Tíminn - 25.02.1993, Page 12

Tíminn - 25.02.1993, Page 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTTOG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VÖLVUFELL113 - SÍMI73655 '/U' HOGG- DEYFAR Versiið hjá fagmönnum Ji varahlutir Hamarsböfða 1 - s. 674744 3 Iíminn FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 Norðurlandaráðsþing í Osló hefst á mánudaginn: Atvinnuleysi og fylgi- fiskar þess aðalmálið 42. Norðurlandaráðsþing verður haldið 1.-4. mars n.k. í norska þing- húsinu í Osló. Forseti Norðurlandaráðs, Ilkka Suominen forseti fínnska þingsins, setur þingið en að þingsetningu lokinni flytur Carl Bildt, for- sætisráðherra Svíþjóðar, norræna stefnuræðu og greinir frá stöðu mála hvað varðar nýskipan í norrænu samstarfí og helstu forgangsmál. Ákveðið hefur verið að atvinnuleysi og helstu afleiðingar þess, þar á meöal aukið kynþáttahatur á Norðurlöndum, verði aðalefni almennu umræðnanna sem verða á öðrum degi þingsins. Að almennu umræðun- um loknum hefjast umræður um málefni fastanefndanna sem standa yfír til loka þingsins á hádegi fímmtudagsins 4. mars. Fyrir þinginu liggja sex ráðherra- nefndartillögur og 12 þingmanna- tillögur. Þeirra á meðal er ráð- herranefndartillaga um nýjar áherslur á sviði menningarmála- samstarfs þar sem sérstök áhersla er lögð á norræn samskipti ungs fólks, kennara og listamanna, að- gerðir til að styrkja menningar- lega samkennd og þekkingu á nor- rænum tungumálum. Þá liggur fyrir þinginu ráðherranefindartil- laga um breytingar á Helsinkisam- komulaginu, sem oft er nefndur stjórnarskrá opinbers norræns samstarfs. Þessar breytingatillögur eru til komnar vegna þeirra breytinga sem nefnd trúnaðarmanna forsæt- isráðherra Norðurlanda, lagði til á síðasta ári að gerðar yrðu á nor- rænu samstarfi. Nú er m.a. lagt til að ráðherrar Norðurlanda verði ekki Iengur fúlltrúar í Norður- landaráði. Þó er gert ráð fyrir að þeir sæki áfram þing ráðsins og fjalli á sameiginlegum fundum með nefndum ráðsins um þau málefni sem til meðferðar eru. Ekki er búist við því að þingfull- trúar í Norðurlandaráði verði sátt- ir við þessa nýskipan og laganefnd ráðsins leggur til að Norðurlanda- ráð leggist gegn breytingunni. Þá er lagt til í tillögunni að áhrif Norðurlandaráðs hvað varðar skiptingu norrænu fjárlaganna milli samstarfssviða aukist, en fulltrúar í Norðurlandaraáði hafa lengi barist fyrir auknum áhrifum á norrænu fjárlögin og leggur laganefnd ráðsins til að 42. þingið samþykki tillögu um að vald Norð- urlandaráðs til að skipta fjárlögun- um milli samstarfssviðaverði ótví- rætt. Þingmannatillögur þær sem liggja fyrir þinginu eru m.a. um framtíð NORDEL, norræns raf- orkusamstarfs, um bresti í örygg- ismálum kjarnorkuveranna í Sosnovy Bor og Ignalina, um sjóð til að fjármagna hreinsun Eystra- salts, um könnun á forsendum þess að stofnuð verði norræn menningarmiðstöð í Flensborg og um skipulegar aðgerðir til að auka þekkingu norrænna ungmenna á sögu og þjóðfélagsaðstæðum í norrænum grannlöndum. Þá liggja fyrir þinginu tillögur um umönnun aldraðra, aðgerðir til að vinna gegn áfengisneyslu og um aukið norrænt samstarf um fé- lagsmál innan Efnahagsstofnunar SÞ fyrir Evrópu (ECE). Til þingsins er að venju boðið fulltrúum alþjóðlegra stofnana. Meðal gesta sem tilkynntir hafa verið til þingsins eru forseti rúss- neska þingsins, Rúslan Khasbúl- atov, sem verður fulltrúi Samveld- is sjálfstæðra ríkja, (CIS). Forræðisdeila Sophie Hansen og Halim Al í Tyrklandi: Dómi undir- réttar hnekkt Hæstiréttur Týrklands í Ankara ógilti í gær dóm undirréttar í Ist- anbul í forræðisdeilu Sophie Hansen gegn Halim Al. í dóms- orðinu segir að málsmeðferð undirréttarins hafi verið skrípa- leikur og ekki í nokkru minnsta samræmi við réttarfarsreglur. Málinu er þar með vísað aftur til und- irréttar og verður væntanlega tekið þar fyrir að nýju. Að sögn Sigurðar Péturs Harðarsonar, talsmanns Sop- hie Hansen, er það mat lögmanna.