Tíminn - 25.02.1993, Síða 9

Tíminn - 25.02.1993, Síða 9
Fimmtudagur 25. febrúar 1993 Tíminn 9 baráttu fyrir réttindum annarra. Maður sem stóð í fylkingarbrjósti launþegahreyfingarinnar í land- inu, maður sem stóð vörð um rétt verkalýðsins. Jón Agnar Eggerts- son var um árabil formaður Verka- lýðsfélags Borgamess. Hann sýndi það og sannaði með trúmennsku sinni og dugnaði að hann var verð- ugur fulltrúi í réttindabaráttu launþega. Auk þess að vera aðal- drifijöðrin í Verkalýðsfélagi Borg- amess til margra ára sinnti hann mörgum trúnaðarstörfum fyrir Al- þýðusamband íslands. Störf hans voru ekki alltaf þökk- uð. Ýmsir þóttust tilkallaðir að gagnrýna það sem þeim þótti mið- ur hafa farið, en þeir hinir sömu vom sjaldan tilbúnir að fórna sér til trúnaðarstarfa. Það vill því mið- ur of oft brenna við að auðveldara er að rífa niður en byggja upp. Það má segja með sanni um Jón að hann fór erfiðu leiðina. Hann byggði upp. Jón var einn ötulasti baráttumað- ur þess að hleypa héraðsfréttablað- inu Borgfirðingi af stokkunum og hefur frá upphafi borið hag þess fyrir brjósti. Það er ekki síst hon- um að þakka að Borgfirðingur hef- ur komið samfellt út frá upphafi. Fjölskyldur okkar Jóns tengjast nokkuð sterkum böndum. Eggert faðir Jóns var vetrarmaður hjá afa mínum og ömmu á Oddsstöðum veturinn 1928 til 1929, sem ku hafa verið sérlega mildur vetur. Einnig var vinskapur með afa mín- um og ömmu í Borgarnesi og for- eldrum Jóns. Þrátt fyrir þetta urðu kynni okkar Jóns því miður hvorki langvinn né mikil, en samstarf okkar var gott og mun ég minnast hans með hlýju. Ég varð þeirrar laerdóms- ríku lífsreynslu aðnjótandi að starfa með Jóni Agnari á lands- þingi ASÍ á Akureyri síðast liðið haust. Þangað fór hann og sýnir það kannski best trúmennsku hans og dugnað að hann lét ekki veikindi sín aftra sér frá að skila því sem honum var trúað fyrir. Fráfall Jóns Agnars er mikill missir. Missir fyrir samfélagið Borgames og nágrenni þess. Miss- ir fyrir launþegahreyfinguna í landinu. En missirinn er þung- bærastur fyrir fjölskyldu hans. Þeim votta ég innilegustu samúð mína. Konu hans og sonum, Ragnheiði, Eggert og Magnúsi. Móður hans Aðalheiði og systkin- um hans. Guð blessi minningu gæfu- manns. Olgeir Helgi Ragnarsson Látinn er Jón Agnar Eggertsson, langt fyrir aldur fram. Það eru víst komin um og yfir 20 ár síðan við Jón kynntumst. Það var á vettvangi Framsóknarflokks- ins þegar við vorum bæði ung og upprennandi. Síðar fékk ég þá flugu í höfuðið að reyna að verða þingmaður og í Borgamesi myndaðist merkilega stór og harður hópur sem studdi þá ætlun mína. Þar var Jón, óþreytandi að stappa stálinu í frambjóðandann sem óneitanlega var talsvert óreynd í hlutverkinu. Jón var ákaflega góður félagi og reyndur í félagsmálum þá þegar. Starfaði ötullega með framsóknar- mönnum í Borgarnesi og á Vestur- landi. Mér er það ákaflega minnisstætt að í prófkjörsslagnum einu sinni var ég stödd í Borgarnesi, en var á leið á fúnd að mig minnir í Loga- landi. Þetta var að haustlagi og gekk á með dimmum éljum og var talsverð hálka. Þarna keyrðu fram- bjóðendur á milli funda, hver á sínum bíl í halarófu. Jóni Agnari fannst þetta vera alveg út í hött