Tíminn - 10.03.1993, Side 3
Tíminn 3
Miðvikudagur 10. mars 1993
Heildarloðnuaflinn
á vertíðinni rúm
600 þúsund tonn:
á miðunum
Það hefur verið fátt um fína
drætti á loðnumióunum síð-
asta sólarhring miðað við þá
mokveiði sem verið hefur und-
anfarnar vikur.
Það hefur m.a. leitt tfl
spennufalls á miðunum og þeir
svartsýnustu telja að vertíðin
sé búin en aðrir að það sé eðli-
legt að það dragi eitthvað úr
veiðinnl þegar ioðnan er farin
að hrygna.
Teitur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Félags ísienskra
fiskimjölsframleiðenda, segir
of snemmt að hlása vertíðina af
þótt minna aflist í augnablik-
inu en oft áður.
Rannsóknarskipið Ámi Frið-
riksson lagði af stað í ioðnu-
leiðangur í iok síðustu viku og
er reiknað með að skipið verði
úti fram undir miðjan mánuð-
inn.
Heildaraflinn á vertíðinni er
orðinn rúm 600 þúsund tonn
og því eru cftirstöövar kvótans
rúm 200 þúsund tonn.
í fyrra datt botninn úr vertíð-
inni 5. apríi og voru þá eftir
um 117 þúsund tonn af hefld-
arkvótanum.
-grh
Spánverjar eru óánægðir með EES-samninginn og ætla ekki að afgreiða hann fyrr en í haust. For-
maður utanríkismálanefndar segir að þetta hafi ekki áhrif á málsmeðferðina hér á landi:
Líkur minnka á að
EES taki
Minni líkur eru nú taldar á því að samningurinn um Evrópskt efnahags-
svæði taki gildi 1. júlí eins og stefnt hefur verið að, eftir að utanríkisráð-
herra Spánar lýsti því yfir í fyrradag að spænska þingið myndi að öllum lík-
indum ekki fjalla um samninginn fyrr en að loknum kosningum í október í
haust.
Formaður ráðherraráðs EB segir að
áfram sé stefnt að gildistöku 1. júlí og
Bjöm Bjamason, formaður utanríkis-
málanefndar, segir að yfirlýsingar
Spánverja hafi ekki áhrif á málsmeð-
ferðina hér á landi. Málið komi fyrir
Alþingi síðar í þessum mánuði.
Utanríkisráðherrar EB samþykktu
viðbótarbókun við EES-samninginn á
fundi í Bmssel í fyrradag. Bókunin
fjallar um ýmis atriði sem taka varð á
vegna þeirrar ákvörðunar Svisslend-
inga að gerast ekki aðilar að EES.
Menn deila um hvort bókunin sé
tæknilegs eðlis eða efnislegs. f henni
er gert ráð fyrir að samningurinn taki
gildi 1. júlí svo fremi sem hann verði
samþykktur á þjóðþingum aðildar-
landa EES.
Javier Solana, utanríkisráðherra
Spánar, sat ráðherrafund EB og sam-
þykkti bókunina. Eftir fundinn dreifði
hann aftur á móti yfirlýsingu á frétta-
mannafundi þar sem segir að það
markmið að EES- samningurinn taki
gildi 1. júlí sé óraunhæft. Tilboð EFTA
um innflutningsívilnanir á landbún-
aðarvömm, m.a. frá Spáni, sé ófull-
nægjandi. Jafnframt kemur fram í yf-
irlýsingunni að EES-samningurinn
verði ekki afgreiddur nema í tengslum
við Maastricht-samninginn. Solana
sagði auk þess á fréttamannafundin-
um að ekki væri nægilegur tími tii að
leggja samninginn fyrir það þing sem
nú situr og því yrði samningurinn
ekki tekinn til afgreiðslu á þinginu
fyrr en eftir kosningar sem fram eiga
að fara á Spáni í október.
Þess ber að geta að Spánn hefur ekki
gildi
samþykkt sjálfan EES- samninginn.