í Týrklandi að þar með hljóti Sophie samkvæmt tyrkneskum lögum að teljast réttmætur forráðamaður dætra sinna tveggja. —«á Tólf rannsókna- styrkir veittir Nýlega var úthlutað tólf styrkjum úr rannsóknasjóðum Krabbameins- félags íslands að heildarupphæð um 6 milljóna króna. í frétt frá félaginu kemur fram að tilgangur með styrkveitingum sé að efla rannsóknir á krabbameini hér á landi en oft hafi verið bent á að ís- land sé að mörgu leyti kjörið til að stunda slíkar rannsóknir. Rannsóknasjóðimir sem veitt var úr eru tveir. Annar heitir Rannsóknarsjóður Krabbameinsfélagsins og voru veitt- ir 4 styrkir úr honum að upphæð einnar milljónar króna. Hinn heitir Rannsókna- og tækjasjóður leitar- sviðs Krabbameinsfélagsins og var úthlutað átta styrkjum að upphæð 5 milljóna kr. Frá afhendingu rannsóknastyrkja Krabbameinsfélagsins: Frá vlnstri Erlendur Einarsson formaöur stjórnar Rann- sókna- og tækjasjóðs Krabbameinsfélagsins, Arthur Löve formaöur vísindaráös Krabbameinsfélagsins, Jón Þ. Hallgrímsson formaöur Krabbameinsfélags fslands, Laufey Tryggvadóttir, Tómas Guðbjartsson, Þórunn M. Lárus- dóttir, Sigurður Ingvarsson, Kristrún Benediktsdóttir, Tord Walderhaug, Jórunn Eria Eyfjörö og Helgi Sigurösson. ...ERLENDAR FRETTIR... WASHINGTON Samkomulag um neyðar- hjálp úr lofti Bill Clinton forseti og aöalrítarí S.þ., Boutros Boutros-Ghali, komust aö sam- komulagi um áætlun um aö varpa hjálp- argögnum I fallhlifum í austurhluta Bo- snlu I hemaöaraögerö sem báöir sögöu aö heföi aöeins takmarkaöa áhættu i för meö sér. I BRUSSEL veitti Manfred Wömer, framkvæmdastjóri NATO, áætl- un Bandaríkjanna stuöning sinn. SARAJEVO — Uppreisnarhermenn Serba náöu mikilvægu úthverfi i vestur- hluta borgarínnar á sitt vald og hertu þar meö kverkatak sitt á umsetinni höf- uöborg Bosníu. Starfshópur frá sjón- varpi Reuters fór inn i úthverfið Azici og fann þaö i rústum. MOGADISHU Bandarískir hermenn grýttir Bandarfskir hemienn skutu Sómala til bana þegar mörg þúsund stuönings- menn aöalstriöshena landsins, Moham- meds Farah Aideed, flykktust út á stræti borgarinnar, syngjandi .Niöur meö Am- eriku” og grýttu bandarísku hennenn- ina. NÝJA DELHI Á suðumarki Harkaleg átök vom I uppsiglingu I Nýju Delhi milli öryggissveita og þjóðemis- sinnaöra Hindúa sem voru ákveðnir í aö viröa aö vettugi bann yfirvalda á fjölda- fundi sem átti aö vera upphafiö aö her- ferö fyrir þvi aö kosningar fari fram hiö fyrsta. JERÚSALEM Ólíklegt að viðræður hefjist í bráð Ólíklegt viröist aö takist að koma friöar- viöræöum Araba og (sraela i gang á ný áöur en bandaríski utanrikisráöhenann Warren Christopher lýkur sendiferö sinni til Miö-Austurtanda i dag, aö þvl er haft er eftir embættismönnum sem standa viöræöunum nærri. SEOUL Táragas á námsmenn Lögreglan skaut táragasi til aö dreifa mörg hundruð námsmönnum sem geröu árás á menningarmiöstöð Banda- rikjanna i borginni Kwangju i suövestur- hluta landsins, að sögn lögreglu. SYDNEY Stefnuskrá Verkamanna- flokksins Paul Keating, forsætisráöhen'a úr Verkamannaflokknum sem dregist hefur aftur úr i skoðanakönnunum, iagöi ffam formlega stefnuyfirtýsingu sina til aö reyna að ná aftur forystunni fyrir kosn- ingamar i Ástariíu 13. mars. HAVANA Castro heldur kosninga- ræðu Fidel Castro forseti hvatti Kúbani í ræðu sem hann hélt i siöustu ræöunni fyrir eins flokks kosningar i landinu til aö standa fast aö baki sósialisku þjóðfé- lagskerfi I landinu f þvi sem hann kallaöi .styrkleikaprófun á hvort væri sterkara, kúbanska þjóöin eöa heimsveldis- stefna”. DENNI DÆMALAUSI „Gaman værí að sjá pabba reyna að baða kisulóm.“

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.