og satt að segja aftók að ég færi ein. Svo að hann ók mér sjálfur og sagði mér sögur alla leiðina til að ég yrði ekki svo mjög skelkuð. Og kom mér aftur heilli á húfi í Borg- arnes að kvöldi. Ónefnd eru svo störf hans fyrir verkalýðshreyfinguna, en þar reyndist hann góður liðsmaður eins og vænta mátti. Kunna aðrir þá sögu betur. Okkar samband var ekki mikið seinni ár, en við höfðum það fyrir sið að tala saman í síma svona tvisvar á ári. Það var alltaf eins og við hefðum talað saman í gær. Ég vil með þessum fáu orðum kveðja góðan félaga, sem átti svo mikið eftir að starfa. Átti eftir að sjá drengina sína vaxa og dafna. Ég votta þeim og eftirlifandi konu Jóns ásamt móður hans og að- standendum öllum samúð mína og hryggð. Dagbjört Höskuldsdóttir, Grundarfirði í dag er kvaddur hinstu kveðju Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgamess. Með honum er genginn traustur og far- sæll leiðtogi og góður félagi. Á kveðjustund viljum við verslun- armenn þakka samfylgdina og samstarfið á liðnum árum. Fyrir 20 árum síðan hófst náið samstarf stéttarfélaganna í Borgarnesi, þeg- ar ráðist var í kaup á húsnæði fyrir starfsemi þeirra að Gunnlaugs- götu 1, en húsið var nefnt Snorra- búð. Þetta gjörbreytti allri aðstöðu félaganna og gerði þeim kleift að ráða starfsmann til að annast dag- legan rekstur. Árið 1974 var Jón kjörinn formaður verkalýðsfélags- ins og gegndi hann því starfi til dauðadags. Sama ár var hann kjör- inn í sveitarstjórn og sat þar í þrjú kjörtímabil, eða 12 ár. Störf sín rækti hann af mikilli samvisku- semi og áhuga og í störfum hans að verkalýðsmálum fór saman bæði vinna og áhugamál, sem óneitanlega er mikill kostur. Mál- efni neytenda voru honum ofar- lega í huga og átti hann stóran þátt í að Neytendafélagi Borgar- fjarðar var komið á legg. Ég átti þess kost nokkrum sinn- um að sitja samningafundi með Jóni fyrir hönd okkar stéttarfélaga. Hann var ákveðinn og fylginn sín- um málstað, en um leið sáttfús þegar ásættanlegar niðurstöður voru í sjónmáli. Það var greinilegt að hér fór maður með gífurlega reynslu af samningamálum og það var lærdómsríkt að starfa við hlið hans á þeim vettvangi. Jón ræddi oft nauðsyn þess, að sameina stétt- arfélögin í Borgarnesi í eitt öflugt félag. I nóvember sl. samþykkti fé- lagsfundur í Verslunarmannafé- lagi Borgarness að óska eftir við- ræðum við verkalýðsfélagið og ræða kosti og galla sameiningar. Því miður gátu þær viðræður ekki hafist eins og að var stefnt, en það væri verðugt verkefni að heiðra minningu hans með því að láta draum hans verða að veruleika. Lífsstarf hans helgaðist af því að búa betur í haginn fyrir borgfirskt verkafólk. Skapa því betri kjör, bættan aðbúnað, betri menntun og að það gæti eytt frítíma sínum í skapandi verkefni. Hann var ófeiminn að fara inn á nýjar braut- ir, ef það mátti verða til að styrkja grunninn undir árangursríkt fé- lagsstarf. Atvinnumálin voru hon- um ofarlega í huga og það tók á hann að horfa upp á vaxandi at- vinnuleysi, sem ekki síst bitnaði á hans fólki. Hann ræddi atvinnu- málin oft við okkur sveitarstjórn- armenn og kom á framfæri hug- myndum sínum, er mættu verða til þess að skapa fleiri störf. Við þökkum