Spænska ríkisstjórnin stöðvaði af-
greiðslu samningsins þegar Sviss feldi
samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þingið á því eftir að fjalla um samn-
inginn og bókunina við hann.
Yfirlýsing Spánverja um að EES-
samningurinn verði ekki afgreiddur
nema í tengslum við Maastricht-
samning Evrópubandalagsins, flækir
málið enn. Sá samningur er ekki síður
umdeildur en EES-samningurinn.
Mest er andstaðan við Maastricht á
breska þinginu. í vikunni tapaði
breska ríkisstjómin í atkvæðagreiðslu
um breytingatillögu við Maastricht-
samninginn. Þetta þýðir að Maast-
richt-samningurinn verður ekki af-
greiddur í Bretlandi fýrr en í ágúst.
„Þessi nýjasta vending Spánar hlýtur
að vekja áhyggjur og ugg vegna þess
að EFTA-ríkin höfðu sérstaklega teygt
sig til að koma á móts við kröfur og
óskir Spánar. Sum þessara ríkja hafa
talið, til að mynda Finnland, að þar
hafi menn teygt sig afskaplega langt
íár
og Evrópubandalagið hafi gengið
mjög Iangt í sinni kröfuhörku gagn-
vart EFTA-ríkjunum,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra á Alþingi í
gær.
Davíð sagði að sér komi mjög á óvart
að Spánverjar skuli tengja samþykkt
EES-samningsins við afgreiðslu Ma-
astricht- samkomulagsins. Ráðherrar
annarra EB-ríkja hafi ekki gert það.
Bjöm Bjamason, formaður utanrík-
ismálaneftidar, kvaðst afar undrandi á
yfirlýsingum Spánverja og sagðist ekki
trúa því að þetta verði niðurstaða
þeirra. Hann sagðist enn trúa því að
EES-samningurinn taki gildi 1. júlí,
eins og stæði í bókuninni.
Bjöm sagðist ekki sjá ástæðu til að
breyta málsmeðferðinni hér heima
vegna þessa. Bókunin hafi verið kynnt
í utanríkismálanefnd. Hún verði síðan
lögð fyrir Alþingi í formi fmmvarps
fljótlega eftir að fulltrúar aðildarianda
EES hafa undirritað bókunina með
formlegum hætti þann 17. mars næst-
komandi. -EÓ
Færeyskir dagar
í Norræna húsinu
helgaður kynningu á Færeyjum sem trúbadúrsins Kára P. Dagskráin
ferðamannalandi og um kvöldið heldur áfram um helgina og verður
verða vísnatónleikar færeyska kynnt nánar seinna -HÞ
Færeysku myndlistarmennirnir Amariel Norðoy og Bárður Jákups-
son eru mjög ánægðir með undirtektir íslenskra sýningagesta.
w Myndlist í Færeyjum:
AHUGI MIKILL
Þessa dagana stendur yfir um-
fangsmikil kynning á Færeyjum og
færeysku samfélagi í Norræna hús-
inu í Reykjavík. Það er Norður-
landahúsið í Færeyjum sem hefur
undirbúið þessa dagskrá í sam-
vinnu við Norræna húsið og fleiri
aðila.
Ofarlega á dagskrá er færeysk
myndlistasýning sem ber heitið
Fimm Færeyingar. Sýningin er sam-
vinnuverkefni Norðurlandahússins í
Færeyjum og Norrænu listamið-
stöðvarinnar á Sveaborg við Hels-
inki. Héðan fer sýningin til Nuuk á
Grænlandi og þaðan víða um Norð-
urlönd.
í anddyri Norræna hússins eru
sýnd veggspjöldin sem Norður-
landahúsið í Færeyjum hefur gefið
út. Þar eru einnig staðsett kynnin
frá Ferðaráði Færeyja.
