhorf til
þeirra sem hann umgekkst. Það
eru nú liðin rúmlega 20 ár síðan
við Agnar kynntumst, en þá vorum
við Agnes systir hans saman í
skóla. Agnar var þá í millilanda-
siglingum sem hann stundaði oft á
vetrum, en þegar voraði hvarf
hann norður í Skagafjörð þar sem
hann starfaði flest sumur, lengst af
á skurðgröfu hjá Ræktunarsam-
bandi Skagfirðinga. Eins og far-
fuglarnir fylgdi hann vorinu norð-
ur til æskustöðvanna, en þegar aft-
ur haustaði togaði útþráin og haf-
ið hann til sín.
Agnar var fæddur á Hólum í
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
Þingborg
Félagslundur
Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 15
verða alþingismennimir Jón Helga-
son og Guöni Ágústsson til viðtals I
Þingborg I Hraungeröishreppi og kl.
21 sama dag I Félagslundi I Gaul-
verjabæjarhreppi.
Kópavogur —
Opið hús
Opið hús er alla laugardaga kl. 10.00 - 12.00 að Digranes-
vegi 12. KafFi og létt spjall. Sigurður Geirdal bæjarstjórí
verður til viðtals.
Framsóknarfélögin
Framsóknarfélögin í
Hafnarfirði
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30.
Komið og fáið ykkur kaffisopa og spjalliö.
Framsóknarfélögin
Mývatnssveit
Föstudagur 19. febrúar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn i Hótel Reynihliö kl. 21.
Viötalstimi verður I Seli sama dag frá kl. 13-15.
Allir velkomnir.
Guðmundur Bjamason, Valgerður Sverrisdóttir, Jóhannes Geir Sigurgeirsson og
Guömundur Stefánsson.
Framsóknarflokkurinn
Guðni
Verslunarstjóri
Verslunarstjóri óskast að verslun okkar að Goðahrauni 1,
Vestmannaeyjum.
Reynsla í verslunarstörfum er nauðsynleg.
Upplýsingar gefa: Árni Benediktsson í Vestmannaeyjum í
síma 98-12052, Sigurður Kristjánsson kaupfélagsstjóri,
Selfossi, í síma 98-21208 og Guðmundur Búason að-
stoðarkaupfélagsstjóri, Selfossi, í síma 98-21207.
Kaupfélag Árnesinga,
Selfossi.
Hjaltadal, næstelstur sjö systkina
sem upp komust. Elstur er Guð-
mundur Hákon, þáÁsa (lést 1969),
Hörður Birgir, Þórhildur, Agnes og
Baldur Jón. Öll eru þau búsett í
Reykjavík, nema Þórhildur sem
býr í Fellabæ.
Eftirlifandi móðir hans er Elín
Helga Helgadóttir, sem býr í
Reykjavík, en faðir hans, Vigfús
Helgason, lést árið 1967. Elín
Helga er fædd á Núpum í Fljóts-
hverfi, V-Skaftafellssýslu, en Vig-
fús var fæddur á Hóli í Hörðudal í
Dalasýslu. Um fjörutíu ára skeið
var Vigfús kennari við bændaskól-
ann á Hólum og í Skagafirði eru
öll systkinin fædd.
Margmennið í kringum bænda-
skólann átti vel við Agnar og þar
undi hann vel uppvaxtarárin og
kynntist fjölda af ungu fólki og
minntist hann oft þess tíma.
Agnar var búfræðingur frá
bændaskólanum á Hólum. Einnig
útskrifaðist hann úr Garðyrkju-
skóla ríkisins í Hveragerði og var
öll ræktun honum hugleikin.
Fyrir 15 árum keyptu þau systk-
inin Agnar og Agnes sér íbúð að
Mávahlíð 19 í Reykjavík þar sem
þau héldu heimili saman. Þangað
var ætíð gott að koma og njóta
gestrisni þeirra, sem var einstök.
Má segja að sérhvert sinn, sem þar
var barið að dyrum, væri boðið til
veislu og hlýlegt viðmót, glaðværð
og góður hugur gerði hvern þann
ríkari sem frá þeim fór.
Hann giftist ekki né eignaðist
börn, en börn hændust að honum.
Hann fylgdist vel með systkina-
börnum sínum og börnum vina
sinna, sem mörg hver voru dugleg
að heimsækja hann.
Agnari var ekki tamt að láta frá
sér fara ill orð um nokkurn mann
og leiddi hjá sér slíkt umtal. Heið-
arleiki og hreinskilni voru eðlis-
kostir sem hann mat mikils, enda
voru það aðaleigindir hans. Gleði-
maður var hann og naut sín vel í
vinahópi, en ekki síður átti það vel
við eðli hans að una einn með
stöngina við skagfirska veiðiá, þeg-
ar dagur og nótt runnu saman í
eitt og miðnætursólin merlaði á
bárufaldi. Þá átti hann sín ævintýr.
Döggvað gras, mófugl á nætur-
rölti, lágur seiðandi niður árinnar
og sporðkast á lygnu. Þetta voru
hans bestu stundir, hans lífssin-
fónía. Og Agnar hefði örugglega
verið sammála Stephani G. Steph-
anssyni í eftirfarandi Ijóðlínum:
Ég ann þér, fjalls og fjarða hnoss,
með flaum og grunnstraum
tcerum,
sem jafn vel kannt að falla í foss
og fljóta í lygnum vaerum!
