Tíminn - 04.03.1993, Síða 7

Tíminn - 04.03.1993, Síða 7
Fimmtudagur4. mars 1993 Tíminn 7 Stjórn Læknafélags Islands óttast afleiðingar flæðistýringar í heil- brigðiskerfinu: Eiga sjúklingarnir að þjóna kerfinu? „Það er skoðun Læknafélags íslands að hver einstaklingur skuli hafa heimilislækni, sem hefur heildaryfirlit yfir heilsuhagi hans. Sérhver einstaklingur leiti að öllu jöfnu fyrst til heimilislæknis síns, þarfnist hann hjónustu í heilbrigðiskerfínu. Jafnframt telur stjóm Læknafélags Islands að hver og einn skuli hafa óskoraðan rétt til þess að leita sér lækninga hjá hveijum þeim lækni sem hann kýs, án milligöngu annars læknis.“ Þetta segir í ályktun stjómarfundar Læknafélags íslands frá 16. febrúar sl., en félagið hefur sent þing- mönnum ályktunina. í henni segir ennfremur að flæðistýring í heil- brigðiskerfinu, sem ekki taki mið af áðumefndum grundvallarsjón- armiðum, samrýmist ekki stefhu Alþjóða heilbrigðismálastofnunar- innar um frjálst val einstaklinga til að leita sér læknisþjónustu. Slík stýring, sem feli í sér að hagsmun- ir einhvers kerfis eða einstakra lækna eða starfshópa skuli settir ofar hagsmunum sjúklinga, sé jafnframt í andstöðu við siðfræði alþjóðasamtaka lækna sem íslensk- ir læknar eigi aðild að. í siðareglum lækna séu ítarleg ákvæði um samskipti og upplýs- ingaskyldu milli lækna og um sam- skipti lækna við sjúklinga. Ákvæði þessi séu sett til þess að vemda og tryggja hag sjúklinga og rétt. Flæðistýring í heilbrigðiskerfinu, sem byggi einkum á fjárhagslegum sjónarmiðum, geti aldrei tryggt hagsmuni sjúklinga jafh vel og gildandi siðareglur lækna. Riðuveiki greinist í Hrunamannahreppi. Sig- urður Sigurðarson: Sparið hrúta og notið sæðingamenn Eitt helsta ráðið til að stemma stigu við riöuveiki er að stilla fjár- kaupum í hóf og nota frekar sæð- ingamenn en hrúta, því að hrútam- ir geta verið hættulegir smitberar. Þetta meðal annars kom fram í máli Sigurðar Sigurðarsonar, dýralækn- is á Keldum, á fundi á Flúðum í fyrrakvöld. Þar var til umræðu riöuveikin sem komið hefur upp á einum bæ í Hrunamannahreppi. Dagsbrún og Verkamannasambandið sendu baráttukveðjur á fund BSRB, en ekki ASÍ. For- maður BSRB: LAUNAFÓLK ÞARF AD NEGLA SIG SAMAN Á baráttufundi opinberra starfsmanna í Bíóborginni í vikunni hvatti Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, allt launafólk til að negla sig saman, í stað þess að láta sundra sér, í baráttunni um aukinn jöfnuð og til vemdar velferðarkerfínu. Gn ekki síst til að leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að íslenskt þjóðfélag verði „gert að tilraunabúi úreltra efnahagsúrræða; úrræða sem alls staðar hafa leitt til aukinnar misskiptingar og viðvarandi atvinnuleysis". ildarfélaga BSRB. Á fundinum vakti það athygli að bæði Verkamannafélagið Dagsbrún og Verkamannasamband Islands sendu baráttukveðjur á fundinn, en ekki ASÍ. „Ég held bara að menn hafi ekki lát- ið sér detta það hérna í hug og það sé ástæðan. Þegar menn skipuleggja fundi, þá hringja þeir út um allt og biðja um stuðningsyfirlýsingar. Það getur vel veriö að það hafi verið hringt hingað og beðið um Benedikt, en hann er erlendis. Það kann að vera skýringin," segir Lára V. Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. -grii Greinst hefur riðuveiki í einni tveggja vetra gamalli á á bænum Langholtskoti. Bóndinn þar, Unn- steinn Hermannsson, veitti athygli kláða hjá einni ánni í síðasta mán- uði og fýrir fáeinum dögum fékk hann svo úrskurðinn. Hann þarf því að farga öllum sínum fjárstofni, sem er um 270 fjár, en hann og faðir hans hafa Iagt mikla vinnu í rækt- unarstarf á fénu á síðustu áratugum. Jafnframt þarf Grímur Guðmunds- son, bóndi í Ásatúni, næsta bæ við Langholtskot, að sjá eftir fé sínu, sem þó er ekki nema nokkrir tugir. Ástæðan er sú að ær Gríms hafa ver- ið látnar ganga undir hrútinn í Langholtskoti. Að sögn Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis kom fyrir fjórum árum upp riðuveiki á bænum Efra-Lang- holti, næsta bæ við Langholtskot. Öllu fé í Efra-Langholti var fargað og var þar fjárlaust í tvö ár, eins og reglur gera ráð fyrir. Stóðu menn jafnvel í þeirri von að búið væri að útrýma riðuveiki á þessum slóðum. Svo hefur hins vegar ekki reynst vera. Sigurður segir að tilfellið nú gefi mönnum ástæðu til að fylgjast með fé um alla Árnessýslu og myndu forðagæslumenn sérstaklega aðgæta um vanhöld og veikindi sauðfjár, þegar þeir fara á stúfana í sína árlegu eftirlitsferð um miðjan þennan mánuð. —SBS, Selfossi „Við þurfum að bægja frá árás á það samfélag, sem tók alla þessa öld að byggja upp og sumir vilja nú brjóta niður. Það eru hrifnæmir menn, sem hafa heillast af tískubylgju einkavæð- ingar og frjálshyggju, menn sem vilja setja á markað allt, hvort sem það er lifandi eða dautt, líka velferðarkerf- ið.“ Hátt í 400 manns mættu á baráttu- fund BSRB í Bíóborginni, þar sem formaður BSRB og aðrir ræðumenn hvöttu félagsmenn sína til að greiða verkfallsboðun atkvæði sitt. Verði það samþykkt í félögunum, skellur á verkfall opinberra starfsmanna mánudaginn 22. mars n.k. í ræðu sinni sagði Ögmundur að op- inberir starfsmenn ættu um tvo kosti að velja: Annaðhvort að halda áfram að láta valta yfir sig og kyngja mögl- unarlaust öllum kröfum viðsemj- enda sinna, eða að spyma við fótum og styrkja samningsstöðuna með því að efna til vinnustöðvunar, ef ekki verður komið til móts við kröfur að- Boð bárust frá biluðum sendi Fokker-flugvél Landhelgisgæslunn- ar fór á loft í gær eftir að gervi- hnöttur nam boð frá neyðarsendi hér á landi. Ekki reyndist þó vera um slys að ræða. Boðin komu frá biluðum neyðarsendi, sem var í lít- illi flugvél í flugskýli á Hellu á Rangárvöllum. Bandarísk herflugvél heyrði í neyð- arsendinum skömmu eftir að gervi- hnötturinn heyrði í honum. Flugvél Landhelgisgæslunnar gekk vel að miða sendingarnar út og fóm menn frá björgunarsveitinni á Hellu í flug- skýlið og slökktu á sendinum. -EÓ Mesti gamanleikari allra tíma Nýjasta stórmynd Sir Richards Attenborough I Regnboganum: Snillingur- inn Charlie Chaplin Nú standa yflr sýningar á stór- mynd Sir Richards Attenborough um Charies Chaplin, kvikmynda- snillinginn ástsæia. Myndin flallar um ævi Chaplins, allt frá æskuárum hans í fátækt í London, listamannsfcrii hans ut- an og innan kvikmyndahehnsins og þar til hann deyr í hárri elli. Robert Downey Jr. leikur titil- hlutverk myndarinnar og hefur hann verið tilnefndur til óskars- verðlauna fyrir. Mcðal annarra leikara má nefna Dan Aykroyd, Geraldine Chaplin, dóttur Chap- lins, Anthony Ilopkins, Kevin Kline, Diane Lane, James Woods, auk annarra úrvals leikara. Virðisaukaskattur á gistingu og fóksflutninga: Alvarlegar afleiðingar „Slík aðgerð er vanhugsuð og myndi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir afkomu ferðaþjónustu í land- inu,“ segir í nýlegri ályktun aðal- fundar Ferðamálafélags Austur- Húnvetninga. Jafnframt er eindregið skorað á stjómvöld að falla frá hugmyndum um virðisaukaskatt á gistingu og fólksflutninga, þar sem það myndi veikja samkeppnisstöðu íslands sem ferðamannalands. Á aðalfundinum var formaður fé- lagsins endurkjörinn, en hann er Erlendur Eysteinsson á Stóru-Giljá. Þá var Ásrún Ölafsdóttir, hótelstjóri Hótels Blönduóss, kosin í stjórn í stað Elízu Guðmundsdóttur. -HÞ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.