Næstu daga er boðið upp á margs
konar dagskrá. í kvöld kl. 20:30 er
Ld. dagskrá um höfuðskáld Færey-
inga, William Heinesen. Það eru
systkinin Annika Hoydal söng- og
leikkona og Gunnar Hoydal rithöf-
undur sem hafa sett dagskrána sam-
an en þau ólust upp í nágrenni við
skáldið.
í hádeginu á morgun þ.e. kl. 12:30
verður kvikmyndasýning um smíði
á kappróðrabát en þar er meistara-
verk á ferð um handverk sem er að
hverfa, segir í frétt frá Norræna hús-
inu.
Síðdegis heldur Óli Jacobsen, for-
maður Föroya Fiskimannafélags,
fyrirlestur sem heitir: „ein framtíð
við fiskivinnu ella olju.“ Hann fjallar
þar um framtíð Færeyja en Óli hefur
verið í forystu í sjómannafélaginu
um hálfrar aldar skeið. Annað kvöld
kl. 20:30 hefjast djasstónleikar með
færeyskum tónlistarmönnum sem
leika undir stjóm Brands Össurs-
sonar saxófónleikara.
Föstudagurinn 12. mars verður
„Kosturinn við að vera myndlistarmað-
ur í Færeyjum er sá mikli myndlistar-
áhugi sem þar rOdr,“ segja þeir Bárður
Jákupsson og Amareiel Norðoy. Þeir
eru tveir af fimm myndlistarmönnum
sem eiga verk á færeysku myndlistar-
sýningunni í Norræna húsinu.
Þegar verk þau sem eru á sýningunni
eru skoðuð, vekur athygli hversu litauð-
ug þau eru. Það taka þeir félagar undir
og benda á að mikil notkun á litum með
skírskotun til náttúrunnar, einkenni
færeyska myndlist fremur en annað.
Þeir eru mjög ánægðir með viðtökur
íslenskra sýningargesta og Amareiel
hefúr á orði að gestimir hafi verið eins
og sfid í tunnu en ekki færri en 700
gestir voru viðstaddir opnun sýningar-
innar á laugardaginn. Þá segja þeir að
taisvert hafi selst af myndum. Þeim þyk-
ir þetta minna á áhuga Færeyinga
sjálfra sem þeir segja vera mjög áhuga-
sama myndlistarunnendur.
Sjá þeir félagar einhvem mun á ís-
lenskum og færeyskum myndlistar-
mönnum? „Færeyskir myndlistarmenn
eru íhaldssamari en þeir íslensku sem
hlaupa frekar eftir erlendum stefnum
og straumum í myndlisL Það er samt
margt sem myndlistarmenn þessara
þjóða geta miðlað hverjir öðrum," segja
þeir félagar og eru sammála um það að
færeyska myndlistasýningin sé ágætis
sporíþessaátL -HÞ
NY FRIMERKI
3000
3000
í dag koma út ný frímerki. Fyrstadagsumslög fást
á pósthúsum um land allt.
Einnig fást þau með pöntun frá Frímerkjasölunni.
PÓSTUR OG SÍMI
Pósthólf 8445, 128 Reykjavík, Sími 63 60 51
VELKOMIN TIL U.S.A.
Sértilboð frá bandarísk-
um stjórnvöldum
Bandarisk stjómvöld gefa þér kost á aö sækja um og öðlast
varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1.
Dregið verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki-
færi til að setjast að í Bandaríkjunum og stunda þar vinnu.
(orðið handhafi „græna kortsins"). Umsóknarfrestur um dval-
arieyfi rennur út 31. mars nk. og því nauðsynlegt að bregð-
ast við strax, svo umsókn þín nái fram í tima.
Allir þeir, sem eru fæddir á (slandi, Bretlandi eða Irlandi
og/eða eiga foreidri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa
rétt til að sækja um þetta leyfi.
Sendið 45 Bandaríkjadala greiöslu fyrir hvem umsækjanda
til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar-
stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað
ógiftra bama undir 21 árs aldri.
Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas,
Texas, 75382, USA.
I I