Og lykkjum þínum leiðum d
— sem leiðast sumra hugum —
ég aldrei gekk með græsku frá
négramdist þínum bugum.
Hann var sveitamaður í eðli sínu
og ekkert jafnaðist á við að anda að
sér fersku fjallalofti og vaka bjartar
skagfirskar nætur. Hann átti íbúð
á Sauðárkróki, sem hann bjó í þeg-
ar hann var fyrir norðan. Þangað
var gott að heimsækja Agnar og
margar voru veislumar þegar
þangað var komið.
Veturinn er að baki, hinsti vetur
vinar míns og framundan er vorið
og sumarið, nóttlaus voraldar ver-
öld við ysta haf. Sólin mun varpa
hlýjum geislum sínum yfir skag-
firska byggð, geislum sínum yfir
menn og málleysingja sem fagna
komu hennar sem boðbera lífs-
hvatans og lausnar úr doða vetrar-
ríkisins. Eitt verður þó ekki eins
og var. Agnar mun ekki axla stöng-
ina á bökkum árinnar sem honum
var kæmst, ekki lengur ganga
troðna slóð markaða af spomm
kynslóðanna. En í minningunni
mun hann lifa, eins og sérhvert
vor er fyrirboði sumarkomunnar,
bjartur, hlýr og traustur.
Innilegar samúðarkveðjur sendar
ættingjum.
Amheiður Guðlaugsdóttir
Svo erþví farið:
Sd er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnamir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Nú er mikill maður í okkar huga
látinn. Þegar við hugsum aftur
sækja margar minningar að. Það
u*
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma
Bríet Magnea Stefánsdóttir
Utboð
Bessastaðanefnd óskar eftir tilboðum í uppsteypu og
hluta frágangs tveggja nýrra húsa við Bessastaðagarð.
Húsin eru hvort um sig kjallari, hæð og ris, en 189 m2 og
172 m2 að grunnfleti. Verktími ertil 15. júní 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Almennu verkfræði-
stofunnar hf., Fellsmúla 26, 108 Reykjavík, 4. hæð, frá kl.
13.00 þriðjudaginn 16. febrúargegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 14.00 mánudag-
inn 8. mars 1993.
Bessastaðanefnd
andaöist á Dvalarheimilinu Skjólgaröi, Höfn Homafiröi, sunnudaginn 14.
febrúar.
Helga Pétursdóttlr Höröur Valdimarsson
Eystelnn Pétursson Aldfs Hjaltadóttir
Kristfn Pétursdóttir Ágúst Alfreösson
bamabörn og bamabamaböm
_______________________________________________________________/
var alltaf jafn gaman að umgang-
ast Agnar frænda, föðurbróður
okkar, alltaf líf og fjör í kringum
hann. Hann var óstöðvandi. Ef það
var eitthvað sem honum datt í hug
að framkvæma í dag, þá mátti það
varla bíða til morguns. Allt hálfkák
fór fyrir brjóstið á honum, hann
vildi kraft í hlutina. Hann hafði
ákveðnar skoðanir á öllu og var
óhræddur við að tjá þær. Hann
kom sinni lífsspeki á framfæri op-
inskátt og af krafti, þannig að fólk
hlustaði, og þannig hafði hann
áhrif á okkur sem umgengumst
hann.
Agnar var mikill áhugamaður um
mat og matargerðarlist og oftar en
ekki þegar við komum í Mávahlíð-
ina var töfruð fram veisla, gjarnan
með mat úr Skagafirði, því allt
sem þaðan kom var mest og best f
huga hans.
Hann var alltaf mjög góður við
okkur systurnar, en við vorum
heimagangar hjá þeim systkinun-
um í fríum okkar hjá pabba. Agnar
var mikið á millilandaskipum þeg-
ar við vorum yngri og var alltaf
spennandi að sjá hvað hann kæmi
með heim, því alltaf vildi hann
gefa öllum eitthvað sem gladdi.
Kannski er Agnari best lýst með
því hvað hann var gjafmildur með
afbrigðum og tryggur við sína, og
vildi hvers manns vanda leysa.
Þetta, ásamt því hversu hressandi
áhrif hann hafði á umhverfið,
hafði þau áhrif að fólk laðaðist
mikið að honum, enda var hann
mjög vinmargur maður.
Þegar við vorum litlar, brölluðum
við Agnar margt saman, en uppá-
haldsleikurinn var Li li klifurmús
og Mikki refur. Vildi hann oftast
endilega fá að vera Lilli klifurmús
af því hann var svo oft kallaður
Lilli. Það eru einmitt svona svip-
myndir í lífi manns sem gefa því
gildi. Við þökkum Agnari fyrir hin-
ar mörgu svipmyndir sem hann
setti í okkar líf, þær munu lifa í
hjörtum okkar. Okkur langar að
ljúka þessum pistli með fáeinum
lauslega þýddum orðum.
Þú ert einstakur
„Einstakur" er orð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru líkt
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
með brosi eða vinsemd
„Einstakur" lýsir fólki
sem stjómast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
JEinstakur“ á við þá
sem eru dáðir og dýr.nætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
,J£instakur“ er orðið sem best
lýsirþér.
(Teri Femandez)
Ásr. og Harpa
Harfc-dætur
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PONTUM BILA ERLENDIS
interRent
# i
j