honum óeigingjarnt starf í okkar þágu, því það var fyrst og síðast velferð samferðafólks sem hann bar fyrir brjósti, en ekki eig- in metorð. Borgarnes hefur misst mætan son, sem með störfum sínum hef- ur lagt drjúgan skerf til uppbygg- ingar sveitarfélagsins. Eg votta fjölskyldu Jóns dýpstu samúð. Ég bið Guð að gefa eigin- konu og sonum styrk á kveðju- stund. Blessuð sé minning hans. Eyjólfur T. Geirsson FJÖLSKRÚÐUG FJÖLSKYLDA FORSETANS Bærinn Hope í Arkansas ber von- andi nafn með rentu. Vonandi bera afkvæmi staðarins von í brjósti, sem hjálpar þeim til að komast út úr þeim klípum sem þeim tekst að koma sér í. Margoft hefur komið fram að frægasti sonur staðarins, Bill Clinton núverandi forseti Banda- ríkjanna, átti ekki of auðvelda æsku. Faðir hans, William J. Blyt- he IV, dó í bílslysi þrem mánuð- um áður en Bill fæddist. Móðir Bills, Virginia, giftist Roger Clin- ton þegar Bill var aðeins fjögurra ára og saman eignuðust þau son- inn Roger. Roger eldri var ofbeld- ishneigður alkóhólisti, skaut einu sinni á konu sína með skamm- byssu en hitti ekki, og svo fór að Virginia gafst upp á hjónabandinu og þau skildu. Þau giftust þó aftur og þá tók Bill, 15 ára, upp nafn stjúpans í sáttaskyni. Roger eldri dó skömmu síðar úr krabbameini og Virginia var orðin ekkja í annað sinn. Hún var þó ekki lengi ein á báti, heldur giftist fráskildum hárgreiðslumanni, Jeff Dwire, 1968. Hann átti þá dóttur, Dianne, sem var 22ja ára, rétt eins og stjúpbróðirinn Bill Clinton. Þá var forsetinn tilvonandi farinn að heiman til náms og þau stjúp- systkinin hittust sjaldan, síðast við jarðarför Jeffs 1974 þar sem Bill flutti kveðjuorðin. Mörgum árum síðar giftist Di- anne Buford Welch, eiganda olíu- fyrirtækis, en hjónabandið var óhamingjusamt og hún reyndi að svipta sig lífi. Og nú tók hún upp áhættusamt líferni, hún fór að stunda rán með byssu að vopni. Hún var tekin föst fyrir að ræna banka og kleinuhringjasölu í Sug- arland í Texas á einum og sama deginum, en var látin laus til reynslu. Þá tók eiturlyfjaheimurinn við. 1986 fékk hún 45 ára fangelsis- dóm fyrir sölu og neyslu eitur- lyfja. Hún var látin laus úr fang- elsi vegna góðrar hegðunar í ág- úst sl., þegar kosningabarátta stjúpbróðurins stóð hvað hæst. Meðan stjúpsystirin lifði sínu hættulega lífi, var hálfbróðirinn Roger líka að feta sig áfram út í veröldina. Árið 1984 sat hann í fangelsi fyrir að gera tilraun til að smygla kókaíni til Bandaríkjanna. Hann hefur nú snúið við blaðinu, hefur framfæri sitt af að syngja rokk og ról og hefur nýlega undir- ritað 200.000 dollara samning við hljómplötufyrirtæki. Virginia ber nú nafn fjórða eigin- mannsins, Richard Kelley, fyrrver- andi heildsala, og á vonandi róleg efri ár í vændum. Hún verður ekki í vandræðum með að finna söguefni til að skemmta barna- börnunum sínum meðl í spegli Tímans Stjúpsystirin Dianne, fædd Dwire, hefur setiö inni fyrir vopnaö rán og eituriyfjabrask. Bill Clinton ólst upp við ótryggt fjölskyldumynstur. Roger Clinton, hálfbróöir forsetans, hefur lent í ýmsu, en er nú í góðum málum og er meö 200.000 dollara samning upp á vasann viö hljómplötufyrirtæki.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.